12.4.2007
Ekkert skrifað hérna í rúma viku, svosem tíðindalaust. Áttum góða páskahelgi með tengdó. Elduðum páskalambið eins og lög gera ráð fyrir og svo langaði mig að elda humar í forrétt. Fann nú hvergi frosna humarhala og fór þá til fisksalans sem sagðist skyldu panta. Þegar ég kom að ná í þá daginn eftir blöstu við mér 3 lifandi kvikindi með teygjur um klærnar. Hafði nú reyndar ekki búist við svoleiðis en það var ekki aftur snúið. Þeim félögum var smellt inn í ísskápinn þar sem þeir fengu að dúsa þar til þeim var drekkt í sjóðandi vatni. Dáldið spes að setja eitthvað sem er lifandi ofaní pott og éta svo.
Var næstum farinn á Celtic-Motherwell á laugardaginn þar sem Theodór Elmar var í hópnum, en ég kynntist honum lauslega þegar vinir mínir skipulögðu steggjunina og höfðu samband við hann og Kjartan um að arrangera fótboltasessioni á Celtic Park. Veðrið var reyndar svo fínt að við notuðum það þess í stað til þess að fara upp til Loch Lomond til að spóka okkur. Celtic er einum sigri frá titlinum þegar 5 leikir eru eftir og vonandi að þetta klárist sem fyrst svo að Íslendingarnir fái eitthvað að spreyta sig.
Aumingja Rómverjarnir á Old Trafford, voru bara eins og vopnlausir skylmingaþrælar og gátu ekkert gert við stórsóknum ManU. Hrikalegt að sjá 3 ensk lið í undanúrslitunum, nokkuð sem fólk ætti að vera vanara að sjá gerast hjá ítölskum liðum. Greinilegt að valdahlutföllinn eru að sveiflast til Englands þar sem úrvalsdeildin er að fara að taka framúr Serie A og La Liga. Milan náði þó að bjarga heiðri Ítalanna. Juventus eru hressir þessa dagana með 7 stiga forskot á Genoa og fara væntanlega bráðum að tryggja sér serie A sætið aftur. Þetta verður þó erfitt á næsta ári fyrir mína menn og væntanlega að þeir þurfi 1-2 ár til að koma sér aftur í fremstu röð. Þó að ManU hafi slátrað Roma 7-1 þá er það ekki einsdæmi í sögu Meistaradeildarinnar að sjá svona tölur, en fyrir tveimur árum vann Lyon Werder Bremen 7-2 og samanlagt 10-3 í 16 liða úrslitunum, en Juventus eiga stærsta sigurinn í sögu CL. Þeir unnu Olympiakos 7-0, 2003. Miðað við hvernig ManU spilaði samt á þriðjudaginn eru þeir klárlega "the team to beat" í þessari keppni.
4.4.2007
Sakamál
Síðasta sumar var pólskri stúlku hérna misþyrmt og myrt í kirkju og líkinu komið fyrir undir gólffjölum. Hún vann í kirkjunni og böndin beindust að húsverðinum sem stakk af og var síðar handtekinn og virkaði sekari en syndin, hann hefur eflaust meira að segja boðið henni í kaffi...þ.e. syndinni. Þetta gerðist í sömu kirkju og Chris og Alison giftu sig í og væntanlega hefur sú pólska verið viðstödd athöfnina. Réttarhöldin yfir húsverðinum standa nú yfir og hefur nú lögmaður hans (hann er víst með high profile celebrety lögmann...veit ekki hvernig hann hefur efni á því) verið að rekja garnirnar úr prestinum, þeim hinum sama sem gifti Chris og Alison og nú kemur í ljós að hann átti í leynilegu sambandi við þá pólsku. Séra Gerry er nú á forsíðum slúðurblaðanna dag eftir dag þar sem eitthvað nýtt er dregið fram í dagsljósið og sú pólska virðist ekki hafa verið við eina fjölina felld. Man við Mark spjölluðum við kappann í veislunni og virkaði hann bara vel en ætli prestsferli hans sé ekki lokið vegna þessa.
Má segja að jafnteflið í Milanó hafi verið hálfgert sakamál, enda stuldur þar á ferð. Góður leikur í það heila....Milan sterkari og hefðu getað klárað dæmið. Fengu hjálp frá dómaranum sem gaf þeim fáránlegt víti en það er ekki að spyrja að þýska stálinu, rosaleg afgreiðsla frá van Buyten með síðustu spyrnu leiksins....vissi ekki að varnarmenn gætu klárað færin sín svona flott. Létt fyrir Liverpool, þeir komnir í undanúrslitin og vonandi verða einu fulltrúar Englands þar. Vonandi að Roma og Valencia klári sína leiki en ég á ekkert sérstaklega von á því. Gæti reyndar séð Man Utd vinna þessa keppni.
29.3.2007
Ég skil ekki þessa vitleysu varðandi þessa bresku hermenn. Burtséð hvort þeir voru í íranskri landhelgi eða ekki, þá er alltaf talað um að það eigi að sleppa konunni í hópnum (það er ein kona meðal þessara 15). Ég fatta það dæmi ekki alveg. Hún er hermaður nákvæmlega eins og allir hinir og skil ekki af hverju henni ætti að vera sleppt vegna þess að hún eigi krakka heima. Efast um að hinir 14 séu einhleypir og barnlausir. Íranskur diplómat sagði í fréttum í gær að lausn konunnar væri í vinnslu en ekki hinna en í dag hafa þeir dregið í land vegna framferði breskra stjórnvalda. Mér finnst það það eigi að sleppa öllum eða engum og að gera konuna að einhverjum píslarvætti með því að sýna hana nervösa vera að sjúga rettuna er bara eitthvað lýðskrum. Þegar öllu er á botnin hvolft er hún hermaður á átakasvæði, eflaust vel þjálfuð og fullfær um að sjá um sig sjálf. Hins vegar er annað mál að þessir Íranir eitthvað klikk.
27.3.2007
Helgin
Búið að vera mikið í gangi hérna, mamma og litla systir komu í heimsókn um helgina í tilefni 50 ára afmælis mömmu. Fórum slatta um helgina, Aberfoyle, Loch Lomond, Edinborg og Livingston, þægilegt að hafa bílinn og geta skroppið í svona ferðir. Fórum að sjá Chicago í gærkvöldi og ég hafði nokkuð gaman að því, þetta er hressandi músík og flottir dansar.
Okkur Christinu hefur verið boðið í mat á miðvikudagskvöldið þannig að ég mun missa af Skotland-Ítalía. Skotarnir spiluðu um helgina og unnu Georgíu (sem síðan hvenær er Evrópuþjóð....en það er önnur ella) og eru á toppnum á riðlinum. Svakalega vel gert hjá þeim, þar sem Ítalir, Frakkar og Úkraínumenn eru með þeim í riðli. Fyrir c.a. 4 árum voru Íslendingar fyrir ofan Skotana á Fifa listanum. Síðan þá höfum við verið að daðra við 100. sætið meðan Skotarnir hafa farið upp í 16. sætið!!! Skil ekki hvernig þeir komust svona hátt, þetta eru allt leikmenn sem eru í skoskum liðum eða neðrideildarliðum í Englandi. Við eigum leikmenn frá toppliði í toppdeild, toppliði í semi-toppdeild (Alkmaar) og svo tveim sæmilegum liðum í topp deild (Fulham og Charlton) og náum ekki almennilegum úrslitum. Miðað við stöðu mála þá er jafntefli mjög góð úrslit og svo er kominn tími til að vinna eins og einn leik gegn þessum Svíum og Dönum. Stemmingin er í hámarki hérna í Skotlandi yfir velgengni Tartan-hersins og skemmtileg auglýsing hefur verið í keyrslu hérna.

Þetta gæti svo auðveldlega verið yfirfært yfir á Ísland. Kannski það hefði verið nær þegar við vorum nálægt því að komast áfram undir stjórn Gauja. Ég vona allavega að það komi glory years aftur í íslenskan fótbolta og að maður geti vonað að Ísland eigi sjéns á HM eða EM sæti.
21.3.2007
Ég tel sjálfan mig vera nokkuð þolinmóðan náunga en stundum getur maður bara fengið nóg af því að vera dreginn á asnaeyrunum. Við erum að sækja um nokkra styrki hingað og þangað vegna verkefnisins, hentum inn umsóknunum í október, nóvember síðastliðnum. Ein stofnun sagði að svars væri að vænta í mars og það er komið og það var nei, allt í góðu með það. Hin stofnunin sagðist skyldu svara í janúar/febrúar og ekkert kom svarið. Það var hringt í þau í byrjun mars þar sem þau báðust afsökunar á seinkuninni og lofuðu svari í síðasta lagi í lok síðustu viku. Ekki er svarið enn komið á meðan lætur maður draga sig á asnaeyrunum.....eins gott að þau segi já og gefi okkur pening. Annað dæmi var það að ég hringdi á stað þar sem mig vantaði upplýsingar frá þar sem heimasíðan þeirra var ekkert sérlega ítarleg. Ég fékk svarið að það væri ekkert mál að senda á mig póst. Aldrei kom pósturinn og þremur símtölum síðar og reyndar einum tölvupósti hafa þau ekki enn nennt að svara mér. Maður er þó í aðstöðu þarna til þess að segjast ekki láta bjóða sér svona og maður snýr viðskiptum sínum annars staðar....lífið er of stutt til að standa í svona vitleysu. Þjónustulund getur stundum verið "underrated".
Topp 5 hefur verið í þónokkrum dvala, en here goes:
| The View: Same jeans |
| Emelie Simon: Fleur de saison |
| Travis: My eyes |
| Kaiser Chiefs: My kind of guy |
| Toggi: There must be an angel |
Celtic eitthvað að hiksta þessa dagana en eru með 8 fingur á titlinum. Þarf 3 sigra í viðbót úr næstu 9 leikjum. Það kemur. Hefði nú samt verið helvíti smart ef þeir hefðu getað klárað dæmið um miðjan mars eins og hefði getað gengið eftir....en við bíðum bara til apríl með titlpartýið.
13.7.2007
Við vorum á rúntinum um helgina. Keyrðum Kris, vinkonu Christinu til Prestwick á laugardagsmorguninn. Þegar við komum heim, horfðum við á Live Forever, sem er heimildarmynd um Brit-pop og kúltúrinn í UK með komu Tony Blair og New labor. Liam, Noel, Damon, Jarvis og fleiri góðir segja skoðun sína á tíðarandanum. Við Christina rökræddum um hvorir væru nú svalari, Noel/Liam eða Damon en hún er meira í Blur klúbbnum heldur en Oasis klúbbnum en hún er sammála að Roll with it er miklu betra lag en Country house. Liam fer á kostum í þessari mynd og lætur hverja vitleysuna eftir annarri út úr sér. Fyndnasta kommentið finnst mér alltaf koma frá Noel þegar hann lýsir endalokum britpoppsins sem því þegar þeir voru í studíói og junior S-club 7 voru í næsta upptökuherbergi og Noel hélt að þetta væru "special needs" krakkar sem fengu frían mat í stúdíóinu og var brugðið þegar Liam vissi hvað allir krakkarnir hétu og þeir yrðu næsta hit á vinsældarlistunum. Hrikalega fyndið.
Keyrðum svo til Melville kastalans þar sem Baldur og Svanhildur voru með Glitnisfólki í vinnuferð og tókum afternoon tea með þeim. Á leiðinni þangað í Mini-inum, dj-aði Christina playlista með best of Oasis, Blur og Suede. Betra að keyra með alvöru músík í eyrunum.
Agalegt þykir mér þó að fram fóru 2 fótboltaleikir um helgina sem enduðu 3-3 og ég sá hvorugan. Á sunnudeginum keyrðum við til East Kilbride og TomTom sagði okkur að fara í gegnum Parkhead þegar allir voru á leiðinni á Celtic Park. Þetta er officially það næsta sem kemst að sjá Old Firm leik á Parkhead. Leikurinn sjálfur tapaðist og hefur sett titilpartý Celtic aðeins á ís en þessi leikur skipti engu máli. Deildin er löngu búin
7.3.2007
Stórleikur í kvöld. Skyldi Celtic ná að hanga á jafntefli í Mílanó eða tapa þeir eins og venjulega gerist á útivöllunum hjá þeim. Er búinn að vera með í maganum í allan dag af spennu fyrir kvöldinu, það eru margir sem telja 1-1 líkleg úrslit og ég væri alveg til í það og Celtic yrði þá pottþétt dregið gegn Liverpool í næstu umferð. Þýðir ekki að hugsa um svoleiðis núna.....þeir þurfa að skora í kvöld hvað sem öðru líður.
