11.7.2005

Heitt heitt heitt

Í dag er heitt í veðri og maður svitnaði bara við það að labba frá undergroundinu í vinnuna. Spurning hvort maður stingi af snemma úr vinnunni og fari í sólina. 

Giftinging var hrikalega skemmtileg. Svaka fjör fram eftir kvöldi þar sem voru dansaðir skoskir þjóðdansar Cheilidh (borið fram Keilí) og drukkið whisky. Athöfnin í kirkjunni var ágæt, hef aldrei verið viðstaddur svona kaþólska messu. Eftir messuna var farið með liðið í rútu til Dumbarton þar sem veislan fór fram. Annars voru bara allir í stuði enda var veislan vel heppnuð.

8.7.2005

Pabbi í hálfa...öld

Gestapenni síðunnar hann pabbi (eða Gísli bæjó eins og hann er stundum kallaður) verður fimmtugur á morgun 9. júlí og hefur í tilefni þess notað aðstöðu sína á Skaganum til að halda þriggja daga festival undir yfirskininu Írskir dagar, þegar allir vita að þetta er fyrir hann...svona eins og þessi í Túrkmenistan myndi gera. Neinei segi bara svona. Það er vonandi að verði sæmilegt veður fyrir grillveisluna á Víðigrundinni í kvöld. Ef það sjást mikil reykský yfir Akranesi frá Reykjavík, þá er það örugglega af því að kallinn er búinn að fá sér alltof marga whisky og er að brenna borgarana á grillinu.

Til hamingju með daginn á morgun pabbi og góða skemmtun í partýinu í kvöld.

Eitt og annað

Fór í gær og sótti Skotapilsið sem ég mun vera í í giftingunni. Það lítur mjög vel út og ég hlakka til að fara í búninginn á morgun.

Skagamenn unnu svo kr-inga í gær sem er náttúrulega alger snilld.

7.7.2005

Live8

Fór í gær á Live8 tónleikana í Edinborg, um 50 þúsund manns voru samankomin á Murrayfield rugbyvellinum að berja stjörnunar augum. Þeir félagar Bob Geldof og Bono voru þar fremstir í flokki. Skemmti mér stórvel á þessum tónleikum, þótt dagskráin hafi nú kannski ekki verið jafn vegleg í Hyde Park á laugardaginn. Proclaimers byrjuðu með 500 miles sem Skotum finnst alltaf jafnskemmtilegt að heyra. Annars var mest af skoskum og írskum tónlistamönnum sem tróðu upp. Umferðin var ekkert svo svakaleg, það tók um 3 tíma að komast heim....maður var búinn að búa sig undir verra. Dapurlegt til þess að vita að nokkrum dögum (og innan við 12 tímum eftir samkomuna í gær) eftir að fólk um allan heim er búið að sýna stuðning í verki til þess að reyna að bæta heiminn, þá láta terroristar til skarar skríða gegn því.

Make terrorism history...

5.7.2005

We are the champions my friend...

Í dag býð ég upp á tvífara. 

Will Champion trommari Coldplay Halli

Annar spilar fyrir Kaldleik meðan hinn leikur sér að því að spila sig kaldan...

