31.10.2005
Við Halli fórum í fjallgöngu á laugardaginn upp á Cobbler sem er við smábæinn Arrochar við Loch Long. Mjög gaman þrátt fyrir að maður var orðinn ansi blautur og kaldur þar sem það rigndi eins og hellt væri úr fötu. Útsýnið á toppnum var ekkert en maður verður bara að gera sér ferð þangað aftur næsta sumar í góðu veðri.
Á föstudagskvöldið var maður boðaður í að skera andlit í grasker með Christinu og vinkonu hennar. Það kemur flott lýsing þegar þegar sprittkertunum er komið fyrir inn í þeim. Óþarfi er að taka fram að vinkona Kristínar er bandarísk.
Helga systir átti svo afmæli á laugardaginn og er offisjallí orðinn táningur....styttist í gelgjuna og kjálkaaldurinn.
Við komin á sama tíma og Ísland núna...þannig að það er bjartara þegar maður fer til vinnu en að sama skapi myrkur þegar maður fer heim.
28.10.2005
Nú er tölvan mín orðin að súper-dúper mulningsvél. Dual örgjörvi 2.8 GHz og 3 Gb vinnsluminni. Svona á þetta að vera.
Ekki málið núna að hlusta á músík meðan tölvan mylur tölurnar í finite element líkaninu...ekkert mál.
Topp 5
| Cardigans: I need some fine wine and you, you need to nicer (Nina alltaf jafnsæt....alveg magnað hvað hún er svöl) |
| Babyshambles: Albion |
| Starsailor: In the crossfire |
| Franz Ferdinand: You could have it so much better |
| Art Brut: The rusted guns of Milan |
27.10.2005
C'mon the Hoops
Eins og ég sagði hér að neðan þá vann Celtic Motherwell 5-0 og hér eru mörkin. Ég hvet alla sem eru með sæmilega tengingu að tékka á þessu. Sum þessara marka eru ekkert annað en frábærlega stórkostleg! Fyrsta markið er skólabókadæmi um hvernig eigi að rífa vörn andstæðinganna í tætlur horfið á hlaupið hjá Petrov og fjórða markið er kennslustund í hvernig á að taka aukaspyrnur. Celtic eru frábærir.
Eitt og annað
Fór í bíó í gær á Tim Burton teiknimyndina, "corpse's bride". Þegar Christina stakk upp á þeirri mynd hélt ég að þetta væri ein af þessum unglingahryllingsmyndum en sá svo að þetta var mynd eftir Burton þannig að ég lét tilleiðast. Stórskemmtileg mynd alveg.
Annars bara hress, rigningin hérna virðist aðeins vera að dala, sól í dag. Það er ekkert búið að vera fyndið hvað er búið að rigna mikið hérna síðustu daga. Vonandi að þetta haldist gott á laugardaginn því að þá ætlum við Halli í fjallgöngu. Kominn tími á að við kíktum aðeins upp á fjöll.
Juve setti met í gær með 9 sigurleikjum í röð og mæta Milan á laugardaginn. Það væri æðislegt að ná 10. sigurleiknum á San Siro svo allir í Away stand geti sungið "chi non salta rossonero é". Celtic rústaði Motherwell 5-0 meðan rangers náðu bara jafntefli við Livingston sem eru neðstir í deildinni og hafa ekki unnið leik á tímabilinu. Það eru allir brjálaðir núna á ibrox, þar sem þeir eru 8 stigum á eftir okkur og 11 á eftir Hearts. Þeir eru alveg út úr þessu sem manni leiðist ekki.
26.10.2005
Gosi
Í ítölskutíma í gær vorum við að skoða myndir úr ævintýrinu um Gosa og áttum að segja hvað væri að gerast á hverri mynd. Fattaði þá að ég hef ekki hugmynd um hvernig sagan af Gosa er....greinilega hefur trésmiðurinn sem bjó hann til, þ.e Árni Tryggvason lent í fangelsi og lenti svo inni í hval. Var það ekki Jónas sem var í hvalnum? Er ég kannski að rugla saman Árna og Jónasi.....hver er þessi Jónas eiginlega? Man alltaf bara eftir gæjanum í brúðuleikhúsinu og refnum.
25.10.2005
Focaccia
Hef síðastliðin misseri stundum verið að dunda mér við að baka focaccia brauð, tók mig til í gærkvöldi og hnoðaði í eitt deig og lét hefast yfir nótt og smellti svo í ofninn klukkan 7 í morgun, þannig að maður gat tekið með sér nýtt brauð í nesti í morgun. Mér tekst aldrei að fá mjúka áferð á annað yfirborðið...það verður alltaf stökk skorpan, botninn var þó sæmilega mjúkur þar sem afgangsolían lak af og hélt honum rökum. Ég hef verið að fara í gegnum uppskriftir á netinu og þær eru nær allar eins og ég geri þetta, nema hvað að ég sleppi saltinu, einhver sagði mér einhverntímann að salt dræpi gerið. Hef einnig smellt timjan jurtum í til að bragðbæta. Það veldur mér samt heilabrotum af hverju toppurinn verður alltaf svona harður.
24.10.2005
Sýningin í Edinborg var mjög áhugaverð, gaman að sjá þessa hluti tengda Nikulási og Alexöndru Romanov. Varð reyndar fyrir smá vonbrigðum með að það voru bara 4 Fabergé egg til sýnis og bara einhver postulínsegg (meðal annars "sang de boeuf" eggið)....ekki þetta gyllta á vagninum.
Leikritið var einnig mjög fínt, bara hallærislegt að heyra skota reyna að herma eftir suðurríkja ameríkönskum hreim. Við vorum á fremsta bekk þannig að við heyrðum eiginlega of vel. Þeir sem þekkja sinn Tennessee vita að það eru þónokkrar senur með látum og djöfulgangi. Plús var að aðalkvenleikkonan var mikið á undirkjólnum og sá maður slatta af holdi sem var ekki slæmt....fit pía.
Klukkan 5 í gær sá ég fram á fyrstu þrennuhelgi vetrarins, Juve og Celtic búnir að vinna sína leiki og Everton yfir gegn Chelsea í hálfleik. Reyndar endaði sá leikur svo í jafntefli en það var ekkert svo slæmt. Everton fara að ná Liverpool bráðum enda eru þeir rauðu álíka lélegir í deildinni og við þessi dægrin. Hvað var svo málið með þetta víti Arsenal manna? Hrokafullir Frakkar reyna að gera eitthvað sirkusmark sem sprakk í höndunum á þeim.
Mark er núna heima hjá sér í Addrossan að ná sér eftir fótbrotið. Hef á tilfinningunni að þetta sé upphafið að endinum á samvistinni. Hann er að skrifa upp ritgerðina sína og ég á ekki von á því að hann verði mikið á Great western road fram að 20. janúar þegar leigusamningurinn rennur út. Spurning hvað maður eigi að gera, reyna að finna annan meðleigjanda eða minnka við sig. Það væri langhentugast ef Mark myndi framlengja en ég held að svo verði ekki raunin.
21.10.2005
Fótbolti.net
Mér finnst fotbolti.net mjög skemmtileg íslensk fótboltasíða og skoða reglulega. Endrum og eins eru fótboltamenn/konur í viðtali...tja ekki beint viðtali, meira svona "hvað finnst þér skemmtilegt"-viðtal. Ein Blikapía var í viðtali í vikunni og var spurð um uppáhaldsíþróttamann og hún sagði Neil Armstrong sem mér fannst dáldið fyndið. Ætli hún hafi ekki verið að meina bara Luis...eða kannski þennan sem er að deita Sheryl Crow?
20.10.2005
T-þema
Um helgina verður T þema hjá okkur Christinu. Tsars, tapas og Tenessee. Hún er að fara til Edinborgar að ná í skartgrip sem var í viðgerð þar og við ákváðum því að gera dag úr því. Það er rússnesk sýning í gangi tengd keisaraættunum (ég þekki reyndar bara Romanov ættina: eigandi Hearts er Romanov en hann er Lithái en held ég óskyldur keisurunum) og spurning hvort það verði einhver Fabargé egg til sýnis? Ætlum á tapas stað eftirá og svo í leikhús um kvöldið að sjá Cat on a hot tin roof eftir Tenessee Williams (Christina er Williams en ég held að þau séu óskyld). Spurning hvort maður eigi að toppa þetta með Tennents og að reyna að hitta á Mr. T
Annars er Christina byrjuð að kenna mér íslensku, hún vildi að ég læsi fyrir sig Kleifarvatn á íslensku. Þegar kom að setningunni "Hana langaði alltaf til að vera vísindamaður" (eða eitthvað svoleiðis á bls 2.) fékk ég spurninguna, hvar er frumlagið (the subject) í þessari setningu. Ég bara kom af fjöllum og giskaði á "hana", þá náttúrulega kom næsta spurning: "" af hverju er það hana langar en ekki hún langar" og maður svarar...aþþvíbara...að langa tekur alltaf þolfall (akkusativ) og hún spyr á móti hvort þetta sé ópersónuleg sögn sem ég hafði ekki hugmynd um. Sögninni "að langa" var því flett upp í orðabók og þar kemur í ljós að hún er ópersónuleg. Nú er semsagt útlendingur byrjaður að kenna mér íslenska málfræði.
Ekki það að ég ætli að vera fúll á móti með þetta "klukk" en ég veit ekki alveg hvað þessar staðreyndir um mann ættu að vera.
18.10.2005
Hrikaleg óheppni
Smá slys í boltanum í gær. Annað fótbrot og að þessu sinni var það Mark sem var fórnarlambið. Eins og ég skrifaði í júní, þá hafði ég aldrei orðið vitni af fótbroti í nördabolta fyrr en nú eru tvö stykki staðreynd á 4 mánuðum. Alveg ótrúlegt. Mark lenti í samstuði við annan með þeim afleiðingum að bæði sköflungsbeinin brotnuðu (tibia og fibula). Ég fór með honum upp á slysó og beið þar fram á nótt eftir niðurstöðum röntgenmyndanna. Hann var látinn vera eftir á spítalanum og læknirinn sem ég talaði við útilokaði ekki aðgerð þar sem pinnar yrðu settir inn til að rétta af beinin. Það var þó alls ekki víst og vonandi er bara nóg að smella honum í gifs, þetta fer allt eftir því hvernig beinin liggja, það kemur í ljós seinna í dag. Það er læknir sem spilar með okkur og hann áttaði sig strax á aðstæðum og reddaði málum.
Mark hefur alltaf verið með legghlífar og ég hef alltaf verið að segja honum að þær geri ekkert gagn....þær gerðu allavega ekki mikið í gærkvöldi. Ég nenni aldrei að spila með legghlífar.
Skrýtinn hvellur sem heyrist þegar bein brotna, svona meira hár smellur. Alveg ótrúleg óheppni að það skuli hafa verið 2 beinbrot á 4 mánuðum, þetta er alveg hörkubolti en menn eru alls ekkert grófir. Allavega, vonandi að allir komist heilir frá leiknum á morgun.
17.10.2005
Svaka fínn indverski maturinn á föstudaginn. Þetta var víst ekki alveg rétt hjá mér með konungsríkið en það fóru víst margir indverjar til Sri Lanka til að vinna fyrr á öldum, höfðu þá engin réttindi en hafa verið að berjast fyrir betri réttindum og eru nú komnir í sjálfstæðisbaráttu sem manni kannski finnst nú full mikið af því góða. Þess vegna voru alltaf þessar aðskilnaðarsinnar tamíla í fréttum.
Þetta er nú alveg hætt að vera fyndið hjá Everton, skil ekki hvað er í gangi og það gerir Moyes ekki heldur. Þá er bara næsta verkefni að vinna Chelskí á sunnudaginn.
