21.4.2005
Gleðilegt sumar
Bretar viðurkenna ekki mikilvægi þessa dags og því er maður í vinnunni...þegar maður ætti eiginlega að vera í fríi.
Frábær úrslit á Goodison Park í gær. Everton vann ManU í fyrsta sinn í 10 ár (held ég) og er enn í fjórða sæti og halda Liverpool fyrir aftan sig. Slakari úrslit á Delle Alpi, Juve og AC Milan nú aftur orðin jöfn að stigum.
19.4.2005
Megas skrifaði einu sinnu undir kaupsamning á kók og pylsu með öllu. Í gær skrifaði ég undir kaupsaming á skotapilsi. Það er Gunn klanið sem ég tilheyri eða öllu heldur gerir McMa(g)nus ættin það...jájájá þetta er longshot en það er þó smá tenging þarna. Ég var mældur í bak og fyrir. Það eru margar ákvarðanir (mismikilvægar) sem þarf að taka þegar keypt er svona. Fyrst er það náttúrulega tartanið sjálft og svo þarf að spá í hversu fínt eða gróft munstrið á að vera og svo er spurning hvort maður vilji hafa munstrið allan hringinn eða hafa lóðréttar rendur að aftan, það er meira hermannastíll. Mér finnst reyndar að ég líti út eins og páfugl þannig. Svo er spurning hvort þyngdin eigi að vera 13oz eða 16oz. Mér var ráðlagt af fólkinu í búðinni að taka bara 13oz, hitt er enn dýrara og hefði í raun ekkert að segja fyrir mig að taka svoleiðis. Fínt þegar maður fær svona ráðleggingar frá fólkinu sem er að selja manni hlutinn.
Lendingin varð semsagt, 13 oz Gunn tartan með fínu mynstri sem er eins bæði að framan og aftan. Pilsið verður tilbúið í lok júní enda er allt handunnið (og prísinn eftir því) þannig að maður getur verið fínn í brúðkaupinu í júlí.
Þá er bara að fara að þjálfa kálfavöðvana. Gleymdi reyndar að spyrja hvort ljóstímar fylgdu með eða hvort maður eigi bara að vera sjálflýsandi hvítur á löppunum í svona.
18.4.2005
Skellti mér í fjallgöngu í gær í algeru skítaveðri. Löbbuðum á Bein a Chreachain sem er við Brigde of Orchy, West Highland og ég datt á leiðinni niður í mýri og sökk upp að mitti. Það var ekkert spes en gaman samt að hafa drifið sig þótt veðrið hafi mátt vera betra.
Topp 5 dagsins
| House of Love: Christine |
| Lennon: Mind games |
| A.C. Newman: Come crash |
| Streets: I could well be in |
| Pulp: Something changed |
| Kjarri | Brilljant. |
| Jói | Fögur fjöllin klýfur hann fjallagarpur mestur, En fúafeni engin ann það þekkir maggi bestur |
| Stínastuð | ég verð nú að segja að ég er svolítið skotin í
laginu christine...af augljósum ástæðum. |
15.4.2005
He said...she said
Sendi Nicky abstraktinn minn til gagnrýni og fékk hann allan endurskrifaðan tilbaka. Dæmi (það er fjallað um hvernig er hægt að komast að álagsdreifingu á bein með beinni mælingu eða með tölvulíkani)
Maggi skrifar: "In the case of direct measurements, the joints must be invaded and that can affect the result but a computational model can never stand by itsself without being supported by direct measurements"
Nicky endurskrifar: "Using direct measurement is invasive and may disrupt the results obtained. Computational models, on the other hand, often suffer from unphysiological boundary conditions, oversimplification and lack of validation"
Óneitanlega er seinni setningin betri...ég vildi ég gæti skrifað svona.
| ÓliJóh | En maður skilur þína setningu ... ekki
hennar. |
| Chris | well, you're damned if you do and you're damned
if you don't |
| Stínastuð | þá værirðu ekki íslenskur er það? fínt að hafa fólk við höndina sem getur gert textann manns betri...átt þú ekki að vera aðstoðarmaður hennar? er það öfugt? |
| Maggi | Tja...hún er allavega aðstoðarmaður
minn þegar kemur að yfirlestri. Bara að þakka Óla gott komment, held nefnilega stundum að markmiðið með þessum "akademísku" textum sé að gera textann alveg óskiljanlegan. Fékk kommentið frá henni að ég skrifa eins og ég tala...sem má víst ekki í þessum bransa. |
| Stínastuð | fræði spæði...farðu bara í tónlistarnám,
það er miklu skemmtilegra t.d. á morgun fer ég í próf þar sem ég þarf að syngja "i didn't know what time it was" í útgáfu Carmen McRae og svo fá allir kók og prins eftir prófið (reyndar djús og dónöts...) |
| Brynja | Mér sýnist þú þjást af
"passive" orðalagi sem Word spellcheckerinn minn er alltaf að
bögga mig á. Hvað er málið með það?!! Gott samt að hafa prófessor til að laga orðalagið hjá sér. Væri verra ef hún væri að gera efnislegar athugasemdir |
Feginsdagur fira
Mig minnir alltaf eins og Ólafur Oddsson íslensku-Kennarinn (með stórum staf og greini) við MR hafi talað um feginsdag fira sem gleðidag hinna útvöldu manna í tengslum við ragnarrök í Völuspá. Hugtakið kemur nú reyndar ekki fyrir í Völuspá, þ.e. sjálfu kvæðinu en ég man alltaf eftir einhverri umræðu í íslenskutíma í 6.Y í H stofu um feginsdag fira. Hvað um það. Í gegnum tíðina hef ég alltaf tengt daginn í dag við óhappa sem og dagana í kring....hálfgerð óhappadægri. Þetta fer nú ekki vel af stað þar sem ósigur Juve fellur inn í þetta og svo lenti ég (ok kannski ekki ég sem lenti í því...en ég var viðstaddur) í því í gær handtösku vinkonu minnar var stolið fyrir framan nefið á okkur án þess að við tókum eftir. Má ekki líta af svona í eina mínútu. Virðist sem ég sé farinn að jinxa fólk í kringum mig.
Ég ætla hins vegar að gera málamiðlun varðandi þessi jinx-dægri. Það veltur miklu á deginum í dag hvort maður geti "af-óhappað" hann, því að í dag mun koma í ljós hvort ég verði ræðumaður á alþjóðaþingi kvikmyndaverkfræðinga í hinni margrómuðu og exótísku borg Cleveland en það sem meira er að þá mun koma í ljós hvort að boð okkar strákanna í miða á HM í Þýskalandi beri árangur (það reyndar gæti dregist fram í lok apríl en þetta er official dagsetning fyrir miðaúthlutanir). Einnig er ég að berja saman annan abstrakt fyrir ráðstefnu í Bath í júní og þarf honum að vera skilað fyrir lok dagsins. Reynist þessi boð árangursrík skal tekið til athugunar hvort 15. apríl verði af-óhappaður og hvort dagurinn fái uppreisn æru og verði feginsdagur fira.
14.4.2005
Bitter taste of defeat
Get nú ekki sagt að leikurinn í gær hafi verið skemmtilegur. Liverpool spilaði catenaccio vörn sem Juve tókst ekki að brjóta á bak aftur. Þeir svarthvítu voru arfaslakir.
Knattspyrna verður seint sögð vera sanngjörn íþrótt
| ÓliJóh | Ha! Ósanngjarnt - ef það hefði verið einhver sanngirni
í þessu hefði staðan verið 5-0 eftir fyrri leikinni þannig að við
hlustum ekki á svona píp í þér Magnús. |
| Maggi | |
| Þórður | Uss - Juve gat ekki neitt í 4 hálfleikjum og því fór
sem fór! |
| ÓliJóh | |
| Maggi | Nei, catenaccio er komið af orðinu catena sem þýðir
keðja og merkir að það sé "lok-lok og læs og allt í stáli...lokað
fyrir Del Piero". Þetta hugtak kom fram á Ítalíu þegar varnarmennskan var höfð í fyrirrúmi fyrr á tíð. |
| Pabbi | Minni á það sem þú sendi mér: 1978: Páfinn dó Wales vann stóru slemmuna í Rugby Liverpool tapaði úrslitaleiknum í deildarbikarnum fyrir liðinum sem síðan varð Englandsmeistari um vorið (N. Forrest) Liverpool F.C. varð Evrópumeistari í fótbolta 2005: Páfinn dó Wales vann stóru slemmuna í Rugby Liverpool tapaði úrslitaleiknum í deildarbikarnum fyrir liðinum sem síðan verður Englandsmeistari í vor (Chelsea) Liverpool F.C. verður Evrópumeistari í fótbolta.... Og að auki.... 1981: Charles prins kvæntist Liverpool varð Evrópumeistari 2005: Charles prins kvæntist Liverpool verður Evrópumeistari.... Þetta er nú ekki flóknara dæmi. |
13.4.2005

Ítalskir áhorfendur urðu sér enn á ný til skammar í gær. Lazio "aðdáendur" eru búnir að vera liði sínu til skammar í mörg ár með þessum fasista áróðri þannig að það er ekkert nýtt. Roma menn voru með leiðindi við Anders Frisk síðasta haust og svo urðu stuðningsmenn Inter sér til minnkunar í gær.
Aðalleikurinn í kvöld. Nú þurfa þeir svarthvítu að láta hendur standa fram úr ermum. Enginn Trezeguet, þannig að nú er komið að Del Piero að fara fyrir sínum mönnum og stinga ofaní mig ummæli sem ég lét falla hér fyrir viku síðan um að líklegast væri ferill hans með Juve kominn á síðasta sjens. Mér hefur reyndar ekki leiðst að lesa um vandræði Liverpool í vikunni, Gerrard meiddur og það eru pælingar um að setja Xabi Alonso í byrjunarliðið, mann sem hefur spilað 45 mínútur með varaliðinu síðan á nýársdag þegar Lampard straujaði hann. Einnig er tal um að Cisse verði á bekknum, maður sem lenti í hrikalegu fótbroti fyrir 7-8 mánuðum síðan og hefur ekki sparkað í bolta síðan. Juve má svosem ekki missa sig í pælingar varðandi Liverpool heldur einbeita sér að því að skora. Emerson og Nedved verða klárir og Tacchinardi kominn úr banni. Grundvallaratriði að ná marki á fyrsta hálftímanum (1-0 sigur dugar Juve) og detta aðeins aftur og láta Liverpool koma framar. Þá er ég viss um að opnist svæði fyrir Zlatan eða Del. Ef Liverpool hins vegar skorar eru Juve komnir í vond mál. Eins gott að Buffon verði í stuði.
Reyndar skiptir ekki máli fyrir Chelsea hvort liðið kemst áfram, sé hvorki Juve né Liverpool ná að vinna þá. Spurning um að skreppa til veðmangarans og setja nokkur pund á Chelsea-Milan úrslitaleik og að Chelsea vinni. Easy money.
Eins mikið og maður vonar að strákarnir inná vellinum standi sig, vonar maður eiginlega jafnmikið að aðdáendurnir hagi sér vel og verði ekki sér til skammar eins og stuðningsmenn Lazio, Roma og Inter.
Mín spá: 2-0 (eitt mark á fyrsta hálftímanum og eitt á 89. mín) fyrir svarthvíta. Forza Juve
P.S. Tek aftur það sem ég sagði um Dundee Utd í fyrradag, þeir unnu rangers í gær á Ibrox. Frábær úrslit.
| Milan vinnur þessa keppni - það liggur ljóst fyrir. Þannig að ef þú ert búinn að skjótast út á William Hill er það tapað fé - sorry |
|
| Maggi | Alltaf þegar ég sé Morinho þá virðist hann hafa
orðið "winner" written all over him. Held að hrokafulli Portúgalinn sé að fara að lyfta Meistarabikarnum í annað sinn á tveim árum. |
| Örn Úlfar | Ég mundi veðja á Milan. Hefur José unnið ítalskt lið? Og annað er Moroni-jóh nokkuð skyldur Óla-Jóh? |
12.4.2005
University Challenge
Einn uppáhaldsþátturinn minn í bresku sjónvarpi er án efa Gettu Betur háskólanna eða University Challenge. Mestu nördar Bretlands keppa um hverjir séu mestu nördarnir. Spurningarnar eru svívirðilega þungar, en mér tókst í gær að svara 8 spurningum rétt. Það er ekkert sérlega mikið miðað við að þetta er hálftíma þáttur og spurningarnar sambland af bjöllu og hraðaspurningum...þannig að það eru spurðar ansi margar spurningar í hverjum þætti. Í einu liðinu (frá St. Hilda's kvennaskólanum í Oxford) var meira að segja ein nokkuð sæt og það sem meira var, hún er frá Glasgow..would you believe! Ef fólk heima hefur aðgang að BBC2, þá mæli ég með University Challenge klukkan 20:30 (þ.e. 19:30 íslenskum tíma) á mánudagskvöldum.
| Pabbi | |
| Burkni | Birta myndir af' enni ... |
11.4.2005
Helgin
Tónleikarnir á föstudaginn voru mjög góðir og svo hitaði Mugison upp, hef ekki heyrt hann "live" áður, mjög skemmtilegur. Emilíana er orðin hörkuskvísa, hefur hún kannski alltaf verið það? Kom mér dálítið á óvart að flest lögin á Fisherman's woman eru samin af öðrum, hélt alltaf að hennar helsti styrkur væru tónsmíðar. Hélt þetta væri allt eftir hana. Mjög flott hjá henni engu að síður. Varð ekki var við marga Íslendinga, heldur voru flestir áheyrendur breskir og vel með á nótunum hvað hún hefur verið að gera síðustu árin. Greinilegt að einhverjir Bretar eru að fíla Emilíönu.