4.7.2005

Helgin

Tónleikarnir á föstudaginn voru æðislegir. Við héldum okkur bara aftarlega og fjarri öllum troðningi. Mér finnast þessi Coldplay lög alveg ótrúlega góð og stemmingin auðvitað allt öðruvísi en á Oasis tónleikunum. Liam náttúrulega rústar Chris Martin (Liam sagði eitt sinn að Chris liti frekar út eins og landafræðikennari heldur en rokkstjarna....hrikalega fyndið) í svalleika en Chris virkar bara á mann sem svo ótrúlega góður gæji að það er ekki annað hægt en að dást að honum, svo er hann bara frábær söngvari og spilari. Fyndið með svona gigg hvað það þarf lítið til að stuða mannskapinn, í laginu Politik eru setningarnar "give me real dont give me fake" etc, á einum staðnum breytti hann textanum í "give me a glass of Irn Bru" og skotarnir voru frekar sáttir við það. Highlight fyrir mig var In my place. Ég ætla að gerast svo stórorður að segja að In my place er inn á mínum topp50 yfir bestu lög allra tíma. Stórkostlegt lag og ég fæ alltaf gæsahúð í "...yeah how long must you wait for it" kaflanum. Þeir slúttuðu á Fix you í uppklappinu og í enda lagsins, nánar tiltekið þegar trommurnar koma inn eftir gítarsólóið (eftir 3 mín og 2 s fyrir þá sem vilja hlusta) smelltu þeir upp flugeldum tveim sitthvoru megin við sviðið akkúrat þegar trommurnar komu inn. Það var ótrúlega magnað. Svo er náttúrulega Fix you geggjað lag en það er hægt að segja um langflest lögin sem þeir tóku. 

Við Villi fórum á laugardaginn á pöbbinn til að horfa á byrjunina á Live8, Macca og U2 að taka Sgt. Peppers og svo komu Coldplay (eftir að hafa spilað hér kvöldið áður og flugu svo aftur hingað upp eftir að hafa spilað í Hyde Park) og Richard Ashcroft tók Bittersweet symphony með þeim sem var hrikalega flott og við ílengdumst á pöbbnum og héldum áfram að þjóra. Stóðum að lokum upp eftir að Macca steig aftur á svið og slúttaði á Hey Jude. 10 tíma session á pöbbnum staðreynd, gott ef það er bara ekki met hjá mér. Gærdagurinn því í þynnri kantinum.

Við Nicky erum núna að setja saman kynninguna sem ég á að halda í Cleveland. Það verða nokkuð æfingarennsli hérna í deildinni. Fer svo á miðvikudaginn til Edinborgar að sjá Live8 þar. Lineup-ið er nú ekki eins gott og það var í Hyde Park en það má finna nokkra stórlaxa inn á milli. 

1.7.2005

Coldplay

Veislan heldur áfram. Útitónleikar með hinni frábæru hljómsveit Coldplay í kvöld. Ekki skemmir svo fyrir að Supergrass hita upp. Fékk hringingu frá blaðamanni Fréttablaðsins í gær og við spjölluðum aðeins, skilst að það eigi að birta það um helgina, spurning með fyrirsögnina, gæti verið "Nörd grísar á kvikmyndaverkfræðis-verðlaun". Fór með Villa í gærkvöldi á hinn stórskemmtilega pöbb, Firewater í gær þar sem plötusnúðurinn var í stuði og spilaði topp músík. Vorum nú ekki lengi að og fórum heim og horfðum á uppistandið hans Ricky Gervais um pólitík sem er alveg fáránlega fyndið. 

Annars allt bara það besta. Segi eins og vinur minn Chris Martin....we life in a beautiful world.

30.06.2005

Oasis

Tónleikarnir í gær voru geggjaðir. Það var haft á orði að Liam hafi sett Evrópumet í svalleika, þegar hann stóð fyrir framan skarann og lét hylla sig. Þeir tóku meirihlutann af nýju plötunni en að auki 4 lög af Definitely maybe (rock'n roll star, cigs and alcohol, bring it on down og live forever), 4 lög af Morning glory (wonderwall, don't look back in anger, champagne supernova og morning glory), 1 af Heathen chemistry (little by little) sem og my generation. Ég er örugglega að gleyma einhverju. Flott intro-ið í Live forever þegar trommutakturinn í byrjun var lengdur og áheyrendur sungu lagið. Liam sá sig knúinn að djóka og sagði "would you f***ing mind" áður en hann byrjaði sjálfur. Liam var annars mjög vel stemmdur og ekkert vesen á honum. Bandið lúkkar líka bara vel, Ringo Jr. á trommurnar er flottur, Noel náttúrulega alltaf eins í gallabuxum og leðurjakka. Svo var session píanóleikari með þeim sem lítur alveg út eins og George Harrison þegar hann var með sítt skegg og axlarsítt hár.  