Nýr landsliðsþjálfari, Eyjólfur Gjafar Sverrissson. Ekki vissi ég um þetta Gjafars nafn en það virðist vera í tísku hjá blaðamönnum að nota það. Fyndið þetta millinafn hans er aldrei minnst á síðan ég fór að fylgjast með fréttum af honum en er orðið eitthvað svaka hipp og kúl núna....fatta það ekki. Var Jolla nafnið ekki nógu fínt? Þetta er eins og þegar eitthvert gáfnaljósið komst að Geremi héti Nijtap Geremi og það fóru allir að tala um Nijtap, maður hafði ekki hugmynd um hvern væri verið að tala. Eyjólfur er allavega merkilegur náungi. Spilaði í 3. deildinni, komst í U-21 landsliðið og skoraði í einum leik 4 mörk (gegn Finnum að mig minnir) og fer þaðan beint í Bundesliguna og er þar allan sinn feril. Byrjar svo þjálfaraferilinn á U-21 og tekur svo beint við A landsliðinu. Segi að hann geri Íslendinga að Evrópumeisturum 2008 og taki svo við af Jurgen Klinsmann.
Já og svo Nijtap er í vörninni ásamt Gjafari.....
14.10.2005
Eftirsjá af Írunum að komast ekki á HM, en svona er þetta. Skotarnir í stuði þegar engin pressa var, öll þrjú mörkin sem þeir gerðu voru mjög flott. Sá ekkert af leiknum okkar en það gengur náttúrulega ekki að fá á sig 3 mörk í hverjum einasta leik. Ekki skrýtið að við vinnum ekki leiki þar sem við höfum ekki skorað fjögur mörk síðan gegn Andorra þarna um árið....gerðum við það ekki einu sinni gegn Tyrkjum einnig?
Annars lítið í gangi, verkefnið í tómri steypu. Allar keyrslur divergera, allir snertifletirnir milli beinanna eru í kleinu og forritið kvartar stöðugt undan því að hnútpunktar í einu beini eru komnir alltof langt inn í það næsta. Hvað var ég eiginlega að spá að fara út í þessa helv#$%& vitleysu? Doktorsgráður eru hvort eð er stórlega ofmetnar, ekki eins og maður fái risakauphækkun fyrir þær. Nenni þessu engan veginn.
Við Christina ætlum í karrí í kvöld með Chris og Shiv og þeirra frúm. Þetta á að vera eitthvað spes suður-indverskt og ekkert líkt því sem maður fær sér venjulega. Shiv talar tamílsku og maður hugsar hmmm er það ekki á Sri Lanka? Við nánari eftirgrennslan fann ég að syðsti hluti Indlands og Sri Lanka voru eitt sinn eitt konungsríki. Maður veit eiginlega samasem ekkert um þennan heimshluta.
12.10.2005
Amateurs
"Forstjóri BBC, Mark Thompson, segist vita að afnotagjöldin séu ekki vinsæl viðbót við þá reikninga sem fólk þurfi að greiða en viti hins vegar að eftirspurnin sé mikil eftir aukinni, stafrænni þjónustu. Árstekjur fyrirtækisins af afnotagjöldum eru nú tæpir þrír milljarðar punda eða um 323 milljarðar ísl. króna þegar þetta er skrifað.
Tessa Jowell, ráðherra menningarmála í Bretlandi, hefur lýst þeirri skoðun sinni að afnotagjöldin séu „ekki fullkomin“ en þó besta leiðin til þess að fjármagna starfsemi BBC. Fyrirtækið hefur þegar beitt niðurskurðarhnífnum með því að segja upp 3.800 starfsmönnum nýverið og beita ýmsum leiðum til sparnaðar og hagræðingar í rekstri þar innan dyra. The corporation aims to make its TV programmes available on the internet, to make its archive more accessible and invest more in local TV and radio services. The BBC has also pledged to show fewer repeats and move some of its operations out of London - although a planned move for some of its departments, including sport, children's productions and Radio Five Live, to Manchester may depend on the licence fee settlement."
Hvernig er þetta? Nenntu menn ekki að þýða meira eða var verið að leita í oðrabókinni af orðinu "corporation". Finnst nú frekar glatað að þýða beint upp af BBC heimasíðunni en hálfu verra er að birta það hálfklárað á sinni eigin vefsíðu. Hefur Magnús Kjartanson og STEF enga lögsögu í svona málum? Segi svona....
Jonathan Woodgate er mesti snillingur sem sögur fara af, þvílíkur lúser. Keyptur meiddur á 13 milljónir punda og spilaði fyrsta leikinn sinn 15 mánuðum eftir að hafa verið keyptur, skoraði þá sjálfsmark og fékk rautt spjald. Í leik í gær gerði hann svo annað sjálfsmark. Mikið held ég að þessi Florentino Perez (forseti Alvöru Madríd) sitji núna upp á skrifstofunni sinni og hugsi....."meeeen hvað var ég að spá". Reyndar verður að segja Woodgate það til hróss að hann talar spænskuna alveg reiprennandi.
11.10.2005
Monsoon Skotland
Monsún tímbilið hafið með tilheyrandi rigningum og eftir fótbolta í gær höfðu sokkarnir mínir litað tærnar á mér dökkbláar og ég næ ekki þessum lit af tánum, búinn að skrúbba með alkóhóli og alles....þetta er bara pikkfast. Frekar hallærislegt. Annars er spáð svipaðri rigningu út vikuna. Spurning um að fara í hvíta sokka í fótboltann á miðvikudaginn til að ná góðri litasamsetningu á tærnar. Jamm...við ætlum ekki að horfa á landsleikinn á miðvikudaginn þar sem að litlu er að keppa fyrir Skotana.
Ég hef einnig komist að þeirri niðurstöðu að þetta verkefni mitt er óleysanlegt og mun líklegast enda í einhverri tómri vitleysu. Gaman samt að vita af því að fleiri eru að gera heimskulegar rannsóknir
10.10.2005
Sorrý svekktur og sár.
Skotar voru nú meiru aularnir á laugardaginn, hrikaleg frammistaða þýðir að leikurinn gegn Slóvenum er merkingarlaus. Við sátum nokkrir á pöbbnum og horfðum á herlegheitin. Það eina sem gladdi Skotana þennan daginn var rauða spjaldið hans Beckhams, annað var það ekki. Annars verða Írar og Svíar að komast áfram, ég fíla þau lið. Ítalir náttúrulega bókuðu sig í toppsætið, og Lippi segir þetta bara "antipasti" af því sem koma skal. Vonandi að hann hafi á réttu að standa.
Fór að sjá myndina Goal í gær, svosem ekkert frábær mynd en ekkert slæm heldur fyrir þá sem hafa gaman af fótbolta og Oasis
Ég er alger klaufi þegar kemur að þvottavélum. Gleymdi að ég var með einhvern bækling í rassvasanum á Paul Smith gallabuxunum mínum sem náttúrulega fór í mauk í þvotti og skildi eftir pappírsleifar út um allt á hægri skálminni. Það ætti nú að vera hægt að redda því. Ég hef alltaf þvegið á kerfi sem ég hélt að væri á 30°C en er í raun á 40 gráðum og ég eyðilagði nýju og fínu Juventustreyjuna mína. Ég varð ekki lítið reiður þegar ég sá hvað gerst hafði. Mamma kvartar alltaf fyrir afmælið mitt ég hún viti ekkert hvað eigi að gefa mér....jæja, þá er allavega komin lausn á það...hint hint.
7.10.2005
Stofnfrumur
Í hádeginu í deildinni var smá samkoma þar sem ræddar voru siðferðislegar hliðar stofnfrumurannsókna, nánar tiltekið þegar stofnfrumur eru teknar úr fósturvísum (embryos) og notaðar í rannsóknir. Þetta er töluvert hitamál. Meginspurningin var þessi: Er réttlætanlegt að nota afgangsfósturvísa úr tæknifrjóvgunum til að rækta stofnfrumur? Það er víst þannig að teknir eru 15 frógvuð egg við tæknifrjógvanir en aðeins 3 komið fyrir í leginu. Ætli hin séu ekki geymd til vara ef hitt klikkar...veit það ekki. Allavega eru þá alltaf nokkrir fósturvísar "í afgang" ef svo skyldi kalla. Meginrök þeirra sem ekki vilja nota þessa fósturvísa til að rækta stofnfrumur eru þau að það sé nú þegar kviknað líf (það er verið að tala um 5 daga gamla fósturvísa) og notkun á þeim sé einfaldlega morð. Ég veit nú ekki alveg hvar maður stendur í þessu en tók málstað þeirra sem voru fylgjandi þessum rannsóknum. Finnst nú varla að 5 daga gamall fósturvísir flokkist sem mannvera, þrátt fyrir að vera með þessa litninga og dna upplýsingar sem manneskjur þurfa. Hins vegar geta þessar stofnfrumurannsóknir opnað upp alveg nýjar víddir í siðferðismálum og maður verður að spyrja sig hvar eigi að draga mörkin. Eins og ég skil þetta, þá er fræðilega mögulegt (ekki hægt í praksís...enn) að búa til einstakling sem er með nákvæmlega sömu dna uppbyggingu og ég og sá einstaklingur gæti verið notaður í varahluti fyrir mig....svona tailor made. Ég verð samt bara að segja eitt....þegar fólk tekur upp helvítis biblíuna í svona rökræðum, hætti ég að hlusta á það. Mér gæti ekki verið meira sama hvað stendur í sálmi 139 í Davíðsbók um samtal Davíðs og guðs varðandi getnað. Ég tek ekki mark á fólki sem notar það sem stendur í biblíunni sem rök. We don't do god
6.10.2005
Töfratölurnar
Mjög gaman á tónleikunum í gær, ég lét nú reyndar alveg svindla á mér....borgaði 30 pund fyrir miðann fyrir utan (sem annars kostaði 10 pund) en svona er þetta. Ekki samt frá því að tónleikarnir hafi alveg verið 30 punda virði. Þau virtust vera að skemmta sér uppi á sviðinu og tóku flest lögin af plötunni. Morning's eleven er alveg ótrúlega gott lag
Af afturhaldskurfum
Enn er Halldór Blöndal að rífa kjaft yfir uppsetningunni á ljósmyndasýningunni á Austurvelli. Mér fannst hrikalega gaman að labba um Austurvöll þegar ég var heima í fríi og skoða ljósmyndirnar. Þessi sýning í fyrra "jörðin séð frá lofti" var þrælskemmtileg og ekki voru síðri myndirnar í sumar frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Mér finnst bara nákvæmlega ekkert að þessum "steinnökkvum".
Ég get ekki gert að því að láta þetta Jan Dahl Tomasson mál alltaf fara í taugarnar á mér. Nei...hann er ekki hálfur Íslendingur. Íþróttafréttaritarar moggans hafa þetta lag á að pirra mig.
5.10.2005
Lítið í gangi, Magic numbers spila hérna í kvöld en það er uppselt þannig að ég ætla að tékka á fyrir utan að sjá hvort einhver sé að selja. Mér fannst fyndin fréttin í morgun þar sem Jagger neitar að kærastan hans sé að verða nokkurns konar Yoko Ono og sé að skapa töluverða spennu í bandinu. Hún á víst að hafa sagt Keith að hætta að reykja og Ron að fara að klæða sig betur.
Hey Keith...þú verður bara að hætta þessum reykingum, ég meina sko að þú brennir bara peninga með því að reykja..
3.10.2005
Gengi verkefnisins þessa dagana er svipað eins og gengi Everton og býður bara upp á algert þunglyndi. Sevillians töpuðu einnig í gær og enduðu í 3 sæti í deildinni og komust ekki upp.
Ég lenti reyndar í smá óhappi í síðustu viku, harði diskurinn á vinnutölvunni minni var orðinn nokkuð fullur svo að ég færði nokkrar möppur (þar á meðal mp3 möppuna mína) yfir á útværan harðan disk sem við notum sem backup. Það vildi ekki betur til en svo að einhver skránna var gölluð og allt í einu hætti þessi harði diskur að virka. Minns fékk nett sjokk þar sem gögnin hennar Nicky og Angelu eru einnig geymd þar. Þegar ég keyrði checkdisk þá fann hann þessar villur í minni möppu á drifinu en eyddi henni um leið. Þar með fuku út í buskann öll lögin mín og vinnugögn (sem voru bara afrit, glataði engu mikilvægu þar sem ég er með þau á öðrum stað einnig). Mesti skaðinn í lagasafninu en maður á nú einhver afrit og nú eyðir maður bara kvöldunum að rippa geisladiskana sína aftur, ég er búinn með B-in (Bítlar, Bowie, Bernard Butler, Blur, Bluetones (man einhver eftir þeim), Buena Vista o.s.frv.). Nú ætla ég að fara að athuga með svona "flakkara" eins og sérfræðingarnir mæla með fyrir tónlistina og myndirnar mínar. Það er víst betra en þessir útværu hörðu diskar (e. peripheral hard drives). Var að fá grænt ljós á að stækka vinnsluminnið (RAM) í vélinni úr 2Gb í 3 Gb, þetta yrði þá alger mulningsvél.