Ekki er úr vegi að óska nýbakaðri móður henni Sigurlaugu til hamingju með frumburðinn. Vonandi að strákurinn erfi ekki skriftarhæfileika móður sinnar sem eru með þeim allra bestu, enda alltaf erfitt fyrir stráka að fá komment eins og "djöfull skrifarðu vel....þú skrifar eins og stelpa"
1.3.2007
Fórum í matarboð til Corrado og John í gær. Gott stuð þar. Corrado er tónlistarnörd af háu stigi og magnað að sjá safnið hans af hljómsveitabolum sem hann hefur sankað að sér í gegnum tíðina, innrammaðir tónleikamiðar, áritaðar Suede myndir og þess háttar má finna hjá kappanum. Það var nokkuð gaman að fara í gegnum ipodinn hans, við Christina fundum fullt af lögum sem við höfðum ekki heyrt lengi, þar á meðal lög með Poison, Whitesnake og þeim öllum þungarokkurunum með fáránlegu hárgreiðsluna sem voru áberandi fyrir c.a. 15 árum. Í dag raular maður bara með Unskinny bop fyrir þá sem muna eftir því lagi. Corrado býr á suðurbakkanum (þ.e. sunnan Clyde árinnar) og þá sjaldan sem maður fer þangað, villist ég yfirleitt. Með TomTom í för er ekki hægt að klikka, en það gerðist bæði á leiðinni til hans og á leiðinni heim (fórum ekki sömu leið tilbaka) að vegavinnukallarnir voru búnir að loka götunni svo að við urðum að snúa við. TomTom fann þó í bæði skiptin nýja leið á áfangastað. Við botnuðum svo Guns'n Roses á leiðinni heim...welcome to the jungle sem á einstaklega vel við þegar maður á leið um the south side. Aldrei fór ég nú á þessa tónleika þegar þessar þungarokks sveitir spiluðu í Kaplakrika, Reiðhöllinni og þeim öllum stöðum, en einir af fyrstu tónleikunum sem Christina fór á voru einmitt Guns'n Roses tónleikar á hinum stórskostlega velli Stadio Delle Alpi.
19.2.2007
Við Christina fórum á afar áhugaverða ítalska mynd í gær sem hét La strada di Primo Levi (ferð Primo Levi). Primo Levi þessi var ítalskur gyðingur sem komst af úr Auschwitz og heimför hans tók 8 mánuði þar sem hann ferðaðist í gegnum Pólland, Úkraínu, Hvíta-Rússland, Moldóvíu, Rúmeníu, Ungverjaland, Austurríki og heim til Ítalíu, þannig að það má segja að hann hafi farið löngu leiðina heim. Á 60 ára afmæli lokunar Auschwitz fóru kvikmyndagerðarmenn sömu leið og Levi og tóku púlsinn á stemmingunni í þessum löndum auk þess að segja frá sögu Levi, þannig að þetta var svona blanda af sögu og þætti í anda Þorsteins Joð (án fíflaláta). Agalegt hvað maður veit lítið um þessi lönd, þó sérstaklega Hvíta-Rússland og Moldóvíu en af myndinni að dæma virðist þetta vera dáldítil miðaldastemming í sveitunum þarna. Hafði gaman að þessari mynd.
Tveir snillingar fögnuðu afmæli um helgina, annar varð 31 og hinn var 40. Sá yngri er ritstjóri snilldar.net en sá eldri var einn sá allra allra allra besti í boltanum (með fullri virðingu fyrir hæfni hr. snilldar í boltanum), Roberto Baggio. Hann var ábyrgur fyrir mörgum gleði og sorgarstundum hjá undirrituðum fyrir framan sjónvarpið. Hann átti skilið að vinna heimsmeistaratitilinn 1994 en skaut yfir úr vítinu fræga. Baggio skoraði mörg eftirminnileg mörk á ferlinum sérstaklega fyrir Fiorentina og Juve. Hann var seldur fyrir mega-bucks til Milan en náði sér aldrei á strik þar, fór þaðan til Inter og gerði lítið. Á seinni hluta ferilsins fór hann svo á kostum fyrir Bologna og svo Brescia en auðvitað var hann langbestur fyrir Juve. Skoðum nokkur mörk með kappanum.
Snillingur
14.2.2007
Ástarsaga úr fjöllunum
Ástarsaga úr fjöllunum er bók sem ég las þegar ég var lítill og hafði gaman af, ætla að gerast svo djarfur að segja að þetta sé klassísk barnabók. Um jólin keyptum við nokkrar barnabækur sem Christina les fyrir mig (öskubuska, þyrnirós og þær allar) á íslensku og svo þýðir hún. Það hjálpar að hún þekki söguna fyrirfram. Hún er að verða þrælgóð í íslensku stelpan. Við keyptum einnig Ástarsögu úr fjöllunum sem við enduðum á. Hún var ekki par hrifin af boðskapnum í sögunni, tröllkarlinum var alveg sama um Flumbru og hún bara einstæð tröllamóðir með 8 tröllabörn. Einnig sést í brjóstin á henni í myndunum eftir þennan Pilkington gæja sem...tja....fór fyrir brjóstið á Christinu. Henni finnst stórskrýtið að svona bók skuli vera leyfð fyrir börn, sem sýnir brjóstagjöf og fjalli um einstæðar tröllamæður sem verða að steini þegar þær reyna að hafa upp á barnsföðurinum. Hvað finnst lesendum? Var Guðrún Helgadóttir bara að segja að lauslæti væri allt í lagi? Spurning.
Valentínusardagurinn í dag. Ég gaf Christinu ilmvatn og hún gaf mér bók um ítalska boltann. Ég hnoðaði í eitt stykki stórt focaccia í gærkvöldi og lét það hefast í nótt og bakaði í morgun, þannig að við fengum nýtt brauð í morgunmat. Höfum svo boðið fólki yfir í mat í kvöld og morguninn fór í að marinera kjötið og smella í eitt stykki vanilluís sem nú er að ís-ast í frystinum í hjartalaga formi....að sjálfsögðu.
Ítalirnir komnir á toppinn á heimslistanum, kominn tími til enda brassarnir búnir að vera milljón ár á toppnum.
Svo á litli bróðir afmæli í dag, við sendum náttúrulega bestu kveður héðan
13.2.2007
3 ára
Þessi síða er í dag 3 ára gömul. Með því fyrsta sem ég setti inn voru hugleiðingar um rangstöðutúlkun, en þessi taktík er ekki lengur í tísku. Fyrir þá sem ekki muna, þá fjallaði þetta um lið sem settu mann á stöngina sem hlaup út úr rangstöðunni í föstum leikatriðum. Þetta var allavega í tísku þá.
Ég hafði alltaf ætlað að hætta með þetta eftir árin 3 en ætli maður haldi þessu ekki eitthvað áfram, allavega þangað til að verður lokað á mig. Málið er að samningur minn við deildina er útrunninn og tæknilega er maður atvinnulaus. Hins vegar er verkefninu ekki lokið og satt best að segja ekki alveg útséð hvenær því lýkur. Við höfum sótt um aukafjármagn og bíðum svars sem vonandi mun koma á næstu dögum. Verði það neikvætt, er ljóst að ferli mínum í Strathclyde er lokið, má segja að maður sé hálfgerður Bosman. Hef allavega enn aðgang að byggingunni og get loggað mig inn á tölvurnar en líklegast mun það renna út eftir nokkra mánuði verði samningurinn minn ekki endurnýjaður. Meðan er maður bara að skrifa á fullu og vonandi nær maður að klára þetta eftir "endanlegan tíma". Sjáum hvað setur með afdrif síðunnar en vonum að IT fólkið slökkvi ekki á manni alveg strax.
8.2.2007
Bíllinn er ennþá í síkinu, hvort einhver hafi verið í honum skal ósagt látið en löggan virðist allavega ekkert vera að stressa sig yfir að fjarlægja hann. Það er búið að vera kalt hérna og síkið frosið. Af neðangreindum myndum sést bíllinn úti í miðju síkinu og hvernig hann komst þangað heldur áfram að vera mystería
|
|
Eins og sést af seinni myndinni er hvergi hægt að komast að til þess að keyra hann í síkið. Einhver hefur haft mikið fyrir því að koma skrjóðnum á þennan stað.
Allt er í uppnámi hérna í Skotlandi vegna lokun vallana á Ítalíu. Ástæðan er sú að Celtic munu spila við Milan eftir tæpar tvær vikur og skoska landsliðið mun spila við það ítalska í lok mars. Landsleikurinn á að fara fram í Bari og hafa menn hérna þegar bókað flug og gistingu þar en eins og San Siro, uppfyllir leikvangurinn í Bari ekki þessar öryggiskröfur. Talað er um að flytja leikinn til Rómar og Celtic leikinn til Frakklands sem kemur illa niður á Skotunum sem eru löngu búnir að ganga frá allri ferðatilhögun til Milanó og Bari. Einnig er óánægja í borgunum þar sem þessir 6 vellir eru. Borgaryfirvöldin á Ítalíu eiga oftast vellina en ekki félögin og þau hafa lagt út fullt af pening til þess að ganga frá öryggismálum en nú ætlar ríkið að borga fyrir breytingarnar á völlunum...og eðlilega segja þessar 6 borgir..."hey hvað með okkur?", þær virðast hafa tapað á því að hafa öryggismálin í lagi. Hinar borgirnar fá free upgrade eins og það heitir á tölvumálinu. Þetta er ansi slæmt mál fyrir ítalska boltann eftir það sem á undan er gengið. Þess ber þó að minnast að lögrelgumaður lét lífið í óeirðum milli PSG og Marseilles (að mig minnir) fyrr í haust án þess að það fengi jafnmikla athygli og málið á Ítalíu. Ekki það að það hafi ekki skipt máli, heldur er fótboltaofbeldi ekkert sér-ítalskt fyrirbrigði, heldur alþjóðlegt vandamál. Áhangendur Liverpool ættu nú ekki að kasta steinum í glerhúsi með að blammera Ítali um bulluskap. Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála á Ítalíu og spurning hvort þeir geti ekki tekið Bretland sér til fyrirmyndar enda hefur bulluskapur hér inni á völlunum og fyrir utan minnkað mikið síðan tekið var almennilega á þessu.
5.2.2007
Bíll í síkinu
Við Christina vorum að rölta í gær meðfram síkinu sem liggur rétt fyrir ofan hjá okkur. Venjulega er slatti af drasli þarna og við fórum í keppni um hvor fyndi "betra drasl". Ég taldi mig vera kominn í góða stöðu með að sjá tölvu við síkið en Christina toppaði þetta með að spotta bíl á kafi í miðju síkinu. Þetta þótti okkur nú grunsamlegt og spáðum í því hvernig hann gæti hafa komist þangað, þar sem engin hjólför eru við bakkann og í raun varla hægt að keyra bíl upp við síkið og ekki getur straumurinn hafa ýtt honum þar sem það er enginn. Við fórum með þetta til löggunnar sem kom og tékkaði á þessu og staðfesti að þetta væri bíll. Í morgun fékk ég svo símtal um að sýna löggunni aftur hvar við fundum bílinn, nú kom underwater search unit bíll með græjur og alles. Mann langaði nú mest til þess að fylgjast með þessu en fór í vinnuna. Kannski maður tékki á stöðunni á eftir þegar maður fer heim. Þetta er smá mystería með þennan bíl og spurning hvort Taggart verði ekki bara settur í málið. Allt að gerast í Maryhill.
Það hefði nú betur átt að henda þessum Benitez gaur í síkið. Leiðindaskítakomment eftir leikinn um að Everton sé lítið lið. Veit nú ekki betur en smáliðið sé með betri árangur í innbyrðis viðureignum liðanna þetta tímabilið. Alveg óþarfi að koma með svona komment eftir leikinn, fín taktík bara að leggja áherslu á varnarleikinn....veit nú ekki betur en að Andy Johnson hafi fengið besta færi leiksins.