Fyndið samt á Oasis tónleikum er mikið magn af algerum skríl, svona 80% af tónleikagestum voru bara neds og aumingjar. Það er samt það sem er svo bjútífúl við þetta band að þeir eru sjálfir working class og það skapast alltaf rosalega spes stemming á tónleikunum hjá þeim, maður spjallar við fólk sem maður annars myndi bara taka stóran sveig framhjá á götunni, tannlausa gæja, bera að ofan með fótbolta-tattú og með vodkapela í buxnastrengnum. Eins og Noel sagði eitt sinn til að leggja áherslu á working class uppruna sinn og til þess að skjóta á Damon í Blur:

"...I have worked at a construction site, which makes my life fundamentally better than his [þ.e. Damons]"

Það var talið að um 50 þúsund manns hefðu verið á vellinum í góðri bullu-stemmingu. Oasis er frábær hljómsveit. 

29.06.2005

VIÐ UNNUM ISB VERÐLAUNIN!!!!

Fékk póst í morgun sem sagði að við hefðum unnið. Ég mun því halda lengri kynningu í stórum sal fyrir framan fullt af fólki og taka svo á móti verðlaununum. Ætli við Nicky og David séum ekki núna heimsmeistarar í clinical biomechanics.

Dear Magnús Kjartan,

The jury members have evaluated the 5 papers submitted for the Clinical Biomechanics Award. They felt that all papers were all of high quality, but that one paper clearly stood out from the rest. It is my pleasure to inform you that you are the winner.

Oasis tónleikar á eftir með tilheyrandi stuði. 

Það er ekkert sem getur þurrkað glottið framan úr mér í dag.

28.06.2005

Kaffihúsastelpan

Sá að Rúv keypti réttinn á myndinni Girl in the café sem er að hluta tekin upp á Íslandi. Hún var sýnd á BBC hérna um helgina og held að mér sé óhætt að segja að menn þurfi ekkert að stressa sig mikið að ná henni. Það voru nokkrar svipmyndir úr borginni sem var gaman að sjá. Leikkonan (sem ég man ekki hvað heitir og nenni ekki að fletta upp...McDonald eitthvað) er konan hans Dougie úr Travis og hefur hrikalega flottan skoskan hreim.

27.6.2005

Heimsókn

Tveir starfsmenn Háskólans í Reykjavík komu í dag í heimsókn í deildina hérna til að skoða aðstöðuna og sjá hvað við erum að brasa vegna stofnunar heilbrigðistæknideildar við verkfræðideild HR. Verð að viðurkenna að mér fannst stórgaman að heyra fólk hérna segja frá því hvað það gerir. Maður hefur mjög ljósa mynd að hverju það er að vinna en aldrei fengið fyrirlestur. Angela sýndi þegar þau toga í sin í togþolsvélinni, sáum hvernig strákarnir í taugadeildinni setja rafskaut á hausinn á fólki og mæla viðbrögð, John sagði þeim frá rannsóknum á sviði gervilíffæra. Held þeir hafi alveg farið sáttir heim. Spurning hvort það verður svo eitthvað samstarf milli deildanna og spurning hvort maður fái eitthvað að gera þegar maður kemur heim eftir eitt og hálft ár.

Rólegheit á laugardeginum, ítalsk-welska vinkona mín, Christina, bauð mér í heimsókn svo ég gæti eldað fyrir hana sem var fínt af því að hún á góðar græjur í eldhúsinu. Gaseldavél er nokkuð sem er á óskalistanum mínum (djöfulli er maður orðinn girly svona þegar maður fær ekki fótboltaskammtinn sinn). Á matseðlinum var risotto ásamt skötusel innvafinn í parmaskinku. Ítölsk matargerð alltaf jafninteressant.

Vinkona okkar úr mastersnáminu, Naomi, var í heimsókn í Glasgow yfir helgina en hún býr á Írlandi og því fórum við Mark að hitta hana yfir nokkrum drykkjum í gærkvöldi ásamt Nikki og Campbell. Mjög fínt.