Eyddi svo lunganum úr laugardeginum í kvennathvarfinu....nei ég meina eldhúsinu, mjög afslappandi. Lenti reyndar í smá katastrófu með heitavatnskranann, hann er búinn að vera að láta illa og ég held ég hafi endanlega rústað honum þegar ég reyndi að laga. Mark var ekki sáttur þegar hann kom heim í gær vegna þess að hann komst ekki í að vaska upp, dæsir þegar hann segir að það sé nú rosalega pirrandi að þurfa að sjóða vatn til að setja leirtauið í....ótrúlegur kappi. Stundum held ég í alvörunni að hann sé þveröfugur. Þarf að láta kíkja á þetta í vikunni...kranann það er.
Fótboltaúrslit helgarinnar komu nánast eftir pöntun. Everton aftur komið með 4 stiga forystu eftir að Man City vinnur Liverpool. Við eigum nú aftur yngsta skorara í úrvalsdeildinni...hvað hét aftur hinn kappinn...þessi með stóru eyrun og stóra skapið og var seldur til ManU? Celtic komið í úrslit í skoska bikarnum eftir sigur á Hearts, þar mæta þeir Dundee Utd sem einhvern veginn náðu að vinna Hibs. Það er bara formsatriði að klára úrslitaleikinn, Dundee Utd eru neðstir í deildinni og rangers unnu þá 7-1 ekki fyrir löngu. Að lokum verður að minnast á stórkostlega skemmtun sem boðið var upp á í Madríd í gær. Algert augnakonfekt, ekki að ástæðulausu þessir leikir eru kallaðir El Classico. Leiðinlegt að annað liðið þurfi að tapa, þessi leikur hefði þessvegna getað farið 8-8.
| Halli | |
| Pabbi | Svo eru menn í Edinborg líka Hearts-broken! En við skulum muna eftir þessu með formsatriði!! Hver veit. Bloody Liverpool að tapa fyrir Fowler og McManamanananan. Gengur ekki - en það er nóg eftir.. |
8.4.2005
Hlakka til rólegrar helgar, tónleikar með Emilíönu Torrini á King Tut's í kvöld. Mark er í einhverri fyllerís ferð til Belgíu (nýkominn frá Dublin...naumast veldi á þessum stúdentum) þannig að maður hefur íbúðina fyrir sig, spurning hvort maður ætti að opna stóru stóru ítölsku matreiðslubókina og reyna að brasa eitthvað, dáldið síðan það hefur gerst. Einnig er að byrja ítölsk kvikmyndahátíð sem maður getur tékkað á. Maður verður að koma sér í gírinn, næsta ítölskunámskeið er nefnilega að hefjast. Má segja að það sé ítalskt þema hjá manni þessa dagana.
| Þú verður ekki svikinn af Emilíönu, var stórkostleg hérna fyrir austan í gærkv. Eðal meðspilarar og ekki á neinn hallað þegar ÓBÓ er sagður hafa verið þeirra fremstur, fór mikinn á trommum, sýlafón(eða hvernig sem þetta er stafsett) og rafhljóðum. Þau slógu ekki feil nótu! Ennþá skemmtilegra að heyra fólk í salnum vera að ræða um hana og rembast við að bera fram nafnið með eins miklum ítölskum hreim og hægt er, þú slærð þeim við eftir ítölsku námsk. ;o) | |
| Svanhildur | Já já... allt sem er ítalskt finnst mér vera fallegt fyrir vin minn Magga ítala! |
| Pabbi | Spurning hvort hann nefnir sig McMagnus eða di Maggio - eða hvort hann fari yfir í latínuna og velji úr magnus - major -maximus. |
7.4.2005
Enn af La Partita
Fékk það staðfest í gær að Ítalir klappa til að votta virðingu, það er t.d. klappað í jarðarförum á Ítalíu og það var klappað í messu fyrir páfanum nú fyrir skömmu. Allavega sá ég myndir í fréttum sem sýndu stuðningsmenn Juve snúa baki í völlinn og senda puttann, sem er ekki gott. Menn eru farnir að hafa áhyggjur af leiknum í Tórínó, vonandi það komi ekki til uppþota.
Megas er víst 60 ára í dag. Leyfi mér að fullyrða að það eru ekki margir sem hafa jafn gott vald á íslenskunni eins og Megas. Hann er einn besti textahöfundur sem við höfum átt og fullsæmdur af íslenskuverðlaunum Jónasar Hallgrímssonar þarna um árið, þegar hann sagði að mesta þýðingin sem þessi verðlaun hefðu fyrir hann væri "bönsj of monní". Í dag hlusta ég á Megas
| Ragnheiður biskupsdóttir |
| Tvær stjörnur |
| Aðeins eina nótt |
| Krókódílamaðurinn |
| Þú bíður allavega eftir mér |
Til hamingju með daginn Megas
| Mæli með laginu "Þóra" eftir hann. Sem sagan sagði að væri samið um Þóru Jensdóttur sem var á ári með mér í MR. Maður veit náttúrulega ekkert hvort það er satt eður ei, en allavegana átti hún rosalega auðvelt með að fá hann nokkru sinnum á listakvöld til að spila án þess að vera sjálf nokkuð í Listafélaginu... (allvegana góð saga ;o) | |
| Halli | ...afsakið þennan link sem kemur alltaf hjá mér (hittið á undan) ég bara skil þetta ekki! |
| Pabbi | |
| Maggi | Þetta verður spennandi eftir viku, en skiljanlegt að púlarar séu í stuði enda er reglan: swingin' while you're winnin' |
| Sigurlaug | Já, mæli með að þú bætir Lóu við (Lóa, Lóa, Lóa)
á spilerí-listann. |
| Óskar Nafnleyndar | HÁLFVITI RINGO STARR SAMDI EKKI OCTOPUSSY'S GARDEN..HANN SÖNG
ÞAÐ BARA!! |
| Pabbi | |
| Snilld.net | Hann samdi það bara víst... Hálfviti |
| Maggi | Honum Óskari Nafnleyndar, aka ! "Bítlaáhugamanni", hefur hér með verið sýnt rauða spjaldið. Sniðugur þessi "ban" fídus í kommentunum. |
| Beta | Mæli líka með "Ekki heiti ég Elísabet" af Hættuleg hljómsveit og ... Ég kemst alltaf í stuð við það...hmmmm svona er maður egósentrískur |
6.4.2005
Little Britain
Sé að þættirnir um Little Britain eru að hefjast á rúv í kvöld. Mælist til þess að fólk tékki á þessu, taki 30 mín pásu frá Milan-Inter. Þetta er hrikalega fyndið.
Leikurinn
Úfff þetta fór nú illa í gær. Liverpool að yfirspila mína menn í fyrri hálfleik en sprungu í þeim seinni. Juve nægir 1-0 til að komast áfram og vonandi verður sú staða uppi að viku liðinni. Bresku blöðin eru samt upptekin af ítölsku áhangendunum og ein fyrirsögnin var "Italians snub Heysel tribute". Nú held ég (er ekki viss...þarf að spyrja ítalska vinkonu mína að þessu) að Ítalir hafi ekki mínútu þögn, heldur klappi þeir í staðinn. Það er náttúrulega óvirðing í Bretlandi en ekki á Ítalíu. Mér heyrðist nefnilega margir klappa í þögninni og uppskáru baul frá Liverpool mönnum þar sem þeir héldu að einhver vanvirðing væri í gangi.
Cannavaro reddaði því sem reddað varð og er maður hóflega bjartsýnn á að Juve komist áfram í undanúrslit. Minn maður Del Piero var slappur í gær, spurning hvort fari að sjá fyrir endan á glæstum ferli. Manni finnst samt alltaf eins og Del Piero hefði getað farið á stall með þeim allra allra bestu en svo verður líklegast ekki raunin.
| Missti af leiknum maður - en vissi svo sem að þetta yrði í lagi. Þetta með klappið er merkilegur siður - en sýnir að það er sinni siðurinn í hverju landi - og reyndar ótrúlegt hvað við hér á norðlægum slóðum erum ignorant um siði annarra. Margt í þessu eins og sagt er. Hins vegar er þetta rétt með Del Piero - hann var ansi efnilegur um tíma! | |
| Snilld.net | Höfum oft velt þessu fyrir okkur með hversu lengi þú ætlar að bíða eftir að Del Piero fari að gera eitthvað... Er hann ekki bara með ofmetnustu leikmönnum síðari ára? Fær megamonní fyrir að vera meiddur á meðan vinnuhestar eins og Montero, Thuram og Nedved skila inn titlunum hjá Juve? |
5.4.2005
Liverpool-Juve
Nú er ekki laust við að maður sé kominn með fiðring í magann, óvíst hvað manni verður mikið úr verki í dag sökum stress. Stórleikurinn í kvöld.
Af vinnu er það að frétta (þar sem ég hef staðfestar heimildir fyrir því að lesendur eru ákaflega mikið áhugafólk um wrist-biomechanics og finite element greiningu) að ég er farinn að tengja saman fleiri og fleiri bein saman, kominn með sett af fjórum beinum en sú lausn divergerar (er ósamleitin) en ég set bara extra jaðarskilyrði á þá hnútpunkta sem haga sér illa. Geri mér reyndar ekki almennilega grein fyrir hversu mikið ég sé að svindla með því að gera það.
Maður reynir að halda eitthvað áfram með þetta í dag en það er líklegt að Leikurinn muni taka alla einbeitingu.
| Chris | When you walk, through the storm, hold your head up high, and don't be afraid of the dark. At the end of the storm, there's a golden sky...... |
| Pabbi | Sýnist ekki ástæða til að óttast kvöldið - mínir menn spjara sig - eða ekki! |
| Stína | af hverju ert þú stressaður? verður þú ekki bara að horfa á þetta í sjónvarpinu? hehehe... |
| Snilld.net | Walk on. Walk on, with hope in your heart. Cause there is always next season. There is always next season. |
| Pabbi |
4.4.2005
Uncle
Varð föðurbróðir nú í morgun, litli bróðir varð fyrstur af okkur. Mér gengur alltaf erfiðlega að læra ensku heitin yfir frændfólk, nephew/niece, uncle/aunt, cousin rugla þessu alltaf saman. Hef verið að skýra þetta út fyrir fólki hérna að við höfum venjulega bara eitt heiti yfir þetta allt frændi/frænka (dregið af friend). Nokkuð viss þó um að ég sé nú orðinn uncle.
Bestu kveðjur sendar upp á Skaga.
| Hallbera |
1.4.2005
Næsta mál á dagskrá hérna er að fara og finna sér klæðskera til að búa til skotapils handa mér. Maður verður náttúrulega að vera í svoleiðis þegar Chris og Alison gifta sig í sumar svo bara gaman að eiga upp á seinni tíma. Veit ekki alveg samt af hvaða tilefni maður gæti gengið í svona heima, þá verður maður bara að búa sér til tilefni. Atriði sem maður þarf að hugsa um er hvernig tartan eigi að vera á pilsinu. Það eru eiginlega þrír möguleikar í stöðunni.
1. Tartan sem tengist nafninu mínu. Þar sem maður er "bloody foreigner" hérna þá er ekki mikið um Magga tartan, hins vegar er til McManus tartan (sá sem lék gamla Taggart hét t.d. að eftinafni McManus) þannig að þá eiginlega vantar bara "g-ið". Close enough!
2. University of Strathclyde tartanið
3. Bara eitthvað flott tartan sem er valið út í loftið, þó verður passað sig að velja ekki eitthvað ribbalda tartan
| McManus tartan | University of Strathclyde tartan |
Maður þarf að tékka á þessu, finnst þessi tvö að ofan ekkert svaka flott, líklegast verður maður bara svindlari og velur sér eitthvað flott tartan. Allavega þarf maður nú að fara að bæta við æfingum fyrir kálfa og læri í gymminu. Spóaleggir í skotapilsi er skondin sjón.
| mér finnst að þú eigir bara að finna þér eitthvað kúl
tartan. þessi tvö eru reyndar allt í lagi. |
|
| Hallbera | Ekki sourning ö finna tartan með oranslit - og dáldið beige. Pasteltartan væri einnig athugandi. Svo er það fótboltinn maður: Liverpool að ná Everton og Celtic að tapa í dag - erfið helgi Magnús. |
| Pabbi | Ég á víst kommentið hér að ofan - en til viðbótar má nefna að áhugavert er að fá viðbrögð Mike McMagnus á árangri Everton undanfarið - sýnist að eitthvað sé farið að slá í Goddisonkallana. LIVERPOOL........ |
| Maggi | fnussss þetta voru nú ljótu fótboltaúrslitin um helgina! Algert drasl. |
| Burkni | Legg til að þú veljir McManus út í loftið, það er fáránlega flott. |
| Björn Friðgeir | Tartan með oransj lit yrði nú ekki vinsælt á Celtic
Park. Finnst nú soltið gróft að velja út í loftið, án þess að eiga tilkall til mynstursins. Hef alltaf verið að spá í að fá mér mér pils í StrathclydeUni mynstrinu. Maður á þó tilkall til þess. |
30.3.2005
Næsti land-sleikur í kvöld, gegn C liði Ítala. Þeir skiljanlega eru ekkert að pína leikmenn Juve, Inter og Milan í svona djók leiki en einnig eru mörg ný andlit í byrjunarliðinu okkar. Fínt að sjá að Grétar Rafn fær sjéns á miðjunni og svo er spurning hvernig Hannes stendur sig frammi, hann er allavega að gera góða hluti með U-21. Annars nenni ég ekki að ausa úr skálum reiði minnar yfir frammistöðu landsliðsins í Króatíu, það er bara eins og að berja hausnum við stein...jú annars....þessir varnarmenn okkar eru ógeðslega lélegir og þessi kr-ingur Kristján Örn gefur allavega eitt mark í leik (þó það hafi ekki kannski ráðið úrslitum á laugardaginn en hann gerði einnig mistök sem gáfu mark gegn Svíum), Ólafur og Indriði (getur ekki tekið við boltanum og spilað frá sér) eru engu skárri. Er Hemmi virkilega eini varnarmaðurinn okkar sem sýnir smá baráttu? Það er enginn maður sem getur haldið boltanum í smástund þegar Rúnar og Eiður eru ekki með og Þórður Guðjóns ef einhverjum óskiljanlegum ástæðum er ekki valinn. Athyglisverð tölfræðin sem var gerð um árangur síðustu landsliðsþjálfara, Gauji Þórðar langbestur en einnig er hann sá eini sem hefur skilað að meðaltali fleiri mörkum skoruðum heldur en fengin á sig. Allir hinir þjálfararnir er með að meðaltali fleiri mörk fengin á sig heldur en skoruð. Gauji lét liðið kannski ekki spila neinn sambabolta en við héldum þó markinu oft hreinu og grísuðum inn einu og einu marki sem var alveg óhemjulega skemmtilegt. Nú er Bobby Fisher gjaldgengur í íslenska skáklandsliðið, er Eggert Bindishnútur ekki búinn að spyrja Zidane hvort hann vanti ekki íslenskan ríkisborgararétt?