Derby slagir eru alltaf eldfimir og allt sprakk í loft upp á Sikiley, í leik nágrannaliðanna Palermo og Catania. Einn lögregluþjónn lá í valnum og nú hefur ítölsku deildinni verið frestað ótímabundið vegna skrílsláta Sikileyingana. Hrikalegt þegar svona gerist.
2.2.2007
Derby leikir
Hjá Guardian fer fram upphitun fyrir borgarslaginn í Liverpool, skemmtileg lesning, mæli með henni og þá sérstaklega kommentunum sem fylgja. Einn athyglisverður punktur kom fram hjá einum varðandi þessa derby slagi, ef það er ekki meira undir en bara fótboltaleikur t.d. eins og pólitík, trú og gagnkvæmt hatur þá er það ekki derby leikur. Dæmi um derby leiki væru t.d. Celtic-rangers, Madrid-Barca, Lazio-Roma, Boca Juniors-River Plate, Galatasary-Fenerbache og svo minntist einn á hrikalega leiki sem væru milli Rauðu Stjörnunnar og Partizan í Belgrad. Þetta eru alltaf merkilegir leikir og alltaf liggur eitthvað að baki sem því miður virðist oftast kristallast í ofbeldi utan vallar eða innan. Minnistætt þegar króatíski Zvonomir Boban fór að berjast við serbnesku lögregluna í leik Dynamo Zagreb og Rauðu stjörnunnar við upphaf Balkanstríðsins og er það líklegast dramatískasta dæmið um þegar upp úr sýður í þessum leikjum.
Rígurinn milli Everton og Liverpool er öðruvísi, ekki eins aggressívur. Ekki er óvenjulegt að innan sömu fjölskyldunnar rúmist bæði Everton menn og Liverpool menn og flestir frægustu leikmenn Liverpool voru Everton stuðningsmenn í æsku s.s. Ian Rush, Gerrard og McManaman. Maður reynir að ná leiknum á morgun og verða tilbúinn að senda (og að taka við) sms ef Everton vinnur (eða tapar). Það væri frábært ef þeir bláu gætu endurtekið leikinn frá því í september þegar Liverpool voru rassskelltir 3-0.
31.1.2007
Það var nokkuð skondin ein fyrirsögnin í ítölsku pressunni í vikunni um að það væri nýr skandall í uppsigi á Ítalíu. Ástæðan er sú að Ronaldo stóðst læknisskoðun hjá Milan.
Er svo ekki öllum sama bara um þennan handbolta. Íslendingar eru kjánar að halda að þeir geti unnið Dani í einhverju. Hvort sem það er í fótbolta eða einhverri annarri íþrótt þá nær liðið ágætis "rönni" og næsti leikur er gegn Dönum og bjartsýnin í hámarki og svo fá menn smá reality check þegar þeir tapa fyrir þeim. Þetta gerðist síðasta haust....3-0 gegn N-Írum og maður leyfir sér að vona að það sé eitthvað að gerast en svo töpum við fyrir Dönum í næsta leik...enn og aftur. Spilum við þá á Parken einhvern tímann á árinu og liggur við að maður voni að við töpum bara ekki stærra en 3-0. Danir eru óþolandi.
Þetta er hrikalega fyndið. Kemur að sjálfsögðu frá snillingunum hjá Guardian: "My friend just emailed me to say he's seen the entire Spurs first team, on a coach, in the vacinity of the Emirates Stadium. Is this going to be one of the biggest transfer coups ever?" (þess má geta að Arsenal spilar við Tottenham í kvöld í deildarbikarnum)
24.1.2007
Stuart Murdoch er góðvinur okkar í Maryhill. Sáum hann núna í Tesco á Maryhill road að kaupa í matinn. Þetta var svona móment hjá okkur Christinu "...er þetta hann...er þetta ekki hann...er þetta hann...jú þetta er hann" og við hringsóluðum þarna í kringum ganginn þar sem hann var að spá í hvað hann ætti að hafa í matinn. Aldrei fer maður þó upp að þessum köllum og lætur í ljós aðdáun sína á því sem þeir hafa gert. Spurning hvað maður eigi að segja..."I'm a big fan and think your music is great...byebye" eða eitthvað annað álíka hallærislegt. Maður þorir ekki af þeim ótta við að hann segi manni bara að fokk off, það myndi taka aðeins gljáann að hlusta á Belle&Sebastian plötur sem væri agalegt. Spurning um að fara héðan af alltaf í Belle&Sebastian bol þegar maður fer í Tesco í þeirri von að Stuart sé þar. Hann býr nefnilega einhversstaðar ekki langt frá okkur...okok við búum svosem ekkert í besta hverfinu í Glasgow en borgin er hönnuð þannig að það er oftast mjög stutt á milli mjög smart hverfa og þeirra sem eru minna smart og Christina spottaði hann í sama strætó og hún tekur til að komast heim frá Glasgow Uni.
Ég er að gera góða hluti í fantasy football um þessar mundir, liðið mitt í ensku deildinni er í 120. sæti yfir allt Bretland, á toppnum í Oasis deildinni (3. sæti yfir Ísland) í uefa leiknum og á toppnum í BBC tippdeildinni. Maður á samt eftir að klúðra þessu áður en veturinn er úti en um að gera...swingin' when you're winnin' eins og feiti dansarinn orðaði það
22.1.2007
Lenti í því um helgina að giftingarhringurinn datt af mér. Hann fannst á stofugólfinu og maður prísar sig fyrir að hann hafi ekki lent annars staðar. Málið er að það er nokkuð kalt hérna og fingurnir dragast saman í kuldanum nóg til þess að hringurinn verði óstöðugur. Þar sem er búið að grafa á hann er ekki hægt að þrengja hann, en spurning hvernig maður lagi þetta vandamál. Maður sér 3 möguleika í stöðunni 1) að fá sér pínulítinn hring undir giftingarhringinn til þess að festa hann betur 2) fara að úða í sig djúpsteiktum mat og vona að maður fitni 3) að flytja til heitari landa. Maður spjallar við skartgripasalann og spyr hann hvort hann hafi einhverjar lausnir. Í millitíðinni verður maður bara að passa sig og ef hringurinn er mjög laus, þá setti ég hann bara á vísifingur. Það er samt eitthvað gay merki að hafa hring á ákveðnum fingri, veit ekki hvaða fingur það er....vonandi að það sé ekki vísifingur.
Tókum bíó um helgina. Sáum myndina um Ms Potter annars vegar og Mr. Rocky hins vegar. Myndin um fröken Potter er bara svona feelgood chickflick sem fólk ætti að hafa gaman að og þá sérstaklega þeir sem lásu sögurnar um Peter Rabbit. Rocky er enginn smá nagli og harður stuðningsmaður Everton. Verð að viðurkenna að ég hafði gaman að boxaranum og nú langar mann bara að fara inn í lyftingarsalinn og refsa nokkrum lóðum. Stallone mætti samt opna munninn þegar hann talar. Ég hefði þurft að hafa enskan texta þegar kappinn tjáði sig.
19.1.2007
Goldenballs
Beckham hefur aldrei verið í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér, frábærar aukaspyrnur, fyrirgjafir og 60m sendingar og svo getur hann verið vinnuþjarkur þegar hann nennir því en fyrir utan það bara svona meðalspilari. Það hefur verið erfitt fyrir hann að standa undir hype-inu í kringum sjálfan sig en svo virðist sem að eftir HM hafi allt farið í vaskinn hjá greyið kallinum. Mér fannst nú ómaklega að honum vegið þegar honum var hent öfugum út úr landsliðinu, auðvitað var hann að biðja um minna hlutverk í liðinu þegar hann sagði af sér fyrirliðastöðunni (þ.e. að hann hefði getað byrjað einhverja leiki á bekknum) en það var full harkalegt að henda honum alveg út úr hópnum. Svo hefur Capello ekkert verið að nota hann mikið....high profile transfer til Madríd fyrir tæplega 4 árum, að vinna bikara og spila með stórstjörnuliði en ekkert gerðist og Capello hefur nú hent honum út úr hópnum eftir samninginn við LA Galaxy. Fyrir nokkrum dögum var forseti Real að hrauna eitthvað yfir Becks en var gómaður af blaðamanni sem birti upptökuna og á fundi með leikmönnum liðsins lét Beckham forseta Real fá það óþvegið (enda voru þetta víst hreinar og klárar lygar sem þessi Calderon forseti lét út úr sér). Nýjasta slúðrið segir svo að Capello hafi orðið hrifinn af þessu hjá Becks...loksins sýndi hann smá skap og karakter. Það skyldi þó aldrei vera að Beckham fái að spila aftur fyrir Alvöru Madríd, það gæti þó verið erfitt að vinna eitthvað á síðasta tímabilinu, nokkuð á eftir í deildinni, dottnir út úr bikarnum en eru enn með í Meistaradeildinni. Æ-i verður maður ekki að vona að kallinn verði ekki alveg frystur fram á vor. Ég geri nú ekki ráð fyrir að fylgjast með mörgum LA Galaxy leikjum á næsta tímabili.
Ég hef gleymt græna Paul Smith treflinum mínum einhversstaðar á heimsóknum mínum um jólin....ekki vill svo til að lesandi hafi hann undir höndum.
16.1.2007
Topp 5 2006
Mér fannst erfitt að gera topp 5 listana þetta árið vegna þess hversu latur ég var að hlusta á músík....en here goes
| Topp 5 lög sem ekki voru gefin út á árinu (þ.e. þau gömlu lög sem ég hlustaði mest á á síðsasta ári) |
| 1. Into my arms: Nick Cave |
| 2. Better together: Jack Johnson |
| 3. I'll follow you into the dark: Death cab for cutie |
| 4. Judy and the dream of horses: Belle&Sebastian |
| 5. On the sunny side of the street: Í flutningi Benny Goodman |
2006 var semsagt árið sem ég uppgötvaði Jack Johnson og Death cab for cutie, ári á eftir öllum hinum (ég horfi nefnilega ekki á OC), en betra seint en aldrei. Það er ekki hægt að setja plötur sem eiga að koma út á árinu 2007 á þennan lista af þeirri ástæðu að það er ekki búið að gefa þær út, þá væru Shins þarna einhversstaðar en látum þá bíða til næsta árs.
| Topp 5 myndir ársins |
| 1. Match Point eftir Woody Allen |
| 2. Casino Royal |
| 3. Volver |
| 4. Walk the line |
| 5. Renaissance |
| Topp 3 tónleikar ársins |
| 1. Nick Cave: Royal Concert Hall |
| 2. Rolling Stones: Hampden |
| 3. Regina Spector: Liquid Rooms |
| Topp 5 lög ársins 2006 |
| 1. Samson: Regina Spector |
| 2. Let's get out of this country: Camera Obscura |
| 3. I bet that you look good on the dancefloor: Arctic Monkeys |
| 4. Little trip to heaven: Mugison |
| 5. Funeral: Band of horses |
| Topp 5 plötur ársins 2006 |
| 1. Life pursuit: Belle&Sebastian |
| 2. Broken boy soldiers: Raconteurs |
| 3. Post war: M Ward |
| 4. Ringleader of the tormentors: Morrissey |
| 5. St. Elsewhere: Gnarls Barkley |
Þetta er ekkert sérstaklega frumlegur listi en maður reynir að vera meira pro-active að hlusta á nýja tónlist á árinu.
