11.1.2006

Kominn út aftur og er að reyna að koma mér aftur í vinnugírinn. Á þriðjudaginn verður sérstakur rannsóknardagur hérna og ég þarf að standa hjá tveimur plakötum. Var reyndar svo vitlaus að senda abstrakt fyrir hluta verkefnisins sem við erum ekki búin að gera plakat úr, er því að koma einu slíku saman. Kynningin í HR gekk bara vel, nokkur kunnugleg andlit í áheyrendahópnum, meðal annars Hlynur sem er gamall félagi úr HÍ. 

Ég var upgrade-aður á business class í vélinni í gær sem var bara nokkuð fínt. Breiðari sæti og fótskemill, náði ágætis lúr. 

Annars er bakið með leiðindi aftur, hélt ég væri alveg laus við þennan fjanda. Nokkuð fínn alltaf á daginn en næturnar eru ekki alveg jafnfínar. Er búinn að cancellera fótbolta ótímabundið, fer þess í stað á æfingahjólið í gymminu og geri einhverjar hundaæfingar. 

Talandi um fótbolta.....já Celtic eða Sjéltík eins og Gaupi orðar það. Þeir tóku sig til og töpuðu fyrir Clyde í bikarkeppninni. Clyde er í fyrstu deild og frumfraun Keane endaði með ósköpum. Hann átti víst samt spretti í leiknum ef marka má menn hérna. Fall er fararheill samt. Gordon búinn að taka tvær kolldýfur, 5-0 fyrir Artmedia og svo þessi leikur. Hann er samt á réttri leið með liðið og við látum ekki svona slá okkur út af laginu í deildinni. 

5.1.2006

Gleðilegt ár

Sæl aftur, veit eiginlega ekki hvar skal byrja eftir þessa þögn. Er kannski ekki bara fínt að byrja á því að afsaka færsluleysi yfir jólin. Það má skýra með því að það er búið að vera mikið að gerast og enginn tími til skrifta. 

First thing first....svörin við jólagetrauninni sem finna má hér

Búinn að hafa það nokkuð fínt bara. Christina kom og heimsótti landið heim yfir áramótin og var nokkuð hrifin...að ég held. Henni fannst mikið til koma þegar nær dró miðnætti á gamlárskvöld þegar allir gerðust trylltir í að skjóta upp. Annars var bara hörkudagskrá hjá okkur, fórum á Þingvelli, Akranes, Bláa lónið, miðbæinn, Þjóðminjasafnið, matarboð hjá vinum og ættingjum, gistum á Nordica hótel eina nótt og fleira. Náðum ekki að gera sumt, t.d. eins og að mæta í grímuverkfræðipartýið og fara meira út úr bænum. Erftitt að koma öllu að, gerum þetta bara næst. Hef séð það að vera bíllaus í Reykjavík er bara ekkert grín. Allt er eitthvað svo dreift. 

Hvað hefur eiginlega meira gerst síðan síðast....Celtic komnir með gott forskot í deildinni eftir að hafa unnið Hearts á nýársdag í hörkuleik, Sutton farinn til Birmingham. Sé dáldið eftir honum en hann átti 5 frábær tímbil hjá Celtic og hann var jafngóður sem sóknarmaður og hafsent. Gott að hafa svona menn í sínu liði. Gordon er samt að gera allt rétt og nú er Keane orðinn löglegur. Everton komst á smá skrið um áramótin og náði 2 sigrum í röð og náði aðeins að létta pressuna af sér. Þetta verður basl eitthvað áfram en þeir falla ekkert.

Fór í gær í mat til Kidda og Karólínu og fékk æðislegan túnfisk. Mikið svakalega eru túnfiskssteikur góðar eins og mér finnst túnfisksalat ógeðslegt. Skrýtið.

Um helgina er planað enn meira stuð. Oasishelgi á Flúðum. Er að vinna að topp5 listum ársins sem verða birtir hérna eftir helgi, en það er hefð fyrir því að þeir séu frumfluttir í heita pottinum í bústöðunum á Flúðum með Stellu Artois sér við hlið. Á mánudaginn mun ég svo halda fyrirlestur um verkefnið mitt í Háskólanum í Reykjavík og svo fer maður bara aftur til Skotlands á þriðjudagsmorgun að hefja lokaárið. Nú þarf maður að halda á spöðunum.

24.12.2005

Aðfangadagur

Hef nú ekki mikið að segja en óska bara lesendum gleðilegra jóla

Merry christmas

21.12.2005

Heimför

Senn líður að heimför, fer heim á morgun. Er reyndar búinn að ná mér í eitthvað kvef sem ég er ekki alveg að fíla. Það var athyglisverð grein í mogganum í morgun varðandi veðurfar á jólum. Alltaf þegar ég er spurður hvort séu ekki alltaf hvít jól heima, þá svara ég oftast að þegar ég var lítill fannst mér eins og það væri alltaf hvít jól en þeim rauðu hefur fjölgað á síðastliðnum árum. Í mogganum segir að það hafi oftast verið rauð jól á árunum 60-78 en milli 79 og 95 hafi oftast verið hvít jól en nú séum við á hlýindakafla. Þetta rennir stoðum undir það að ég hafi haft rétt fyrir mér....það hafi oftast verið snjór þegar ég var lítill.

20.12.2005

Il compleanno felice alla bellissima

Kristín varð þrítug í gær og af tilefni þess bauð ég henni í hádegismat skömmu eftir að við lentum. Hittum svo nokkra vini hennar og máluðum á keramík í stúdíói í West End. Það er ekki vottur af málarahæfileikum í mér, en það var mjög gaman engu að síður. Fórum svo nokkur til hennar í smá partý um kvöldið. 