Fleiri heimsóknir á döfinni á morgun og á miðvikudag í tilefni Oasis tónleika á Hampden. Þetta verða mínir sjöttu Oasis tónleikar og það er alltaf jafn mikið stuð á þeim.

25.6.2005

Ross Priory

Deildin fór sama í vel heppnaða ferð til Loch Lomond í gær. Háskólinn á gamalt sveitasetur til afnota við vatnið sem nefnist Ross Priory. Það leit nú ekki vel út með veðrið um morguninn þar sem það voru skúrir en það létti til um leið og við komum um hádegisbilið og var brakandi blíða fram eftir degi. Við spiluðum fótbolta, rugby og rounders með kennurum og nemendum. Það er mjög gaman að spila rugby og náði ég að skora mitt fyrsta try. Komst inn í sendingu og hljóp með boltann að endamörkunum og kastaði mér yfir eins og Jason Robers, Johnny Wilkinsson eða Brian O'Driscoll myndu gera það. Rounders er kýló nema að maður notar kylfu til að slá boltann áfram. Held að okkar lið hafi unnið, var nú ekki alveg með talinguna á hreinu. 

Grilluðum um eftirmiðdaginn og drukkum bjór í sólinni. Fór svo með tveim köllum á verkstæðinu á pöbbinn þegar við komum tilbaka. Ég er með hrikaleg bóndaför á hálsinum og höndunum. Oh well.

Hér eru myndir...í boði nýja Ixusins minns

Ross Priory sveitasetrið

Útsýni yfir Loch Lomond

Sýnist vera einhverjar skemmdir í myndunum en það er ftp-inu að kenna, það virðist ekki ná að koma myndunum gallalausum yfir á háskólanetþjóninn.

23.6.2005

Ferðabækur um Ísland

Mér áskotnaðist ferðabók um ferð skáldsins W.H. Auden um Ísland árið 1937. Margir kannast eflaust við W.H. Auden en meðal annars eftir hann er hið fræga ljóð "Stop all the clocks" (...He was my North, my South, my East and West / My working week and my Sunday rest...) sem John Hannah fór með í myndinni Four Weddings and a Funeral, í jarðarfararatriðinu.

Allavega. Auden þessi fór í rúnt um Ísland og skrifar skemmtilega um matinn okkar sem öllum útlendingum finnst skrýtinn. Birti hér hluta úr bókinni án leyfis og alles. Þið heimsækið mig bara á hraunið ef einhverjir höfundarréttarsinnar sjá þetta. Margt mjög fyndið í þessari ferðalýsingu.

Dried fish is a staple food in Iceland. This should be shredded with the fingers and eaten with butter. It varies in thoughness. The thougher kind tastes like toe-nails and the softer kind like the skin soles of one's feet.

Meat is particularlly confined to mutton (mutton=gömul rolla) in various forms. The Danes have influenced Icelandic cooking and to no advantage. Meat is liable to be served up in glutinous and half cold lumps, covered with tastless gravy. At the poorer farms you will get Hángikyrl (þetta á vænleganlega að vera hangikjöt), i.e. smoked mutton. This is comparartively harmless, when cold it only tastes like soot, but it would take a very hungry man indeed to eat it hot (ég er reyndar sammála honum þarna, hangikjöt á að borða kalt)

For the curious there are two Icelandic foods that should certainly be tried. One is Hákarl, which is half-dry half rotten shark. This is white inside with a prickly horn rind outside, as though as an old boot. Owing to the smell it has to be eaten out of doors. It is shaved off with a knife and eaten with brandy. It tastes more like boot polish than anything else I can think of. The other is Reyngi (hef aldrei heyrt það nafn áður). This is the tail of the whale, which is prickled in sour milk for a year or so. If you intend to try it do not visit a whale station first. Incidentally, talking about pickling in sour milk, the Icelanders also do this with shepps' udders and the result is surprisingly very nice.