Í dag er mánuður frá brúðkaupinu í Glasgow, ætli maður verði ekki bara grand á því og bjóði Christinu í postgraduate research klúbbinn þar sem við héldum partýið um kvöldið. Það er kannski ekkert sérlega grand en hún verður að kenna í kvöld og ég byrja aftur í ítölsku. Ekki úr vegi að láta fylgja myndir frá deginum fyrir mánuði síðan...og 30. des. Albúmið er í boði Picasa
11.1.2007
Lítið uppfært...mikið að gerast
Maður er ekki búinn að vera nógu duglegur að tjá sig hérna og fullt af merkilegum atburðum sem hafa gengið yfir...Le Guen rekinn frá rangers, Smith tekinn við og hættur með landsliðið, Henrik slær í gegn hjá United í fyrsta leiknum sínum....kom mér svosem ekkert á óvart enda er hann snillingur, Magnús (Sigursteinsson) Magnússon fallinn frá...merkilegur kall og hefur andlát hans fengið mikla athygli hérna í Skotlandi. Maður reynir að smella einhverju hérna inn við tækifæri en nú eru menn hérna farnir að setja pressu á mig með skil á ritgerð. Það gengur náttúrulega ekki að vinna verkefni og lenda ekki í tímaþröng. Fékk reyndar aðgang að ofurtölvunni í vélaverkfræðinni. Keyrsla sem tók 40 klukkutíma tekur 1 og hálfan tíma á ofurtölvunni. Módelið mitt keyrir þar á 16 örgjörvum. Þannig að maður verður bissí næstu vikur að reyna að klára þetta.
4.1.2007
Gleðilegt ár
Allt við það sama hérna, búið að vera mikið að gera og enginn tími til skrifta. Búinn að hafa það gott hérna yfir jólin, blessunin þann 30. var skemmtileg, allt fór fram á íslensku og Christina sagði "já" á réttum stöðum. Maður orðinn grasekkill aftur, búin að vera gift í 3 vikur og maður er tvisvar búinn að vera grasekkill...ekkert spes en svona er þetta. Ég fer út á sunnudaginn en Christina flaug til London og verður hjá mömmu sinni í nokkra daga og kemur svo uppeftir á sunnudaginn.
Þar sem árið 2006 var viðburðarríkt er ekki úr vegi að gera það upp í nokkrum punktum
Trúboði ársins: Nicky Fowler
Spæjari ársins: Sá geislavirki Litvinenko
Lúser ársins: Plútó sem var lækkuð í tign og er ekki lengur reikistarna
Fórnarlamb ársins: Juventus
Söltun ársins: George Galloway grillar fréttakonuna á Sky
Bann ársins: Reykingarbannið í Skotlandi
Samloka ársins: Kalkúnasamlokan frá Harrod’s
Óvissuferð ársins: þegar Christina skipulagði óvissuferð til Parísar og sagði mér frá því 5 tímum fyrir brottför.
Surprise ársins: 5 Oasisklúbbs meðlimir allt í einu staddir í Glasgow og splæstu í John Smiths og ofsalega steggjun
Celebspot ársins Paul Weller í Selfridges
Braskarar ársins: Fótboltasamband Úganda sem seldi mér miðann á Brasilíu Japan
Arsenal stuðningsmaður ársins: Kokkurinn á hótelinu sem leikmenn Tottenham borðuðu á daginn fyrir síðasta leik tímabilsins gegn West Ham. Þeir fengu allir skitu, töpuðu leiknum og Arsenal náði 4. sætinu og komst í Meistaradeildina.
Mark ársins: Mark Cambiasso gegn Serbíu á HM. 24 sendingar innan liðsins, tættu Serbnesku vörnina í sundur og síðasta sending fyrir markið var hælspyrna í teignum.
Leikur ársins: Ítalía-Þýskaland í undanúrslitum HM
Leikmaður ársins: Fabio Cannavaro
Skalli ársins: Zinedine Zidane
Lið ársins: Team M&C
Fótboltalið ársins: Ítalska landsliðið
Úrvalslið ársins:

Þarf maður eitthvað að réttlæta þetta? Finnst eiginlega að varnarlínan segi sig sjálf. Buffon er besti markmaður í heimi þessa dagana og Cannavaro og Zambrotta lykilmenn í svakalegri heimsmeistaravörn Ítalanna. Allir unnu einnig titilinn með Juve. Lahm er ótrúlega skemmtilegur bakvörður og átti gott HM, skoraði fyrsta mark keppninnar og er búinn að vera lykilmaður í Bayern vörninni. William Gallas stóð sig einnig vel, meistari með Chelsea, átti gott HM og er búinn að vera að gera góða hluti með Arsenal. Pirlo var hrikalega góður á HM og kemst þess vegna í liðið. Ronaldo finnst mér alltaf vera að koma til, fáránlega flinkur og loksins er hann að geta skilað sæmilegum krossum inn. Búinn að skora fullt af mörkum fyrir ManUtd það sem af er tímabili og virkar ferskur. Ronaldinho átti rólegt HM en þáttur hans sem skilaði Barcelona Evrópumeistaratitlinum var ótvíræður. Kaká var góður með AC á síðasta tímabili og er búinn að vera góður á þessu. Framherjarnir kannski orka tvímælis. Miroslav Klose varð markakóngur og sallaði inn mörkum fyrir Bremen sem voru óheppnir að komast ekki upp úr riðlinum í Meistaradeildinni í ár. Markakóngur í Bundesligunni á síðasta tímabili og er markahæstur það sem af er þessu tímabili. Henrik átti stóran þátt í velgegni Barcelona á árinu, kom inná í úrslitaleiknum og breytti gangi leiksins. Kórónaði gott ár með 10 vikna samningi við ManUtd og verður gaman að sjá hann á næstu vikum. Henry hefði nú getað komist í liðið, komst í úrslitaleik bæði HM og CL en tapaði báðum. Henrik er hins vegar winner. Lippi er þjálfari liðsins og Cannavaro er fyrirliðinn.
25.12.2006
Takk fyrir okkur
Laugardagurinn 16. desember var góður dagur. Það var mikið stress dagana áður að fá allt til þess að smella...mikið af smáhlutum sem þurfti að redda hingað og þangað. Þetta hafðist nú allt að lokum. Athöfnin í kirkjunni var glæsileg, má segja að við höfum farið óhefðbundnar leiðir. Við létum Nick Cave sjá um upphafslagið, into my arms og þetta var allt planað þannig að Christina kom inn (grand entrance) þegar Cave söng "I don't believe in the existence of angels but looking at you I wonder if that's true..." og svo framvegis. Nemandi Christinu söng, Amazing Grace, True Love, In my life og Ave Maria. True Love og In my life sá Helga Björk um undirleikinn á píanóið og stóð sig mjög vel. Presturinn var góður, hann er grimmur rangers aðdáandi og hafði sagt við mig fyrir athöfnina að hann vonaðist eftir að fyrsti dagurinn í hjónabandinu yrði mér slæmur, þar sem rangers og Celtic voru að spila daginn eftir. Allt náttúrulega í gríni. Smá veisla var haldin svo á Oran Mor á eftir og um kvöldið héldum við partý í postgraduate klúbbinum í University of Glasgow. Á sunnudeginum fórum við niður til London og gistum á Ritz hótelinu í tvær nætur. Mikill lúxus og stundum einum of fyrir svona boðflennur eins og okkur, ekkert mars og snickers á mini-barnum...aðeins fínasta konfekt sem kostaði formúgu. Gaman að fá smjörþefinn af svona lúxus. Fórum í afternoon tea og skoraði það hátt á listanum okkar, er líklegast á pari við Balmoral en Merrion hótelið í Dublin er enn í forystu. Á mánudagskvöldinu fórum við og hlýddum á jólasöngva í Royal Albert Hall, allt mjög hátíðlegt og gaman að hlusta á músík í svona sal. Fluginu heim var frestað um 4 tíma vegna þokunnar sem var frekar pirrandi en miðað við fréttirnar dagana á eftir vorum við bara heppin að komast heim yfir höfðuð. Stutt stopp í Glasgow og svo heimför. Ekki ideal byrjun á hjónabandinu að eyða jólunum í sitt hvoru landinu en Christina kemur á fimmtudaginn. Nokkuð kaldhæðnislegt að á föstudagsmorgun tók Christina flug niður til Gatwick sem var á áætlun en ég beið í 12 tíma á flugvellinum (mætti snemma til þess að vera samferða Christinu út á völl) sem var ekkert spes...sérstaklega Þar sem það er ekkert af búðum á flugvellinum í Glasgow. Búinn að hafa það fínt hérna heima og sendi bara síðbúnar jólakveðjur til allra. Er að vinna í að setja upp myndasíðu frá brúðkaupinu, hún kemur von bráðar.
13.12.2006
Úfff hvað það er mikið skítaveður hérna, búið að rigna eldi og brennisteini síðustu daga og massa rok...alvöru íslenskt haustveður. Maður bara vonar að þetta verði ekki málið á laugardaginn. Annars er allt bara að smella. Búin að redda öllu (lesist: Christina hefur gert allt) og núna er bara allt tilbúið fyrir laugardaginn. Viðtökurnar við Team M&C fjáröflunni til styrktar krabbameinsrannsóknum hefur farið fram úr björtustu vonum og nú er búið að opna fyrir nýja síðu þar sem framlögin fara beint til Krabbameinsfélags Íslands í stað rannsókna hérna í Bretlandi. Hana má finna hér. Vonandi mun okkur takast að safna smá pening fyrir Krabbameinsfélagið til minningar um Kjartan frænda.
11.12.2006
Hvað er eiginlega málið með þetta fyrra mark Portsmouth gegn Everton um helgina? Þetta er náttúrulega bara rugl.
Hvað gengur svo á í hausnum á Drogba? Lehmann svosem litlu skárri en fullorðnir, hraustir menn verða bara að hætta að henda sér niður við minnstu snertingu. Ætli Drogba horfi á þetta þegar hann henti sér niður eins og stunginn grís og hugsi "...djöfulsins nagli er ég".
8.12.2006
Lennon
Á 8. desember er skylda að hlusta á Lennon
Mini-adventure
Gatnakerfi Glasgow borgar er fullt af holum og ég lenti í því að hitta á eina á leiðinni heim í gærkvöldi, mínútu síðar drap bíllinn á sér á ljósum og við Christina þurftum að ýta honum upp á gangstétt. Bíllinn vildi ekki í gang hvað sem maður reyndi, var alltaf við það að fara í gang en ekkert gerðist. Minns opnaði húddið og tékkaði hvort kertin væru á sínum stað hvort að höggið af því að fara í holuna hefði eitthvað fært þau úr stað eða eitthvað en svo reyndist ekki vera. Við sitjum þarna upp á gangstétt og hringjum í viðgerðarnúmerið og þeir segjast munu koma innan klukkustundar (Christina hefði reyndar átt að segja þeim að það væru fullt af börnum og þá hefðu þeir komið fyrr...en ok). Meðan við erum að brasa þarna yfir bílnum labbar par framhjá og strákurinn spyr hvað sé að, hann eigi nefnilega Mini sjálfur. Kom í ljós að kappinn var alger Mini-nörd, vissi allt um Mini-ana og spurði mig alls konar spurninga sem ég gat með engu móti svarað (skammast mín að titla mig vélaverkfræðing undir svona kringumstæðum). Við notuðum útilokunar-aðferðina til þess að einangra vandamálið og hann hringdi í vin sinn sem var bifvélavirki og var alveg ótrúlega hjálpsamur. Hann spurði svo okkur hvort hann mætti bíða með okkur þangað til að viðgerðarbíllinn kæmi, ég var farinn að vorkenna aðeins kærustunni hans sem var farið að verða kalt. Þegar viðgerðarbíllinn svo kom, fórum við 3 yfir vandamálið og þeir tveir krufðu þetta til mergjar. Kom svo í ljós að djúpt í vélinni á Mini-um er takki sem veldur því að ef mikið högg kemur á bílinn stoppar þessi ventill allt bensínflæði til vélarinnar sem er mjög sniðugur fídus reyndar, lendi maður í árekstri. Þeir opnuðu fyrir ventilinn og bíllinn virkar fínt núna. Maður þarf að fara með flösku af rauðvíni til Euans Mini-nörds sem býr á Queen Margaret Drive.
Þegar við komumst heim um hálftólf hafði Christina gert köku handa mér í tilefni dagsins. Austurrísk Sacher-torte með öllu tilheyrandi. Hún skreytti með súkkulaði M-i, kertum og að sjálfsögðu mörgæs með fótbolta. Þetta var þaulhugsað hjá henni....mörgæsin var með grænan trefil að hætti Celtic manna. Henni er nú ekki fysjað saman henni verðandi konu minni.
7.12.2006
Celtic don't do away wins...