Dublin og Belfast

Helgin var alger snilld. Lentum í Dublin um 8 leytið á föstudagskvöldinu og fórum þaðan á Merrion hótelið, 5 stjörnu hótel sem Kristín hafði bókað. Held að ég hafi aldrei gist á svona flottu hóteli. Öll þjónusta og öll smáatriði alveg fyrsta flokks. Til dæmis beið uppi á herbergi lítið súkkulaði sufflé og hafði verið skrifað með súkkulaði "Happy birthday" á lítinn sykurplatta við hliðina á. Tvær silfurskeiðar voru svo til staðar bundnar saman með borða. Mjög flott hjá þeim, Christina hafði sett niður fæðingardaginn sinn þegar hún bókaði hótelið einhverntímann í september. Gaman þegar maður er að borga sæmilega mikið fyrir þjónustu og fær svona "bónus". Maður á kannski ekki eftir að muna eftir því hversu lobbýið og setustofan á hótelinu var flott en maður á eflaust eftir að muna eftir sufflé-inu (sem án efa hefur ekki kostað þá mikið.... bara smá hugvit)....skemmtilegt. Við tókum daginn snemma á laugardeginum og byrjuðum á að fara í hótelsundlaugina og spa-ið. Um hádegisbilið fórum við svo á röltið um miðbæinn og tókum sightseen bus svo um bæinn. Það var gert þar sem við vissum að eitt stoppið yrði við Guinness verksmiðjuna. Tókum nú stutt stopp þar en héldum beint upp á Gravity barinn í verksmiðjunni. Urðum nú að kaupa miða á Guinness-minjasafnið til þess að komast upp á Gravity bar. Barinn er hugsaður sem endastopp fyrir þá sem ætla að fræðast um bruggun Guinness og fær maður einn Guinness per miða. Barinn er á efstu hæð með svakalegu útsýni yfir Dublin, hrikalega flottur. Ég heppinn þar sem Kristínu finnst Guinness vondur og ég fékk því tvo. Ekki slæmt það. Eftir það fórum við aftur niður í bæ og hittum Naomi og mömmu hennar á gömlum pöbb. Gaman að hitta Naomi aftur en hún vinnur í Galway en er frá Dublin og var einnig í heimsókn. Eftir aðra tvo Guinness á þeim pöbb fórum við aftur upp á hótel og drukkum "afternoon tea", svakalega posh og við fengum úrval af samlokum, kökum og skonsum að velja úr. Ballettinn á laugardagskvöldinu byrjaði um 7 leytið þannig að það var erfitt að koma að kvöldmat en te-ið gerði alveg sitt gagn. Staðurinn þar sem ballett sýningin var, var skrýtinn fyrir slíkan flutning. Held að það sé meira um að það séu rokktónleikar þar. Allavega þá kom þetta mjög vel út og ég hafði meira gaman af þessu en ég hafði búist við. Það er náttúrulega fullt af "slögurum" eftir Tjækovskí í sýningunni. Eftir sýninguna fórum við á Temple Bar götuna og tékkuðum stemminguna þar. Kíktum í einn bjór þar og létum það duga. Hörkustemming, hljómsveit að spila írska þjóðlagatónlist...og er ég nokkuð viss um að pabbi hefði ekki hikað eftir nokkra að fá að taka lagið með þeim. Tékkuðum svo út af hótelinu um hádegi á sunnudeginum og tókum smá rölt um miðbæinn áður en við tókum lestina upp til Belfast. Komum okkur fyrir á hótelinu þar áður en við gerðum okkur klár fyrir að verða "mad for it". Fengum okkur að borða á veitingastað sem vinur Marks sem býr í Belfast hafði mælt með. Fínasti staður en maður var alveg meðvitaður að við vorum bæði "underdressed" (enda að fara á oasistónleika) og manni leið pínu út úr kú á staðnum. Oasistónleikarnir voru náttúrulega bara snilld eins og við var að búast. Sama prógram og í Glasgow á miðvikudaginn. Bullubræðurnir og Man City aðdáendurnir tileinkuðu Live Forever George Best sem fór frekar vel í skarann. Menn sungu there's only one George Best lengi eftir að tónleikarnir kláruðust. Miklu betra "crowd" í Belfast, engir "Neds" sem eru viti sínu fjær af drykku og eiturlyfjaneyslu, bara venjulegt fólk í góðu stuði. Þegar Oasis koma til Glasgow, draga þeir að sér mesta rumpulýð borgarinnar....og mig! Við náðum að komast í einn bjór eftir tónleikana. Flugum svo aftur upp til Glasgow í gærmorgun.

Það var svosem ekki mikill tími til umráða og við vorum alveg meðvituð að reyna ekki að vera að spana hingað og þangað um Dublin að reyna sjá sem mest, fórum í Guinness verksmiðjuna og röltum um miðbæinn og Trinity Collage. Dublin er ákaflega skemmtileg borg með áhugaverðum stöðum út um allt. Gengum meðfram ánni eftir ballettinn og þá er búið að lýsa mikið upp þar í kring. Nokkuð ljóst að maður á eftir að heimsækja Dublin aftur. Við eyddum rétt rúmlega 12 tímum í Belfast þannig að það var ekki mikið sem við sáum. Náðum að spotta eitthvað af miðbænum eftir tónleikana og fannst okkur mikið til um jólaskreytingarnar þeirra. Ég á hins vegar rosalega erfitt með að skilja norður írska hreiminn....næ engu sem þeir segja.