Komst svo að því í morgun að ástæðan fyrir þessu plássleysi er sú að finite element forritið skrifar afrit af keyrslunum í "Temp" möppuna og þar voru bara 60Gb sem ég vissi ekki af.
Spurning samt hvað svona flakkari heiti á ensku: yes yes I'm going to have one traveller please
30.9.2005
Jæja þá er Evrópuævintýri Everton manna búið þetta árið sem er frekar súrt. Mínir menn léku þó vel í þessum leik og nú er bara vonandi að þeir haldi dampi í deildinni. Ekkert annað en 3 stig gegn Manchester Shitty koma til greina. Skrýtið hvernig allt hefur gengið á afturfótunum framan af þessu tímabili, kannski að of mörg ný andlit séu á vellinum....stundum tekur tíma fyrir lið að spila sig saman. Sum kaupanna í sumar hafa ekki verið að gera sig hingað til, Simon Davis, Per Koldrup og Nuno Valente hafa ekki staðið undir væntingum. Það er allavega tími til að fara að hala inn stig í deildinni, ekki veitir af. Allavega veit ég að ef þetta hafi komið fyrir mig þegar ég væri að spila Championship manager, þá myndi ég gera Quit og No Save og byrja aftur í júlí.
Yfirlýsing Roy Keane í gær er samt gleðiefni. Ef hann hættir hjá Man Utd í vor og vill fara til annars klúbbs í annarri deild, þá kemur bara Celtic til greina. Celtic er uppáhaldsklúbburinn hans (kannski fyrir utan Man Utd) og hann hefur lýst yfir að hann vilji enda ferilinn þar. Hann ætti alveg að eiga eitt eða tvö tímabil í sér. Ég er strax farinn að hlakka til að sjá hann tækla einhverja rangers aula
29.9.2005
Kaupmannahöfn
Mjög fín ferð til Köben um síðustu helgi til Kristjáns og Margrétar. Gott veður allan tímann sem ekki spillti fyrir. Kom um eftirmiðdaginn þar sem Kristján sótti mig á Kastrup og fórum við svo um kvöldið út að borða á víetnamskan stað. Hef ekki smakkað slíkan mat áður en hann bragðaðist mjög vel, sérstaklega öndin í karrýinu. Eftir matinn fórum við á svona semi-pub-crawl á Vesterbro. Virtust vera nokkrir svalir pöbbar þar. Eftir við komum heim þá spiluðum við Trivial Pursuit á dönsku sem reyndist frekar erfitt, Margrét fór með nokkuð auðveldan sigur af hólmi. Tókum brunch í föstudagshádeginu svona til að slá á mestu þynnkuna og fórum eftir það niður í bæ....þetta klassíska, strikið, nýhöfn, nytorv og svo framvegis. Fórum einnig upp í hringturninn og fengum fínt útsýni yfir bæinn. Hittum svo hið næstum-skraufþurra höfuð okkar fjölskyldunnar, hann Baldur og fengum okkur að borða. Mæltum okkur einnig mót við Geira sem ásamt öllum öðrum býr í Köben. Tókum nokkra misgóða pöbba, Bo-bi bar var flottur en þessi stúdentabar síðri. Á Hviids vinstue voru bara nokkrir fullir Íslendingar (fyrir utan okkur) sem var ekkert sérstaklega spennandi. Pulsa á leiðinni heim slúttaði svo kvöldinu. Á laugardagsmorgun fórum við í bíltúr með Baldri meðfram strandveginum að skoða fínu húsin og fínu bátana við ströndina. Það er mjög skemmtilegt að sjá það allt, held að Kristján og Baldur ætli núna að kaupa seglbát, eiga bara eftir að selja þá hugmynd fyrir frúnnum. Enduðum svo í hádegismat hjá Baldri en Sassa hafði gert hann tilbúinn meðan við keyrðum. Hitti einnig yngsta meðlim fjölskyldunnar í fyrsta sinn og var Kári Björn sprækur. Mamma var í bænum á leiðinni frá Gautaborg og heim ásamt vinnufélögum, þannig að við hittum hana yfir einum drykk á laugardagseftimiðdeginum en síðar um kvöldið komu vinafólk Kristjáns og Margrétar í mat til þeirra. Sátum því bara í rólegheitunum heima um kvöldið og borðuðum dýrindis mat. Á sunnudeginum áttum við pantað borð í smørrebrød sem var alveg magnað, fengum okkur náttúrulega snafs með eins og lög gera ráð fyrir. Margrét átti miða í óperuna um kvöldið að sjá Friðrik prins afhenda listaverðlaun og að sjá Nick Cave spila, þannig að hún yfirgaf okkur um eftirmiðdaginn þannig að það var mestmegnis bara rölt á okkur Kristjáni eftir það. Fengum okkur magnaðan ís með þremur kúlum. Við vorum búnir að borða svo mikið að við hengum bara heima um kvöldið og horfðum á fótboltaúrslit úr norska, sænska og danska boltanum. Sáum einnig Cave flytja fyrsta lagið á tónleikunum, "West country girl", hann er náttúrulega alltaf sami töffarinn, kom inn með látum og sparkaði í flygilinn og svona. Að sögn Margrétar þá tók hann "God is in the house" og undir lokin kom þögn og heyrðist í honum "I'm surrounded by idiots" snéri sér svo að bandinu og sagði "no I don't mean you guys". Svona á sko að vera töffari þegar spilað er fyrir kóngafólk. Ég hélt svo aftur til Glasgow á mánudagsmorgninum.
Ég var nú sæmilega sáttur við að geta notað dönskuna án þess að vera svarað á ensku eins og öll fíflin sem búa í Óðinsvéum gerðu forðum við mann. Það tekur mann smá tíma samt alltaf að kveikja á halvtreds, halvfjerds og halvfems en það kemur strax. Ég gæti kannski ekki haldið uppi gáfulegum samræðum á dönsku, en þetta 10 ára dönskunám reddar manni að panta bjór og svona. Danir eru samt alveg kexruglaðir með málvernd. Þeir taka upp annaðhvort orð úr ensku og gera það að sínu. Af hverju geta þeir ekki kallað Meistaradeildina, Mesterligaen (eða hvernig sem þetta er stafsett) í staðinn fyrir Champions league? Ferlega hallærislegt að hlusta á samtöl og heyra dönskuskotna ensku á orðum eins og computer, x-ray og svo framvegis. Ekki það að maður sé alger málverndunarsinni, þá eiga Íslendingar allavega til orð yfir þessi hugtök. Að heyra dani líka tala ensku er massa fyndið.
Allt í allt, topp ferð og alltaf gaman að hitta strákana. Þetta er eins og þegar Skotinn fór til Englands í viðskiptaferð og þegar hann snéri aftur þá var hann spurður hvernig honum hafi líkað við Englendingana. Hann svaraði: "I didn't meet any, only met the top people" (þ.e. alla hina Skotana). Það er sama hér.
Topp 5
| Maturinn í ferðinni, víetnamskt, smörrebröd, marokkóskur kjúklingur og mars ostakaka. Alger snilld. |
| Bo-bi bar |
| Keyrslan meðfram ströndinni |
| Christianshavn |
| Að vera ekki svarað á ensku þegar maður sjálfur gerði tilraun að tala dönsku |
Flopp 3
| Að skíttapa í dönsku trivial |
| Stúdentastaðurinn...Moose eitthvað. Vara við ferðum þangað |
| Ótrúlegur fjöldi Íslendinga í Köben, bara stoppa á strikinu í 5 sek og hlusta, þá er öruggt að maður heyrir íslensku |
28.9.2005
Byrja á að óska pabba til hamingju með nýja djobbið. Hættur sem bæjarstjórinn á Skaganum og farinn í hafnarmálin á Faxaflóa. Helv#$% galli, nú þarf maður að borga í göngin. Það var meira að segja einn um daginn sem ætlaði að rukka mig...iss minns sagði bara "kommon...veistu ekki hver ég er". Neinei maður hefur aldrei verið "frímann" í göngin, fer samt varla að byrja á því núna.
27.9.2005
Vika á milli færslna, ekki nógu gott en búið að vera mikið í gangi og enginn tími til skrifta. Nú er maður samt kominn aftur í vinnugírinn og nú verður svaka törn fram að miðjum desember....lítið um stuð þangað til. Eins og Jack Nicholson orðaði það svo skemmtilega þarna um árið....all work and no play makes Maggi a dull guy.
Ferðasaga frá Köben kemur á morgun sem og hugleiðingar varðandi fótboltann, þetta er upp og niður. Hef miklar áhyggjur af David Moyes vini mínum.
20.9.2005
Ítalíuferðin var ótrúlega vel heppnuð. Lentum í Tórínó á föstudagskvöldið og tókum lestina beint til Mondovi sem er bærinn þar sem bróðir hennar sem hýsti okkur býr. Laugardagsmorguninn fór í rölt þar um, það var markaður í gangi og virkilega gaman að sjá allan þennan mat sem var á boðstólnum, ostar, kjöt, fiskur og ávextir. Um eftirmiðdaginn fórum við svo í nágrannabæ þar sem nokkurs konar festival var í gangi, sveppafestival...allir mögulegar og ómögulegar tegundir til sölu og sýnis. Menn þarna taka sveppina sína alvarlega. Fjölskyldan á sumarhús í fjöllunum sem við kíktum að lokum á, magnað útsýni þar í kyrrð og ró. Á sunnudagsmorgun sótti vinkona Christinu, Giorgia, okkur í Mondovi og keyrði okkur til Tórínó. Það var hálfgert leiðindaveður, þoka og rigningarsuddi en við létum það ekki stoppa okkur í því að labba aðeins um borgina og fara upp í útsýnisturn. Þær tvær þekkja náttúrulega borgina sundur og saman og þær sýndu mér svona það helsta í miðbænum. Reyndar er borgin öll á hvolfi núna vegna uppbyggingar fyrir Ólympíuleikana í febrúar, stillansar alls staðar og aðaltorgið sundurgrafið. Við röltum um og fengum okkur kaffi og dolci á kaffihúsunum. Hrikalega gott sætabrauð/súkkulaði/konfekt sem þeir gera þarna. Við lögðum af stað snemma á leikinn þar sem þær vissu ekki frekar en ég hvar Stadio delle Alpi var (vissi bara að hann var í einhverju úthverfinu). Ökuferðin þangað var skrautleg í meira lagi. Eins og allir Ítalir er Giorgia svakalegur ökumaður, fór yfir á 3 rauðum ljósum, svínaði á alla hægri vinstri og hikaði ekki við að flauta á næstu menn. Við fengum leiðbeiningar með því að kalla yfir í næstu bíla og spyrja til vegar....sempre dritto (beint áfram) var alltaf svarið og við komumst á endanum á staðinn. Giorgia sagði að ég væri dáldið að spilla fyrir henni, hún er ljóshærð (og þónokkuð glæsileg) og aðrir ökumenn yrðu aldrei reiðir við hana, en með karlmann í bílnum væri það aðeins erfiðara. Þetta slapp þó allt til. Stadio delle Alpi er svaka mannvirki, en það vantar alla áhorfendur af einhverjum óskiljanlegum ástæðum. Við til dæmis höfðum 5 sætaraðir fyrir okkur (n.b. sætaraðir....ekki sæti), en það var hörkustuð í stúkunni fyrir aftan annað markið. Við vorum samt alveg á besta stað. Leikurinn var eins og leikrit þar sem ég skrifaði handritið. Del Piero í byrjunarliðinu í fyrsta sinn og skorar bæði mörkin, sigurmarkið úr glæsilegri aukaspyrnu. Hann er greinilega algert crowd favorite þarna og gaman að sjá strákinn eins og hann á að sér að vera. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar kom upp á skjánum að Sampdoria væri yfir gegn Milan, allir í stúkunni hoppuðu og sungu: chi non salte Rossonero é (sá sem er ekki hoppandi er rauðsvartur (Milan stuðningsmaður)), mönnum leiddist þetta ekki. Eftir leikinn þá fórum við til heimbæjar Girogiu sem heitir Fossano þar sem mamma hennar eldaði kvöldmat. Þetta var án efa sú allra besta máltíð sem ég hef fengið í langan tíma, fengum antipasti (í formi hráskinku), svo ravioli, kjöt með papriku, osta og vínber og smákökur (kex úr smjördeigi með heimalagaðri sultu á milli) í eftirrétt og svo kaffi og líkjör. Fékk með Barolo vín sem mamma hennar hafði keypt beint af vínekrunum sem var alveg ótrúlega gott. Borðaði alveg á mig gat. Í gær tókum við Christina svo lestina aftur til Tórínó, flugið var um kvöldið þannig að við höfðum nokkra klukkutíma í að labba um. Allar búðir voru annaðhvort lokaðar eða opnuðu seint á mánudeginum þannig að við versluðum ekkert....með undartekningu þó. Official Juve búðin opnaði hálffjögur og ég náði að komast þar inn og eyða fullt af pening í Juventus dót. Ekki leiðinlegt það. Annars vorum við bara á röltinu, fengum okkur fínan hádegismat og svo kaffi og konfekt. Tókum rútuna um hálffimm upp á flugvöll og þaðan til London og svo heim. Ég gat aðeins tjáð mig á ítölsku en það var nú í mýflugumynd. Fínt að hafa Christinu til að bæta upp þessi 95% sem uppá vantaði. Ég ákvað bara að reyna að tala og vera ekki að spá mikið í málfræðinni og gerði þar af leiðandi fullt af mistökum en það er bara hluti af þessu. Talaði aðeins við syni bróður hennar Christinu, Alessio (10 ára) og Samuel (6 ára). Christina sagði þeim að tala hægt þegar þeir væru að tala við mig. Samuel spurði mig hvort ég væri til í að koma í fótbolta með honum og heyrðist þá í stráknum.....c-aaaaaa-l-c-iiiiiii-oooooo. Það var frekar fyndið þar sem calcio er orð sem ég er alveg með á hreinu. Lærði samt fullt af nýjum frösum, uppáhaldsfrasinn minn er che balle (eða palle), sem þýðir að eitthvað sé leiðinlegt og vísar til karlkyns anatómíu. Náði að lokum að hitta aðeins á Jónas sem var í Glasgow og fékk afnot af herberginu mínu meðan við vorum í burtu.