Mínir menn komust áfram í gær, sem reyndar var vitað fyrir tveim vikum síðan. Skelfilegur leikur gegn sprækum FCK mönnum. Celtic fékk á sig 3 mörk í öllum útileikjunum en hélt hreinu og vann alla heimaleikina. Þannig hefur þetta verið í Meistaradeildinni og hefur ekki verið nóg til þess að komast áfram þar til nú. Draumamótherji í 16-liða úrslitunum er án vafa Liverpool. Ég var í stúkunni á Anfield þegar Alan Thompson og John Hartson skoruðu í sigrinum í uefa cup 2002-2003...you'll never walk alone var sungið af krafti.
Merkilegur dagur í dag...árásin á Pearl Harbour og svo eiga ekki ómerkari menn en Larry Bird, John Terry og Damien Rice afmæli í dag. Svo er þetta nú alltaf "dagurinn fyrir" John Lennon daginn.
...but if they did, they would probably be the best wins in Europe!
6.12.2006
Christina tók strætó í síðustu viku sem í sjálfu sér er ekki í frásögu færandi, nema hvað að Stuart Murdoch steig uppí og hélt áleiðis upp Maryhill. Stuart er greinilega einn af okkur Maryhill-urum og er ekkert of fínn fyrir almenningssamgöngur...svalur
Síðasti leikur Celtic í riðlakeppninni í kvöld, treysti þess að það séu margir grænir og hvítir staddir á strikinu í þessum skrifuðu orðum. Leikurinn hefur litla þýðingu, nema að með sigri getur Celtic unnið riðilinn og sloppið við andstæðinga eins og Chelsea, Lyon, Bayern og Liverpool. Svosem ef þeir vinna riðilinn gætu þeir lent gegn Barcelona, Real Madrid eða Inter. Held samt að ef Celtic verða heppnir þá eiga þeir sjéns gegn PSV eða Lille/AEK en þetta verður erfitt í næstu umferð. Vonandi bara að þeir sýni skemmtilegan fótbolta í Köben og nái að landa fyrsta útisigrinum í Meistaradeildinni.
1.12.2006
Af geislavirkum njósnurum
Það er nú meiri James Bond bragurinn yfir þessu Polonium-210 máli hérna. Maður les bara fréttir BBC af málinu eins og reyfara. Nú hafa leifar af efninu fundist víða og meðal annars í flugvélum British Airways sem hafa flutt samtals 33 þúsund manns hingað og þangað. Geislavirki njósnarinn benti fingrunum j'accuse style til Kreml meðan þeir rússnesku sögðu hann ekki vera nógu mikilvægan til þess að þeim stæði ógn af honum og þess vegna hefðu þeir ekkert með málið að gera. Ég var samt að pæla í einu. Ef það þurfti að koma þessum manni fyrir kattarnef, var ekki hægt að gera það á minna dramatískan hátt, fyrir það fyrsta geri ég ráð fyrir að Polonium-210 sé ekki efni sem menn skreppa í Tesco til að verða sér út um og hafi planið verið að hafa þetta low profile, þá mistókst það hrapallega, þar sem tugir þúsunda manns hafa komist í snertingu við efnið (eða verið í námunda við það sem er víst nokkuð hættulaust) og milljónir vita af þessu. Aumingja kallinn sem á þennan Sushi stað í London, geri ekki ráð fyrir að viðskiptin blómstri þessa dagana. Nú er þessi Ítali sem rússneski njósnarinn hitti í sushi í læknisskoðun vegna eitrunar. Einnig finna menn leifar af efninu á skrifstofum Berezovsky sem er einmitt milljaraðamæringurinn sem tók Abarmovitsj undir sinn vernarvæng og er einn af þessum...tja...líklegast glæpamönnum sem eru í útlegð frá Rússlandi. Manni finnst eins og eitthvað allherjarplott sé í gangi en þetta mál vindur upp á sig með degi hverjum. BBC gerir málinu góð skil og hér má finna yfirlýsinguna frá njósnararnum. Manni finnst samt eins og þeir sem ákveða að drepa einhvern með því að nota geislavirkt efni séu ekki venjulegir krimmar, meira svona James Bond krimmar. Það minnir mig á það....djöfull er nýja Bond myndin mögnuð. Craig er nokkuð svalur, en stundum verður þetta full mikið, 120 drykkir yfir póker og svo beint í eltingaleik, honum Bond er ekki fysjað saman. Ég drakk einu sinni eina flösku af bjór fyrir fótbolta og gat hvorki hlaupið né sparkað
Topp 5
| Magic Numbers: This is a song |
| M-Ward: Requiem |
| Damien Rice: The rat within the grain |
| Sugarcubes: Walkabout |
| Sigur Rós: Hoppípolla |
Dr. Henrik (heiðursdoktor við University of Strathclyde) er nú alltaf topp maður, jafnvel topp5 og nú er hann farinn til ManU, eða fer þangað í janúar. Skrýtin ákvörðun hjá kappanum enda fannst mér góður endir á atvinnumannaferli hans (er hann ekki bara eitthvað að gutla með Helsingborg, efna eitthvað loforð sem hann gaf fyrir löngu?) að lyfta Meistaradeildarbikarnum eftir að hafa komið inná í leiknum og snúið honum Barca í vil. Verðum við þá ekki bara að segja að næsti endir verði þegar hann lyfti enska meistaratitlinum í vor. Meeeeeeeeen þarf maður núna að halda pínu pons með ManUtd, það finnst mér hið versta mál en Henrik er snillingur og það ætti að vera skylda að styðja þau lið sem hann spilar með. Bara til að fyrirbyggja misskilning þá er Everton langbesta liðið í EPL.
...you are my Larsson, my Dr. Larsson...you make me happy when skies are grey
29.11.2006
Íslenskir karlmenn
Vona að Mogginn fyrirgefi mér að birta eftirfarandi lesendabréf. Mikið finnst mér Guðmundur Þormarsson hitta naglann á höfuðið (kannski fyrir utan að Randver Þorláksson sé karlmennskan uppmáluð...enda er maður vanari honum í gervi Jóhönnu Sigurðardóttur) í nokkuð skemmtilegri lesningu.
Herra Ísland
Ég orna mér oft við rafmagnsofn á köldum síðkvöldum og horfi á það
sem er í imbanum í það og það skipti. Í gær var mér þó stórlega
misboðið þegar ég horfði á keppni sem kallast Herra Ísland. Þar kepptu
nokkrir föngulegir ungir sveinar um að verða fegurðardrottningar. Maður
spyr sig: Hvað er orðið af karlmennskunni í nútímaþjóðfélagi? Flestir
þessir drengir virtust nota meira af snyrtivörum en meðalkvenmaður gerði þegar
ég var ungur. Sá sem vann virtist vera með ýmsar tegundir andlitsmálningar
og glotti við tönn á kvenlegan máta þegar sigurvegarinn var tilkynntur. Ef
þetta er frambærilegasti fulltrúi íslenskrar þjóðar þá er mér stórlega
misboðið. Til eru mun karlmannlegri herrar, það er sérkeppni fyrir kvenfólk
sem heitir Ungfrú Ísland. Vil ég benda fólki á að kjósa kvenfólkið í
kvenfólkskeppninni og reyna að hafa eitthvað ögn karlmannlegra í
karlmannskeppninni. Dæmi um karlmannlega karlmenn sem hefðu á sínum tíma orðið
verðugir fulltrúar íslenskrar þjóðar eru t.d. Jón Páll kraftajötunn,
Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður og Randver Þorláksson. Svo legg ég til að
menn verði skyldaðir til að heita karlmannlegum nöfnum í þessari keppni,
svo sem Styrkár eða Skarphéðinn. Maður óttast um karlmennsku þjóðarinnar
þegar maður horfir á svona keppni. Það á að hamra járnið meðan það
er heitt. Hvað er þetta? Maður spyr sig.
Guðmundur Þormarsson, fyrrverandi bóndi
Nú verð ég reyndar að viðurkenna að ég á og nota andlitssápu og mun skora hátt á "gay"-skalanum fyrir það, en þegar þessir gæjar eru orðnir stífmálaðir og með nokkurra sentimetra lag af brúnkukremi á sér er fulllangt gengið. Mikið væri samt fyndið ef allir yrðu að heita Skarphéðinn eða Styrkár...það yrði enginn Bjartur Fannar í keppninni hans Guðmundar bónda. Er þetta metró dæmi ekki farið út í öfgar hvort eð er, menn ættu bara að fara snúa sér að neandertals lúkkinu...eða þannig.
28.11.2006
Eins og ég sagði fyrir tveim vikum þá urðum við Christina foreldrar um þarsíðustu helgi, barnið vó um 300kg, var um metri á hæð og er á fjórum hjólum. Erum búin að vera rúnta slatta á mini-inum, fórum einmitt í sunnudagsbíltúr um helgina upp í sveit. Það er nokkuð gaman að keyra svona lítin bíl og það hentar vel í traffíkinni hérna, maður getur skotið sér hér og þar sem væri annars ekki hægt á venjulegum bíl. Hef hins vegar komist að því að það er eitt að rata um Glasgow fótgangandi og annað að rata bílandi. Fór mína venjulegu leik í fótboltann í gær nema þar sem maður beygir inn á hjólinu er bannað að beygja á bíl, náði að smeygja mér inn á frárein sem stefndi niður í bæ (annars hefði ég líklegast endað í Kilmarnock) og keyrði í átt að bænum þar til að ég fann hringtorg þar sem ég gat snúið við og farið sömu leið tilbaka, náði í tíma í fótboltann.
Annars er það að frétta bara að mér hefur verið sagt að ég þurfi að skila inn doktorsritgerðinni, eða meirihlutanum af henni fyrir jól. Það er náttúrulega ekki sjéns að það hafist, ég er þó kominn með slatta niður og skila því sem er komið. Finnst eins og ég sé kominn aftur í menntaskóla þar sem maður tékkar word count og hversu margar síður þetta verði með 1.5 línubili á 5 mínútna fresti. Er núna að leggja lokahönd á styrkumsókn sem þarf að vera tilbúin fyrir morgundaginn. Má segja að það verði nóg að gera hjá manni næstu 3 vikur
23.11.2006
You want to go where everybody knows your name...
...var nú upphafslagið í Staupasteins þáttunum gömlu. Núna áðan kom einn prófessor í deildinni og spurði mig hvernig gengi með fyrirlesturinn sem ég átti að halda í næstu viku. Ég kom af fjöllum og vissi ekkert um neitt slíkt. Hún verður mjög vandræðaleg og spyr mig...þú ert þá ekki Kanellopoulos, því svaraði ég nú neitandi og sagði henni að hún þyrfti að fara til Aþenu að leita að honum, hennar svar var þá....ó þú ert hinn M. Alltaf gaman þegar allir þekkja mann svona vel, sérstaklega þegar maður er búinn að vinna hérna í 3 ár. Mismunurinn á Maggi og Makis er mörgum erfiður.
Annað úr deildinni. Sandy sagði að þessi stofnun sem konan kom frá í síðustu viku muni bara styrkja einn starfsmann. Ég og einn annar, Neil, erum að vinna að sama verkefni með ólíkum tækjum og okkur skildist að yrði sett inn umsókn til að halda báðum, en svo verður ekki. Þetta verður semsagt ég á móti honum um styrkinn...þ.e. ef við fáum hann. Ég spurði Sandy hvort það væri ekki bara best að strípa okkur niður á nærjurnar og fara út á tún og glíma um þetta. Veit svosem ekki hvaða option Sandy hefur en mér finnst það eitthvað hálfglatað að segja við okkur að það sé bara annarhvor okkar sem muni fá að halda áfram, sérstaklega þegar krafturinn í verkefninu er einmitt þessi samvinna milli tölvulíkanagerð og tilrauna.
22.11.2006
16-liða úrslit
Celtic eru komnir í 16-liða úrslit í Meistaradeildinni þegar einn leikur er eftir. Leikurinn í gær var ofsi, Manjú hættulegri og Saha alger klaufi að skora ekki í leiknum en Celtic vörðust vel og með snilling eins og Nakamura í liðinu eru aukaspyrnur utan teigs að verða semi-víti fyrir okkur.
Skoðum markið betur
top of the group....you having a laugh?