Stórvel heppnuð ferð og í raun ferlegt að maður hafi ekki verið búinn að heimsækja Írland áður þar sem það er í 30 mínútna flugfjarlægð. Endum á hinum venjulegu topp 5 og botn 3

Topp 5

Afternoon tea, frábærar samlokur og bakkelsi
Gravity bar og Guinnessinn sem ég fékk þar. Guinnessinn er kannski ekkert svo mikið öðruvísi en maður fær á mörgum stöðum hérna en þetta var bara eitthvað svo mikil stemming. Guinnessnum var 100% hellt rétt í glasið sem tók sinn tíma og ekkert nema gott um það að segja. Good things come to those who wait
Don't look back in anger þegar salurinn syngur undir lokin og Noel bíður bara rólegur. Þeir gera þetta á öllum tónleikum og þetta er alltaf jafnmikil gæsahúð
Seinni hálfleikur í ballettinum....þá var hver slagarinn á eftir öðrum
Gangan meðfram Liffy ánni

Botn 3

Að halda að Temple Bar væri einn stakur bar en ekki heil gata....stupid me!
Gæinn sem borðaði poppkorn við hliðina á mér á Hnotubrjótnum þegar walz of the sugarplum fairy var í gangi, hálfgert stílbrot
Að skilja ekki staf í norður írska hreimnum

 

16.12.2005

Írland

Erum að fara á eftir til Írlands til að vera yfir helgina. Fljúgum til Dublin og verðum þar fram á sunnudag og þaðan til Belfast og komum heim á mánudagsmorgninum. Á dagskrá er ballett sýnining á laugardagskvöldinu, hnotubrjóturinn og Oasis tónleikar á sunnudagskvöldinu. Ég fæ svo að fara á Sky barinn í Guinness verksmiðjunni og að bragða á alvöru Guinness. Naomi vinkona mín frá Írlandi verður einnig stödd í Dublin á morgun og við ætlum að reyna að hitta á hana og láta hana sýna okkur alvöru írska pöbba. Ég ætla bara að drekka Guinness í þessari ferð, ok...kannski nokkra Kilkenny's með. 

15.12.2005

Ya beauty

Keano...there's only one Keano!

Jólagetraun

Þá er komið að því sem allir lesendur hafa beðið eftir. Jólagetraun McMagga (reyndar alls ekkert mín getraun þar sem ég samdi hana ekki) komin í loftið. Þetta verður með svipuðu sniði og síðast, en ég mun koma með mínar hugleiðingar smám saman en miðað við frammistöðuna á síðasta ári ætti maður bara að hafa sig hægan. Maður setur inn einhverjar pælingar sem reyna að hljóma gáfulegar.

Jólagetraun McMagga

Uppfært: Ég færði komment-linkinn inn á getraunasíðuna sjálfa, fyrir þá sem vilja koma með gisk og setti nýjan link hérna fyrir neðan. Sigurvegarinn fær mikið hrós að launum. Stefnt er að því að birta svörin á jóladag.

Tónleikarnir í gær voru góðir....bullubræðurnir eru alltaf í stuði.

14.12.2005

Oasis tónleikar í kvöld og það er alltaf stuð. Menn geta haft mismunandi skoðanir á þessari hljómsveit nú á síðari árum en á tónleikum eru þeir hafnir yfir alla gagnrýni. Langbesta tónleikaband í heimi.

13.12.2005

Ekkert að frétta...

Lítið í gangi, maður eitthvað latur þessa dagana...þ.e. meira latur en venjulega. Annars ætlaði maður að koma með eina játningu....ekki þannig játningar eins og "persónulegu bloggararnir" koma með samt. Maður er genginn í barndóm. Kristínu finnst ég ekki vera í nógu miklu jólaskapi þannig að hún fjárfesti í jóladagatali handa mér og er búin að koma fyrir gjöfum eina fyrir hvern dag. Það er visst mörgæsarþema, ég er búinn að fá mörgæsarísskeið, mörgæsarform til að búa til klaka, mörgæsar glasa og diskamottur en einnig er Juventus þema í gangi. Þannig er málið að Gazzetta dello Sport lét fylgja með föstudagsblöðunum sínum í haust dvd um sögu Juventus (einnig reyndar hægt að fá sögu Milan og Inter en hver hefði áhuga á því). Ég náði í þann fyrsta helgina sem við vorum þarna og hef verið að fá hina 10 smátt og smátt. Ég fékk disk númer 8 í morgun sem nefnist "Juve-sul tetto del mondo" (Juve-á toppnum í heiminum) og þar er fjallað um sigur strákanna í Meistaradeildinni 1996, þegar Alex Del Piero var að koma fram og heillaði alla. Mjög gaman að fá pakka á hverjum degi í desember, þótt manni finnist það pínu kjánalegt að fá svoleiðis eins og litlu krakkarnir, fyrir mann sem verður kominn á fertugsaldurinn innan árs. Er reyndar í basli með að finna gjöf handa henni, hún búin að dæla í mann fullt af skemmtilegum og hugmyndaríkum gjöfum og maður er að ströggla að finna nokkrar. Þetta er víst munurinn á vísindamönnum og artí-förtum, við fáum sjaldan skemmtilegar og frumlegar hugmyndir. Hef nú þó nokkrar, en get ekki reifað þær hér þar sem hún skoðar stundum síðuna og það hræðilega er að íslenskan hennar er eiginlega betri en ítalskan mín og hún skilur meira en maður myndi ætla.

P.S. Það var mynd af jólabjöllum í dagatalinu mínu í morgun

Kv. Maggi 5-ára

12.12.2005

HM

Athyglisverður dráttur á HM á föstudaginn. England heppnir með riðil en Ítalir í hörkuriðli með Tékkum, USA og Ghana með Essien og tæklingarnar hans. Hollendingar með Argentínumönnum í riðli. Menn muna kannski síðast þegar þessi lið mættust í 8-liða úrslitunum á HM í USA fyrir 8 árum og þá tók Bergkamp við 50m sendingu og setti sigurmarkið undir lok leiksins, eftirminnilega. Brassarnir einnig í sæmilegum riðli með Króötum, Japönum og Áströlum. Ástralirnir líklegast slakastir en með Gus Hiddink að stjórna er erfitt að segja.

Fótboltaúrslitin í Evrópu með besta móti. Everton náðu jafntefli á Old Trafford en Celtic og Juve unnu og juku forskot sitt á toppnum, meðan Hearts og Milan töpuðu stigum.