Góður dagur í dag annars. Búinn að heyra glænýtt lag með Oasis sem og glænýtt lag með Coldplay. Það er nokkuð sem gerist ekki á hverjum degi. Þau lög verða á repeat það sem eftir lifir dags svo maður geti myndað sér almennilega skoðun á þeim. Held að mér sé þó óhætt að segja að það er engin rosaleg stefnubreyting hjá þessum hljómsveitum ef miðað er við síðustu plötur sem þær gáfu út, því miður í tilviki Oasis. Mikið væri ég samt til að fá plötu frá Oasis í anda Morning Glory og Definitely maybe. Held samt að líkurnar á því séu álíka miklar og að Bítlarnir komi allir 4 saman aftur og haldi tónleika.
| Ég er ekki sammála þér að Hemmi hafi sýnt baráttu í
leiknum ... hann var jafn slakur í þessum leik og allir aðrir. Mér finnst óþarfi að æsa sig yfir þessu - landsliðið er bara yfirfullt af nobodís sem ekkert geta. Einn heimsklassa leikmaður getur því miður ekki bjargað 10 lélegum og gert íslenska landsliðið að sæmilegu liði. |
|
| Maggi | |
| Pabbi | |
| Hallbera | Hvað eru menn að þrasa - 0-0 á Ítalíu - þeir eiga ekki sjéns í strákana okkar Ítalir! Frábært hjá Loga og Ásgeiri - meira af þessu. Verst að þetta skiptir engu máli. |
29.3.2005
Kominn út aftur endurnærður eftir fríið. Vika dugar samt aldrei í það sem maður hefði viljað gera.
Þegar ég kom heim um jólin síðast, barst talið að Landsbankaauglýsingunum varðandi íslensku nöfnin sem eru út um allt í Leifsstöð (skemmtilegar auglýsingar finnst mér) og þá kom í ljós að góð vinkona mín er eitt andlitið. Ég hugsa: "hmmm já hvar ætli hennar mynd sé, hélt ég væri búinn að skoða allar þessar auglýsingar, athuga þetta betur þegar ég fer utan aftur". Mér til mikillar skelfingar sá ég að fyrir framan hliðið þar sem Glasgow vélarnar eru alltaf, hangir á veggnum 3m2 plakat af vinkonu minni og ég hugsa bara "djjíííísös kræst", hafði aldrei tekið eftir henni. Svona gerist þegar maður horfir án þess að sjá! Athyglisgáfan eitthvað að bregðast manni. Tók samt eftir henni í morgun. Annars er alltaf jafnleiðinlegt að hanga í Leifsstöð því maður mætir alltaf of snemma. Komin rútína samt sem samanstendur af roast beef samloku frá Sóma, gulum Topp og Da Vinci kaffi.
Eitt að lokum: Svo virðist sem gengi erlendra gjaldmiðla sé eitthvað bjagað í Landsbankaútibúinu í Leifsstöð, skv. vefsíðu þeirra þá var gengi breska pundsins 22. mars 115,92 (kaupgengi) en í Leifsstaðarútibúi var það 108,09 sama dag. Frekar skítt þar sem gengi pundsins er nógu lágt fyrir og frekar dýrt fyrir okkur sem fá borgað í þeim gjaldmiðli að sækja Ísland heim.
| leifsstöð er samt hátíð miðað við marga aðra flugvelli. amerískir flugvellir eru t.d ekkert til að hrópa húrra fyrir. huuuuuuuuundleiðinlegt að bíða á þeim og lenda í öryggistékkum. | |
| Pabbi | Farinn og kominn og við fórum á mis! Þetta er ekki boðlegt - en next time. Ein leiðin að hitta þig er að skella sér til Glasgow - ef þú ert við þar. |
| Þórður | Landsbankinn í Leifsstöð auglýsir þannig að enginn þóknun sé tekin fryir gjaldeyrisviðskipti. Á móti er gengið mjöööög óhagstætt. Yfirleitt nokkrum prósentum (5%) frá því skráðu gengi og mun óhagstæðara en hjá banka í borginni. |
| Maggi | Einmitt. Maður ætti alls ekki að skipta gjaldeyri þar. Algerir svindlarar í útibúinu í Leifsstöð. |
| Baldur | Skil ekki í þér að hafa treyst á Landsbankann, issss.... |
25.3.2005
Good Friday
Langt síðan frá síðustu færslu. Ekki mikið gerst síðan síðast, nema fyrir að maður er búinn að vera að hafa það gott, gera vel við sig í mat og drykk.
Ég veit ég hef einhvern tímann heyrt þessa pælingu áður án þess að fá viðunnandi skýringar. Af hverju kallar enskumælandi fólk, föstudaginn langa Good Friday? Voru það kannski einhverjir gyðingar sem byrjuðu á því að kalla daginn þetta? Viss um að Bobby Fisher finnst það. Kallinn alveg kexruglaður en stórfyndið að hlusta á viðtöl við hann. Er einhver sem veit af hverju þetta heitir Good Friday? Maður ætti nú alveg að geta gert internet leit af því en þegar maður er með 56kb módem, þá er mjög takmarkað hvað maður nennir að eyða miklum tíma á netinu.
Svo bara á sama tíma eftir viku verða Íslendingar komnir niður fyrir sæti 100 á Fifa listanum, sem er ekkert til að gleðjast yfir.
| Good í merkingunni heilagur (holy, pious) er Later middle
English (1350-1469) og var notað um daga eða tímabil, og lifir bara í
þessarri einu samsetningu. Jamm. |
|
| Baldur | Held það megi alveg kalla fyrsta virka daginn eftir páska Terrible Tuesday! |
| Örn Úlfar | Er ekki stundum talað um The Good Book? |
21.3.2005
Búinn að vera að hlusta á fullt af skemmtilegri og nýrri/nýlegri tónlist síðustu vikur og daga. Mér áskotnaðist plötur með AC Newman og hljómsveit hans sem nefnist The new pornographers og hafa þær verið stöðugt í spilun, stórskemmtilegar. Einnig hefur A Camp platan verið daglegur gestur í Media playernum. Finnst þetta alveg frábær plata. Einnig má nefna Funerals plötuna með Arcade Fire sem er stórgóð.
Topp 5
| A Camp: Frequent flyer |
| AC Newman: Secretarial |
| The new pornographers: Miss teen wordpower |
| The new pornographers: The laws have changed (þessi nah-nah-nah kafli í laginu er alveg geggjaður) |
| Arcade Fire: Crown of love |
Jamm annars liggur bara svona sæmilega á manni, enn dáldið svekktur að Everton hafi tapað gegn Liverpool. Náttúrulega þegar lið nær einu skoti á markið í fyrri hálfleik gegn 11 skotum andstæðinganna þá er ekki von á góðu. Liverpool miklu betri í fyrri hálfleik en Everton vaknaði aðeins í þeim seinni, bara alltof seint. Þetta verður spennandi barátta um þetta síðasta meistaradeildarsæti fram á vor. Lenti samt í ferlegu á pöbbnum, þegar Baros (getur ekkert í fótbolta og ætlar að vera Big Man og strauja Everton menn...auli!) komst einn innfyrir vörnina, lyfti ég höndum í vanþóknun yfir varnarleiknum. Það vill ekki betur til en að kona með rauðvínsglas er að labba í því andartaki fyrir aftan mig og maður rakst náttúrulega í glasið og rauðvín helltist yfir hana. Ég bauðst náttúrulega til að senda flíkina í hreinsun á minn kostnað en hún var svosem alveg róleg yfir þessu. Sagði þetta væri ekkert mál, vildi heldur ekki að ég byði annað rauðvínsglas. Konan hefur vitað uppá sig skömmina, hvað eru kellingar að vilja inn á kallapöbb þar sem er verið að sýna fótbolta á sunnudagseftirmiðdegi og drekka rauðvín! Vissi ekki einu sinni að svona pöbbar serveruðu rauðvín.
Celtic samt komnir á toppinn þar sem þeir eiga heima. Hverjum er ekki sama þótt rangers vinni einhver skítadeildarbikar. Worthless cup.
Heimför á morgun sem er hið besta mál.
| Pabbi | Jæja - loksins getur maður lagt eithvað til
málanna í tónlistarbransanum.Er að fara til London á morgun - síðan
á tónleika Stuðmanna í Royal Albert hall á fimmtudag. Geggjaðir íslendingar
fara út til að fara á íslenska hljómleika. Geggjaðir íslendingar
reyna líka að ná Fischer til landsins til að koma honum á menntaskóaleknnaralaun
- eins og öðrum stórmeisturum. geggjaðir íslendingar labba í rólegheitum
innan um landnemana í Ísrael og verða hissa þegar þeir eru grýttir.
Þessi hópur hefði sennilega einnig verið grýttur í Austurstræti ef
hann hefði látið sjá sig þar í einum hópi. |
| Hallbera | þetta hefur nú eitthvað verið planað
þetta atvik með rauðvínið? |
| Stína | óldest trikk in ðe búkk. don't be hatin' on the women bro. það er ekkert jafnfyndið og að horfa á æsta karlmenn horfa á fótbolta í sjónvarpi. datt þér annars í hug að hún hefði getað planað þetta sjálf...? það er sure thing að missa rauðvínsglas yfir sig á pöbb fullum af fótboltabullum. |
| Maggi | tja ef ég hefði verið 30 árum eldri hefði konan kannski höfðað til manns. Older women eru kúl en ancient women ekki |
20.3.2005
Ætla að svindla aðeins og setja færslu inn fyrir morgundaginn...nenni ekki að koma í vinnuna á morgun
Bara að óska Kjartani frænda til hamingju með daginn. Kjartan (eða KGM eins og hann er þekktur í verkfræðideildinni), straujaði nokkra lesendur síðunnar í Stærðfræðigreiningu 3B á sínum tíma, en það var kannski af því að hann strokaði út glósurnar á töflunni jafnóðum og hann skrifaði þær. Örvhentir og krítartöflur eiga ekki samleið. Óþarfi að taka fram að ég lenti ekki neinum svaka hremmingum í kúrsinum enda spillir ekki fyrir að hafa mann úr "la famiglia" (eins og Sikileyingar myndu orða það) að fara yfir prófið manns.
| Ég verð nú að segja að hann frændi þinn er asni afkastakmikill í fræðismíðum. Topp maður | |
| Stína | freudian slip? "asni" afkastamikill...? ég þurfti nú að taka greiningu 3b tvisvar. ég átti það skilið. hehehe. |
| Baldur | Sammála Stínu, mér fannst svo gaman í tímum hjá KGM að
ég fór líka tvisvar Maggi hvenær kemurðu annars heim í páskafrí ? |
| Pabbi |
19.3.2005
Fór í gær með nokkrum úr ítölskunni í bíó að sjá myndina "Non ti mouvere" (ísl. Ekki hreyfa þig) [innskot/besserwiss, þegar um er að ræða neitun í annarri persónu í boðhætti breytist sögnin úr boðhætti í nafnhátt. Þetta á eingöngu við um neitun í annarri persónu. Þess vegna er þetta ekki Non ti mouvi...vorum nefnilega að læra þetta!]. Mæli nú ekkert sérlega með henni, mjög undarlegir karakterar. Hitti Chris og Alison á eftir og...já....eiginlega datt íða bara. Fínt.
Rólegheit í kvöld, hef íbúðina útaf fyrir mig (Mark í Dublin yfir helgina), þannig að ég ætla bara að elda mér eitthvað gott og opna eina flösku af Faustino 5. (eða Faustino Vaff eins og ókúltiveraði meðleigjandinn minn kallaði vínið eitt sinn) og hafa það rólegt.
| Getur verið að meðleigjandinn þekkist líka undir nafninu Spike ? | |
| Maggi | hehe...maður ætti kannski að fara að kalla hann the masturbeiting skotsman. |
| Burkni | Fyrst að innskot og besserwiss ráða hér ríkjum: Er það ekki 'muovere' ... (stafavíxl) ? |
| Maggi | Júbb...rétt hjá Burkna, meinti muovere. Þetta er einmitt ástæðan af hverju maður fær ítölsku stílana alltaf rauða tilbaka |
18.3.2005
Jebb
Hvað sagði minns í færslu 10. mars? Það eru forlög að Livepool dragist gegn Juve og það var að gerast!!!! Bring on the scousers!