21.11.2006
Steggjun
Það var víst steggjun á mig um helgina sem kom mér algerlega í opna skjöldu. Við Christina höfðum ákveðið að hittast á föstudeginum um 2 leytið í bænum og gera eitthvað. Christina spurði hvort ég væri til í að setjast inn á ákveðinn stað og um leið og ég sest niður fæ ég sms frá vini mínum um hvort mig langi í pint. Hélt að hann hefði nú eitthvað ruglast en svo birtust allir úr felum og steggjunin officially hafin. Stákarnir höfðu komið um morguninn og farið heim þar sem Christina tók á móti þeim. Þetta var allt útpælt og þeir létu konurnar sínar senda mér tölvupóst í þeirra nafni sem kom til mín þegar þeir voru í 10 þúsund fetum, þar sem plönin voru rædd um hvað ætti að gera fyrir Sykurmolatónleikana og Sufjan Stevens. Þeir sendu svo tölvupóst þegar þeir voru heima hjá okkur og maður hafði engan grun um að þeir væru í Glasgow. Allavega...steggjunin officially hafin og fyrsta verkefni var að fara í austurenda borgarinnar. Mann grunaði að það væri eitthvað fótboltatengt í gangi þegar við nálguðumst Celtic Park. Svo kom í ljós að við áttum stefnumót við báða Íslendingana sem spila með Celtic, Kjartan Henry og Theodór Elmar og þeir voru búnir að skipuleggja ferð á æfingasvæðið. Þegar við komum þangað gáfu þeir mér Celtic treyju sem var árituð af öllum leikmönnunum í aðalliðinu sem og áritaðan bolta. Við fórum í vítakeppni þar sem mér var hent í markið, átti nú ekki mikið í vítin frá atvinnumönnunum en maður reyndi. Einnig var ég settur í þrautakóng þar sem maður átti að reyna að herma eftir boltatrixum frá strákunum. Það gekk...ekki, enda ég hræðilega óteknískur. Það var hrikalega gaman að hitta þessa stráka og fá svona inside information frá búningsklefanum á Celtic Park. Tommy Gravesen er víst alger topp maður og þeir fíla hann í tætlur. Alan Thompson æfir með þeim en hann má víst muna sinn fífil fegurri, átti að vera lausn Englands á vinstri kantinum en er nú bara fullur. Við kvöddum strákana eftir þetta, frábært hjá þeim að rigga þessu upp og þetta eru toppmenn. Vonandi að Strachan fari nú að gefa þeim sjéns með aðalliðinu, enda standa þeir sig vel með varaliðinu. Við fórum á pöbbinn og fengum okkur nokkra bjóra og þá var komið að næsta atriði. Þeir höfðu nappað klarinettinu og var ég sendur á George Square að spila og kynna nýja "geisladiskinn minn". Ég fékk 24 pens að launum frá vegfaranda, var þarna í 5 mín en þetta fannst eins og heil eilífð, gott grín samt. Eftir þetta fórum við á Dhabba, indverska veitingastaðinn sem við förum stundum á í hádeginu og borðuðum vel þar. Eftir matinn fórum við á barinn og þaðan á Firewater næturklúbbinn, stoppuðum stutt við þar og ákváðum að það væri betra að blasta græjurnar heima. Það þarf náttúrulega ekki að taka fram að Christina hafði keypt birgðir af bjór handa okkur öllum. Þannig endaði föstudagurinn. Á laugardaginn hélt dagskráin áfram...fengum okkur Guinness í morgunmat og röltum svo niður á Oran Mor og fengum okkur full fry up, enda gott að byrja daginn svoleiðis. Eftir það var farið á Uisce Beath wiskíbarinn og sest niður með bjór og wiskey og spilaður Popppunktur. Ótrúlega næs. Héldum heim um 5 leytið þar sem við áttum pantað borð á veitingastað klukkan 20. Fórum út að borða á stað sem nefnist Rococo og er mikið mælt með honum hérna. Svakalega fínn matur og flottur staður. Sátum þar svo fram eftir kvöldi og fórum svo heim. Meðan á öllu þessu stóð fór Christina niður til Portsmouth til mömmu sinnar og þær komu svo keyrandi upp á Mini-inum sem mamma hennar lét okkur fá á sunnudeginum. Kvöddum strákana og sögðum steggjun slitið. Maður var nú ekki upp á marga fiska á sunnudaginn en er allur að koma til.
Þetta var í einu orði alveg frábær helgi og strákarnir höfðu planað þetta alveg fram í fingurgóma. Það er alltaf stuð þegar þessi hópur kemur saman.
Takk fyrir mig...maður ætti að gifta sig oftar...hehe.
16.11.2006
Respect my authority!
Byrja á því að afsaka að titillinn sé á ensku á degi íslenskrar tungu, en hann er vísun í frasa (er það sletta?) úr hinum sívinsæla þætti South Park eða Suðurgerði, þar sem er gert grín af mönnum sem taka völd sín of alvarlega stundum. Sandy er einn af þessum mönnum. Þannig er mál með vexti að ég fór með hjólið mitt í viðgerð á föstudagsmorgun og verkstæðið er nálægt skólanum, þegar það var tilbúið tók ég það hingað niður í skóla og ætlaði að taka það heim um eftirmiðdaginn. Það styrmdi hér í borg á föstudagseftirmiðdag með tilheyrandi rigningu og tók ég þá ákvörðun að skilja hjólið eftir niðri í kjallara. Það var leiðindaveður alla helgina sem og á mánudaginn...og enn fékk hjólið að dúsa í kjallaranum. Á þriðjudaginn kom sjóðsformaðurinn í heimsókn og minns smellti á sig bindi til að líta út eins og hann vissi eitthvað og ekki nennir maður að hjóla með bindi, það var einnig ítölskutími seinna um kvöldið. Á þriðjudagseftimiðdag er sendur póstur á alla í deildinni þar sem eigandi hjólsins er vinsamlegast beðinn um að fjarlægja það hið snarasta. Þessi póstur var sendur að undirlagi eins tæknimannsins sem hefur umsjón með vinnustofunni í kjallaranum. Minns hugsaði nú "úps...best að spjalla aðeins við hann". Tæknimaðurinn er fínn náungi og útskýrði ég fyrir honum stöðu mála og að ég skyldu nú taka hjólið heim eftir vinnu á miðvikudeginum og gerði ráðstafanir að mæta í skítagallanum og allt í góðu bara. Á miðvikudagsmorgun var hjólið horfið og þá hafði Sandy tekið það upp á skrifstofu til sín, til þess að sýna fram á að svona hjólastúss væri sko ekki liðið, þrátt fyrir að vita að ég myndi taka það heim daginn eftir. Ég þurfti því að fara upp á skrifstofuna hans og biðja um að fá hjólið mitt aftur og hlusta á að svona lagað gangi ekki, það sé alveg bannað að geyma hjólin niðri. Ég þurfi svo að drattast með hjólið í gegnum skrifstofusvæðin og gegnum félagsherbergið, svona hálfgerð walk of shame af því að Sandy þurfti að fá að sýna vald sitt í verki. Alltaf gaman að svona. Hjólaði svo heim í úrhellisrigningu....en Sandy hefur liðið vel að getað sýnt fólki hver ræður. Það þarf náttúrulega ekki að taka fram að allir í deildinni þekkja hjólið og söguna um það. Mig langaði nú dáldið að hjóla í hann Sandy...neinei segi bara svona.
15.11.2006
Langt frá síðustu færslu. Fengum heimsókn í gær frá formanni sjóðs frá London sem við erum að reyna að sníkja pening frá. Gekk vel, sýndum henni um deildina og kynntum verkefnið. Fórum í heimsókn á spítalann þar sem skurðlæknirinn sagði frá nauðsyn þess að svona rannsókn fari fram. Þetta gekk allt mjög vel og sjáum hvað setur hvort þeir vilji styrkja okkur.
8.11.2006
Af bláum pennum og "arranged" brúðkaupum
Var að koma úr Biryani og umræðurnar voru mestmegnis um brúðkaup, annar í deildinni var að trúlofa sig fyrir nokkru, og ég varð að varpa spurningunni til Indverjanna hvernig þetta væri á Indlandi þar sem maður heyrði oft um brúðkaup þar sem fjölskyldurnar hefðu komið sér saman um að gifta saman fólk sem hafði aldrei sést áður. Gopal sagði þetta vera við lýði og kommentaði að mamma sín væri einmitt að leita að brúði fyrir hann. Þeir voru að útskýra aðeins systemið fyrir mér og þetta virkar víst þannig að stjörnuspáin fyrir manninn er tekin og konur fundnar sem hafa "matching" stjörnuspá, n.b. þetta er víst ekki stjörnuspá eins og menn lesa í mogganum heldur er þetta byggt á gangi tunglsins og er víst töluvert flókið. Allavega, þegar fjölskyldan er búin að finna þær sem passa við stjörnukortið, þá hefst flokkun. Venjulega eru stelpurnar valdar af heimilum sem fjölskylduvinur þekkir og mælir með (svona friend of a friend) og þar á eftir eru sendar myndir sem brúðguminn getur skoðað og byggir svo valið á myndinni (eins gott að maður er fótógenískur). Bróðir Gopal spjallaði víst í hálftíma einu sinni við verðandi brúði sína fyrir brúðkaupið og var þetta eina skiptið sem hann hitti hana fyrir það. Gopal segir þetta vera sitt hlutskipti en hann getur víst valið úr þeim nokkrum þar sem hann er búsettur í UK, það þykir eftirsóknarvert. Magnað kerfi og ljóst að date-ing þjónustur hafa lítið að gera til Indlands.
Christina notar bláan penna...og so what hugsið þið eflaust....en dokið við þetta er snilld. Hún tók að sér verkefni í háskólanum (hún hefur gert þetta síðastliðin 2 ár) að vera í hópi sem fer í skólana og heldur smá námskeið um hvernig háskólanir virka og hvaða kröfur eru gerðar og til þess að hún megi gera það þarf hún að senda umsókn til tilheyrandi stofnunar sem tékkar hvort hún hafi einhvern sakaferil og þess háttar. Allt í góðu með það enda ekki hægt að hverjir sem eru séu leyft að vinna með börnum. Christina þurfti að skila inn slíkri umsókn, en ég veit ekki af hverju þar sem hún hefur gert þetta áður. Umsókninni hennar var hins vegar hafnað í morgun á grundvelli þess að hún notaði bláan penna til að fylla út skýrsluna en ekki svartan. Maður bara spáir í hvað hefði gerst hefði hún notað rauðan eða grænan penna...ætli hún hefði ekki farið beint í jail-ið. Þetta finnst mér alveg magnað og jafnvel magnaðara heldur en brúðkaupin á Indlandi.
...en birynai er gott
7.11.2006
Um helgina var Bonfire night þar sem minnst er ferðar Guy Fawkes inn í þingið með púðurtunnuna. Brennur voru haldnar út um alla borg og flugeldum skotið á loft. Við Christina fórum niður í Glasgow Green til að sjá flugeldasýninguna, margt um manninn þar. Horfðum á ítölsku útgáfuna af the last kiss um helgina...þ.e. upprunalegu myndina, l'ultimo bacio. Hollívúdd endurgerðin breytir söguþræðinum aðeins eins og við var að búast. Evrópsk raunsæishyggja á eflaust ekki marga aðdáaendur í BNA. Báðar myndirnar eru stórgóðar, þó að viðfangsefnið sé ekkert til að brosa yfir.
3.11.2006
Christina fór í spænskutíma um daginn, þar sem byrjað var á að finna spænsku útgáfuna af nafni hvers og eins. Einn nemandinn hét John Kerr (óskyldur söngvaranum í Simple Minds) og spænska útgáfan af því jafni er Juan Ker -> Huanker sem hljómar svipað og ákveðið enskt orð. Það er semsagt ekki tekið út með sældinni að vera John Kerr á Spáni.