22.6.2005

Síkáti iðnaðarmaðurinn

Það er verið að taka í gegn hæðina fyrir neðan okkur þannig að það er verið að bora og hamra daginn út og inn. Maður bara verður að hækka í Media playernum. Það er samt einn söngelskur iðnaðarmaður þarna og þegar borarnir og hamrarnir fá frið þá þenur hann raddböndin og syngur Bítlana og Elvis....frekar svalur. Heyrist eiginlega meira í honum heldur en borunum. Verð nú að viðurkenna að maður tekur stundum "luftgítar" fyrir framan tölvuna þegar maður er í stuði en mér heyrist hann vera meira og minna í stuði working 9 to 5 eins og Dolly myndi orða það. 

Annars syngur bara í hausnum á manni: "...caught in a trap, I can't walk out"

Minnir mann bara á gömlu góðu dagana þegar nágranni okkar strákanna á Baldursgötunni tjúnaði Elvis í botn. Sá nágranni hefur ýmislegt á samviskunni, ef mig misminnir ekki, þá varð sí-spilun hans á Leonard Cohen til þess að vinur minn hefur ekki getað hlustað mikið á þann frábæra listamann eftir það

...uhhhh with suspicious minds (with suspicioooous miiinds)......

21.6.2005

Ef ég fengi eitt pence fyrir hvern hnerra þessa dagana, væri ég í góðum málum. Gróðurinn og nefið á mér ekki að tala saman

20.6.2005

Helgin

Lenti í óvæntu á föstudaginn, var boðið í pikknikk til Loch Lomond á föstudaginn í tilefni 17. júní. Það var meira að segja bökuð kaka fyrir mig sem var eins og fáninn, með bláberjum, kókos og hindberjum til að tákna litina. Mjög flott. Hafði aldrei komið til Loch Lomond áður (aðeins keyrt framhjá), gaman að fara þangað og það er aðeins í hálftíma lestarfæri frá Glasgow.

Gerði tilraun til að endurgjalda greiðann með matarboði á laugardaginn. 

Fór svo að sjá myndina um ævintýri leðurblökumannsins á Íslandi, hafði bara nokkuð gaman af þeirri mynd.

Annars er lítið að gerast þessa viku, allt að gerast í þeirri næstu, tvær heimsóknir frá Íslandi, No-way-sis og Coldplay tónleikar, nánar um það síðar.

Sér grefur gröf...

Lennart Johannsson alltaf hress hjá Uefa. Þetta hafði hann um kvennaboltann að segja. Ég myndi ekkert kvarta yfir blakstuttbuxunum, margar flottar í boltanum. Veit samt ekki hvort þetta hafi verið viðeigandi komment.

Hvað segir litla systir? Væru Skagastelpurnar til í að fara í níðþrönga búninga? Spurning....

17.6.2005

17. júní

Eitt sinn hringdi síminn hjá einni konu. Á hinum endanum var 5 ára sonur hennar sem var grátandi í símann og sagði:

Mamma, viltu segja Sigga (eldri bróðir hans) að hætta að stríða mér.  Siggi hann er aaalltaf að stríða. Hann stríðir mér á jólunum og meira að segja á 17. júní!

Bannað að stríða í dag krakkar.....til hamingju með daginn.

16.6.2005

Hér rignir og rignir. Fótboltinn ekki alveg að ganga....Skaginn að tapa og bara um miðja deild, Jackie McNamara fyrirliði Celtic fór óvænt á free transfer til Wolves og r***ers eru að safna að sér leikmönnum. Líst ekkert á þetta.

Var samt sjálfur í fótbolta í gær átti fínan leik í vörninni og skoraði 2 (sem eiginlega skrifast á slappa markvörslu hinna heldur en hitt). Er í hóp með kunningjum Marks og fleirum. Standardinn mjög góður og maður má hafa sig allan við. Spilum á stóran völl með 6 í liði, maður fær aðeins meira pláss þar en á 5-a-side völlunum. Skrokkurinn heldur meira að segja. Gaman að því.