Forza Juve
| Örn Úlfar | Ég held að Lyon sé dark horse þessarar keppni, þrusugott lið sem á eftir að fara langt, meðan athygli fjölmiðla beinist að Chelsea, Milan, Juve og Liverpool. Ekki ósvipað og í fyrra. Chelsea/Milan - Lyon í úrslitum? |
| Maggi | Einmitt Lyon hafa verið nokkuð sterkir í vetur og náttúrulega unnu sinn riðil og straujuðu Bremen. Þeir ættu ekki að vera í vandræðum með PSV. Hef reyndar alltaf haft horn í síðu Lyon síðan þeir unnu Celtic 3-2 í úrslitaleik um að komast áfram í riðlakeppninni tímabilið 2003/2004. Celtic dugði jafntefli en Maggi Hedman (Graaf) ákvað að missa bolta af 30m færi undir sig, það var sárt. Sé samt ekki Lyon komast framhjá Mílanóliðunum en þeir ættu að geta veitt þeim harða keppni. |
McCartney
Það er áhugavert að fylgjast með þessu McCartney máli á Írlandi. Kaþólikki var drepinn fyrir utan pöbb í slagsmálum fyrir 7 vikum og berast böndin að nokkrum liðsfélögum IRA. Systur mannsins (af því þetta eru kaþólikkar eru það 5 eða 6 systkin per fjölskyldu, mamma Chris á 11 systkin!) hafa byrjað herför gegn IRA og voru í gær í Washington að hitta írsk ættaða öldungardeildarþingmenn og Búsh. Nokkuð reffilegar skvísur sem hafa náð að vekja mikla athygli á málefnum N-Írlands. Á sama tíma vilja engir hitta Gerry Adams eða Martin McGuinness, þá vantar einhvern spin sérfræðing til að hjálpa þeim að skora nokkur stig. Eitthvað segir mér samt að vinir mínir á Hoops bar í Barrowlands hafi hellt í sig Guinness í gær og sungið níðsöngva um alla mótmælendatrúar og lofsöngva um IRA.
17.3.2005
Í dag er St. Patrick's dagur og aldrei að vita nema maður kíki í einn Guinness eða tvo í kvöld af því tilefni.
Mikið var frábært að sjá Blackburn halda jöfnu gegn Liverpool. Þá eru mínir menn komnir á "level terms" við þá rauðu að því leyti að bæði lið eru búin að spila jafnmarga leiki og forskot Everton 7 stig. Það verður svakalegur leikur á sunnudaginn þegar 201. Mersey derby leikurinn verður spilaður. Ég segi nú bara eins og Kevin Keegan þegar hann stjórnaði Newcastle og Alex náði að trekkja hann svo svakalega upp að Keegan kom í viðtal og hreytti út úr sér..."I'd luv it if we beat'em". Ég segi bara það sama....Æ'd lúv it ef Everton myndi vinna, það yrði geggjað að skoða spjallborðið á liverpoolpúnkturis. Reyndar hefur Everton gengið illa á Anfield síðustu ár, þannig að maður yrði alveg sáttur við jafntefli. Eftir þennan leik eru 8 leikir eftir og af þeim eru leikir gegn Arsenal úti og Manjú heima sem maður gerir svosem ekki ráð fyrir 6 stigum. Fyrir utan þá leiki á Everton eftir að spila við nokkur lið í neðri hluta deildarinnar.
Celtic unnu svo liðið með langa nafnið, Inverness Caledonian Thistle, í gær og eru einu stigi eftir rangers með einn leik inni. Glæsilegt.
15.3.2005
Tár eru tár, um ókomin ár...
Ég er alltaf að heyra meira og meira af Tárunum. Smáskífan Refugees verður sett í sölu 18. apríl og mér áskotnaðist vídeóið með þeim félögum, sem áhugasamir geta fundið hér. Þetta er svaka pródúksjón og mætti halda að Phil Spector hefði verið að hljóðblanda. Mér finnst þetta bara hið fínasta popp, nú þegar maður heyrir þetta í sinni endanlegu mynd, þótt (eins og ég hef minnst á áður) þetta sé ekki sambærilegt við snilldina sem kom frá þeim á árunum '93-'94.
| You say that tár séu tár og Tears is a group very klár, mér finnst þó Bítlarnir bestir bæði greatest og mestir, and Tears fremri um ókomin ár. |
|
| Jói | Ekki bjóðandi manni að hlusta á þetta eftir gullöldina. |
14.3.2005
Það er verið að sýna þættina um Joey hérna og mikið rosalega er þetta leiðinlegt, manni stekkur ekki einu sinni bros á vör. Joey var alltaf nokkuð fyndinn í Vinum, en það er bara pínlegt að horfa á þessa nýju þætti hans.
Mikið var gott að sjá að atvinnumennirnir geta einnig klúðrað fyrir opnu marki. Freddie verður eflaust strítt á þessu klúðri ársins í nokkurn tíma. Legg til að Bolton losi sig svo við Djúf, sendi hann bara aftur á Anfield. Hann er nú meiri vitleysingurinn. Maður helgarinnar var samt sem áður Manjú aðdáandinn sem grýtti blysinu inn á völlinn. BBC náði algerri nærmynd af honum kasta og með nokkur milljón vitni verður erfitt fyrir hann að segja "...neinei það var ekki ég sem kastaði, heldur þessi við hliðina á mér."
11.3.2005
Lítið planað fyrir helgina annað en að vinna aðeins og refsa lóðunum í gymminu. Ætli maður taki ekki bara júdas í kvöld (Judas => (Judas) Iskariot =>rímar við Carry oot => Carry out => Take away => kaupa kippu af bjór og skyndibitamat til að borða/drekka heima...glasgow slang er stundum nokkuð fyndið) og hafi það rólegt.
Annað sem er skondið. Það er bandaríkjamaður í ítölskunni og hann hefur ekki mætt eftir að kanarnir plöffuðu á ítölsku blaðakonuna og leyniþjónustmennina. Tilviljun? Spurning.
| Væri þessi kelling ekki steindauð ef það hefði átt að
skjóta á hana? Djöfull er herinn orðinn lélegur í shadow ops þegar
er ekki hægt lengur að stúta rugluðum vinstri blaðakonum |
|
| Hallbera | hey..ég var einmitt að læra um cockney í skólanum...eða hvað það hét...mjög spes |
| Jói | Ha? hét konan cockney? Anyhwho, Jehóva hvað það er mikið agenda ef það er verið að kenna þetta einstaka óhapp í skólanum! |
| Maggi | Held að litla systir sé að tala um slangið. Myndi ekki segja að þetta væri cockney. Cockney er meira talað í suður Englandi, Essex, Sussex og kringum London. Cockney er óskiljanlegt stundum |
| Jói | aaaa... |
10.3.2005
La Juve ha battuto il Madrid e ha qualificato...é bellllliiiiisssssssssiiiiimo!!!!!!!
...og síðan eru liðin 20 ár. Átta ára Juve gutti sest fyrir framan sjónvarpið til að horfa á sína menn í úrslitum Evrópukeppni meistaraliða en skildi ekkert af hverju leikurinn byrjaði ekki á réttum tíma. Það var einnig lítið um fögn frá Michel Platini þegar hann skoraði úr vítinu gegn Grobelaar. Juve unnu að lokum leikinn gegn Liverpool en þetta reyndist svartur dagur í sögu fótboltans. Það eru forlög að Juve mun dragast gegn Liverpool í næstu umferð á tuttugu ára "afmæli" Heysel slyssins.
Það er samt einn ánægður Maggi sem stimplaði sig inn í morgun. Í annað sinn á þremur árum höfum við unnið Alvöru Madríd í útsláttarkeppni meistaradeildarinnar. Zalayeta góður, hann gerði þetta einnig (þ.e. skora sigurmarkið undir lok framlengingar) gegn Barcelona tímabilið 2002-2003. Þetta gátu strákarnir og án þess að hafa Nedved með. Frábært.
| Til hamingju | |
| Pabbi | Óþarfi að æsa sig strax - Juve - Liverpool er úrslitleikurinn og loksins uppgjör. Mínir menn eru klárir - You´ll never walk alone....... |
| Þórður | Ég man líka eftir að hafa séð leikinn '85 og undraðist þessar tafir mjög. Verst þótti mér þegar Boniek var felldur 18 metra fyrir utan teig en hann rann á blautu grasinu inn í teig og Juve fékk víti. Ussss... |
8.3.2005
Rapp og ról
Tónleikar í kvöld með breska rapparanum Mike Skinner sem kallar sig The Streets. Hann rappar um fit gellur sem vita alveg að þær séu flottar, lífið meðal neds sem reykja gras uppi í sófa og horfa á Eastenders, þegar hann fær sekt fyrir að skila ekki dvd myndinni á réttum tíma og svo framvegis. Ég fíla þetta þótt maður sé almennt ekki mikill rapp aðdáandi.
Gerði hins vegar smá mistök, ákvað að fara í kvöld í staðinn fyrir í gær vegna ítölsku en fattaði svo hvað væri á dagskrá í kvöld. Hvað er á dagskrá? Júbb Meistaradeildin.....Maggi klaufi! Maður nær fyrri hálfleik.
| Hehe Streets magnaðir...er alveg the essential british | |
| Durbal | Eitthvað segir mér að þú hafir líka horft á seinni hálfleik
|
| Pabbi | Nei hann klikkaði á því - en ég sá honum fyrir SMS. Það veitti ekki af ´því kappinn var stressaður. Nú er Liverpool að salta Bayern Leverkusen!! Loksins glæta - vinnum þennan bikar - ekki spurning. |
| Maggi | Mæli með úrslita sms-þjónustu pabba. Topp þjónusta! |
7.3.2005
Göngurnar um helgina voru ótrúlega skemmtilegar, sérstaklega fjallgangan í gær. Frábært veður, heiðskýrt og sól og magnað útsýni yfir fjallgarðinn. Alveg ljóst að ég ætla að gera þetta oftar. Núna er maður allavega kominn með eitt munro og þá eru 283 eftir.
Plús í kladdann fær svo Halli fyrir að standa í röð á laugardagsmorgun að ná í miða á útitónleika Coldplay í júlí.
| Þetta gekk nú nokkuð greiðlega fyrir sig á Rose St. í
morgunsárið. Fór á Hibs-Celtic í gær og guð minn góður hvað mínir menn eru hriklega lélegir !!! Elementary mistök hjá bakvörðum sem gáfu 2 mörk, svona nokkuð sem maður átti ekki vona á að sjá hér. |
|
| Maggi |
4.3.2005
Pabbi þó...
Á herrakvöldi kr-inga er einhver Gísli sem er veislustjóri, hélt hann væri stuðningsmaður ÍA. Eitthvað verið að daðra við óvininn.
kr-ingar kr-ingar hverjir eru bestir? Skagamenn Skagamenn það vita menn nú flestir
| Hallbera | bindi og klút og ía-bindisnælu...Lofaði því líka að
láta þessa kr-inga heyra það... |
| Jói | Hehehe rugludallur... |
| Pabbi | |
| Björn Friðgeir | KR-ingar hafa alltaf verið grunnhyggnir. Hvernig datt þeim
í hug að láta Skagamann messa? Hvernig væri nú að ÍA sæi nú til þess að þagga almennilega niður í þeim í sumar. Það væri óskaplega vel þegið hér í Fossvoginum. |
Ganga
Um helgina er planið að fara í tvær göngur í sveitinni. Á morgun verður farið suður til Lanark (sem er u.þ.b. miðja vegu milli Glasgow og ensku landamæranna) á heimaslóðir William Wallace og labbað um markverða staði þar í sveit. Hann átti víst að hafa falið sig í sveitunum þarna eftir að hafa verið dæmdur útlagi og hitti konuna sína, Marion Braidfoot á laun í Lanark. Eitt sinn höfðu enskir veður af veru Wallace í Lanark og sendu sveit til að handtaka hann. Hann slapp eftir bardaga en ekki frúin sem var tekin höndum. Marion var síðar myrt af enskum sheriff þegar hún neitaði að segja til hans. Árið 1297 hefndi Wallace hennar með því að drepa sheriffinn og varð leiðtogi Skota í viðleitni þeirra að reka Englendinga úr Skotlandi. Herir Skota undir hans stjórn sigruðu svo Englendinga í orrustunni við Stirling kastalann í september 1297. Hann var sigraður við Falkirk árið eftir og á að hafa farið til Frakklands (Skotar og Frakkar voru bandamenn gegn Englendingum, mörg kennileiti í Glasgow koma úr frönsku....Rottenrow hefur afmyndast úr Route de Roi) en lítið er vitað um gjörðir Wallace milli 1299 og 1304 þegar hann skýtur upp kollinum í Skotlandi. Hann var að lokum handtekinn rétt hjá Glasgow árið 1305 og sendur í járnum til London þar sem hann var líflátinn.
Á sunnudaginn er fjallganga á Ben Challum sem er eitt af "the munros", en það eru fjöll hærri en 3000 fet. Fjallið er í Stirling (ekki langt norður af Glasgow) og er rúmlega 1000m. Á víst ekki að vera neitt alltof erfitt. Það verður gaman að takast á við það.
Fer með klúbbi sem whisky-lærifaðir minn hérna, Dave Smith, benti mér á. Margar áhugaverðar ferðir farnar þarna og ef það verður gaman um helgina er ljóst að maður reynir að fara í fleiri ferðir með þeim.
Spáin um helgina fyrir Stirling og Lanark er sól og blíða, gæti ekki betra verið. Það verður fínt að komast aðeins af malbikinu.
| Iss - rétt aðeins stærra en Akrafjallið! En eflaust fínt. | |
| Maggi | Það er ekki það hálent hérna, hæsta fjall Bretlands er Ben Nevis á vesturströnd Skotlands og það er 1340m |
| Jói | Jámm virkilega skemmtileg saga. Ég var að lesa 2 bækur
um krossferðirnar um daginn, og þá var einmitt svo verið að minnast
á hommasoninn sem var svo krýndur. Edward nr. eikkvað...hann var svo
neiddur af aðalsmönnunum til að samþykkja Magna Carta því hann var
virkilega veikur konungur og Bretland í vondum málum eftir öll hernaðarblönderin.