2.11.2006
Þetta var nú meira ruglið í gær, Gary Caldwell ekki alveg með á nótunum í fyrri hálfleik. Skil ekki af hverju Celtic getur ekki unnið útileik í Meistaradeildinni. Leikurinn gegn ManU verður núna möst win, mér var boðinn miði fyrir 250 pund í away stand, full dýrt fyrir minn smekk. Þetta er samt ekki alveg búið, ef við vinnum ManU á heimavelli, þá telst mér til að við séum áfram sama hvernig fer í Köben í síðasta leiknum að því gefnu að FCK vinni ekki Benfica. Ef Celtic vinnur verða þeir ásamt ManU með 9 stig og Celtic væntanlega með betri innbyrðisárangur (nema leikurinn fari 3-2, 4-3, 5-4 og svo framvegis) sem þýðir að við færum í efsta sætið. ManU spila gegn Benfica í síðustu umferð og ef ManU vinnur (og við vinnum ekki í Köben) vinna ManU riðilinn og við lendum í öðru sæti, ef Benfica vinnur þá fara þeir áfram ásamt okkur, jafntefli þá getur Benfica ekki náð okkur. All is not lost. Reyndar getur þetta farið svo að FCK komist áfram með að vinna Benfica og Celtic en það verður að teljast ólíklegt. Þetta verður semsagt svona, við vinnum Man U 1-0 og töpum í Köben, lendum í öðru sæti og lendum gegn Liverpool og sendum þá heim. Þið lásuð þetta fyrst hér.
1.11.2006
Hversu óþolandi eru Chelsea? Mourinho atar landsliðsfyrirliðann okkar aur fyrir leikinn og sakar um að henda sér niður. Sá Portúgalski gleymir að í hans liði er maður sem nefnist Drogba. Maður taldi nú nokkur skipti í gærkvöldi þar sem hann grýtti sér niður við minnstu snertingu. Það var of mikið um brot í leiknum af beggja hálfu og greinilegt að undir niðri kraumar töluvert hatur milli þessara klúbba. Ekki batnar það svo að hlusta á lýsinguna, þegar Barca maður treður á fjölskyldudjásnunum hjá Chelsea manni er það viljaverk en þegar það gerðist á hinn veginn var það slys, ég get rétt ímyndað mér að lýsingin hafi verið enn hlutdrægari heima þar sem allir á Sýn elska ensku liðin, svosem skiljanlegt hérna þar sem þulirnir eru jú enskir. Mikið hefði nú verið svalt ef Eiður hefði fagnað markinu með því að sussa á Mourinho eins og sá Portúgalski gerði við Liverpool stuðningsmenn í úrslitaleik deildarbikarsins fyrir nokkrum árum. Eiður veit samt betur en að vera láta draga sig niður á hans level. Eiður kom mjög vel út frá þessum leik (átti kannski engan stórleik) þar sem hann tók ekki þátt í þessu "kickfest" og spilaði bara sinn leik og toppaði þetta með markinu. Nokkuð ljóst að Bremen mun eiga auðveldan leik í vændum gegn Chelsea en ætli Barca nái ekki öðru sætinu með því að vinna Bremen í síðasta leiknum á Nou Camp. Mourinho kom nokkuð ferskur inn fyrir nokkrum árum en er alveg búinn að tapa kúlinu. Kemur fram í viðtali eftir leikinn og segir að Rikjaard sé heppinn að þjálfa lið sem er alltaf verndað af dómurunum. Portúgalinn stelur með þessu öllu umtali og öll umræðan beinist að hrokagikksháttum hans þegar markið hjá Lampard ætti að fá alla umfjöllunina.
Stórleikur í kvöld þegar Celtic fer til Lissabon. Sigur þar gulltryggir okkur áfram og jafntefli væri ekki svo galið. Tapi þeir leiknum fer allt í loft upp í riðlinum. ManU vinnur væntanlega auðveldan sigur á Kaupmannahafnarbúum og ef við töpum er líklegt að ekkert annað en sigur gegn ManU og gegn FCK í síðasta leik komi til greina. Væri óskandi að ManU kæmu saddir til Glasgow en ég held að við fáum enga greiða frá sir Alex í ljósi deilna hans við Strachan og rangers tengsla hans.
31.10.2006
Meeeen hvað ég átti gott kvöld í boltanum í gær, það var sama hvað maður gerði það steinláu allir boltar í skeytunum hjá mér. Gaman að þessu, bætir upp öll þau kvöld þegar maður nánast sendir boltann á sporbraut um jörðu. Hins vegar lenti ég í því að keðjan á hjólinu fór af á leiðinni heim og þurfti ég að teyma hjólið og labba í beljandi roki og rigningu.
Styrkumsókin fór á pósthúsið á réttum tíma, höfðum í raun alveg nægan tíma, ég náði inn 20 mínútur fyrir lokun, þannig að við hefðum haft 19 mínútur að vinna að þessu lengur. Sjáum til hvað kemur út úr þessu, ég er ekkert sérlega bjartsýnn en þetta lítur vel út á pappír hjá okkur.
Langt síðan maður hefur gert topp 5 lista, þannig að það er ekki úr vegi að bæta úr því
| Camera Obscura: Let's get out of this country |
| Decemberists: O Valencia |
| Shins: Australia |
| Shins: Phantom limb |
| Fratellis: Henrietta |
30.10.2006
Erum að klára að skrifa þessa styrkumsókn og skila af okkur. Helgin nokkuð viðburðarrík bara, fórum í grímupartý á laugardaginn, ég sem engill og Christina sem "turquois fairy", en svo nefnist dísin sem vekur Gosa til lífsins...á ensku og ítölsku er hún túrkísblá. Heilsuðum upp á prestinn sem mun gefa okkur saman á sunnudeginum en ég ákvað að vera ekkert að nudda honum upp úr slöppu gegni rangers um þessar mundir (hann er víst mikill stuðningsmaður). Fórum svo niður í bæ og í bíó og sáum nýju myndina með Zach Braff úr Scrubs sem nefnist The last kiss. Þetta er reyndar endurgerð ítalskrar myndar (l'ultimo bacio) og segir Christina að sú ítalska sé betri, ég á reyndar eftir að sjá hana en ætla að reyna að kíkja á hana bráðlega.
Fótboltaúrslitin með besta móti um helgina. Juve og Celtic unnu og Everton náði jafntefli gegn Arsenal, nokkuð gott bara. Skoska deildin er búin, Celtic með 10 stiga forskot á Hearts og 12 stig á rangers...búið spil. Juve fengu 11 stig um helgina, fyrri 8 fengu þeir gefins frá dómstólunum og seinni 3 fyrir sigurinn, þar sem Del skoraði 200. markið sitt fyrir klúbbinn. Nokkuð ljóst að Juve fara þá upp í vor. 101greatgoals er hörkufótboltasíða þar sem teknar eru saman klippur frá YouTube með mörkunum úr boltanum...snilldarsíða. Mæli með henni.
28.10.2006
Búið að vera mikið að gera hérna síðustu daga. Í haust var ákveðið að sækja um styrk til þess að halda mér áfram hérna við deildina í post-doc stöðu. Eins og alltaf erum við last mintue með þetta allt. Maður er því búinn að vera á fullu í vikunni að skrifa og í gær var ég svo á flakki um alla borg að reyna að ná undirskriftum tveggja skurðlækna sem af pólitískum ástæðum eru með á umsókninni. Þetta hefst nú allt, klárum þetta um helgina og skilum á mánudag. Svakalega leiðinlegt að skrifa svona umsóknir en vonandi tekst okkur að kreista út einhvern pening.
25.10.2006
Komin í mark
Við Christina vorum að koma í mark úr hlaupinu. Tíminn svosem ekkert upp á marga fiska eða um ein og hálf klukkustund. Fann að það var kannski ekki pústið sem var lélegt heldur voru lappirnar á manni nánast í logum síðustu 3 km. Maður var aðeins stífur daginn eftir en það fór allt í boltanum um kvöldið. Það var öskrandi rigning í Portsmouth og manni var skítkalt eftir hlaupið, en það var stemming að taka þátt í þessu, 18 þúsund hlauparar og margir að hvetja. Nú hefur maður eitthvað að stefna að bæta að ári.
20.10.2006
Chelsea er klúbbur sem ég er löngu hættur að botna eitthvað í. Eins og flestir vita, þá meiddist aðalmarkmaður liðsins Petr Cech í leik um daginn og einnig varamarkmaðurinn Cudicini. Meiðsli Cech voru alvarleg og líklegast mun hann ekki spila aftur fyrr en á næsta tímabili. Cudicini er góður markmaður og í raun magnað að hann skuli láta bjóða sér bekkjarsetu, fótboltamenn með metnað vilja spila stórleiki en maður getur svosem skilið það að Cudicini hafi það bara ágætt, situr á bekknum og spilar einhverja djók varaliðsleiki og fær skrilljónir fyrir. Vangaveltur um hvort Chelsea muni fá nýjan markmann hafa farið í gang og var nafn Barthez nefnt. Hann er ekki samningsbundinn neinum klúbbi og getur komið hvenær sem er (ef leikmaður er samningsbundinn getur hann ekki skipt um klúbb fyrr en í fyrsta lagi í janúar) en Mourinho sagði að svona "high-profile" leikmaður geti ekki komið og verið varamaður. Hann sé alltof góður, svosem skiljanlegt hjá José enda Cudicini góður og þessi Hilaro stóð sig bara ágætlega á miðvikudaginn. Nú í morgun les maður að Chelsea vilji Buffon í janúar til þess að spila. Ég bara skil þetta ekki. Roman hefur greinilega fengið hugljómun með Guðlaugi Þór á Nesjavöllum og hugsað...."djöfull er þessi kall leiðinlegur...hmm...best að hugsa um eitthvað skemmtilegt....já....hvernig væri að fá Buffon til Chelsea". Ef Barthez var of high profile leikmaður fyrir José hvað er þá Buffon? Eins dauði er annars brauð í þessu en mér fyndist ótrúlega skítlegt af Chelsea að bjóða 25 milljónir punda í Buffon, gagnvart Cudicini og Cech. Hvað gerist á næsta tímabili svo....verður Buffon á bekknum eða Cech? Þetta náttúrulega er bara rugl. Nokkuð ljóst að hvorugir munu sætta sig við bekkjarsetu. Ótrúlega slappt gagnvart Cech ef Buffon verði keyptur og muni verða aðalmarkmaðurinn næsta tímabil þar sem Cech næstum því lætur lífið í þjónustu við Chelsea sem launa honum með því að kaupa besta markmann í heimi sem tekur stöðuna hans. Chelsea er óþolandi klúbbur og Buffon væri bara kjáni ef hann félli fyrir milljónum rússneska glæpamannsins.
Varð nú að hlæja í vikunni þegar konan hans Romans ætlar að skilja við kappann vegna framhjáhalds hans og hann þarf að punga út helmingi eigna sinna. Mikið væri nú fyndið ef hann myndi draga sig út úr Chelsea og láta klúbbinn um að reka sig sjálfan.
Við á leiðinni til Portsmouth á eftir og tökum 10 mílurnar á sunnudaginn, þetta verður meiri ganga heldur en hlaup held ég.
19.10.2006
Afa eru sendar afmælisóskir yfir internetið. Var að tékka hvaða aðrir merkismenn ættu afmæli í dag og komst að því að það eru ekki margir. Kannski helst að eðlisfræðingurinn Chandrasekhar sé þekktastur.
18.10.2006
Fór á Celtic Benfica í gær og þvílíkur leikur sem mínir menn sýndu. Þeir alveg völtuðu yfir Portúgalana. Fyrri hálfleikur var smá basl, Celtic með 60% posession en náðu ekki að skapa sér opið færi, fyrir utan góða tilraun til hjólhestaspyrnu frá Maloney eftir 1 mínútu. Fyrsta markið kom eftir 55 mínútur og þá losnaði aðeins um spennuna. Benfica voru reyndar óheppnir að jafna ekki skömmu síðar þegar þrumuskot þeirra fór í sammarann. Þeir settu smá pressu á Celtic en upp úr Benfica horni komust Celtic í skyndisókn sem var einstaklega vel útfærð og Kenny Miller setti sitt annað mark. Þar með var þetta nánast komið í hús og þriðja markið kom á 90. mínútunni. Held ég hafi sjaldan séð Celtic spila svona vel, og nokkuð ljóst að þessi leikur fer í all-time greats Celtic leiki sem ég hef farið á, með 4-3 leiknum gegn Juve og 1-0 leiknum gegn Valencia (sem við reyndar töpuðum í vító) árið 2001...það voru geggjaðir leikir. Stemmingin var klikkuð. Ég hef aldrei farið á leik á St. James's Park í Newcastle en ég er viss um að stemningin á Celtic Park á góðu kvöldi á sér enga hliðstæðu í Evrópu, langbesta stemmingin.