Næst á dagskrá er svo meira stuð, Danmörk á fimmtudaginn.
Enginn tími til að vinna....maður tekur svaka vinnutörn frá og með næstu viku....famous last words.
Topp 5 í ferðinni
| Aukaspyrnan frá Del Piero sem var sigurmarkið |
| Maturinn hjá mömmu hennar Georgiu |
| Ítalskar píur, vel til hafðar og almennt mjög myndarlegar |
| Ökuferðin á völlinn |
| Útsýnið yfir Alpafjöllin frá bæjunum |
Botn 3
| Rigningin í Tórínó á sunnudeginum |
| Betlarinn sem vonaði að við myndum kafna á kaffinu þegar við létum hann ekki hafa pening |
| Að tapa fyrir Christinu í keppninni "Hver spottar flesta miðaldra menn í rauðum buxum", hvað er eiginlega málið með Ítali og rauðar buxur? |
15.9.2005
Er að fara til Ítalíu á morgun með Christinu, nánar tiltekið til Tórínó og nágrannasmábæja þar sem hennar fólk er frá. Planið er svo að fara á leik Juventus og Ascoli á Stadio Delle Alpi á sunnudaginn. Maður semsagt á leið til Mekka. Ekki laust við að maður hlakki pínulítið til. Líklegast verður Del Piero á bekknum en vonandi verða Nedved, Zlatan, Trezeguet, Vieira (ferskur eftir rauða spjaldið í gær) og Cannavaro í stuði. Nú þarf maður bara að fletta upp á netinu hvernig á að segja "Útaf með dómarann og inná með konuna hans" og "Nedved....miðaðu á skeytin inn maður" á ítölsku.
14.9.2005
Sigur-rós
Fór á mánudaginn og keypti mér eintak af "Takk", nýju plötu Sigur-rósar og er búinn að hlusta töluvert á hana. Þetta er allt á svipuðum nótum og "Ágætis Byrjun" og "( )" sem er bara hið besta mál. Þetta er alveg mögnuð tónlist, finnst Glósóli best, þessi endir er rosalegur.
Matlabliðið
Riðlakeppni meistaradeildarinnar fór í gang í gær. Matlabliðið er að sjálfsögðu með í draumadeildinni. Liðið mitt gerði allt í lagi hluti í gær, nema fyrir skunkinn hann Verón, alger bjáni. Óheppilegt að Fenerbache skoruðu en maður hafði treyst á það að AC Milan myndi halda hreinu þar sem Tyrkirnir eru ekki frægir fyrir mörg mörk á útivelli. Ánægðastur var ég þó með Lyon, það var alveg ljóst að þeir myndu gera góða hluti í vetur en 3-0 gegn Madríd var kannski nokkuð sem fáir bjuggust við. Af myndinni sést að ég er með einn rangers aumingja í liðinu, en hann var ódýr og spilar venjulega og gerði meira segja mark í gær en maður fær engin stig fyrir það ef hann er á bekknum hjá manni.

Treysti á þrennu frá Nedved og clean sheet frá Cannavaro í kvöld. Áfram Matlabliðið.
13.9.2005
Give and take....
Eins og ég hef skrifað á síðunni þá fékk ég aðstoð 10 einstaklinga við að láta mynda úlnliðinn á sér....flest nemendur. Nú rétt í þessu var ein sem hjálpaði mér að biðja mig um greiða. Hún ætlar að sjúga úr mér blóð og mér er eiginlega ekki siðferðislega stætt á því að neita. Minnist fyrstu og síðustu ferðar minnar í blóðbankann, maður lét dæla úr sér þessum hálfa lítra eða hvað það nú er. Manni var svo boðið í djús og kökur til að ná blóðsykrinum upp aftur og ég minnist þess að hafa verið í skyrtu og átti í smá basli með að hneppa ermahnöppunum eftir á og var eiginlega hálfringlaður. Ömmuleg hjúkka kom þá upp að mér og sá að það var nú ekki allt með felldu og spurði "viltu ekki bara leggast hérna væni minn..." og lét mig liggja á bekk í smátíma. Það var ekkert sérlega karlmannlegt. Ég fíla ekki sprautur. Það sem maður lætur hafa sig út í.
12.9.2005
Boltinn
Everton ekki að gera góða hluti um þessar mundir, þegar maður leit yfir fyrstu leikina þá sá maður ManU í fyrsta leik og ef þeir töpuðu honum væri kannski ekki hundrað í hættunni. Á eftir fylgdu leikir gegn Bolton, Fulham og Portsmouth sem hefðu allir þurft að vinnast en nú höfum við tapað tveimur af þeim. Maður veit ekki alveg hvað er í gangi. Næsti leikur er á Highbury sem gefur ekki tilefni til bjartsýni. Þrennuhelgar verða líklegast af skornum skammti í vetur. Celtic og Juve gerðu þó góða hluti og ekki spillti fyrir að rangers náðu bara jafntefli.
Dánarfregnir og jarðarfarir
Skrýtið...síðastliðnar 2 vikur hafa nokkrir fjölskyldumeðlimir og aðrir tengdir fjölskyldunni kvatt eftir langa og viðburðarríka ævi, þetta er svona eins og gengur og gerist...gangur lífsins. Ég hef samt verið að pæla. Ættu erfidrykkjur fólks sem hefur átt góða og langa ævi og deyr satt lífdaga ekki bara að vera gott partý, svona eins konar kveðjupartý þar sem allir eru bara í stuði? Spiluð músík sem hann/hún hafði gaman af og þess háttar. Það væri nú allavega pínu fyndið ef einhver vildi láta spila Simply Red (if you don't know me by now, you will never never never know me) og Jam (Going underground) í sinni jarðarför.
9.9.2005
Var að horfa á fréttir frá Úkraínu, þessi Júlía Tímóshenko er bara gella. Ekki slæmt að vera bæði fyrrverandi forsætisráðherra og gella.
Afa og ömmu óskað til hamingju með árin 56
8.9.2005
HM
Af lestri blaða að dæma þá hefur þetta tap okkar manna í gær verið óþarfi. Gaman hins vegar að sjá hvað Grétar kemur sterkur inn í liðið. Einn leikur eftir sem er útileikur gegn Svíum og með Eið og Hermann í banni er ekki ástæða til bjartsýni. Svíar þurfa líka að vinna til þess að ná fyrsta sætinu eftir að Maltverjar náðu jafntefli við Króatíu....hvað var málið með það eiginlega. Það eru nú fordæmi fyrir að Norðurlandaþjóðir reyna að svindla á öðrum liðum með að hagræða úrslitum, en ég held að samkomulag milli okkar Svía eins og þeir gerðu við dani í fyrra sé óþarft. Við verðum hvort eð er auðveld bráð. Þessi riðill sem við lentum í var alveg skelfilegur en aðeins 4 stig í húsi, öll gegn Möltu (sem reyndar ættu að vera 6) er full mikið (eða full lítið réttara sagt) af því góða.
Æðisleg úrslit fyrir Skota í gær, unnu Norðmenn og ekki nóg með það þá töpuðu England gegn Norður Írum. Skotar eru á hörku siglingu með Kenny Miller sem besta mann (sem var kallaður The wizard of Oz-lo í blöðunum í morgun). Það er nokkuð athyglisvert að sjá hugarfarsbreytinguna eftir að Walter Smith tók við. Kannski hafa erlendu þjálfararnir ekki sens fyrir því hvernig eigi að peppa menn upp fyrir leiki, Berti Vogts tókst það svo sannarlega ekki. Er kannski best að hafa landsliðsþjálfarann heimamann, einhvern sem þekkir inn á þjóðarsálina og veit t.d. hvað nágrannaslagir skipta miklu máli? Það eru eflaust margir í Belfast sem mæta öskuþunnir til vinnu í dag.
Áfram Ísland og vonandi verðum við heppnari í riðladrættinum næst.
7.9.2005
Anthony and the Johnsons unnu Mercury verðlaunin í gær með plötuna "Ah'm a burd noo" (sem myndi útleggjast Ég er kelling núna), veit ekki alveg hvað manni á að finnast um það. Þessi gæji hefur alveg magnaða rödd en þessi diskur er ekki að gera sig fyrir mig, finnst þetta eitthvað...tja...of....meló-dramatískt eitthvað. Ég kveiki allavega ekki á fröken Antoni. Var að vonast til að Magic Numbers ynnu.
6.9.2005
Jæja, þá er þetta loksins komið í lag...það verða eflaust einhver meiri vandræði með síðuna næstu mánuði þar sem það er verið að vinna að því að skipta um háskólaserver. Ég get ekki tengst nýja servernum en þarf að flytja skrárnar mínar yfir á hann fyrir árslok þar sem sá gamli verður óvirkur. Samt dáldill bömmer að geta ekki tengst þessum nýja server. Sjáum til.
Annars bara þrusuveður, sól og blíða...held samt að það eigi að fara að rigna í lok vikunnar og þá styttir upp einhverntímann næsta vor.
4.9.2005
Frábær stemming á vellinum í gær. Skotar spiluðu bara ágætis bolta og voru yfir lengstum í leiknum. Sevillians unnu einnig í dag, ég setti tvö og átti sæmilegasta leik....tuddaðist aðeins í andstæðingunum. Sæmilega heitt í dag og það var erfitt að spila.