Upphaf stjórnarskrárfars Breta sem takmarkaði völd
konungs...skemmtilegt |
| Kristján | Þar sem ég hef hitt Dave þá verð ég að segja að
þessi mynd af honum er ekki sérstaklega góð. Hann er ekki grimmur, órakaður
gleraugnaglámur heldur reffilegur og viðkunnalegur karl sem var bara óheppinn
með ljósmyndara. |
3.3.2005
Hugstola húsmæður
Fyrir alltof löngu þá datt ég niður í að glápa á þættina um hugstola húsmæðurnar (e. desperate housewives), þættirnir fóru ágætlega af stað og í lok hvers þáttar kom alltaf eitthvað twist á söguþráðinn sem reyndar stundum var rosalega fyrirsjáanlegt en stundum ekki. Nú er maður búinn að horfa á alltof marga þætti og er nú verið að teygja lopann allsvakalega en maður vill samt sjá hvernig þetta endar...reyndar finnst mér eins og það sé að koma smá samleitni í söguþráðinn sem mun vonandi enda í lausn. Ég veit reyndar ekki hvort maður sé meiri sökker að vera fastur í að glápa á þetta á miðvikudagskvöldum eða vera að viðurkenna á veraldarvefnum að maður sé yfirhöfuð að horfa á svona sjónvarpsefni. Auglýsingarnar eru samt fyndnar, keyrðar auglýsingar fyrir sjampó, dömubindi, varaliti, meiköpp og annan kvenvarning. Greinilegt að 28 ára karlmenn eru ekki í markhóp þeirra sem vilja auglýsa á undan hugstola húsmæðrum.
| Jói | Þetta er alltílagi...ég horfi á stargate sg1 og þykir það magnað. Það er vonduþáttakvóti hjá öllum...allaveganna 1 þáttur. |
Celeb-spotting
Síðustu vikur hef ég farið að venja komur mínar eitt hádegi í viku á fínan stað í Merchant City sem gerir góðar súpur og samlokur. Kominn með algert ógeð á mauksoðnu pasta og kjúklingakássum sem maður þarf að passa að gleypa ekki bein með sem er serverað í skólamötuneytinu. Í hádeginu í gær fannst mér eins og konan sem sat á móti mér væri eitthvað kunnugleg. Svo lagði minns saman tvo og tvo og fékk út píuna sem lék Jackie Reid í Taggart þáttunum, þetta nef hennar blekkir sko engan, það er stærra en á Gosa þegar hann laug. Þá eru celebretíin hérna komin upp í þrjú. Hin voru Dominic Matteo og pían sem lék Lexie í Hálandahöfðingjanum....jebbb....þokkaleg A-list celebs sem hanga í Glasgow.
| Jackie Reid er ekkert smá celeb maður - eða hvað? Hún er a.m.k. með fríðari skoskum konum sem þekkist - ekki satt?? Það verður nú að segjast eins og er að það getur ekki verið mikið um world class celebs í Glasgow - nema Sean Connery líti við - en mér skilst að hann sé bara í Edinborg. Láttu vita ef þú sérð MacAllan - 20 ára reserve! | |
| Maggi | haha...jamm Jackie Reid flokkast undir tasty bird á skoskan mælikvarða ,veit ekki með íslenskan. Skal hafa augun opin fyrir tvítuga varaliðsmanninum Mcallan |
| Jói | Ég er búnað sjá Pauly Shore sem lék í biodome og son in law. Gerist ekkert betra! |
| Anna Þorbjörg | Hmmm... Góð spot. Not. Ef ég hugsa bara um síðustu 2 daga í LA hjá mér: Avril Lavigne, Amanda Bynes, allir Wayans bræðurnir geðþekku, Laurence Fishburne, Carolyn Murphy (sem btw var að kaupa sér snyrtivörur frá öðru fyrirtæki en Esté Lauder), Johnny Knoxville, Carson Daly... You've got to love LA |
| Maggi | Mér finnst nú Jackie Reid slá út Wayans bræðurna...þarf
samt að tékka betur á snyrtivörusamningi Carolyn Murphy, fannst alltaf
eins og hún hafi verið hjá Revlon |
2.3.2005
Ekki mikið að gerast hjá manni þessa dagana. Fór í tíma númer tvö á þessu Acedemic writing námskeiði í gær og spunnust umræður um mismunandi stíla, þar sem verkfræðingarnir kölluðu allt sem félagsfræðingarnir skrifa, kjaftæði og félagsfræðingarnir segja að verkfræðingarnir séu svo rosalega leiðinlegir að það nennir enginn að lesa textana þeirra. Held mér hafi sjaldan leiðst jafnmikið og ekki frá því að maður hafi misst lífslöngunina á tímabili. Ætla að gefa þessu einn sjens í viðbót, ef næsti tími verður jafnleiðinlegur þá nenni ég þessu ekki lengur.
Svo bara kominn landsleikur við Ítali í lok mars, gaman að því. Forza Islanda, seramo vincenre
| Það er auðvitað ástæða til að kenna verkfræðingum almennileg stílbrögð - t.d.: "Eigi veit ek þat svá gjörla - en hitt veit ég að byggingin var topp fúnderuð vandlega konstrúeruð" eða þetta: "Vitur maður hefur sagt að næst því að missa af flexion mælingu með jákvæðu x-gildi sé fátt hollara ungum börnum en missa af extension mælingu með neikvætt x-gildi". Þetta lítur mun betur út svona en þurrt verkfræðjargon | |
| Pabbi | Hallbera er alltaf að skamma mig fyrir að skrifa undir
hennar nafni þannig að ég verð að kannast við framlagið. |
| Stína | þú getur prófað að segja eitthvað svakalega móðgandi og fengið fólk í heitar umræður um eitthvað fyndið í næsta tíma. stir it up a bit! |
28.2.2005
Var staddur uppi á skrifstofu í gær og náttúrulega með soccernet glugga opinn og eftir að hafa séð að það hafi komið mark á fystu mínútu, ákvað ég nú að tíma mínum væri betur varið á pöbbnum að horfa á leikinn. Verð nú að segja að Púlarar voru óheppnir að tapa þessu, en svona er boltinn. Fór á eftir að sjá myndina um Ray Charles, hún er búin að vera svo lengi í sýningum hérna að hún fer að hætta. Þessi leikari Jamie RRefur er nú vel að þessum óskarsverðlaunum kominn.
Sá að þessi Brynhildur Guðjónsdóttir er ein af þessum leikurum sem á að segja upp hjá Þjóðleikhúsinu. Synd, þar sem hún stóð sig svo vel sem Edith Piaf.
Þrennuhelgi samt hjá mínum liðum. Celtic með skyldusigur gegn Clyde í bikarnum, Juve með góðan sigur gegn Siena og síðast en ekki síst, karmellukallarnir á Góðvangi. Nú eru 10 leikir eftir, 8 stiga forysta á Liverpool og takmarkið í sjónmáli. Þetta má ekki klikka. Koma sooooohhh strákar! Everton í Meistaradeildina....are you having a laugh!
| Svo var það þetta með Everton - þeir eru komnir með of mikið forskot fyrir minn smekk - en ekki allt búið. Svó kalla þeir bara liverpoo - Beneath us! |
26.2.2005
Illu er best...skotið á frest
Er að basla við að skrifa yfirlit um hvernig vísindagreinar fyrir verkfræði eru uppbyggðar fyrir Academic writing kúrsinn sem ég er í. Til að gefa lesendum hugmynd um það hversu mikið mér leiðist að gera þetta, þá legg ég til að fólk hugsi um það allra leiðinlegasta sem það gerir (vaska upp, gera skattaskýrsluna, fara í ríkið á þorláksmessu/30. des og svo framvegis), margfalda það fyrst með pí, leggja einn við og margfalda svo allt með grilljón (grilljón=milljón í veldinu milljón). Það þarf náttúrulega ekki að taka fram að maður gerir refresh á internet vafraranum á 30 sekúndna fresti til að sjá hvort staðan í leik Southampton og Arsenal hafi breyst. Nú var verið að reka van Persie útaf, það verður enginn eftir hjá Arsenal með þessu áframhaldi....allir í banni eða meiddir. Hlýtur Ólafur Ingi Skúlason ekki þá að fara að komast í hópinn...eða er hann kannski meiddur líka?
Steve Zissou myndin var mjög skemmtileg, mæli með henni. Löng sena í myndinni þar sem lagið Starálfur með Sigurrós var spilað undir og Bowie á portúgölsku var áberandi. Bill Murray alltaf skemmtilegur.
25.2.2005
Þessi meistaradeildarúrslit voru nú meira prumpið fyrir Matlabliðið. Dem jú Anders Frisk!
Ekkert planað þessa helgi nema að fara að sjá nýju myndina hans Bill Murray (Life aquatic with Steve Zissou), mér finnst hann alltaf fyndinn. Hins vegar er minns farinn að hlakka til næstu helgar en þá er planað að ganga á fjöll (Ben Challum) annan daginn og labba hinn daginn um slóðir Mel Gibsons....nei ég meina William "Braveheart" Wallace í Lanark. Nánar um það síðar.
En svona á föstudegi er gott að hlusta á smá swing....Oh lady be good og Sing Sing Sing fær mann til að slá taktinn með.
| Óskar Nafnleyndar | Minor Swing með Django kemur manni alltaf í stuð. |
| Stína | ég mæli með eddie jefferson að syngja billie's bounce og clark terry að syngja mumbles...örlítið hratt swing og mumbles er nú meira blús en swing...ehh...en bara hressilega sungin. hehehe. |
23.2.2005
Meistaradeild
Mikið er nú gott að fá Meistaradeildina aftur í gang. Hins vegar var gengi Juve ekki alveg svo gott, en þeir voru víst heppnir að tapa ekki stærra. Þeir eiga samt alveg möguleika á að gera eitthvað af viti á Stadio delle Alpi. Það er náttúrulega alger synd að þessi lið skuli mætast svona snemma, þetta á að vera úrslitaleikur. Matlabliðinu gekk nú ekki heldur sem skyldi, Henry og Makaay skoruðu ekki og af einhverjum óskiljanlegum ástæðum skoraði Liverpool 3 mörk í einum og sama leiknum en ég setti inn Placente varnarmann frá Lederhosen inn í liðið mitt. Annars var áhugavert að sjá leikina tvo milli Bayern og Arsenal annars vegar og Liverpool og Lederhosen hins vegar. Þegar fimm mínútur eru eftir þá virðist vera sem Bayern og Liverpool séu örugg áfram en þá fá þau á sig útivallarmark sem gefur Arsenal og Lederhosen smá sjens. Ég sé það samt ekki gerast. Bayern og Liverpool eru örugg áfram. Matlabliðið treystir hins vegar á Chelsky og Inter í kvöld. Ef það er eitthvað réttlæti í heiminum þá á Barcelona að vinna þessa keppni miðað við hvernig þeir spiluðu fyrir jól (hef reyndar ekki séð leik með þeim í smá tíma) en þeir hafa oft fipast í Evrópukeppninni og þó svo að vanti Robben, Duff og Brigde held ég að þetta varnarskipulag Chelsky sé of stór biti fyrir fótafima og bráðskemmtilega Börsunga.
22.2.2005
Dagurinn í gær var erfiður, ekki nóg með að vera pínu ryðgaður þá fékk maður alveg að heyra það frá Rangers aðdáendunum hérna í deildinni, maður bara hefnir sín þegar við vinnum titilinn!
Ég hef ekki verið mikill aðdáandi iTunes, nota frekar Media player til að spila músík. Er búinn að vera að leita af forritum á netinu sem breytir .m4a í .mp3 en fattaði í gær að ég var að leita langt yfir skammt, það er nefnilega hægt að breyta þessu í iTunes. Núna get ég því sett öll lögin mín í sama kerfi.
Úfffffffffffff var að fá fyrstu rukkun frá LÍN, hefjast nú timburmenn vegna námsferils. Ætli maður reyni nú ekki að sækja um frest, þó svo að tæknilega séð er maður ekki skráður stúdent við skólann en þó í doktorsnámi.
| Það er ekkert grín að vera námsmaður þessa dagana - LÍN heimtar sitt - svíðingar. | |
| Stína | það er líka til eitthvað sem heitir dBpower AMP Music converter sem virkar fínt. |
21.2.2005
Mjög skemmtileg helgi að baki. Strákunum var boðið í haggis og "leek" súpu með nokkrum köllum úr deildinni í föstudagshádeginu. Haggis er miklu betra en slátur finnst mér. Kallarnir hérna halda reyndar alltaf að þeir séu að stuða okkur svakalega með því að segja úr hverju haggis sé búið til, en held að hver Íslendingur hafi nú smakkað slátur og viti gróflega hvert ferlið sé. Klassískur brandari hérna er þegar þeir segja útlendingunum að haggis sé dýr og sé skotið upp í fjöllum. Glasgow sýndi annars bara sparihliðarnar í tilefni helgarinnar, búið að vera fínt veður hérna 4 daga í röð sem gerist ekki oft. Góður félagsskapur varð til þess að ákaflega léleg fótboltaúrslit náðu ekki að setja blett á helgina fyrir mér.
Talandi um fótbolta. Nú standa yfir endurbætur á Wembley og búið er að byggja göngubrú sem vantar nafn á og tekið er við tillögum. Skotar eru einstakir húmoristar og nú standa þeir saman um að kjósa nafn á brúnna. Jim Baxter bridge. Baxter þessi var í skoska landsliðinu sem vann England í fyrsta leik þeirra eftir að þeir unnu HM 1966. Þetta var árið 1967 og Skotar telja sig hafa orðið heimsmeistara í fótbolta þá. Skora á lesendur að taka þátt í að gera smá grín í Englendingunum og kjósa Jim Baxter bridge hér. Mér finnst þetta rosalega fyndið framtak.
| Jói | Baxter Bridge it is... |
18.2.2005
Með 13 klukkutíma fyrirvara ákvað Kristján að bætast í hópinn yfir helgina....svona á að taka ákvarðanir! Mikið svakalegt stuð stefnir í.