Hins vegar var heimferðin ekki alveg jafn skemmtileg, grenjandi rigning og mér datt í hug að bíða eftir strætó en maður klikkaði á að fara í biðskýlið sem var nær bænum og því voru allir strætóar fullir af fótboltalýð sem lét öllum illum látum. Minns bara gekk þá í bæinn og tók fyrsta taxa sem ég sá og kom seint heim, blautur og kaldur en nokkuð sáttur bara.
....and you'll never walk alone you neeeeeeeeeeeeeeeeeever walk alone alone!!!
13.10.2006
Extra Skandínavar
Erum við Íslendingar Skandínavar? Ég er töluvert mikið spurður að þessu og alltaf segi ég nei. Ég taldi alltaf að Skandinavía væri heiti skagans sem Noregur og Svíþjóð liggja á og því væru Noregur og Svíþjóð einu löndin sem tilheyrðu Skandinavíu, var aldrei sjúr með Finnland enda þeir alltaf eitthvað svona erfiðir að skilgreina. Einnig hélt ég að Danir væru nú oftast teknir með Skandínövum svona for the hell of it en aldrei Íslendingar eða Færeyingar. Er ekki verið að rugla saman skandínövum og norðurlandabúum? Var aðeins að skoða málið betur og svo virðist sem skilgreiningar á Skandinavíu eru mjög mismunandi. Mér finnst allavega Ísland ekki tilheyra Skandinavíu.
Extras þátturinn með Ricky Gervais er alveg viðbjóðslega fyndinn. Önnur sería er í fullum gangi og þeir sem eru búnir að gera grín að sjálfum sér og Ricky eru Daniel Radcliffe (aka Harry Potter), David Bowie (sá þáttur var algerlega geggjaður), Chris Martin og nú í gær var það Ian McKellan. Ég varð að fara fram á gang meðan ég horfði svo "painfully funny" var þetta. Ótrúlegt hversu pínlegar aðstæður Ricky getur fundið uppá og stundum er hrikalega óþægilegt að horfa. Þvílík snilld.
12.10.2006
Club vs. country
Landsliðsmenn eru uppspretta endalausra rökræðna og umræða sem hefur verið í gangi lengi er réttur félagsliða til þess að fá bætur skaðist leikmaður þeirra í landsleik. Nú er í gangi mál Newcastle gegn FA þar sem norðanmenn vilja bætur fyrir Michael Owen sem sleit krossbönd á HM. Newcastle telur að þeir hafi orðið af miklum tekjumissi vegna þessa og heimta milljónir punda í bætur. Rafa Benitez kvartar einnig og hefur slegið fram þeirri tillögu að knattspyrnusamböndin myndu borga 50% af launum leikmanna og 100% ef þeir meiðast. Þetta er eflaust sú asnalegasta hugmynd sem maður hefur séð. Þetta er svosem allt gott og blessað fyrir FA, spænska knattspyrnusambandið og fleiri. Hvað myndi KSÍ gera? Nú er Eiður Smári eflaust með svona 30-50 þúsund pund í vikulaun og nokkuð ljóst að KSÍ gæti aldrei borgað helminginn af hans launum, auk allra hinna sem eflaust eru með um og yfir 10 þúsund pund á viku giska ég á. Nokkuð ljóst að miðaverð á völlinn myndi hækka aðeins bankafólkið hefði efni á að fara á leik, en það skiptir kannski ekki máli þar sem það fær alltaf frímiða á leikina. Þessi hugmynd Benítez myndi gera útaf við minni knattspyrnusambönd, eins og það íslenska, nokkur afríkönsk þar sem venjulega er ein stórstjarna í liðinu og restin eru pappakassar. Hins vegar skilur maður svosem pirring félagsliðina sem borga launin og fá menn í misjöfnu standi heim eftir landsleikjahlén. Spurning hvort þessir G14 klúbbar muni taka sig saman og banna leikmönnum að spila með landsliðunum....en spurningin er þá hvort einhver leikmaður vildi spila fyrir þá. Það hlýtur að vera metnaður hvers einasta fótboltamanns að spila með sínu landsliði.
Gekk ekki alveg nógu vel í gær...þetta var svosem þrumuskot þarna af 40m færinu en markmenn eiga að hafa nægan tíma til þess að ráða við skot af svoleiðis færi. Næst útileikur gegn Spánverjum, ekki líklegt að við tökum 3 stig þar. Norður Írar í stuði í okkar riðli, magnað hvað þeir spjara sig. Gekk ekki nógu vel hjá Skotum einnig, Úkraínumenn með þónokkra yfirburði en vítið sem Shevchenko fiskaði var ansi soft. Ítalir komnir á siglingu sem er vel. Það væri frábært ef Ítalir og Skotar kæmust upp úr riðlinum en það mun líklegast ekki gerast.
11.10.2006
Bjartsýni
Menn almennt glaðir hérna yfir leiknum á laugardaginn, magnaður sigur á Frökkum og Skotar eru allt í einu á toppnum. Erfiður útileikur í kvöld gegn Úkraínumönnum en jafntefli þar yrðu mjög góð úrslit. Ég sá nú reyndar ekki leikinn á laugardaginn (né þann íslenska) en mér skilst að Frakkar hafi legið í sókn og átt ótal færi sem ekki fóru inn, það er samt ekki spurt að því....fortune favours the brave eða öllu heldur fortes fortuna adjuvat sagði góður Rómverji um árið og Skotarnir voru hugrakkir og svo sá Fortuna eða grísinn um að boltinn færi í stöngina út en ekki inn hjá Frökkum. Nú er bara að vona Íslendingar taki upp sama hugarfar og að við rústum þessum Svíum og rekum aðeins ofaní þá eftir stóryrtar yfirlýsingar í sænskum dagblöðum.
06.10.2006
Mr and Mrs Gíslason
Jebb....ég spurði, hún sagði já og gifting á næsta leiti. Munum ganga í það heilaga um miðjan desember hérna í Glasgow, nánar tiltekið á afmælisdegi langömmu (og Georges) þann 16. desember næstkomandi. Ég er ekki mikið fyrir að vera í sviðljósinu...tja...ok...ekki mikið fyrir að vera í sviðsljósinu í langan tíma (þó svo að ég sé aðalmaðurinn á þessari síðu og hef verið í langan tíma) og þess vegna ætlum við Christina að hafa þetta smátt í sniðum. Nánustu ættingjar þurfa að bíta í það súra epli að splæsa í helgarferð til Glasgow vikuna fyrir jól en við reynum að bjóða þeim upp á atriði í kirkjunni og haggis í staðinn. Skotar eru löngu búnir að mastera hvernig skuli halda stóra veislu með litlum tilkostnaði....nú bara "bjóða" öllum á pöbbinn þar sem allir geta hist, ekki einu sinni tilboð á barnum...bjór og skot á 500 kall eins og var víst vinsælt þegar ég var ungur. Í grófum dráttum má því segja að við munum hafa stund með nánustu fjölskyldu og munum svo finna einhvern góðan stað þar sem aðrir vinir geti hitt okkur og splæst á okkur bjór...og skoti. Það er alltaf erfitt þegar fólk frá ólíkum þjóðernum ákveður að slá til og halda svona partý, hvar skuli halda þetta. Any excuse for a party er ágætis mottó og þess vegna er bara stefnan að hafa partý í 3 löndum, dugar ekkert minna. Glasgow 16. desember, Reykjavík 30. desember og Ítalíu væntanlega á hálfsársafmælinu 16. júní eða bara á 17. (sem er víst sunnudagur)....er einnig búinn að circa út að Juve á síðasta heimaleikinn 10. júní þar sem sæti í Serie A verður gulltryggt og því alveg tilvalið að slá þessu saman. Við eigum reyndar eftir að ákveða á hvaða stað við getum hist hérna í Glasgow eða heima í Reykjavík. Ég ætla að vera svo rausnarlegur að bjóða öllum lesendum að hitta okkur á pöbbnum, minnugur þess sem ég skrifaði á þessa síðu fyrir rétt tæplega 2 árum (um miðjan nóvember 2004) þegar mér sjálfum var boðið í "veislu" á pöbbnum.
Nískupúkar?
Skotar hafa verið stimplaðir nískupúkar í gegnum árin og höfum við Íslendingar meira að segja tekið upp orð því tengt, sbr. Skota-stúkan í Öskjuhlíðinni fyrir þá sem tíma ekki að borga sig inn á Hlíðarenda. Ég hef nú almennt ekki orðið var við að Skotar séu nískupúkar, þó reyndar sé stundum alveg ferlegt að reyna kreista pening út úr deildinni. Það var nú ekki lítið mál fyrir mann að fá skrifborð og stól. Deildin var sko ekki á því að borga það...og gerði á endanum ekki því að Nicky tók peningana úr styrknum til að kaupa slíkt. Annars er barist um hvert einasta penní hérna og hver reynir að fá peninga í sitt verkefni. Bankakerfið hérna er náttúrulega sér kapítuli útaf fyrir sig. Að kalla Bretland þriðja heims ríki þegar bankar eru annars vegar er móðgun við hin þriðja heims ríkin. Á pöbbnum hins vegar eru menn hins vegar alltaf tilbúnir að bjóða þér bjór og stundum þarf maður að vera snöggur til að fá að borga fyrir sig. Nískunni er ekki fyrir að fara þar á bænum.
Á morgun er mér boðið í trúlofunarveislu. Veislan er haldin á klúbb í Merchant City. Ég hugsaði mér nú gott til glóðarinnar að fá mat og bús þar en málum er þannig háttað að hver verður að borga fyrir sig, mat og drykk. Mér finnst þess vegna eiginlega ekki hægt að kalla þetta veislu, manni hefur bara verið leyft að borða með á staðnum. Þar að auki þarf maður að koma með gjöf. Er þetta til marks um skoska nískupúka, súra Íslendinga eða bara að maður er svo góðu vanur og sækir einungis höfðingja heim?
Mér finnst allavega svindl að vera boðinn í veislu, þurfa að kaupa gjöf handa parinu og borga svo allt ofaní sig sjálfur!
P.S. ykkur er hérmeð öllum boðið í veislu til mín sem verður haldin á pöbbnum, tilboð á barnum. Komið með pakka.
Við munum auðvitað tilkynna hvar við munum vera þegar nær dregur og eitthvað hefur verið ákveðið. Í nóvember 2004 endaði ég á orðunum "komið með pakka", í október 2006 segi ég "ekki koma með pakka". Árið 2006 byrjaði heldur ömurlega og í ljósi þess höfum við Christina ákveðið að vinsamlegast afþakka allar gjafir en benda fólki þess í stað á framlög til krabbameinsrannsókna í minningu Kjartans frænda. Við Christina ætlum að hlaupa 10 mílna hlaup, Great South Run, í október og söfnum áheitum fyrir krabbameinsrannsóknir þar líka. Ég segi reyndar hlaupa...C hefur ekkert getað æft í sumar og þar sem við erum saman í liði (Team M&C) þá má búast við að við munum taka þetta á mjög hóflegum hraða. Tengill er á vefsíðu M og C liðsins hérna, þar sem hægt er að fá allar nánari upplýsingar. Við höfum takmarkaða stjórn á síðunni og fyrir mitt leyti finnst mér ekki alveg málið að sýna framlög frá hverjum og einum (en þannig er það nú bara) en þá er bara hægt að setja inn dulnefni...viljum að sjálfsögðu ekki að þetta snúist upp í keppni eða fólk fari að rýna í tölurnar, "núnú....Maggi setti bara 100 kall, djöf#$%& nískupúki, ég toppa þetta nú". Það viljum við ekki.
Eins og ég minntist á, þá fór árið 2006 ekki alveg nógu vel af stað en það hefur unnið á og nú stefnum við á slútta því on a high
Góðar stundir.
Maggi og Christina