Fórum að sjá myndina um göngu mörgæsanna á laugardaginn og höfðum gaman af.

9.12.2005

Miðar á tónleika Rolling Stones fóru í sölu í morgun og minns náði sér í miða. Þeir spila á Hampden í lok ágúst. Hef aldrei séð Stones áður og það fer að verða allra síðasti sjens að sjá þá. Maður er náttúrulega 40 árum of seinn en þetta er meira bara svona til að geta tikkað við og segjast hafa séð stónsarana.

HM dráttur í kvöld sem verður ákaflega fróðlegt að fylgjast með. Hlakka til.

8.12.2005

Lennon

Það hefur ekki farið framhjá neinum að í dag er 25 ára ártíð John Lennons. BBC gerir honum góð skil á vefsíðu sinni og þar má finna upptökur af gömlum viðtölum og meira. Mæli með að fólk skoði BBC.

7.12.2005

7.desember

Manni var komið á óvart í tilefni dagsins í morgun. Kristína kom í óvænta heimsókn klukkan 7 í morgun með glaðning. Hún hafði bakað köku með fótboltakertum og mörgæs. Málið er að stúlkan er dáldið svekkt yfir því að það séu engar mörgæsir á Íslandi og það þýðir lítið að segja að þær búi hinum megin á hnettinum. Henni finnst það samt asnalegt að það engar séu mörgæsirnar að sprikla niður laugaveginn eða að sprikla á Breiðarfirði eða hvar þar nú er sem þær myndu sprikla. Býð henni að sjálfsögðu að sjá mörgæsamyndina sem var sýnd heima fyrir skömmu....hún verður frumsýnd hér um helgina. Anyhoo...mynd var auðvitað tekin af kökunni og hún borðuð í morgunmat. Glæsilegasta kaka hjá stelpunni. Það eru hnetur sem mynda 29. Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn sem ég fæ kökuglaðning, en 17. júní gerði hún einnig köku handa mér í tilefni þjóðhátíðardagsins (þetta eru bláber, kókos og hindber sem tákna litina).

Hulunni var einni svipt af verst geymda leyndarmáli ársins. Í afmælisgjöf fékk ég helgarferð til Írlands um aðra helgi og miða fyrir okkur á Oasis tónleika í Belfast. Við fljúgum til Dublin annan föstudag og verðum þar til sunnudags þegar við förum upp til Belfast og þaðan til Glasgow á mánudagsmorgninum (sem btw. er þrítugasti afmælisdagur stelpunnar þannig að nú þarf að leggja haus í bleyti til að finna almennilega gjöf). Planið er að kíkja á Guinness verksmiðjuna í Dublin en svo förum við á hnotubrjótinn á laugardagskvöldinu að horfa á samkynhneigða menn í sokkabuxum með sokk í nærjunum hoppa um sviðið....neinei ég segi svona. Tjækovskí sér um tónlistina sem er ekki slæmt. Ég þekki allavega tvö lög úr því stykki. Hlakka til að fá mér Guinness samt. Eins og þetta væri ekki nóg, þá gaf hún mér tvö glös, flösku af Laphroig (borið fram Lafroj) whiskey og tvær litlar flöskur af kampavíni en við höfðum ekki alveg lyst á þeim klukkan hálfátta í morgun. 

Svosem ekki hægt að segja annað en það sé vel séð um mann. Planið er að elda handa henni og Mark (ætla að prófa þessa uppskrift) og skreppa svo á pöbbinn að horfa á Benfica-ManU, það verður örugglega hörkuleikur. Jájájájá ég veit alveg að það er ekkert sérlega fallegt af mér að draga stelpuna að horfa á fótbolta með mér Mark og Chris en svoleiðis verður það í kvöld. 

Nýja-bláu-myndafólkið

Stefnir í að þetta ár verði ár nýja bláu-mynda-fólksins. Hrikalegt stuð á tónleikunum í gær. Reyndar smá amatör bragur á rótinu, í fyrstu tveim lögunum var stöðugt feedback. Þau voru einnig stundum ekki alltaf samtaka í byrjun en það bara skipti engu máli fyrir mig. A.C. Newman er alger snillingur og þessi músík er ekkert smá grípandi. Þau eru 6 í bandinu....hljómborðsleikari sem lítur út fyrir að vera dáldið lúðalegur, sólógítarleikari sem lítur út eins og ódýr útgáfa af Ómari í Quarashi (eða Júrí í Smirnoff Ice auglýsingunum), trommari sem líkist dáldið fyrrverandi trommaranum í Stereophonics...svipaður trúður, bassleikari sem lítur út eins og útúrslitinn landafræðikennari í framhaldsskóla, söngkona/hljómborðleikari nr.2 sem er svaka skvísa og minnti mig á Alyssu Mílanó...nema bara svalari. Þau byrjuðu á Twin cinema og tóku mörg lög af þeirri plötu sem og Electric version...þar af öll mín uppáhalds (out from blown speakers, the laws have changed, All for swining you around og Testament to youth in verse). Einnig tóku þau eitt lag af sólóplötu Newmans en það var lagið Most of us prizefighters. Þau komu tvisvar upp í uppklappinu og undir lokin voru þau bara að taka óskalög frá salnum. Það var fullt af lögum þarna sem ég þekkti ekki en hljómuðu svakalega flott.

Þetta var alveg hrikalegt stuð og alls ekkert klám sko.