Eftirfarandi lög hafa verið á repeat í media playernum hjá mér síðustu vikur / viku / daga / dag
| A Camp: I can buy you. Nina "sæta" Persson með hliðarverkefnið sitt. Frábært lag í anda Cardigans. Heja Svergie |
| Shivaree: Goodnight moon. Án efa það langsvalasta lag sem ég hef heyrt lengi. Tekið úr myndinni Kill Bill 2 |
| Carlos Gardel: Por una Cabeza. Rosalega væri ég til í að kunna að dansa tangó |
| Nina Gordon: Straight out of compton. Einkar hugljúft lag með ákaflega ruddalegum texta sem upprunalega var rapptexti |
| The Tears: A brave new century. Besta Táralagið so far |
| góða skemmtun! ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera (sem inniheldur að horfa á fótbolta, drekka áfengi og hlusta á oasis). hehehe |
|
| Þetta verður vonandi gott stuð hjá ykkur. Býst ekki við því að mánudagsfærslan komi snemma dags að þessu sinni. | |
| ouch.... vona að mínir menn í Rangers hafi ekki eyðilagt
alla helgina fyrir þér |
|
| Góður félagsskapur hefur væntanlega gert sitt til að gleðja þig þrátt fyrir að úrslit helgarinnar hafi ekki verið þér að skapi. |
17.2.2005
The boys in the band
Það verður hrikalega gaman á morgun og um helgina, Kjarri og Óli koma í heimsókn yfir helgina og er stefnan sett á SECC á laugardaginn þar sem Franz Ferdinand, Belle and Sebastian, Travis og fleiri meðlimir skoska popplandsliðsins troða upp í þágu góðgerðarmála. Svo er Old Firm á sunnudaginn....allt að gerast!
Ég var sendur á kúrs í gær sem nefnist "Academic writing", enda er ég frekar slappur á því sviði. Þetta verður alger pína fyrir mig, við eigum að skila inn skrifuðum stílum þar sem við eigum að ritrýna vísindagreinar....ó boj ó boj...úfff. Allavega var eitt verkefni í tímanum að skrifa (generic writing) um eitt gefið efni í 5 mínútur stanslaust og lesa svo yfir hjá sessunautinum. Sá sem sat við hliðina á mér skrifaði svo rosalega illa að ég skildi ekki eitt einasta orð sem hann skrifaði. Í umræðunum á eftir bullaði ég bara um hvernig hann hefði tengt það sem talað var um í tímanum áður við það hvernig hann skrifaði..blablabla...horfði bara á fólk kinka kolli yfir því sem ég sagði...maður er alger svindlari. Held að textinn hans hafi eitthvað verið um eftirlaunasjóði eða eitthvað álíka leiðinlegt....zzzzzzzz
| Nú er tvennt í stöðunni vinur: Annað hvort að fá sér fiðlu eins og bróðir þinn - eða leita í smiðju Thorsaranna frænda þinna með smellin akademik stílbrögð. Hvoru tveggja góður kostur. | |
| Maggi | hahaha það verður fróðlegt að koma í heimsókn á Víðigrundina
þegar litli bróðir mundar fiðluna og allir með peltor eyrnahlífar.
Er ekki annars reglan að þeir sem ætla að læra á fiðlu verði að
vera í 2 ára hljóðeinangrun til að byrja með. Veit ekki með akademísk stílbrögð, ég víst hugsa með hægra heilahveli og það er ekki mikið pláss fyrir skapandi hugsun þar. |
| Þegar ég verð orðinn fullur á föstudagskvöldið kynni
ég mig sem "Gladstone Gander" |
|
| Fengu þið miða á OldFirm??? Hábeinn frændi stendur
undir nafni. Þetta er nú ekkert spennandi lengur eftir að Bhoys og Gers skrifuðu undir þessa "viljayfirlýsingu um að hætta öllu trúarofstæki" ásamt heimastjórninni og trúfélögum. ;o) |
|
| Engir miðar á Old Firm, maður verður bara að fara á kaþólikka pöbbinn og syngja með níð um mótmælendur (sjálfan mig þá?). Menn orðnir eitthvað stressaðir hérna varðandi ofbeldið í kringum þessa leiki. Sé samt ekki hvað þessi vilja-yfirlýsing breytir þar um. |
16.2.2005
Um tíma í gær var geymslurými tölvunnar minnar rétt tæplega eitt Terabyte. Magnað
| Pabbi |
15.2.2005
Það var nú ekki mikið mál að redda sér miða á Tárin í Edinborg í gær, maður bara borgaði 10 pundum meira fyrir miðann. Rosalega var gaman að sjá þá félaga, Brett og Bernard saman á sviði aftur eftir 11 ára fýlu. Tónlistin var svona sambland (kannski skiljanlega) af Suede undir það síðasta (A new morning sem inniheldur nokkur mjög fín lög, 1000 sinnum betri en Headmusic) og sólóferli Bernards. Þetta er ekkert afturhvarf til Suede-árana og líkurnar á að plata í anda Dog man star líti dagsins ljós hjá þeim eru litlar sem engar. Einhver í salnum kallaði á Suede lög en Brett sagði orðrétt "that's not going to happen". Sum lög Tears eru samt nokkuð fín svosem eins og Lovers og Brave new century og verður gaman að heyra þau í almennilegri stúdíóupptöku. Brett er samt enn við sama heygarðshornið í textasmíð sinni sem dæmi: "we are the lovers, two different colours" og "refugees on the streets", frekar ódýrt kveðið finnst mér. Má ég þá heldur biðja um "what does it take to turn you on, now your animal's gone".
Þetta var náttúrulega bara algert nostalgíutripp hjá mér þarna í gær en mikið djö$$%&&i var frábært að sjá þessa tvo (fyrrum?) snillinga saman á sviði og maður hugsaði af hverju getur ekki verið árið 1993 núna!
| Hefði átt að vera þarna með þér. Var líka að vonast eftir beinu framhaldi á snilldinni Dog man star sem er sennilega galið. Spennandi að heyra plötuna. | |
| Ég bíst ekki við neinu af þessu kombakki þannig að
ef það er eitthvað vit í þessu þá verður það ofar mínum væntingum. Ég hefði haldið að stefnan myndi vera í anda Black and Blue af Dog Man Star.... Var það fjarri lagi Maggi? |
|
14.2.2005
Helgin
Rólegheit um helgina, fór í bíó á föstudaginn og sá spænsku myndina "Hafið hið innra", ótrúlega áhrifamikil mynd. Góð tilbreyting að sjá eitthvað svona sem mótvægi við Hollívúdd myndunum sem maður sér svo mikið af. Eftir myndina kíkti ég í tvo bjóra fyrir svefninn. Mikið stuð á pöbbnum og þegar DJ-inn spilaði Black Grape (Reverend Black Grape) fóru nokkrir upp á borð (eins og vera ber þegar slík stuðlög eru spiluð) og það vildi ekki betur til hjá einum en svo að hann kýldi í plastrennu í loftinu sem datt af og hann stóð við borðið með tveggja metra langa plastrennu í hendinni og ætlaði að láta lítið bera á. Nokkuð fyndið að fylgjast með því úr fjarska. Þeim óheppna var hent út.
Horfði á Bafta verðlaunin á laugardaginn og gaman að sjá þessa Valdísi vinna verðlaun, þakkarræðan hennar var frekar glötuð samt
Eins árs og eins dags
Núna er liðið eitt ár og einn dagur síðan fyrsta færslan kom á þessa síðu og þess vegna tæp tvö ár eftir af líftíma hennar, að því gefnu að maður nái nú að klára verkefnið á réttum tíma. Allavega vonandi að maður verði ekki enn að nördast hérna í Wolfson Center á þriggja ára afmælinu.
Í fyrstu færslunni var maður að býsnast yfir þessum valentínusardegi og held ég geti bara verið sammála því sem ég skrifaði fyrir réttu ári síðan (ekki oft sem maður getur gert það), þetta er nú meiri hel#$% vitleysan í kringum þennan dag. Allir að kappkostast við við auglýsa hjartalaga súkkulaði og diska sem einhver hefur brennt ofurvæmin lög á og markaðssetja þetta sem algert möst fyrir daginn. Ferlega plebbalegt eitthvað.
Svo bara krossleggja putta að maður nái að redda sér miðum fyrir utan Liquid Rooms í Edinborg í kvöld að sjá Brett og Bernard. Kannski maður splæsi bara hjartalaga konfekti á kallinn sem kallar "ticketzzz anyone needing ticketzzzzzzz...."?
12.2.2005
Útdrættirnir okkar voru samþykktir til að fara á ráðstefnu handaskurðlækna í Gautaborg. Skurðlæknirinn sem er einnig skrifaður fyrir þessu verkefni mun sjá um að kynna þetta og líklegast að taka kredit fyrir þrátt fyrir að hafa lítið sem ekkert sést...en svona virkar þetta, down the hierarchy.
Enn af kóngafólki. Jack McConnell fyrsti ráðherra í Skotlandi sendi hamingjuóskir til Kalla prins í þinginu en um leið og hann var sestur niður stóð upp pía frá SNP (Scottish National Party) og vildi nota tækifærið til að óska Franz Ferdinand til hamingju með árangurinn á Brit verðlaunahátíðinni, henni fyndist það miklu merkilegra en hitt. SNP flokknum skal ekki rugla saman við rasistaflokka á borð við BNP og Venstre, heldur berst hann fyrir sjálfstæði Skotlands og Sean Connery borgar alltaf dágóða summu inn á þeirra reikning, þó svo hann borgi ekki skattana sína í Skotlandi en það er annað mál. Ég hef stundum tekið eftir henni í fréttum rífandi kjaft í þinginu , það er svona smá Jóhönnu Sig fílíngur í henni, nema sú skoska er með flottari hreim og aðeins svalari af því hún fílar Franz.
| ha ha, hún fær prik fyrir þetta. Sé frekar fyrir mér að Steingrímur Joð myndi segja svona en Jóhanna, held bara að hún sé ekki mikill rokkari. | |
| kúl. hú kers enívei? kalli og kamilla eru bara fólk, they have needs. hehe. | |
| Pabbi | Sammála Stínu - hú kers? Ótrúlega óintresant par -gamalt snobb - ellibelgjastöff. Umfjöllun Spaugstofunnar um kvikmyndagerð á Ströndum var talsvert skemmtilegri - My private Dick (Dick einkaspæjari eða ....!). Áfram Man, City - en þeim er fyrirmunað að skora. |
11.2.2005
Í gær fór ég á námskeið í hvernig ætti að flytja mál sitt skýrt og skilmerkilega. Nokkuð fróðlegt og nauðsynlegt að heyra hvað má og hvað má ekki í þessum málum. Er búinn að hlusta á þónokkra fyrirlestra þar sem powerpointið var þakið texta í 8 punkta letri og fyrirlesarinn las beint af glærunum...zzzzzzzz. Í byrjun tímans áttum við að taka viðtal við sessunautinn og kynna fyrir öllum hópnum. Ein spurningin sem við áttum að spyrja (og svara) var að maður átti að nefna eina merkilega staðreynd um sig, eitthvað sem maður er sérstaklega góður í eða hefur gert eitthvað merkilegt. Mér datt náttúrulega ekkert í hug og eftir mikið streð mundi ég eftir að hafa tekið í hendina á Andreas Brehme þegar ég fór með pabba og Skagaliðinu út til Kaiserslautern haustið 95 og notaði það. Ég reyndar var með eitt plan-B en því hefði þurft að stela. Einn vinur minn lenti í sömu spurningu fyrir nokkrum árum og sagðist þá vera hrikalega góður í "luftgítar" sem mér finnst alltaf mjög fyndið. Er reyndar enn að hugsa um sömu spurningu og er litlu nær jafn svölu svari og að vera snillingur í luftgítar.
Við höfum fengið boð um að henda inn abstrakt á handaráðstefnu sem verður haldin í Bath í júní. Þetta ætlar að vera abstrakt-season, en Nicky vill ekki endurnýta þann sem við sendum til Cleveland...vill koma með eitthvað nýtt....þ.e. meira vesen
Skotar láta sér fátt um finnast varðandi brúðkaup Karls og Camillu, enda er óhætt að segja að konungsfjölskyldan sé í afar litlum metum hérna uppfrá.
10.2.2005
Klaufi
The Tears er ný hljómsveit á gömlum grunni. Þetta er dúett þeirra Brett Andersons og Bernard Butlers sem eitt sinn voru saman í Suede, sem þá á tímum (fyrir 12 árum) var sú allra skemmtilegasta hljómsveit sem maður hefur heyrt í. Eftir að Bernard hætti fór nú að halla undan fæti og Suede fengu til sín einhvern feitan lúða til að spila á gítar og einhverja prímadonnu sem sat við hljómborð með fætur í kross, setti stút á munninn og reykti, sá hætti í bandinu vegna síþreytu, lítið rokk það. Maður var bara feginn þegar dánarvottorð Suede var gefið út. Þegar menn eru farnir að nota rím eins og house/mouse í textunum er tími á að kalla þetta gott.
Tears spila í Edinborg á mánudaginn og einhvern veginn þá var ég ekkert að stressa mig á miðum þar sem heimasíða miðasölunnar sagði að til væru miðar. Við athugun í gær kom svo í ljós að það er uppselt á þessa tónleika, en ætli maður fari ekki samt sem áður og reyni að redda einhverju fyrir utan staðinn. Kannski er þetta til marks um dvínandi áhuga að vera ekki löngu búinn að kaupa sér miða. Það er víst ekki lengur 1993 lengur!
| Snilld.net | Ef svo er þá minni ég á Tears are Falling með KISS... YeAh! |
8.2.2005
Nördafærsla
Ég á við smá finite element vandamál að stríða þessa dagana. Málið er að ég er búinn að módellera beinin með elementum sem hafa 6 frelsisgráður en nú þarf að tengja liðbönd við sem planið er að módellera með gormum vegna þess að liðbönd flytja einungis togkrafta en ekki þrýstikrafta. Gallinn er sá að mér sýnist öll gormaelementin sem Abaqus (forritið) býður uppá séu öll með aðeins einni frelsisgráðu sem ekki er hægt að tengja í hnútpunkt sem hefur 6 frelsisgráður. Svo er maður svo mikill lúði að mér tekst ekki einu sinni að búa til einvítt líkan með tveim hnútpunktum (annar punktur fastur og togkraftur sem verkar á hinn) og gormi í Abaqus bara til þess að prufa, nokkuð sem er lítið mál meira að segja að reikna með blað og blýanti.