Fórum á föstudaginn að sjá myndina Crash sem er einkar athylgisverð mynd, maður hefur samúð með sumum persónum en öðrum ekki en svo skiptist það. Þannig að nær allar persónur voru bæði protagonists og antagonists...úff ég vona að ég sé að nota þessi hugtök í réttu samhengi hér.
Þessi server er enn niðri þannig að þegar þetta er skrifað er síðan tóm, vonandi að þessir IT kallar fari nú að vinna fyrir kaupinu sínu.
2.9.2005
Tölvuvesen
Það er búið að vera eitthvað vesen með háskóla serverinn, þannig að síðan hefur alveg legið niðri. Vonandi að þetta komist í lag fljótt (ég veit reyndar ekki af hverju ég skrifaði þetta en ef menn geta lesið þetta þá er serverinn kominn í lag).
Anyhooo, lítið að gerast hérna nema fyrir landsleik Skota og Ítala á morgun á Hampden sem við Mark erum með miða á. Maður mun nú styðja við bakið á Skotum í þessum leik en mun svosem ekkert gráta 3 stig Ítala. Samt alltaf stemming á Hampden þegar Skotland spilar, þegar mamma og Helga komu fyrr í sumar sáum við leik Skota og Moldóva og mömmu fannst miklu skemmtilegra að fylgjast með áhorfendum heldur en sjálfum leiknum.
Sevillians spila svo á sunnudaginn og hef ég verið boðaður í þann leik, gegn einhverjum dönum (allavega heitir liðið sem við spilum við Copenhagen eitthvað)....spurning um að fara að brýna takkana og æfa tveggja fóta tæklingarnar í hnéhæð.
31.8.2005
Topp 5
Fullt af nýrri skemmtilegri músík í gangi síðustu daga, vikur og mánuði
| The Magic Numbers: Forever lost |
| The New Pornographers: Twin cinema |
| David Gray: The one I love |
| Madeleine Peyroux: Don't wait too long |
| Franz Ferdinand: Do you want to |
30.8.2005
Hátíð í Edinborg....og nú einnig í Newcastle
Fór í gær með Christinu til Edinborgar að hlusta á nokkra höfunda lesa upp úr verkum sínum meðal annars Zane Radcliffe sem las upp úr bókinni sinni sem gerist á Íslandi. Mjög gaman að hlusta á rithöfunda lesa upp úr eigin verkum. Killer's guide to Iceland var nú reyndar eina bókin sem ég hafði lesið af þessum sem voru kynntar en ein hljómaði nokkuð áhugaverð "Nobody likes a ginger baby" eða eitthvað svoleiðis, þarf að tékka á henni. Það voru líklega einhverjir Íslendingar í salnum þar sem að það heyrðist smá fliss þegar rithöfundurinn var að reyna að bera fram orðið "hrútspungar".
Fringe hátíðin er í fullum gangi núna í Edinborg og maður ætti nú að skella sér í kvöld þar sem Franz Ferdinand eru með tónleika í Princess Gardens og upphitunarbandið er Arcade Fire. Kemst bara ekki.....fyrir nokkru hefði maður kannski hliðrað öðrum plönum til að ná þessu en Franz spila hérna í nóvember og vonandi að Arcade Fire haldi aðra tónleika hér áður en langt um líður.
Hrikalega er fyndið að fylgjast með þessu Owen máli. Greyið kallinn þarf að fara til Newcastle sem hann virtist vera lítið spenntur fyrir því, vildi bara fara til Liverpool en Benitez vildi hann ekki. Owen kallinn tók þann pólinn í hæðina að það væri skárra af tvennu illu að fara til Newcastle heldur en að sitja á bekknum eða í stúkunni á Bernabeu. Gaman að lesa fans forum á BBC síðunni þar sem Newcastle menn eru í skýjunum en nokkrir Liverpúlarar eru súrir að hann hafi ekki farið til þeirra. Líklegast fer þá Cisse hvergi, nema þó heldur væri á tattoo stofuna. Finnst samt Owen lúði að hafa ekki valið Everton.
29.8.2005
Fór í bíó í gær að sjá The mighty Celt sem er ekki heimildarmynd um Henrik Larsson heldur norður-írsk...tja...svona semi feel good movie með Robert Carlyle og Gillian Anderson (Scully úr x-files). Fyndið að heyra Scully tala með norður írskum hreim, hún náði svosem að plata mig. Til nokkur dæmi þar sem leikarar hafa verið að herma eftir hinum og þessum hreimum, menn hérna eru sammála um að þau allra verstu voru Tom Cruise og Nicole Kidman að reyna að stæla írskan hreim í myndinni Far and Away.
Collina bara hættur að dæma. Þrátt fyrir skandalinn hjá honum í vikunni þegar hann rændi Everton framlengingunni, þá er ekki annað hægt segja en að hann hafi verið langlangbesti dómari sinnar tíðar. Hann gat þaggað niður í öllum mótmælum leikmanna með svakalegasta augnarráði sem sést hefur. Ætli kallinn fari núna bara í sína 9-5 vinnu. Það er eins og mig minnir að kappinn sé fjármálaráðgjafi í Bologna
28.8.2005
Er búinn að eyða helginni hérna í deildinni að flytja dótið mitt. Okkur var hent út úr skrifstofunni okkar og ég sendur niður til hinna doktorsnemanna en Angela náði að redda sér annarri skrifstofu (einhver hrossakaup sem gerð voru meðan ég var í Cleveland). Ég alls ekki sáttur við þessa ákvörðun skorarformannsins. Það er svosem fínt lið hérna, flestir sem voru í Cleveland, spurning bara hvort að það fari ekki of mikill tími í blaður í staðinn fyrir vinnu. Nicky sagði mér bara að kvarta ef það væri ekki vinnufriður en maður fer náttúrulega ekki að klaga félaga sína. Sjáum hvað setur.
Var að koma úr fótbolta þar sem það vantaði mann í Sunday league í 5-a-side lið. Liðið hét Seville-ians (hélt fyrst að liðið héti civilians en nafnið er náttúrulega skírskotun í úrslitaleik uefa cup milli Celtic og Porto sem fram fór í Sevilla....skondið nafn). Við töpuðum með einu marki, þar sem klaufaskapur okkar upp við mark andstæðinganna sem og góð markvarsla hjá þeim gerði gæfumuninn. Ég átti nokkur góð færi, meðal annars stangarskot en mér var ókleift að troða tuðrunni í netið. Sæmilegasta harka í þessu og tók mann smá tíma að venjast þessu.
Lenti í fyndnu um daginn, var stoppaður úti á götu (Dumbarton road) af fólki í bíl sem vantaði leiðsögn til Kilmarnock. Þetta kom nú alveg flatt uppá mig en til að setja þetta í samhengi þá er þetta eins og að vera stoppaður á Hringbraut og beðinn um leiðsögn til Þingvalla.
...heyrðu þú keyrir áfram beint í þónokkrun tíma, upp Ártúnsbrekku og heldur áfram Vesturlandsveginn, ferð yfir slatta af hringtorgum í Mosfellsbær en þegar þú ert kominn framhjá þeim þarftu að taka hægri beygju inn á Þingvallarafleggjarann, annars lendirðu á Akranesi....einfalt ekki satt?
26.08.2005
Vetrarboðinn ljúfi...
...er drátturinn í Meistaradeildinni. Það verða nokkrir athyglisverðir leikir á dagskrá. Mínir menn í Juve voru nokkuð heppnir, þeir ásamt Bayern ættu að komast áfram, aðeins spurning um hvor vinni riðilinn. Arsenal heppnir, veit ekki hvort Ajax geti nokkuð núna sem og Prag. Sé ekki þetta Thun lið gera mikið. C riðill er skemmtilegur, Börsungar náttúrulega sterkastir en það ætti að vera svaka barátta milli hinna þriggja. Bremen reyndar skeit alveg á sig í fyrra á móti Lyon en þeir ættu að vera sterkir og svo náttúrulega lið sem lendir í 4. sæti í Serie A hlýtur að hafa eitthvað uppá að bjóða. ManU voru nokkuð heppnir, líklega tekst þeim betur heldur en Everton að ráða við Villareal. Geri ekki ráð fyrir að Lille eða Benfica geri eitthvað. E riðill er massasterkur, Milan og PSV sem spiluðu saman í undanúrslitunum í fyrra. Hollendingarnir ekki jafnsterkir í ár eftir að hafa misst Park og van Bommel. Schalke eru alltaf öflugir og svo er náttúrulega aldrei neitt spes að fara til Tyrklands, þótt að Tyrkirnir geti aldrei neitt á útivöllum. F riðill gæti einnig verið athyglisverður þar sem Real eru náttúrulega sigurstranglegastir. Lyon er samt með hörkulið og svo er spurning hvað Norðmennirnir gera. Tímabilið þar er náttúrulega í full swing þannig að þeir verða í góðri leikæfingu í september auk þess sem það verður ansi kalt í Þrándheimi í nóvember/desember sem gæti slegið Spánverjana og Grikkina út af laginu. Rosenborg eru reyndar í basli í deildinni þannig að þetta verður spurning. Mikið var nú fyndið að sjá Liverpool og Chelsea dragast saman. Nokkuð ljóst að Mourinho er í hefndarhug eftir undanúrslitin í fyrra (bæði liðin sem spiluðu saman í undanúrslitunum í fyrra eru saman í riðli nú...skemmtilegt). Betis er spurningamerkið en ég sé ekki Anderlecht gera neitt. H riðill er sá allra slappasti. Inter spilar sína leiki fyrir luktum dyrum sem gæti komið í bakið á þeim. Veit ekki hvort Porto geta eitthvað núna og svo náttúrulega urðu rangers að dragast með liðinu sem sló út Celtic. Rangers er bara í bullandi sjéns að komast áfram. Maður var nú að vona að rangers myndu lenda í A riðli en maður sér til hvort maður reyni að fá miða í away stand á Inter leiknum. Annars er H riðill frekar óspennandi.
Svo bara að hinn stórskemmtilegi Fantasy Football leikur opni sem fyrst þannig að maður geti sett Matlabliðið saman. Hvet alla til að taka þátt
25.8.2005
Sound of silence
Jamm búin að vera tveggja vikna þögn á síðunni. Sá það höfðu borist kvartanir á kommentakerfinu, en af einhverjum ástæðum kom alltaf comments(0), þannig að ég sá þau ekki fyrr en seint og síðar meir. Allavega. Hafði það gott í fríinu heima, tónleikar með Hjálmum, menningarnótt, hittingur með vinum og fjölskyldu, lestur í mogganum hvaða daga Jón Ásgeir keypti sér stjörnumáltið á McDonalds sem var skrifað á Baug og svo framvegis. Ísland, best í heimi.
Everton
Everton dottnir út úr meistaradeildinni, stutt gaman en vinur minn Collina gerði okkur lífið leitt með að dæma mark af Ferguson í stöðunni 1-1. Kannski voru bara Villareal einu númeri of stórir. Ferlegt ástand á mínum liðum eftir gott síðasta tímabil (þó Celtic hafi klúðrað titlinum), Everton og Celtic dottin út en Liverpool og rangers eru með. Alveg glatað. Maður treystir á að Juventus standi sig.
Hera
Þegar ég tékkaði inn í gærmorgun kom upp á tölvuskjánum að Hera óskaði mér til hamingju með verðlaunin. Strákurinn sem tékkaði mig inn spurði hvort það hringdi einhverjum bjöllum. Ég svona hálfjátaði en er búinn að vera að brjóta heilann um hver Hera sé og hafi aðgang að bókunarkerfi Flugleiða. Kannski að mér hafi misheyrst en ég þekki nú manneskju með svipað nafn sem er tengd fluginu. Engu að síður mjög fyndið. Ég þakka fyrir kveðjuna.
11.8.2005
Æ-i ég ruglaðist...ÍA - Valur er í kvöld en ekki í gærkvöldi
Annars bara almenn leti þar sem maður heldur heim á morgun. Það verður fínt að komast í smá frí.