Rangers

Jæja....litlu kútarnir í rangers komust áfram á 7 stigum sem er fáránlega slappt....Celtic duttu út á 9 stigum eitt árið. Allavega! Ég ætla ekki að vera súri kallinn þannig að ég óska bara rangers stuðningsmönnum til hamingju með árangurinn. Þeir fá væntanlega eitthvað alvöru lið til að spila við eftir áramót. Hvað gerist með McLeish þó? Þeir geta ekkert í deildinni en varla fara þeir að reka mann sem kemur þeim í 16 liða úrslit í Evrópukeppninni....eða hvað? Þeir spila næst við Kilmarnock (sem er liðið hans Marks) og ég held með Killie í þeim leik. Eins og málin standa, þá er þetta kannski ekki svo galið. Eins og deildin er að spilast eru rangers ekkert að fara að spila Evrópubolta næsta ár en með þessum árangri hala þeir inn stig fyrir Skotland sem vonandi mun koma Celtic til góða næsta ár. Það gæti verið að Skotlandsmeistararnir munu komast beint inn í riðlakeppnina næsta ár....spurning hvort það verði Celtic, Hearts eða Hibs.

6.12.2005

Fór á tónleika með David Gray í gær og skemmti mér bara stórvel. Hann tók alla slagarana af White Ladder (Sail away, Please forgive me, This year's love og Babylon), nokkur lög af A new day at midnight og svo náttúrulega flest lögin af Life in slow motion. Ég er að fíla þá plötu mjög vel....fullt af skemmtilegum lögum eins og Alibi, The one I love, Hospital food og Lately. Hann slúttaði uppklappinu á því að taka Cure ábreiðuna Friday I'm in love. Greyið hann Dabbi náði góðu stuði í salnum og bað alla um að kveikja á farsímunum sínum þegar hann tók This year's love og nokkuð flott að sjá ljósin frá símunum í myrkrinu....þetta var svona eins og stjörnur. Kannski að svona takið við af því þegar fólk var með kveikjarana á lofti þegar ballöðurnar voru spilaðar. Bandið hans var bara svona eins og þessi session bönd eru venjulega, nokkuð kúl pía á selló samt en trommarinn var agalegur. Mjög góður en lúkkaði engan veginn, hefði betur átt heima í Beach boys eða eitthvað svoleiðis. Eitt sinn sagði einn við mig að ég líktist David Gray, ég var nú ekki alveg að kaupa það. Fann tvö önnur betri lúkkalæk á Gray í gærkvöldi. Annars vegar Bjarna Hauk Þórsson leikara og fótboltakappann Steve Watson. 

Næstu tónleikar í kvöld, skemmtilega kanadíska poppsveitin með agalega nafnið....The new pornographers. Það verður hörkufjör enda mikil stuðsveit þar á ferð.

5.12.2005

Þrennuhelgi að baki, Everton þokast upp töfluna, bilið breikkar milli Juve og Milan annars vegar og Celtic og rangers hins vegar. Reyndar er ekki lengur litið á rangers sem alvöru keppinauta um titilinn. Roy Keane talar við alla mögulega og ómögulega klúbba þessa dagana. Hef aðeins verið að pæla. Hversu mikil völd ætli konan hans hafi? Nú er Roy að því að ég held, fjölskyldumaður og laus við næturklúbbaferðir (þó hann hafi nú bankað í einhverja skvísu á einhverjum næturklúbb fyrir nokkrum árum svo hún hlaut glóðurauga og forsíðufrétt í the Sun að launum). Hann og fjölskyldan hans eru eflaust búin að koma sér vel fyrir í Salford/Staffordshire eða hvar það sem nú er. Ætli konan segi bara "nei ég nenni ekkert að flytja"? Roy er þannig leikmaður að hann getur eiginlega bara valið sér lið. Hverjir eru þá kostirnir? Tja...hann færi seint til Man City eða Liverpool. Everton gæti því verið kostur. Það eru ekki önnur alvöru lið á þessum slóðum. Ef konan vill hins vegar flytja, þá gæti valið staðið milli Madrid og Glasgow. Hvort ætli konan vilji heldur, rigninguna í Glasgow eða sólina í Madríd? Ætli það sé nokkur spurning. Veit allavega að frú Zidane þoldi ekki Tóríno borg og það var mikið til henni að kenna að ZZ fór til Madríd. Jamm...ég held að frúrnar hafi meiri völd en menn vilja láta og innan veggja heimilisins breytast hinir hörðustu naglar í undirgefna skólastráka. Vona samt að Roy komi til Celtic. Held að Everton væri ekki rétti klúbburinn fyrir hann, þótt ég myndi svosem ekkert gráta að sjá hann í bláu treyjunni.

Kristín er orðin nokkuð spennt fyrir jólunum og er reyndar búin að vera það síðan í október. Við fórum á laugardaginn og keyptum jólatré sem var sett upp heima hjá henni. Hún valdi stærsta (og þyngsta) jólatréið sem hún fann og það tók sinn tíma að bera það frá Byres Road upp til Maryhill (sem er vanalega svona hálftíma labb). Tréið er allavega 1.90 á hæð (mun stærra en ég) og í stofu sem er c.a. 20 fermertar og það verður að segjast að hlutfallið milli flatarmáls trés og heildarflatarmál gólfflatar er í hærri kantinum. Tréið er hins vegar það glæsilegasta, þótt mér finnist fullsnemmt að setja það upp. 

Í dag er svo 214 ára ártíð Mozarts...hann dó á þessum degi árið 1791. Maður reynir að hlusta aðeins á kappann í dag. Á næsta ári er hins vegar 250 ára afmæli hans og eflaust mikið af tónleikum.

30.11.2005

Maggi klaufi!

Mér var bent á þetta í gær. Átrúnaðargoðið, Allessandro Del Piero, var staddur í Glasgow að taka upp auglýsingu fyrir Adidas ásamt Nakamura frá Celtic. Þeir voru víst að þvælast í Drumchapel en einnig í Merchant city sem er í 5 mín göngufæri frá mér. Ég hefði alveg verið til í að fylgjast með þeim köppum leika sér fyrir Adidas.