Jamm maður er í áhugaverðu djobbi...eee...eða ekki
Ekki vill svo til að sérfræðingur í finite element módelleringu í Abaqus rati inn á þessa síðu og geti gefið ábendingar?
| Ræður ekki Matlab-maðurinn við etta? | |
| Maggi | Nops...því það er kryptonít sem keyrir finite element forritið |
| Kjarri | Sokkarnir mínir eru ósamstæðir. |
| Stína | á ég að syngja fyrir þig |
7.2.2005
Enn fer neðanjarðarlestarstarfsfólk í mánudagsverkfall aarrrg!! Þegar ég labba í vinnuna kemur mér alltaf dáldið á óvart hversu margir sitja og borða morgunmatinn á kaffihúsum fyrir klukkan 8. Þetta er víst mjög algengt á Ítalíu en ég sæi mig seint fyrir mér gera þetta.
Channel 4 fólk er duglegt að koma með topp 100 í hinu og þessu. Í gær voru það topp 100 bestu tónlistarmyndböndin þar sem Thriller var náttúrulega í efsta sæti. Maður sá aftur nokkur skemmtileg vídeó sem maður var búinn að gleyma s.s. Just með Radiohead, Bittersweet symphony með Verve og fleiri. Nú bíður maður bara eftir að Channel 4 geri topp 100 lista yfir bestu topp 100 listana þeirra. Annars eru sunnudagskvöldin alltaf slöpp sjónvarpskvöld, segja fræðin ekki að sjónvarpsstöðvarnar eigi að leggja sig fram að hafa góða dagskrá á fimmtudögum og sunnudögum.
| Burkni | Fræðin segja bara að það eigi ekki að vera neitt sjónvarp
á fimmtudögum eða á sumrin! Þá aktjúallí neyðist fólk til að fara útúr húsi og hitta annað fólk! |
4.2.2005
Meðleigjandinn náði botninum í gær, setti Green Day í geislaspilarann og varð bara frekar móðgaður þegar ég spurði hann hvort hann væri ekki örugglega að grínast með þessa músík. Skondinn kall.
Í morgunþætti BBC2 í morgun var spilað lag með Emilíönu Torrini og þulan bar fram nafnið hennar með eins ítölskum hreim og hún gat (emiLÍana torRIni), var hálfpartinn í móki svona rétt eftir 7, þannig að maður er kannski ekki alveg dómbær á lagið, hljómaði samt ok, samt eitthvað dáldið Björk-wannabe. Hún spilar svo á King Tut's hérna í mars...verður maður ekki að styðja Íslendinga í útlöndum.
Á visir.is er pistill eftir einhvern sem búinn að fara í alltof marga ljósatíma og setja alltof mikið af ljósum strípum í hárið á sér og er að tala um fólk sem er með trefla, með vöxt eins og Mr. Burns (í Simpsons) og drekkur te eða kaffi latte á kaffihúsum. Hann notar skrýtin orðatiltæki eins og "að vera á kæjanum" sem ég skil reyndar ekki (en næ samhenginu). Get ekki annað en skellihlegið þegar ég les þetta og maður sjálfkrafa hugsar...what a twat. Fyndin lesning í hugarheim "hnakka"
3.2.2005
Þá er búið að senda þennan blessaða abstrakt. Nú þarf bara að bíða samþykkis að utan.
Everton heldur sínu skriði með 1-0 sigrunum sínum. Við erum svo nálægt takmarkinu að ná Meistaradeildarsæti að það væri grátlegt að glutra þessu niður núna til þeirra rauðklæddu.
1.2.2005
Fótbolti
Það var gaman að fylgjast með fótboltafréttum í gær, allt að gerast í félagsskiptum. O'Neill sniðugur að fá Bellamy til sín, hann ætti að geta haft stjórn á honum. Ekki leiðast Celtic mönnum að Bellamy og Souness séu ekki vinir, enda er Souness Rangers maður. Verra var hins vegar að Barry Ferguson skyldi hafa komist til Ibrox, skiptir okkur svosem ekki máli enda ætlum við að vinna deild og bikar, auk þess ætti Henchoz að ráða vel við hann. Arteta kominn svo til Everton, skaphundur frá Spáni, nokkuð góður en auðvelt fyrir áhorfendur að tjúna hann upp þannig að hann fer bara í tveggjafóta tæklingar í stað þess að spila bolta.
Flott fyrir mína menn að fá Manjú í heimsókn í enska bikarnum, það verður eflaust tekið vel á móti Rooney. Þetta verður ekkert mál fyrir Everton að klára rauðu skrattana. Everton varð einmitt síðast bikarmeistari '95 eftir sigur gegn Manjú.
31.1.2005
Fín helgi að baki, fór með Chris og Alison á pöbbinn á föstudaginn og svo kom Halli frá Edinborg í mat á laugardagskvöldið. Gott stuð. Auk þess unnu Celtic, Everton og Juve en það hefur ekki gerst nú í nokkrar vikur. Mínir menn frá Tórínó að ná góðu forskoti í Serie A og telja verður líklegt að þeir muni hafa réttinn til að bródera ítalska fánann í búninginn á næsta tímabili. Það fer svo einnig að styttast í þriðju stjörnuna á búninginn.
Neðanjarðarlestarstarfsfólk er í verkfalli í dag og kann ég þeim litlar þakkir fyrir, þurfti að ganga í vinnuna. Eins gott að veðrið er ennþá sæmilegt. Gott mál að nú er farið að birta sæmilega á morgnana þannig að þetta er alveg bærilegt.
Fopp plötubúðin (sem ég hef minnst á áður) er alltaf að selja gamla góða diska á 5 pund, diska með Stones og Bowie sem mann vantar í safnið. Fór í gær og bætti í safnið, kannski ekki diskar sem maður verður stöðugt með í gangi en eins og Stefan Zweig skrifaði svo vel í sögunni sinni Die Unsichtbare Sammlung: "...Sammler sind glückliche Menschen". Það er mín afsökun.
28.1.2005
Rangers í trobbúl. Stefan Klos meiddist á krossböndum á æfingu í gær. Hann er búinn að vera langbesti maður Rangers í vetur og í raun honum að þakka að Celtic er ekki búið að stinga af í deildinni. Náttúrulega ferlega fúlt fyrir kallinn að meiðast svona (verður frá út tímabilið líklegast) en telja má líklegt að nú fari Celtic að ná stærra forskoti sem vonandi mun haldast til vorsins. Rangers ætla líklegast núna að fá markmann Hearts til sín, hann er reyndar mjög góður en ekki nærri því eins góður og Klos....not even Klós.
Fór áðan til að borga council tax (skattur sem liggur á íbúðinni) en ég var bara sendur í burtu og mér tjáð að ég sé búinn að borga fyrir fyrstu 4 mánuði ársins. Hvernig stendur á því veit ég ekki en sáttur er ég að þurfa ekki að borga þennan skatt fyrr en í apríl. Er hættur að reyna að skilja hvernig skattastofnanir og fjármálastofnanir virka hérna í júkey.
DJ schizo
Það mætti halda einhver geðklofi hafi sett saman þennan lista yfir mest hlustu lögin síðustu daga, svo er nú reyndar ekki, að ég....nei ég meina við best vitum
| Beethoven: Píanósónata númer 14 í C-dúr (Tunglskinssónatan) |
| David: Stop crying your heart out (Oasis cover) |
| Bebel Gilberto: Samba de Benção |
| Evan Dando: Knowing me knowing you (Abba cover) |
| Francesco de Gregori: La vaglia dell'attore (ítalskur Megas...eða kannski meira ítalskur Eyvi) |
27.1.2005
Fékk litla spurningakeppni með hljómsveitarnöfnum senda í pósti í gær sem maður er búinn að vera að brasa við. Kominn með 91 af 225. Hægt er að nálgast hana hérna. Fyndnast finnst mér spurningin um hvaða persóna sé "Toilet Toilet", hint: hún er glasgósk (frá Dennistoun) og söng eitt sinn í Eurovision og með Take That. Fínt að grípa í svona þegar maður nennir ekki að vinna.
Abstraktinn tilbúinn og verður sendur á morgun. Ég var búinn að skrifa hann og lét Nicky hafa sem sagðist aðeins ætla að breyta orðalaginu og enskunni minni. Niðurstaðan er sú að hún skrifaði hann upp á nýtt með fullt af "akademískum" frösum sem maður er ekki enn búinn að tileikna sér. Skrýtið tungumál þessi akademíska. Líður dáldið eins og Ringo þegar hann "samdi" Octopussy's garden. Af upptökum sem ég heyrði eitt sinn, virðist vera sem að Ringo hafi komið með trommutaktinn af laginu en Paul semur í raun lagið, kemur með stef og spyr Ringo hvernig honum finnist þetta og Ringo segir bara "jújú...fínt bara". Nákvæmlega það sama þegar Nicky spurði mig hvernig mér litist á þetta hjá henni. Hvað á maður eiginlega að segja annað "jújú...fínt bara"?
Fínasta vorveður í lofti í dag og í gær, gaman að því...
25.1.2005
Rabbie Burns
Í dag er afmælisdagur Robert Burns (sem er þjóðskáld Skota) eða Rabbie Burns eins og hann er þekktur, það er alveg spurning hvort maður skelli ekki í sig haggis and neeps (næpustappa) í hádeginu. Burns þessi er frægastur fyrir kvæði sitt Auld Lang Syne sem hefur verið þýtt á íslensku sem "gömlu kynnin gleymast ei" ef mig misminnir ekki. Ég geri samt nú ekki ráð fyrir að fara í kiltið mitt í kvöld og hella í mig whisky eins og margir gera á þessum degi.
24.1.2005
Fékk óvænta heimsókn yfir helgina og af þeim sökum stuðið haft í öndvegi þessa helgi. Ferð á Celtic Park að sjá þá grænu vinna slappa Motherwell, nokkrar ferðir á barinn og svo framvegis. Búinn að ná mér í miða á styrktartónleika sem skoska popplandsliðið heldur í lok febrúar til styrktar uppbyggingarstarfi í suðaustur Asíu, Franz Ferdinand, Belle&Sebastian, Travis og fleiri. Til stóð að fá Kristján Jóhannsson en tónleikahaldarar höfðu ekki efni á að borga honum, jafnvel þótt hin böndin geri þetta frítt
20.1.2005
Veröld Soffiu og Alexanders
Var að ljúka við hina stórskemmtilegu sögu um Veröld Soffíu. Hafði lesið hana áður fyrir nokkrum árum en ákvað skömmu fyrir jól að lesa hana aftur, hún var svo náttúrulega sett í salt yfir jólin (nógu þung var nú taskan mín fyrir) en ég kláraði hana í vikunni. Má segja að bókin sé svona crash course í vestrænni heimsspeki ásamt því að vera nokkuð skemmtileg saga, fær mann allavega til að gera tilraun til að hugsa aðeins á heimsspekilegum nótum. Mér finnst hugmynd Platós um frummyndirnar flott sem og náttúrulega hellalíkingin, þótt í meginatriðum stangist það á við Darwinsimann. Engu að síður smart kenning.
Fór að sjá Alexander í vikunni og verð að segja að ég bjóst við henni miklu verri. Makis er ekki sáttur við hana en af samtölum mínum við hann held ég að hann líti myndina miklu gagnrýnari augum en ég. Af því litla sem ég þekki til Alexanders, þá er myndin nokkuð sögulega rétt (án þess að ég ætli að fara nánar út í það hér, eflaust margir sem ætla að sjá hana heima), ekki eins og myndin um Tróju þar sem Ílonskviðu var breytt miskunnarlaust og sett inn klisjukennd atriði. Vissulega er smá Hollívúdd í Alexander og mörgu er sleppt en mér fannst hún mun betri en ég átti von á.
19.1.2005
Kanar og fall
Mikið er alltaf fyndið að horfa á kjánalegar fréttir frá BNA. Nú er víst einhver smábær í Pennsylvaníu búinn að ákveða að Darwin sé ekki málið. Það hefur engin þróun átt sér stað og allt líf var skapað af guði eða intellectual design eins og þeir kalla þetta. Búið er að taka þróunarkenninguna úr námsefninu í líffræði við skólann þarna og Darwin kallinum bara úthýst. Hélt að menn væru almennt hættir svona vitleysu. Þróunarkenningin er náttúrulega bara kenning, en það eru ansi margar vísbendingar sem styðja þessa kenningu (og líklegast var þetta alveg hárrétt hjá Darwin) en þeir sem ætla að hrekja kenninguna verða nú að koma með betri rök en að guð hafi bara veifað töfrasprotanum eða puttanum eða hvað það er sem hann átti að hafa notað. Spurning um að neita að viðurkenna þyngdaraflskenningu Newtons, segja bara að það sé djöfullinn sem einmitt býr í miðju jarðar sem vill draga alla hluti til sín en auðvitað sér svo guð um að halda plánetunum á braut um sólu.
Enn falla Íslendingar á Fifa listanum þrátt fyrir að hafa ekki gert neitt. Við föllum um sæti ef við spilum og við föllum um sæti ef við spilum ekki. Hvar endar þetta eiginlega? Nú verðum við bara að fara að vinna leiki. Er ekki hægt að setja á leik við Vatíkanið eða eitthvað svoleiðis?
Smurar
Ég gat nú ekki brosað út í annað þegar Angela og Nicky voru í hrókasamræðum hérna uppi á skrifstofu talandi um Land Rover bíla, kosti þeirra og galla. Var að spá í að spyrja um hvað þeim fyndist um skilnað Brads og Jennifers en sleppti því, held þær þekki ekki deili á því fólki. Þær eru meiru smurarnir (miklu meiri en ég) eins og þeir sem taka "vélhlutafræði 2" í staðinn fyrir "stjórnun fyrirtækja" eru kallaðir í vélaverkfræðiskor HÍ.
Það var einhver hrollur í manni í gær þannig að ég gerði kókossúpuna (úr snilldarbókinni Hristist fyrir notkun) og setti væna búta af engiferrót í...allra meina bót. Makis kom með sérstakan ost frá Grikklandi og gaf mér. Nokkuð góður en lyktar þeim mun verr. Hlakka til að setjast niður á föstudagskvöldið með rauðvín og maula ostinn yfir Big Brother eða einhverju álíka gáfulegu.