Makis er frábær karakter. Það var erfitt að taka kvittanir fyrir öllum útgjöldum í Cleveland, t.d. myndi manni ekki detta í hug að biðja um kvittun fyrir þjórfé og svo framvegis. Svona smáhlutir safnast saman og það var smá hola í bókhaldinu okkar a la Enron og við bara redduðum okkur kvittunum hér og þar, þar sem tími og dagsetning stemma. Ekkert svindl...ok...ekkert mikið, þetta er Bretunum að kenna að vilja fá kvittanir fyrir öllu, skil ekki af hverju við gátum ekki verið á dagpeningum eða fengið svigrúm að hafa t.d. 10% af útgjöldunum nótulaus. Allavegna, ég sagði Makis að finna nokkrar kvittanir til að stoppa upp í gatið. Það var nú ekki mikið mál fyrir kappann. Hann var reyndar aðeins of duglegur og ég var að finna eina kvittun þar sem var gefinn lögregluafsláttur!!
Var að lesa yfir lið Suður Afríkumanna sem kemur að spila landsleikinn á miðvikudaginn, og sá þar að einn miðjumaðurinn spilar með Kaiser Chiefs, spurning á hvaða hljóðfæri hann spilar. Á leiknum...I predict a riot!
10.8.2005
Leikurinn
Þetta fór ekki alveg nógu vel hjá Everton í gær. Mér fannst þeir spila samt ágætlega, gáfu allt í leikinn og létu Spánverjana hafa fyrir þessu. Fyrra markið var dáldið klaufalegt, Weir hefði getað lokað betur á þennan Fígaró gæja en seinna markið þeirra var náttúrulega ekkert annað en snilld. Mínir menn verða nú að vinna leikinn úti með tveim mörkum eða vinna 3-2, 4-3 o.s.frv.. Það verður strembið. Pirrandi fyrir klúbb eins og Everton að standa sig svo frábærlega á síðasta tímabili (og btw. þeir komust EKKI í CL vegna þess að Liverpool voru lélegir, heldur vegna þess að Everton menn voru bara mjög góðir) og ef maður á að vera raunsær, þá voru þeir kannski að spila yfir getu. Þeir geta ekki eytt milljörðum í leikmenn eins og nágrannarnir hinum megin við Stanley Park, það er fyrst núna að það er verið aðeins að eyða. Líklegast er 4. sætið ekki raunhæft markmið (þótt alltaf eigi að setja markið hátt) og þegar þeir fá sjensinn að spila meðal þeirra bestu, þá dragast þeir gegn liðinu sem lenti í 3. sæti í La Liga.....andsk"##$$ óheppni.
Ef liðið spilar svona á komandi tímabili mun það vera að berjast um sæti 5-8. Gaman að sjá Phil Neville í bláa búningnum. Hann stóð sig frábærlega vel...vissi ekki að hann gæti verið creative midfielder. Þetta á eftir að smella saman hjá þeim. Simon Davis (sem reyndar átti ekkert spes leik í gær) á eftir að vera góður á kantinum og svo kemur þessi helv#$%& danaskratti í vörnina. Hann hlýtur að geta eitthvað fyrst hann var að meika það í Serie A.
Mikið er fyndið að fylgjast með þrætum Vals og Fram. Þetta er náttúrulega ekkert annað en kjánalegt. Þessi "heiðursmannasamkomulög" milli félaga um að leikmaður í láni megi ekki leika gegn sínu gamla félagi eru bara skrípaleikur. Segi nú bara Völsurum að þerra tárin og sætta sig við að þeir töpuðu og munu líklegast enda í 2. sæti (sem er þrælgóður árangur, FH í öðrum klassa en önnur lið). Valsararnir koma einmitt í heimsókn á Skagann í kvöld. Það væri skemmtilegt ef Willum og Óli myndu spila Gíslasonum í sínum liðum þannig að það gæti verið bræðrabylta á vellinum í kvöld eins og verður á Goodison Park þegar Manjú kemur í heimsókn á laugardaginn.
Áfram Everton og ÍA
8.8.2005
Ferrer
Leiðinlegt að heyra að kúbanski söngvarinn Ibrahim Ferrer hafi kvatt í gær. Hann var einn af unglömbunum í Buena Vista Social Club (aðeins 78 ára) og hafði frábæra rödd. Maður var svo heppinn að ná að sjá hann performa tvisvar á sviði.
Back to civilisation
Jæja, kominn aftur í siðmenninguna. Get frætt lesendur á því að Cleveland er ekki mesta cosmopolitan borg í heimi. Ráðstefnan var hins vegar alveg prýðileg. Dáldið fyndið að verða pínu star-struck meðal bíó mekaník nörda, en þarna voru samankomnir flest celebretíin í þessum bransa. Spjallaði aðeins við nokkra þeirra. Dagskráin hófst á sunnudagseftirmiðdag með afbragðs fyrirlestri Bruce Latimer um þróun mannsins og biomekanískum afleiðingum þróunarinnar. Hann hefur verið að rannsaka Lucy sem er mannapinn (Australopythecus Afarensis) sem fannst í Eþíópíu. Hann varpaði fram spurningum hvers vegna t.d. lærbeinið er eins og það er í mönnum og færði fyrir því burðarþolsfræðileg rök með tilliti til þess að Lucy stóð upprétt. Einnig tengdi hann sveigju hryggsins við stöðugleika þegar menn fóru að standa uppréttir sem og til að auðvelda við fæðingar. Stórskemmtilegur fyrirlestur. Eftir það var grillveisla sem tókst vel til.
Mánudagur
Á mánudagsmorgun var svo Don Chaffin sem fjallaði um vinnuvistfræði og bíómekaník á vinnustöðum, ágætis fyrirlestur en aðeins fyrir utan mitt áhugasvið. Eftir hann fór ég í session sem fjallaði um soft tissue fyrir Angelu. Það er svosem ekki mitt svið en þarna var fólk að slíta sinar í músum eftir að hafa sett sumar í þjálfun, sumar á heilbrigt mataræði og svo framvegis. Flestir eru að skoða hvernig efniseiginleikar sina breytast sem er það sem Angela er að gera. Eftir það var session varðandi fætur. Margir að gera finite element greiningar á fótum/ökklum og reyndar er einn gæji að gera nákvæmlega það sama og við, nema hann skoðar ökkla í staðinn fyrir úlnliði en notar sömu aðferðafræði og forrit. Mjög gott að hlusta á hvað aðrir eru að gera varðandi finite element greiningar. Seinni keynote speaker var gæji sem var að rannsaka róbóta. Slúttaði mánudeginum á málstofu varðandi þrívíddar greiningar. Þar var fullt af mjög interessant kynningum. Aðalmaðurinn var náttúrulega Marco Viceconti frá Bologna sem er að gera flotta hluti með finite element greiningu. Fórum út að borða öll saman um kvöldið og buðum þremur gestum með (skrifað á Strathclyde háskólann). Allir samt frekar þreyttir um kvöldið.
Þriðjudagur
Morgunmatur klukkan hálfátta með öðrum ISB stúdentum og öðrum akademíkum. Fyrirlesari morgunsins var áströlsk kona, Julie Steel, sem fjallaði um hönnun stoðtækja í íþróttum. Fyrirlesturinn hennar var titlaður "Developing textile biofeedback: From noisy knees to bouncing boobs" en orðið "boobs" fór...tja fyrir brjóstið á þröngsýnum Könum svo hún breytti boobs í brasseries, frekar hálfvitalegt. Fyrirlesturinn var mjög skemmtilegur. Þau eru að hanna brjóstahaldara sem er breytir um stífleika. Þegar konan er í hvíld er hann slakur (eða bara venjulegur) en við þjálfun skynjar hann það og verður stífari fyrir frekara aðhald. Nokkuð sniðugt. Einnig talaði hún um krossbandaskaða og tók sem dæmi Aussie rules (sem er mest kontakt íþrótt sem hægt er að finna.....rugby er kellingaleikur í samanburði) þar sem margir skaða sig á því að lenda illa. Þau hafa þróað spelku sem pípir þegar hnéið er beygt ákveðið mikið og nota það til að kenna mönnum að lenda almennilega. Steve Blackburn félagi okkar frá Strathclyde var með sína kynningu á eftir. Næsta session var mjaðmagerviliðir þar sem voru nokkrar finite element greiningar. Seinni fyrirlesari dagsins var japanskur skurðlæknir, Kurosaka, sem fjallaði um skuraðgerðir á krossböndum. Þetta var allt mjög læknisfræðilegt og maður var ekkert alltaf með á nótunum, kannski að sá sem skar upp Hauk Inga Guðnason hefði getað tekið nokkra punkta. Næst voru plakötin, þar sem Shiv, Vicky, Suzie og Steve voru að kynna. Leit á þau en fór tiltölulega snemma heim til að undirbúa minn fyrirlestur. Um kvöldið var móttaka í nátturugripasafninu í Cleveland. Mjög fínt að skoða steingervinga þar og drekka bjór. Þeirra aðaldjásn er náttúrulega 3.4 milljón ára mannapinn Lucy (nefnd eftir Lucy in the sky with diamonds skv forstöðumanninum).
Miðvikudagur
Aðaldagurinn!!! Ég tók það snemma, fékk mér góðan morgunmat og kom mér niður í salinn þar sem ég var að kynna. Ákvað að taka Ian Thorpe/Andy Murray á þetta og fékk iPodinn hans Chris lánaðann og botnaði Oasis síðasta hálftímann fyrir fyrirlesturinn....you've got to say what you say, don't let anybody get in your way...og tonight I'm a rock'n roll star. Ég var kynntur fyrir sæmilega fullum sal, tók við verðlaununum og hélt erindið. Var nokkuð öruggur á sviðinu (enda búinn að fara nokkuð oft í gegnum þetta) og gat svarað þeim spurningum sem fyrir mig voru lagðar. Það komu margir að tala við mig eftir erindið að óska manni til hamingju og spyrja spurninga þar á meðal Julie Steel og Don Chaffin sem eru celebreties í bransanum. Hlustaði svo á þau sem voru tilnefnd til annarra verðlauna (5 sem þurftu að keppa og voru metin á kyninngunni sem þau gáfu) og sú sem vann var sú sem mér leist best á. Hún var að gera finite element líkan af hausnum. Fyrirlesari dagsins var svo Rik Huiskes sem er aðal beinasérfræðingurinn í heiminum. Hann sýndi tölvuhermun á hvernig frauðbein myndast undir gefnum þrýstingi. Mjög smart það sem hann er að gera. Það var frí um eftirmiðdaginn og við fórum að versla, okkur var bent á verslunarmiðstöð dáldið fyrir utan miðbæinn. Ekki svosem mest spennandi búðir þar en maður fann svosem eitthvað. Fórum um kvöldið í hverfi sem kallast litla Ítalía (eru samt ekki svoleiðis hverfi í hverri einustu borg í BNA?) og fengum okkur að borða. Þetta var ekkert sérlega góður staður, þjónninn bar bruschetta fram sem brúsjeeeeeeta sem er eitur í eyru Christinu vinkonu minnar (ch á ítölsku er borið fram sem k...brúsketta) og við fengum aðalréttinn áður en við kláruðum forréttinn. Rauðvínið var einnig allavegna 40°C heitt. Ekkert spes. Fyndnasta sem ég hef séð lengi var að fylgjast með Chris reyna að panta leigubíl gegnum síma. Kanarnir voru ekki að skilja Glasgow hreiminn hans, þrátt fyrir að hann hafi talað mjög hægt og skýrt. Hann endurtók seinna nafnið sitt allavega 10 sinnum...Barr. Þetta skildist á endanum og leigubíllinn kom og við báðum hann um að taka okkur á einhvern góðan local pöbb þar sem væri spiluð músík. Hann fór með okkur gegnum hvert skuggahverfið á eftir öðru og okkur var hætt að lítast á blikuna. Stoppuðum fyrir framan bar þar sem fullt af mótorhjólum var parkerað fyrir utan og inni sátu feitir kanar með síð skegg og tagl og drukku Budweiser og hlustuðu á hljómsveit hússins spila blús. Alger kúltúrsjokk en hrikalega fyndið að upplifa svona stemmingu. Spjölluðum við gæja sem sagðist hafa verið í Blues brothers bandinu. Skiptar skoðanir voru á milli okkar eftir á hvort hann hafi verið að segja rétt frá....en ef hann var ekki bara að búllsjitta í okkur þá er nú frekar svalt að vera í því bandi.