Amazon er hættulegt fyrirbrigði. Ég var að gera smá innkaup þar fyrir mömmu og afa og ákvað í leiðinni að smella einum disk handa mér...bara svona af því að ég er ég. Ég er búinn að ná í nokkuð mikið af tónlist af netinu það sem af er og er búinn að greina kjarnann frá hisminu og ætlaði að kaupa eitthvað af því sem ég er búinn að vera að hlusta á. Ætlaði að kaupa plötuna með Kaiser Chiefs. Maður dundar sér á síðunni...klikk klikk...search Kaiser Chiefs....klikk klikk á fyrsta sem kemur upp, hugsar með sér....jamm þetta er coverið og nafnið á plötunni....klikk klikk proceed to checkout. Þegar ég skoðaði pöntunina betur þá sá ég að ég hafði keypt dvd diskinn með Kaiser, sem by the way er með eins coveri og geisladiskurinn og heitir Enjoyment en platan heitir Employment. Finnst þetta samt dáldið cheeky af þeim að hafa sama cover og næstum því sama heiti en að sama skapi þokkalegur aulaháttur í mér að sjá ekki muninn þar sem stendur dvd í staðinn fyrir cd. Oh well...þetta er eflaust fínasta dvd.

St. Andrew's dagur í dag en st. Andrew er verndardýrlingur Skotlands svona eins og st. Patrick er á Írlandi og st. George í Englandi en ekki fáum við frí eins og nágrannar okkar á þeirra dögum. Maður fær sér samt haggis á eftir.

29.11.2005

Var rólegheitahelgi, brasaði mér smá mat á laugardagskvöldið og horfði á Match of the day...held ég bara í fyrsta sinn á tímabilinu. Laugardagskvöldin hjá manni hafa verið bókuð í annað það sem af er vetri. Match of the day er samt með því allra besta sjónvarpsefni sem völ er á. 

Orðið dáldið kalt hérna og það er stöðugur hrollur í manni, líklegast blanda af lélegri einangrun í húsunum og að maður er að verða að aumingja. Það var ansi kalt í boltanum í gær....minnti mann bara á gaddfreðið gervigrasið í Laugardal. Gott að maður á góða sæng og góð ullarföt.

26.11.2005

Því hefur verið ljáð máls á að slóðin fyrir þessa síðu sé ekki jafngóð og síðan sjálf. Tölvan sem hýsir þessa slóð verður tekin niður með tíð og tíma og því hef ég flutt á annan stað sem er með þeirri mögnuðu slóð http://personal.strath.ac.uk/magnus.gislason/

Allar færslur í framtíðinni verða það. Ég bendi á hinn magnaða fídus "Favorites" fyrir þá sem ekki treysta sér að muna slóðina.

Mér finnst viðeigandi að slútta http://homepages.strath.ac.uk/~lfs04101 með smá grein um kallinn sem var aðalmaðurinn í boltanum og rokkinu fyrir þónokkru og má eiginlega segja að hann hafi verið eins konar svar Breta og Norður Íra við Rúna Júl

25.11.2005

Best

Svosem ekki hægt að fara í gegnum daginn án þess að minnast á Georgie Best, kallinn búinn að vera á grafarbakkanum í mörg ár. Ég get nú ekki sagt að ég hafi séð marga leiki með honum en það sem maður hefur séð og lesið þá hefur hann verið ansi magnaður, í klassa með Pele, Maradona og Cryff. Hann hefur samt verið alger nagli á sínum tíma og var kallaður fimmti Bítillinn vegna poppstjörnulífsstíls síns. Best fjölskyldan hefur greinilega verið mikið viðloðandi Bítlana....ég meina George 5. Bítillinn og Pete að tromma. Svosem ekkert skrýtið enda eru Bítlarnir Best-ir

Sum komment Bests eru æðisleg, allir þekkja náttúrulega þegar hann sagðist hafa eytt miklum peningnum í áfengi, konur og bíla en sóað restinni. Football365 (Ólajóh þakkað fyrir að hafa bent mér á þetta) menn hafa tekið nokkur saman. Þau bestu eru án efa

"I saw an advert on the side of a London bus inviting me to 'Drink Canada Dry'." - Best útskýrir af hverju hann fór að spila fótbolta með Vancouver Whitecaps
"I used to go missing a lot...Miss Canada, Miss United Kingdom, Miss World..."

....they don't make them like that anymore.

Bolti og kalkúnn

Horfði í gær á leik Middlesboro og Alkmaar í uefa cup. Gaman að sjá Grétar standa sig vel, hann fékk reyndar að finna fyrir því frá Pogatetz og Boateng en hann sjálfur straujaði svo Boateng. Skil samt ekki í Gaal að setja hann í bakvörðinn, nota hann á kantinum. Annars er þetta Alkmaar lið fínasta lið, stóðu sig vel í evrópukeppninni í fyrra og virðast vera að blanda sér í toppbaráttuna þarna í Hollandi. Ætla að gera þetta að mínum mönnum í Hollandi

Annars er ég að fara í thanksgiving kvöldmat í kvöld, ekki hef ég neina hugmynd hvort það séu einhverjir hallærislegir bandarískir siðir sem fylgja slíku boði, það kemur í ljós. Er ekki annars verið að minnast þess að pókahontas Haukdal gaf einhverjum wannabe Könum tyrkja að éta eða eitthvað svoleiðis. Veit það allavega að mér finnst gott að éta tyrkja.

24.11.2005

Leikhús

Við Kristín fórum í leikhús í gær að sjá leikrit sem hafði verið gert um Thomas More. Hafði nokkuð gaman að því og hef aðeins verið að glugga nánar í söguna milli More, Hinriks VIII og þessu umróti öllu varðandi ensku kirkjuna fyrr á öldum.