18.1.2005
Einir fara og aðrir koma í stað og alltaf bætast nýir hópar í skörðin....
Þetta skrifaði Tómas Guðmundsson eitt sinn. Kjartan hefur ákveðið að hætta að skrifa en í staðinn kemur litla systir, Hallbera Guðný. Hún skrifar unglingamál sem málfræðingar framtíðarinnar eiga eflaust eftir að skrifa lærðar ritgerðir um. Hún mun þrykkja í netið í sumar þegar Skagastelpurnar munu að vinna Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta.
Það var bara allt hvítt í morgun og þegar þetta er ritað snjóar enn. Þetta verður eflaust orðið að slabbi í eftirmiðdag, en indversku nemendurnir hérna brosa hringinn. Hafa aldrei séð svona áður.
16.1.2005
Þrátt fyrir viðvaranir fór ég á myndina Closer í gær og veit eiginlega ekki hvað á að halda um myndina. Mark sagði mér að myndin væri byggð á leikriti sem kannski skýrir skrýtnari samtöl milli persóna heldur maður er vanur að sjá í bíómynd. Annaðhvort er þessi mynd alger snilld eða alger þvæla en ég veit ekki hvorum megin ég stend. Veit hins vegar það að Natalie Portman er fáránlega sæt og the blower's daughter er fáránlega gott lag.
Um þessar mundir eru útsölur í fullum gangi og ég kíkti inn í uppáhalds plötu/bóka/dvd búðina mína Fopp og keypti mér tvo diska. Annars vegar Aladdin Sane (A lad insane samin um geðveikan bróður Bowie) með David Bowie, en ég týndi mínum gamla fyrir löngu, hins vegar keypti ég mér disk með brasilísku jazz söngkonunni Bebel Gilberto sem nefnist Tanto tempo. Mjög góður diskur, þarf að fara að kynna mér nánar brasilískan kúltúr (fyrir utan fótbolta) til að geta verið viðræðuhæfur við litlu brasilílsku-íslensku (bríslensku eða íslísku) frænku mína (þegar hún byrjar að tala það er). Stærri litla frænka mín lýsir þessari tónlist sem "pæjulegri" og ég held hún sé ekki fjarri lagi með það. Mæli með Bebel.
Lenti í skelfilegu á föstudaginn, minns bara á leiðinni í gymmið að hlusta á Skúter eða einhvern annan júróviðbjóð og þá hafði gymmið bara farið á höfuðið meðan ég var heima í jólafríi og lok lok og læs og allt í stáli. Sem betur fer var árskortið mitt að renna út í janúar þannig að ég tapaði í raun engu (fékk það líka mjög ódýrt). Núna er næsta mál á dagskrá að finna sér nýtt gym og held ég fari í Kelvinhall, þar sem pabbi segist hafa spilað landsleik í körfu fyrir mörgum mörgum árum.
Enska deildin búin, fáránlegir yfirburðir Ch€£$ky, búið 60% af mótinu og þeir búnir að fá á sig 8 mörk og með 10 stiga forskot. Hvers konar djók er það eiginlega? Evertonstráknum Rooney hefur ekki leiðst að fagna fyrir framan Kop í gær, einum liverpúlskum farsímaeigenda til mikilla ama
14.1.2005
Stefnir í rólega helgi, ætli maður taki ekki bíó eða eitthvað svoleiðis, Closer og Alexander eru myndir sem mig langar að sjá. Mark sá reyndar Alexander um daginn og sagði að hún væri "cheesy", sem lofar ekki góðu. Einnig er planið að rifja upp kynni manns af júrópoppi sem er alltaf spilað í gymminu. Spurning hvaða lag er Skúter núna búinn að taka, hraða um helming og skella trommutakti og dómaraflautum undir. Bíð spenntur.
Manics tónleikarnir í miðvikudaginn voru ágætir, ekkert topp5 material en þeir spiluðu Motorcycle Emptyness og You stole the sun from my heart, mér finnst alltaf byrjunin á því lagi flott.
Mér finnst Mark Thatcher nokkuð svalur, meina sumir ætla að ræna sjoppu, banka eða einhverju svoleiðis en hann ætlaði að ræna heilu landi. Þetta kallar maður að hugsa stórt.
Operation "Old Firm miðar fyrir febrúar" er komin í gang. Með HábeinJóh sér í liði er líklegt að maður fái miðana gefins.
12.1.2005
"Home" sweet "home"
Since I'm back to Glasgow let writings begin in Icelandic again.
Jæja, kominn "heim" og aftur í vinnuna. Það var nú svosem ekkert sérlega mikið óveður í Glasgow í gær (á íslenskan mælikvarða), en þetta var víst slæmt við vesturströndina. Ég var nú ekki búinn að vera í vinnunni í langan tíma þegar Nicky kemur að máli við mig um að það sé mikill áhugi á að senda mig á alþjóðaráðstefnu kvikmyndaverkfræðinga sem fer fram í Cleveland næsta sumar. Gallinn er sá að ef ég á að fara verð ég að halda munnlega kynningu og senda inn útdrætti fyrir 31. janúar. Við erum náttúrulega ekki komin með öll gögnin í hendur og ef maður hendir inn einhverju þá verður það last minute. Það væri nú samt gaman ef maður kæmist í svona partý með öllum big boys í bransanum.
Frestuðu tónleikarnir hjá Manics frá því í desember í kvöld annars.
10.1.2005
...of the year (part II)
| Top 5 albums of the year: | |
| Shins: Chutes too narrow | A friend pointed this band out to me in connection with their gig at the Airwaves festival last October. Indie pop/rock from the States at its finest. Highlights: "St. Simon" |
| The Libertines: The Libertines | The most famous drug addicts in the UK with their second album which is full of flaws, the singing not great the guitar not great but still they play very genuine rock'n roll. Brilliant album, Highlights: "Can't stand me now" and "Music when the lights go out" |
| Polyphonic Spree: Together we're heavy | The cult-band which might be mistaken for some friends of David Koresh (remember him?) instead of a top quality band. Must admit though that it took me a while to really grasp this album but decided to give it quite a few chances and don't regret it now. The band consists of over 20 members (counted 22 when I saw them live in Glasgow) and their music is very energetic. It must be difficult to arrange the scores for each memeber so I assume that many in the band have been studying music for quite some time. Highlights: The flute solo after about 5 minutes into "Suitcase Calling" should bring a smile to everyone's face and "Hold me now" |
| Morrissey: You are the quarry | Morrissey returns after many years of silence with a fantastic album in the sense that not many songs are constantly on repeat, but no songs are not that brilliant. His lyrics are still sharp for instance in the songs "America is not the world", "I have forgiven Jesus" and "The world is full of crashing bores". Difficult to chose a favorite song, they are all good, more or less. My favorite perhaps: "First of the gang to die" |
| Franz Ferdinand: Franz Ferdinand | When I saw them in january last year playing in Virgin Megastore on Buchanan street, I didn't realise how good this album really was. Sure catchy tunes, the lead singer and guitar player well dressed and chic but the bassist and the drummer more of the nerd types. We have seen this setup in many Britpop bands that never made it...Menswear and Shed7 anyone? I bought the album and liked it from start. Catchy songs and well...brilliantly simple. Highlights: "Take me out", "Matinee" and "40ft" |
Other good albums released: Nick Cave: Abbatoir blues/Lyre of Orpheus, Keane: Hopes and Fears, The Streets: A grand don't come for free, Norah Jones: Feels like home, Mugison: Mugimama, is this monkeymusic?, Ragnheiður Gröndal: Vetrarljóð
| Top 5 songs of the year: | |
| Loretta Lynn and Jack White: Portland Oregon | Jack White teaming up with a burnt out country-singer creating a brilliant country song which is very much like the country songs Rolling Stones wrote back in the days |
| Nick Cave: Breathless | The flute does it for me in this song. |
| Morrissey: First of the gang to die | Really could have picked almost any song from You are the quarry, but the song about Hector who was in the gang is one of my favorite songs from the album |
| Norah Jones: What am I to you? | I don't listen that much to radio so that tacky DJ's haven't succeded in destroying Ms. Jones for me. Good blues song which I enjoyed very much seeing live last spring in the SECC |
| Franz Ferdinand: Take me out | For me they are the band of the year and if this song doesn't manage to make people stamp their feet, nothing will |
| Top 5 songs not released in 2004: | |
| Smokey Robinson: The tracks of my tears | I don't know why I had this song on repeat for a couple of weeks last spring. I like the brass in the chorus. |
| Rolling Stones: I don't know why I love you baby | Same reason here as well I suppose, the brass in the guitarsolo is brilliant. Good cover version from the Stones on a song Stevie Wonder wrote |
| Ragnheiður Gröndal: Ást | I really am getting very very soft. Wonderfully beautiful song. Beautiful poem (by Sigurður Nordal) and the song by Magnús Þór Sigmudsson. Ragnheiður's voice is smoother than silk. |
| Blondie: Picture this | Bought a Best of Blondie last summer and listened to that non-stop for weeks. Don't know why I am discovering Blondie now (obviously know many of their songs) but better late than never suppose. Debbie Harry is cool. |
| Damien Rice: The professor | Bought Damiens album "O" last year and thought it was fantastic. Heard this song first on recording of Rice's gig in Iceland last March, but have been informed that this really is from the year 2004 (thought it was older) so this is perhaps on the wrong list. The man is an absolute wizard with the guitar and the song is faboulus. |
| Top 5 movies of the year: | |
| Shrek 2 | If one disregards the moral that love conquers all regardless of the person's look and comes from the inside...zzzzzz, then Shrek 2 is full of brilliant jokes and characters. The Puss in boots was million dollars |
| Big Fish | Feel good movie par excellance. It doesn't suit Ewan McGregor though speaking with a southern american accent. Brilliant to see how the main character of the film managed to join together fiction and reality. |
| Garden State | Didn't know anything about this movie when my flatmate suggested going to see it but Zach Braff from Scrubs came up with a quality movie full of brilliant music. Natalie Portman is pretty. |
| The eternal sunshine of the spotless mind | Jim Carrey sometimes goes on my nerves when he overdoes his funny faces, but here he is just normal and is brilliant. Creative plot and original. |
| Goodbye Lenin | Surprise movie of the year. German movie about a man nursing his ill mother who was in a coma when Germany was united. He is told by doctors that nothing must upset his mother when she wakes up so he tries to hide the fact that BDR and DDR no longer exist. Very funny. |
| Top 6 gigs of the year: | |
| Supergrass Barrowlands, 20. April | They played a "best of" set and great fun hearing all of their old songs. |
| Morrissey. SECC 13. December | Goosebumps when he opened the set with the song "how soon is now". To my surprise he did 4 or 5 Smith songs. He was pretty cool when he turned up with a priests collar to do the song "I have forgiven Jesus" |
| Damien Rice NASA 23. September | I heard his first gig on the radio, but seeing him was quite an experience. Really cool to see how he records sounds and loops them over and over in the background. Great concert |
| Polyphonic Spree, Queen Margaret Union 1. Nov | As I once said, if I were a spiritist then I would have said that the small venue in QM union was overflowing with positive energy. Fantastic atmosphere and everyone in the room was either singing along or smiling. The band energetic and brilliant hearing all the songs from "Together we're heavy" as well as "Soldier Girl" and "It's the sun". The intro for Soldier Girl was brilliant where the spotlight was on the flutist |
| The Libertines, Barrowlands 2. March | Rock'n roll in the Barras from the most prolific drug addicts in the UK. NME probably already has written the obituary for Pete Doherty who looks like he's heading for early grave, but the boys know how to play rock'n roll. Came out sweaty after jumping up and down in the front row to songs like "Boys in the band" and "time for heroes" |
| Franz Ferdinand, Barrowlands 15. October | The gig sold out in no time and I went queing around 6am to buy tickets. What made this gig special is that Franz Ferdinand are Glasgow boys and for them playing in the Barrowlands is like playing on homevenue. Sometimes one can sense a very special atmosphere in the Barrowlands and this was one of them nights. I could feel the floor bouncing a minute into "Take me out". Fantastic gig |
Other good concerts I went to (music life was busy in the cosmopolitan cities of Glasgow and Reykjavík): Bert Jansch & Bernard Butler (just to hear Bernards songs), Britney Spears (made me feel like a dirty old man), Norah Jones, Nick Cave and the Bad Seeds, Beastie Boys, Charlatans, Travis, Lou Reed, James Brown, Black Eyed Peas, Babyshambles, Ske and White Stripes.
7.1.2005
Oasis
Nothing like stepping into a car with the boys and head out to the country for a weekend in a summerhouse with Oasis in full blast.
All together now: soooooo Sally can wait...
6.1.2005
Small world
I went to dinner to my cousin and her Brazilian boyfriend a few days ago. Afterwards me and him decided to go to the pub for last orders. At the bar he starts talking to a girl he knew and this girl looked familiar to me. I finally realized that she was in my year from MR (its English name is Reykjavik's secondary grammar school, we're there from age 16-20) and beside her sat two other people who were in the same year, even the lad who sat next to me in 4th grade. Anyhoo, this lassie we both knew told me she had been studying physio and then it was revealed that she knew mum quite well (mum's a physio). This was getting extreamly surreal. There are not many of us Icelanders...but one Brazilian as well linked to the chain. People say that usually there are three degrees of seperation, but I am sure that in Iceland there is only one!
4.1.2005
A good friend of mine handed in his final dissertation/thesis yesterday and of course there was a get together at a pub downtown afterwards. I arrived a wee bit early. The idea was to buy a british newspaper and have a half'n half (a drinking custom I learned at an old mans pub, half pint lager and half of whisky) before everyone arrived. First of all the bookshop was selling The Sunday Times for over a fiver and second the pub wasnae open yet so I decided to go for a wee stroll around my old neighbourhood although the pavements were covered with ice and one had to walk like a penguin in order not to fall down and break one's leg. Nice to walk past and think about the glory days.At time there were 10 persons sitting around our table and 9 of them had specs on...intellectuals? Dunno!