Fimmtudagur
Fyrri fyrirlesarinn um morguninn spjallaði um snúninga á hafnarboltum og körfuboltum. Þetta var eiginlega meira aerodynamics fyrirlestur með bio twist. Hann tók sem dæmi 3 stiga skot frá John Stockton (hann var í uppáhaldi hjá mér þegar ég fylgdist með NBA) sem tók heilan snúning á körfuhringnum og fór upp úr. Hann útskýrði afhverju og farið í gegnum snúnginsfræði (sem manni fannst nú alltaf skemmtileg). Næst var ASB (american socitety of biomechanics) verðlaunafyrirlestrar. Einn sem var að tala um úlnliði þar en það var svona meira pælingar um það hvernig beinin hreyfast. Það var einnig Hand and wrist session sem maður náttúrulega mætti í. Margt fínt þar en ég er viss um að Nicky hefði getað látið marga svitna hefði hún fengið tækifæri að spyrja (btw hún kom ekki með til Cleveland). Seinni fyrirlesari dagsins var Kai-Nan An sem hefur unnið að módelleringu á höndum. Hann talaði um sinar og liðamót. Hef lesið nokkrar greinar eftir þennan kappa og hann er einn af þessum stóru. Eftir þann fyrirlestur var session um brjósk og módelleringu á því, nokkuð sem mér kemur aðeins við. Síðar um daginn var svo plakat session þar sem Makis og Anita kynntu sínar rannsóknir. Um kvöldið var svo baseball leikurinn. Get nú ekki sagt að það hafi verið gríðarlegt stuð, þetta eru bara feitir kallar í kýló. Er nokkuð viss um að ef þeir væru látnir hlaupa 10 km myndu margir eiga í basli með það. Eins og venja er með Kana var fullt af hallærislegum uppákomum, fólk að láta eins og fífl til að fá mynd af sér á stóra skjáinn og svo náttúrulega bar einn gæinn upp bónorð (og stúkan söng ekki ....does she take it up the **** eins og sá sem gerði slíkt á fótboltaleik á Bretlandi). Þetta var allt svo rosalega hallærislegt að maður átti ekki orð. Eins og reglur segja til um fékk maður sér pulsur og nachos og bjór meðan leiknum stóð. New York Yankees unnu með því að taka 2 homeruns í síðustu lotu.
Föstudagur
Um morguninn fjallaði fyrirlesarinn um "cushion mechanics", ekkert sérstakur fyrirlestur en hann sýndi tölvulíkön af plastefni sem er verið að gera tilraunir með sem er stíft þegar lítið álag er á en verður mjúkara þegar meira álag er sett á. Chris var með sinn fyrirlestur strax á eftir honum og við mættum öll til að sýna móralskan stuðning. Honum gekk mjög vel og spurningarnar sem hann fékk voru þær sem við höfðum æft fyrirfram, þannig að það var lítið mál. Fór eftir þann fyrilestur að hlusta á fyrirlestra í sport biomechanics þar sem margar kynningarnar voru um fótbolta. Menn eru að hanna mælingar til að meta yfirferð einstakra leikmanna yfir völlinn. Það var ein brasilísk rannsókn og ein japönsk varðandi þetta. Nokkuð áhugavert, en greinilegt að einn miðjumaðurinn í brasilísku rannsókninni hafði engan áhuga að spila vörn, fór aldrei inn í sinn eigin vítateig á 90 mínútum. Makis var þvínæst með sína kynningu sem gekk mjög vel bara. Eftir að hann kláraði þurftum við að yfirgefa það session til að ná kynningunni hans Bens sem var í samhliða sessioni. Óhætt að segja að allir 9 frá Strathclyde hafi staðið sig bara vel. Það var nú einhver púki í okkur eftir hádegismat og við skrópuðum í fyrirlestrana eftir hádegi, en mættum um eftirmiðdaginn í lokaathöfnina, þar var farið yfir ráðstefnuna og alla verðlaunahafana og það náttúrulega kynti undir hégómagirndinni hjá manni að sjá nafnið sitt fá sérstakan sess. Fyrirlesarinn reyndi einnig að bera fram Kjartans nafnið og tókst bara nokkuð vel til, hann er hollenskur og það gæti hafa hjálpað. Eftir það fórum við og settumst niður í bjór þar sem einhver Pólverji sem vinnur í Ástralíu settist niður hjá okkur og var að spjalla við mig varðandi kynninguna mína. Einnig kom Marco og það var fínt að geta talað aðeins við hann. Verkfræðideildin heima er í samstarfi við þá þarna í Bologna, þar á meðal Siggi Brynjólfs og Benedikt. Einnig sagði hann að sendinefndin frá HR sem heimsótti okkur hafi einnig komi við þar. Greinilega ekki slæmt að vera í HR og kynna sér aðstæður í biomechanics tilraunastofum um allan heim. Um kvöldið var svo móttaka í Rock'n roll hall of fame. Sveitalubbarnir í Cleveland eru búnir að koma upp smá rokksafni, svosem ekkert merkilegt, gítarar frá Jimi Hendix, Kurt Cobain og fleirum til sýnis. Þessi móttaka endaði í fínasta partý þar sem maður hellti í sig bjór og tróð í sig mat. Enduðum svo á pöbb niður í bæ í góðu stuði.
Laugardagur
Lögðum af stað frá Cleveland seinni partinn og stoppuðum á Newark í þrjá tíma og flugum þaðan heim. Lentum rétt fyrir 10am á sunnudagsmorgninum. Ég náði nú að sofa ágætlega og kannski að það hafi verið hinni ill-þolanlegu leikkonu Söndru Búllokk að þakka og ákaflega leiðinlegri mynd um löggu sem fer í fegurðasamkeppni.
Ferðin í heild var ákaflega vel heppnuð og í góðum félagsskap getur verið mjög gaman í jafnleiðinlegri borg og Cleveland er. Vara fólk við heimsóknum þangað.
Topp 3
| 1. Redneck mótorhjólapöbbinn |
| 2. Abercombie & Fitch búðin, þar sem það var clear out útsala. Venjulega eru bara til XS eða XL í svoleiðis en af því að Kanar eru allir svo helvíti feitir þá hliðraðist úrvalið þannig að minnsta var venjuleg stærð (32&34) og XXXL. Við keyptum okkur öll XXXXL stuttermaboli í Footlocker búðinni. Við Chris komumst tveir saman í einn bol....hrikalega fyndið |
| 3. Grillveislan á sunnudeginum, gott stuð með ókeypis bjór og börgers í bongóblíðu |
Botn 3
| 1. Ítalski staðurinn sem serveraði brúsjeeeetu, alltof heitt rauðvín og kom með aðalréttinn áður en við náðum að klára forréttinn |
| 2. Feitir fáfróðir kanar sem var nóg af |
| 3. Nachos ostasósan á baseball leiknum, var kekkjótt og almennt ógeðsleg |
Jamm....svo mörg voru þau orð.
2.8.2005
Came to Cleveland after having spent 5 hours in NY and did a crash tour of the city. Went to all the famous places but the lack of pubs and places to get a pint in the heat was disconcerting to say the least for me and Chris. Arrived in Cleveland on Saturdaynight. The opening ceremony for the conference started on sunday afternoon and ended in a bbq with complementary beer...which was good. The schedule has been busy for the last couple of days, but many interesting session that I have attended. Cleveland though is not the most interesting city in the world. Went for a walk downtown and it is nothing there apart from banks and hotels, managed to find one mall to blow some cash but thats about it. The heat here is terrible and to be honest I'm just quite happy to stay indoors during the day. It is though quite pleasant during the evenings when the sun has set.
My talk is tomorrow, have given the presentation to the technical staff and am going to spend the evening for mental preparing. There is though a reception at the National history museum later on today which I'd like to attend. Am though quite confident and it has been very useful listening to other talks in a similar field.
Thursday is then baseball game...Cleveland against NY Yankees, sure its going to be great to watch fat blokes play rounders (kylo a islensku)
Apologies for writing in english for I don't have the authority to change the keyboard settings. Will try to write at some later stage this week.
29.7.2005
Brottför
Höldum utan í fyrramálið, fljúgum til New York og þaðan til Cleveland. Ráðstefnan verður sett á sunnudagseftirmiðdag og prógramið byrjar á fullu á mánudagsmorgun. Mér sýnist maður verða að hlusta á fyrirlestra nánast allan mánudaginn og þriðjudaginn en væntanlega fær eitthvað frí á miðvikudaginn. Fimmtudagurinn er þéttskipaður en minna á föstudeginum. Er einnig búinn að finna málstofu þar sem verða kynnt fótboltatengd verkefni, verður fróðlegt að heyra um biomechnics í boltanum. Minn fyrirlestur verður á miðvikudagsmorgun milli 9 og 9:30 (þ.e. 14-14:30 að íslenskum tíma). Maður ætti nú að komast í internet þarna úti þar sem maður greinir frá gangi mála. Þar engir séríslenskir stafir í boði þannig að ætli maður skipti þá ekki bara yfir í ensku....nenni ekki að skrifa "th" þegar ég meina "þ".
Annars bara góða skemmtun um verslunarmannahelgina.
Dráttur
Þá er búið að draga í lokaumferðina í undankeppni Meistaradeildarinnar. Everton fær Villareal....ekki besti dráttur í heimi. Villareal með hörkulið þar sem Forlan var í stuði á síðustu leiktíð og svo var Alessio Tacchinardi að fara til þeirra frá Juve, veit samt ekki hvort þau skipti hafa verið gerð í tæka tíð, þannig að hann gæti verið ólöglegur gegn Everton. Ef Celtic tekst að skora 6 mörkum meira en Artmedia þá er líklegt þeir fari til Serbíu og spili við Partizan Belgrad. Þeir hefðu eflaust ekki komist í gegnum þá hvort eð er. Rangers fara annaðhvort til Tyrklands eða Kýpur, vonandi að þeir verða slegnir út.
28.7.2005
The killer's guide to Iceland.....(and Bratislava)
Er að lesa nokkuð skemmtilega bók sem heitir The killer's guide to Iceland sem fjallar um Skota frá Glasgow sem flyst til Reykjavíkur til að búa með íslenskri kærustu. Rithöfundurinn, Zane Radcliffe, hefur greinilega eytt nokkrum tíma heima þar sem lýsingarnar eru mjög nákvæmar og svosem alltaf fyndið að lesa frásagnir útlendinga þegar þeir koma til Íslands. Finnst kannski eins og það sé dálítið miklu púðri eytt í umræðu um slátur, lundabagga, hvalkjöt og annan mat sem þykir þjóðlegur. Af lestri bókarinnar mætti halda að við étum þetta í hvert mál.
Celtic voru ekkert sérlega góðir í gær. 5 marka tap gegn fjölmiðlalistamönnunum frá Bratislava þýðir það að Evrópukeppnin fyrir þá grænu er búin áður en hún var hafin. Ég sá aðeins fyrstu 20 mínúturnar og liðið virkar shaky. Er ansi hræddur um að þetta verði langur og strangur vetur fyrir Celtic og ef þeir halda svona áfram á rangers titilinn vísan. Ferlegt að láta fara svona með sig, þar sem að Celtic hefði farið í annan styrkleikaflokk hefðu þeir komist í riðlakeppnina....jæja það þýðir lítið að spá í því núna
27.7.2005
Var dreginn á þýskukvöld í gær á pöbb sem er rétt hjá mér. Maður bara skellti í sig nokkrum og talaði þýsku wie ein verrückter. Annars hafa eflaust allar setningarnar verið málfræðilega gallaðar en mér tókst nokkurn veginn að halda uppi samræðum.