Leikhúsin mættu taka bíóin sér til fyrirmyndar með sætin, það eru ekki alltaf þægilegustu sætin í þessum stofnunum

23.11.2005

Skemmtilegir tónleikar í gærkvöldi, mikið stuð á Franz. Fannst sérstaklega flott þegar þeir tóku "Outsiders" en þá voru 3 að tromma á einu trommusetti. Þetta hljómaði eins og þegar John Bonham var í stuði í gamla daga. Franz Ferdinand er fínasta stuðhljómsveit og fyndið hvernig mörg lög enda bara svona 1-2-og-3 og stundum með einu góðu "yeah" í endann. Rokk og ról.

22.11.2005

Um helgina fór ég með Chris til veðmangarans til að setja smá pening á nokkra leiki í ensku, setti sigur á ManU, Liverpool, Notts County, Sheffield Utd og jafntefli milli Man City og Blackburn. Að sjálfsögðu klikkaði leikurinn sem átti að vera öruggur, Sheffield menn náðu bara jafntefli gegn botnliði Millwall. Varð frekar pirraður. Fín úrslit í boltanum um helgina, nema fyrir Everton. Ótrúlegt að dómarinn skyldi dæma bæði "utan vítateigs" tilvikin okkur í óhag. Mikið svakalega var Ronaldinho góður á laugardaginn, hann var alveg í öðrum klassa.

Franz Ferdinand tónleikar í kvöld sem við eigum miða á. Það ætti að geta orðið gott stuð.

18.11.2005

Ertu þá farinn....ertu þá farinn frá mér....hvar ertu núna?? Vonandi í austurenda Glasgow

Jæja...þá er Roy Keane farinn frá Utd, leiðinlegt að það þurftu að vera einhver leiðindi við brotthvarf hans frá Old Trafford. Finnst svona eins og hann ætti nú aðeins betra skilið, þrátt fyrir skapofsann og Middlesborough ummælin. Ég bara vona að hann komi til Celtic sem var alltaf hans uppáhaldsklúbbur. Ef hann sést í stúkunni á Parkhead á morgun þá er ljóst að eitthvað er í gangi. Jebb á morgun er Old Firm leikur. Er hræddur um að rangers gæti náð einhverju út úr þessu, þar sem þetta er alveg að duga eða drepast leikur fyrir þá. Jafntefli væri mjög góð úrslit. Everton svo í beinni á Sky um eftirmiðdaginn og svo El Classico um kvöldið. Stefnan sett á að horfa á 3 fótboltaleiki og drekka bjór. Búinn að fá leyfi frá frúnni og alles....jeeeessssssss.

16.11.2005

Maður með mönnum

Í gær var ég vígður inn í samfélag siðmenntaðra manna hér í Skotlandi. Athöfnin var látlaus og fór fram í musteri Bank of Scotland við Queen Street. Ég er semsagt kominn með alvöru bankareikning með heilum 2% ársvöxtum og hef rétt á yfirdrætti og get jafnvel notað kortið til að borga með heima (kemur í ljós um jólin). Ég var svo boðaður í viðtal með sérfræðingi í næstu viku um sparnaðarleiðir sem bankinn býður upp á, hef nú ekki reyndar hugmynd um af hverju ég þekktist það boð en þetta var ótvíræður móralskur sigur í gær. Ég er allavega ekki lengur með reikning  eins og 16 ára krakkar hérna hafa.

15.11.2005

Var í hörkubolta í gær, erfiður leikur þar sem bestu 5 drógust saman gegn okkur hinum. Við náðum þó að standa vel í þeim náði ég að setja nokkur kvikindi (eins og það heitir á fótboltamáli). Eitt atvik hélt þó smá vöku fyrir mér í nótt. Það kom langur jarðarbolti fram á mig þar sem ég snéri með bakið í mark andstæðinganna með annan mann í bakinu. Minns tók smá snertingu á boltann og chippaði honum yfir hausinn á varnarmanninum og snéri á punktinum. Náði að taka boltann svo beint niður á hægra lærið eftir snúninginn en þá var annar kominn upp að hægri hliðinni þannig ég notaði vinstri til að skjóta......og skaut framhjá. Allt í allt 3 snertingar sem hefðu getað orðið að marki lífs míns.  

14.11.2005

Brrrrr....

Kalt í dag og ekki eru Bretar þekktir fyrir að einangra húsin sín vel. Skítkalt á skrifstofunni í dag og ætli maður bara komi sér ekki heim snemma. Annars var þetta bara róleg helgi, við Kristín fórum aðeins í bæinn og þar var allt brjálað að gera. Maður gerir bara jólainnkaupin sín online þetta árið. 

11.11.2005

Búinn að vera latur við að fara á tónleika hérna undanfarið. Búinn að fjárfesta í nokkrum miðum á tónleika núna í nóvember og desember en einnig í byrjun næsta árs. Er kominn með miða á Belle and Sebastian, Nick Cave, Franz Ferdiand, New Pornographers og Eric Clapton (bara svona meira til að geta tikkað við að hafa séð hann einu sinni...en Kristín er aðdáandi hans). White Stripes spila hérna frá sunnudegi til þriðjudags en það er uppselt á alla þrenna tónleikana. Kannski maður reyni að redda sér fyrir utan. Einnig er uppselt á Decemberists sem eru hérna í næstu viku...maður sér til.

Í dag minnast bretar hins vegar heimsstyrjaldarinnar fyrri og allir (nema ég) með rauð poppies plastblóm í hægra hnappagati.

10.11.2005

Góður leikur í gær þar sem Celtic unnu rangers, þessi leikur var reyndar bara í deildarbikarnum en aðalleikurinn verður aðra helgi í deildinni. Með sigri þar geta Celtic nánast tekið rangers út úr kapphlaupinu um titilinn.

Nicky fer í barneignarleyfi á morgun og verð ég því bara sjálfala fram í apríl. Maður veit svosem alveg hvað maður á að gera þannig að það er ekkert vandamál. Er að leggja lokahönd á greinina sem við skiluðum inn í byrjun júní fyrir ISB verðlaunin. Síðan maður kom aftur úr sumarfríi ákvað ég að prófa nýjar leiðir í þessu þar sem niðurstöðurnar okkar voru ekki alveg pottþéttar. Það reyndar varð að algerri þrautargöngu en vonandi erum við komin með góða aðferð til að búa til þessi módel. Læt hana líta yfir þetta á morgun til samþykkis.