Lokaæfingin fyrir Cleveland var haldin áðan, samleitnihraði á þessari blessaðri kynningu minni er frekar hægur. Þetta er svosem að koma, missi samt enn út úr mér vitlausa frasa, notaði orðið "guessed" þegar ég meinti "estimated" þegar við þurftum að áætla efniseiginleika liðbanda sem við fundum ekki í literatúrnum. Maður verður tættur í sundur fyrir svona mismæli.
26.7.2005
Eins og snilldin benti á fyrir nokkru, er google map mögnuð uppfinning. Þar er hægt að skoða gervihnattamyndir með upplausn upp á fáeina metra á völdum stöðum. Er búinn að vera að skoða hvernig umhorfs er í Cleveland og hvar við búum og svona. Sýnist campusinn (nískupúkarnir vilja ekki splæsa á mig herbergi á Hilton) ekki vera langt frá bænum og ströndinni á Erie vatni.
Annars er ég búinn að vera að hlusta af fullt af nýlegri tónlist undanfarið. Langt síðan maður hefur gert Topp5 (eða síðan 18. apríl)
| Coldplay: Twisted logic |
| Oasis: Love like a bomb |
| Tears: Lovers |
| Decemberists: We both go down together |
| Kasabian: Reason is treason |
Jebb....það sést vel á þessum lista að maður er allavega 3 mánuðum á eftir, engu að síður góð músík.
25.7.2005
Á laugardagskvöld var giftingarveisla á Oran Mor klúbbnum sem er gömul kirkjubygging sem hefur verið breytt í klúbb/pöbb/veitingastað og er rétt hjá mér. Það var skoskur leikari sem var að gifta sig en á gestalistanum voru Chris Martin, Gwyneth, strákarnir í Travis og Martin Freeman úr Office. Það alveg gleymdist að segja mér frá þessu svo ég gæti aðeins lagað celeb-spottin mín hérna sem ekki eru upp á marga fiska.
Hihi svo er maður svo illkvittinn að maður brosir alltaf út í annað þegar kr-ingar tapa. Þeir hafa ekki klikkað í sumar á því. Reyndar eru Skagamennirnir álíka lélegir en þeir eru stigi á undan og eiga tvo leiki inni.
23.7.2005
Fékk skemmtilega heimsókn hingað í gær, Kiddi, Karólína og Finnur voru stödd í Glasgow á ferð sinni um skosku hálöndin. Hittumst yfir nokkrum drykkjum og fengum okkur góðan mat og svoleiðis. Fór með þau á Pot Still whisky pöbbinn hérna í bænum (þau hafa verið að heimsækja hin og þessi brugghús fyrir norðan) þar sem við prófuðum nokkrar tegundir af whisky. Er aðeins í ryðgaðri kantinum í dag.
Tók þátt í ljósmyndamaraþoni Jóh klansins. Mjög skemmtilegt. Fengum 10 viðfangsefni sem við áttum að mynda. Viðfangsefnin voru: Framsókn, Kúkur, Star wars, Hér og nú, Vinátta, Borðplata, Útrás, Rússland, War on terror og Í sól og sumaryl (sem betur fer var sæmilegt veður hérna í gær og á fimmtudag). Ég þyrfti að koma mér upp myndasíðu, get ekki sett mikið fleiri myndir á þessa síðu þar sem ég er nánast búinn með plássið. Auk þess held ég að í lok árs verði lokað á þessar homepages.strath.ac.uk síður, þannig að ég þarf að fara að finna þessari síðu annan samastað fyrir lokaár hennar, 2006.
22.7.2005
Það kom í ljós að gæjinn sem meiddist í boltanum á miðvikudaginn fór ekki aðeins úr lið heldur tvíbraut hann ökklann á sér. Ég hef bara aldrei séð annað eins. Ótrúlega óheppinn. Honum til hróss skal þó segja að hann bar sig nú nokkuð karlmannlega. Hef séð atvinnumenn í boltanum sem hafa farið að skæla yfir minna.
The Extras er nýr þáttur Ricky Gervais og var fyrsti þátturinn sýndur í gær þar sem Ben Stiller var í aukahlutverki. Óhætt er að segja að þátturinn er í anda the Office og er á köflum "painfully funny", maður þarf stundum að halda fyrir augun vegna þess að aðstæðurnar eru svo pínlegar. Ég hló samt heilmikið yfir þessu í gær. Stóra spurningin er samt: hvorir eru fyndnari, Matt Lucas og David Williams úr Little Britain eða Ricky Gervais og Stephen Merchant. Stór er spurt....jamm
21.7.2005
Það er einn sem er að vinna að sumarverkefni hérna við deildina sem gengur út á það að taka módelið mitt og breyta nokkrum eiginleikum (sensitivity analysis). Gallinn er sá að um leið og ákveðnum stuðlum er breytt, þá verður líkanið ósamleitið og allt fer í klessu. Svo virðist sem að maður hafi hitt á lítið svæði þar sem lausnin er samleitin. Enn eitt dæmið hvað þetta módel er vont hjá mér. Ætli lendingin verði ekki að þetta sumarverkefni fari í að greina bara hluta af módelinu.
Fékk "Ella" í fótbolta í gær. Að fá Ella er skírt í höfuðið á einum félaga okkar strákanna úr háskólanum, hann ætlaði alltaf að koma með í fótbolta en á síðustu stundu var alltaf einhver tánöglin sem var að angra. Nú er semsagt nöglin á litlu tá á hægri fætinum með einhverja stæla. Það er samt ekki sjens að ég muni sleppa bolta vegna þess að maður er með "Ella". Annars fór ekki vel fyrir einum í boltanum í gær, hann stökk upp, lenti ansnalega og þá heyrðist hár smellur í ökklanum og kappinn var sendur beint á sjúkrahús. Veit ekki stöðuna á honum í dag en hann hlýtur annaðhvort að vera brotinn eða búinn að slíta einhver liðbönd í ökklanum. Það er ekkert spes.
19.7.2005
Fair weekend
Búin að vera löng helgi, frí á föstudaginn og í gær. Rólegheit bara, grilluðum á föstudaginn nokkur sem vakti athygli nokkurra krakka 6-8 ára í hverfinu sem ekki þekktu papriku frá tómat en vissu þeim mun meira um gang mála í Big Brother...gæfulegt. Rifjaði aðeins upp þýskuna með því að horfa á Der Untergang, myndina um síðustu daga Hitlers, nokkuð mögnuð mynd. Er að velta fyrir mér að halda áfram í ítölskunni næsta haust en var að uppgötva það að ég er búinn að gleyma nánast öllu sem ég lærði. Þarf eitthvað að gera í þeim málum.
Fótboltanum í gær (spila alltaf á mánudögum og miðvikudögum) var frestað í gær vegna þess að höfðu verið unnin skemmdarverk á gervigrasvöllunum um helgina, ég var ekki sáttur.
Annars bara heldur maður áfram að undirbúa sig fyrir ráðstefnuna í Cleveland. Brottför þarnæsta laugardag. Mér var bent á að Evan Dando spilar í þeirri borg daginn áður en ég kem, það hefði verið gaman að fara að tónleika með honum. Óvíst hvort maður hafi annars mikinn frítíma, þetta verður stíf dagskrá frá morgni til kvölds.
15.7.2005
| Vieira...woooh |
| Viiiiiiiiieira...woooooooooh |
| He comes from Senegal |
| He plays for |
Með Viera og Nedved á miðjunni eru i Bianconeri líklegir til afreka í vetur. Djöfull hlakka ég til þegar boltinn byrjar að rúlla aftur. Manni líður alltaf eins og eitthvað vanti frá miðjum maí fram til byrjun ágúst. Maður hefur alltaf íslenska boltann að fylgjast með á sumrin en það er bara ekki það sama, með fullri virðingu fyrir liðunum í Lansbankadeildinni. Vegna HM á næsta ári byrja deildirnar snemma og í lok júlí mun líf manns öðlast tilgang að nýju...eins og Eiki Hauks orðaði það (ég gerðist reyndar svo frægur að hafa mömmu hans sem kennara í grunnskóla sem var án efa langbesti kennari sem ég hef haft....kemst enginn með tærnar þar sem hún hafði hælana. Ekkert Gaggó-Ve(r)st þar....nó sör)
En já...fótboltinn alltaf skemmtilegur.
14.7.2005
Ég hef nú sagt það áður á þessari síðu að skorarformaðurinn hérna er alger bjáni. Um helgina er Fair weekend sem þýðir að það er frí á morgun og á mánudag. Vegna þess hafa menn í gegnum tíðina bara tekið því rólega á þessum degi og hætt snemma. Í morgun var sendi bossinn póst um að þeir sem vildu gætu hætt klukkan 4. Veit ekki hvort þetta á að vera eitthvað friendly gesture af hans hálfu, en mér finnst þetta nú frekar slappt boð...sérstaklega fyrir þá sem mættu klukkan 8.
Einnig mun hann taka skrifstofuna af okkur Angelu í lok ágúst og verðum við send niður í stúdenta aðstöðuna. Minns ekki sáttur en lítið sem maður getur gert.
13.7.2005
Boltinn
Jæja....þá er boltinn farinn að rúlla í Meistaradeildinni...ahhhh. Liverpool að spila gegn netfyrirtækisliðinu og munu fara auðveldlega í gegnum þá leiki. Annars er nú ekki mikill sjarmi yfir þessum fyrstu umferðum en nokkrir mjög áhugaverðir leikir. Sá mest interessant er spilaður í kvöld, þegar Glentoran spilar gegn Shelbourne. Eins og menn vita er Glentoran frá N-Írlandi og aðallega mótmælendur sem styðja þá meðan Shelbourne er frá Írlandi (þ.e. Suður-Írlandi, Lýðveldinu) þar sem allir eru náttúrulega rammkaþólskir. Ekki nóg með að þessi "derby-slagur" sé í undankeppni Meistaradeildarinnar, heldur fer hann fram á þeim tíma þegar Óraníumenn ganga um hverfi kaþólikka til að minnast sigur þeirra í bardaganum við ánna Boyne á 17. öld. Nú logar allt í báli og brandi þarna fyrir norðan þar sem kaþólikkar eru ekki par sáttir við þessar göngur. Þessi leikur verður ansi áhugaverður fyrir vikið. Artmedia frá Slóvakíu gerði ekki góða ferð til Kasakstan og töpuðu 2-0 en sigurvegararnir spila við Celtic og ég væri alveg til í það ef strákarnir myndu sleppa við að fara þangað austur. Annars eru landamæri Evrópu alltaf dáldið spes þegar kemur að fótboltakeppnum....síðan hvenær myndist Kasakstan teljast til Evrópuþjóða og einnig spila lið frá Ísrael í keppninni. Spes....
12.7.2005
Ég man að einu sinni var ég að horfa á heimildarþátt um söngkonuna Elisabeth Schwarzkopf þar sem var tekið viðtal við hana á gamalsaldri. Af einhverjum ástæðum var myndatökumaðurinn alltaf á spyrlinum þar til að það kom í ljós að hún vildi ekki láta taka myndir af sér og sagði að börn ættu að sjást en ekki heyrast meðan fullorðnir ættu að heyrast en ekki sjást. Spurning hvort þetta ætti að gilda fyrir mig....en þar sem nú flestir lesendur þekkja mig í sjón læt ég fylgja eina mynd af undirrituðum í nýja skotapilsinu.

Það gerði sitt gagn á laugardaginn (þótt það hafi verið dáldið heitt um daginn) og að sjálfsögðu var maður "true scotsman" innanundir, mjög þægilegur klæðnaður. Cravat-ið (svipað og venjulegt bindi en samt ekki alveg) er skakkt á manni en það er bara til marks um að ég hnýtti það sjálfur, en auk þess voru þónokkrir bjórar komnir niður á þessum tímapunkti.
Það er svo fáránlega heitt hérna að það er ekki fyndið, hitinn fór upp í 28-29 gráður í gær. Auðvitað var svo undergroundið bilað svo maður þurfti að ganga heim í gær eftirmiðdag. Fór svo í fótbolta um kvöldið og svitnaði eins og ódýr portkona. Svipað heitt í dag og ég er bara með skyrtuna hneppta niður 4 tölur eins og alvöru Ítali....eða Ingólfur Guðbrandsson.