8.11.2005

Graham Rix tekinn við þjálfuninni hjá Hearts, stuðningsmönnum þeirra til mikilla ama en öllum hinum til nokkurrar gleði. Skrýtinn þessi Romanov gæji, segist ætla að gera Hearts að stórveldi í boltanum og reyndi að fá Bobby Robson, Ottmar Hitzfeld og Ranieri til að taka við af Burley en þeir neituðu (meðal annars vegna þess að framkvæmdarstjórinn var rekinn og formaður stjórnarinnar sagði af sér) og svo ræður hann Rix sem var aðstoðarmaður Vialli eitt sinn og hefur eitthvað stjórnað í ensku annarri deildinni. Sé hann ekki sem rétta manninn þar á bæ. Skotarnir ekki lengi að koma upp með lag sem andstæðingar Hearts geta sungið á pöllunum

Away up in Gorgie he creeps round the park
Lookin for schoolies who are out after dark
He offers them smarties & mars bars & twix.
U better watch out cos here comes Graham Rix

Fyrir þá sem þekkja ekki söguna um Rix, þá sat hann í steinunum fyrir 4-5 árum fyrir að sofa hjá 15 ára stelpu

7.11.2005

Hat-trick

Eins og pabbi benti á í athugasemdunum fyrir neðan þá var þetta þrennuhelgi og sú fyrsta þetta tímabilið og samanlögð markatala var 7-0. Kominn tími til. Óhætt að segja að það sé þungu fargi af manni létt að sjá Everton komast úr fallsætunum. Ekki spillir svo fyrir að Celtic og Juve eru í toppsætunum.....já og rangers náði bara jafntefli.

Afmælisveisla hjá Halla í Edinborg á laugardaginn. Hann bauð uppá hangikjöt, uppstúf, plokkfisk og harðfisk sem smakkaðist mjög vel. Gott stuð í partýinu en minna stuð í leigubílaröðinni í Glasgow (eftir að hafa tekið rútuna yfir).

4.11.2005

Við Kristín erum að fara í leikhús í kvöld að sjá "With pockets full of rocks". Athugulir lesendur sjá eflaust að íslenska þýðingin er "Með fulla vasa af grjóti" sem einmitt var sýnt heima. Á nú ekki von á því að þetta verði jafngott eins og hjá Hilmi Snæ og Stefáni Karli. 

Flugeldadagar hérna til að minnast þegar Guy Fawkes ætlaði að sprengja Westminister fyrr á öldum. Það verða einhverjar flugeldasýningar....en ég er meira spenntur fyrir því að Celtic, Everton og Juve verði með flugeldasýningar gegn Falkirk, Middlesborough og Livorno

3.11.2005

Venjulega er alltaf fótbolti á miðvikudögum en honum var aflýst í gær þannig að maður nýtti tækifærið og skellti sér á pöbbinn (Sky er nefnilega með réttinn á miðvikudagsleikjunum og því ekki hægt að horfa heim...nema maður sé með Skysports sem ég hef ekki) og horfði á Lille - Manjú. Þetta Manchester lið er bara skugginn af sjálfu sér og það verður fróðlegt að heyra hvað Keane hefur um þessa frammistöðu þeirra að segja. Við hliðina á mér sat snoðaður, tannlaus gæji með eyrnalokk og fór að spjalla við mig. Við erum þjáningarbræður, en hann heldur með Celtic og Everton.....toppnáungi. Skildi nú ekki allt sem hann sagði þar sem hann talaði algera ofurglasgósku.

Mark kominn aftur. Er ekki góð þjálfun fyrir fótbrotna menn að standa á öðrum fæti og vaska upp og þrífa? Mig minnir eins og ég hafi lesið það einhversstaðar.

2.11.2005

Skróp

Christina var beðin um að taka að sér forfallatíma í vikunni þar sem einn kennarinn hafði tilkynnt sig veika. Þegar hún hringdi heim til hennar til að tékka á hvaða efni hún ætti að taka fyrir, komst upp um allt. Meðleigjandi "veika" kennarans sagði að hún væri ekki heima, hún væri ekki komin úr helgarferðinni sinni til Ítalíu. Lágmark að búa svo um hnútana að maður sé ekki gripinn svona glóðvolgur. 

Hvað finnst fólki um Keane? Eiga þessar yfirlýsingar hans rétt á sér? Keane er náttúrulega frábær spilari og hefur svosem alltaf verið þannig að hann segir nákvæmlega sem honum sýnist en sjaldan gengið svona langt (hjá Man U allavega....Mick McCarthy fékk það óþvegið frá honum). Ég var samt að pæla: Er auðvelt fyrir hann að ganga lengra í gagnrýni sinni þar sem hann er meiddur og á ekki "beinan þátt" í vandræðum Manjú þetta tímabil? Hann er allavega búinn að setja töluverða pressu á sig þegar hann byrjar að spila aftur...eins gott að hann eigi bara toppleiki þá. Held það sé alveg ljóst að O'Shea, Fletcher og Ferdinand bjóða Keane eflaust ekkert í partý til sín á næstunni.

1.11.2005

Middlesborough 4 - Man Utd 1

Þjálfarar á Old Trafford hafa verið að leita skýringa á stórtapi þeirra á laugardaginn. Gæti verið að tapið um helgina hafi eitthvað með heimsókn nokkurra Skagamanna (Liverpool-aðdáanda) eftir leikinn gegn Tottenham um síðustu helgi að gera? Spurning...

Heyrðu pabbi....værirðu ekki til í að heimsækja José Mourinho og Rafa Benitez og segja þeim hvernig eigi að stilla upp liði?