Annars mest lítið bara

15.6.2005

Besserwisser

Í gær sat ég inn á pöbb til að fá mér að borða og rak augun í stafsetningarvillu á matseðlinum, þar stóð bruchetta í staðinn fyrir bruschetta (ítölskukennarinn minn lagði mikla áherslu á að þetta væri borið fram brúsketta) en gaman frá því að segja að bruchetta þýðir lítill kvenkyns ormur. Efast um að þeir hafi ætlað að bjóða upp á orma...tja kannski ef frú Norma skyldi koma í heimsókn. Ég benti nú þjóninum á þetta og besserwissaði. Besserwiss er fínt í hófi.

14.6.2005

Jæja, þá er Jackson sirkusnum lokið. Maður sat fyrir framan sjónvarpið í gær og hlustaði á í beinni þegar kviðdómurinn las upp sinn úrskurð eins og þetta væri enn einn Matlock þátturinn. Ætli samt að sé ekki á hreinu að það mun ekki heyrast mikið meira frá Waco Jacko í framtíðinni. Fannst nú samt alveg yfirgengilegt þegar konan sleppti hvítum dúfum við hvert "not guilty" sem heyrðist sem og fólkið sem hélt á skilti þar sem það bað Jackson afsökunar fyrir hönd mannkyns. Meiri vitleysan, sumir ættu bara að have their head examined. 

Einn sem þarf að hafa his head examined er Harry Kewell...eða allavega segir Gary Lineker það. Lineker skrifaði að Kewell ætti að láta athuga eitthvað í toppstykkinu á sér eftir sölu hans frá Leeds til Liverpool þar sem 2 milljónir punda (af 5) fóru beint í vasa umboðsmannsins. Lineker gagnrýndi það í blaðagrein árið 2003 og er nú fyrir rétti fyrir ærumeiðandi ummæli gagnvart Kewell. Lögmaður Kewells spurði Lineker hvernig honum myndi líða ef einhver myndi skrifa að hann þyrfti að have his head examined og Gary bara hló að þessu og sagði að það væri alltaf verið að segja þetta um hann....hann væri orðinn vanur slíkum ummælum um sig. Mér finnst Gary Lineker frábær og mér finnst Kewell nú full hörundsár ef hann ætlar að láta stefna þeim sem skrifa svona smáræði um hann.

13.6.2005

Breather...

Jæja loksins getur maður pústað. Við komum greininni til skila og héldum erindin í Bath á sunnudag. Flugum til Bristol á fimmtudagseftirmiðdag og gistum þar. Keyrðum til Bath um morguninn og sökum umferðar þá tók 20km leið okkur c.a. 2 tíma að keyra og mættum aðeins of seint og ég annar í röðinni til að handa erindi. Það reddaðist samt alveg og mér tókst ágætlega upp. Fróðlegt að sjá einnig hvað aðrir eru að gera. Fyndin ein rannsóknin sem fjallaði um að skoða beinbrot í framhandleggsbeininu þegar fólk dettur og ber fyrir sig hendurnar. Þau höfðu hannað svona talíu sem lyfti fólki upp á maganum og lét það svo detta út gefinni hæð. Eftir ráðstefnuna varð ég eftir í Bath og tékkaði inn á ákaflega heimilislegt B&B sem gömul kona rekur. Bath er fínasti bær, gaman að rölta um alla garðana þarna og þröngu göturnar. Rómversku böðin er áhugavert að skoða. Gott veður alla helgina þarna fyrir sunnan og maður hafði gott útsýni yfir Wales úr flugvélinni á leiðinni heim.

Ekki fyrr kominn til Glasgow en það byrjaði að rigna, í raun skiptust á skin og skúrir í gær. West end festivalið var að byrja og mikil skrúðganga niður Byer's road. Svaka mannfjöldi samankominn þarna og nóg að gerast. Gaman að þessu árlega festivali í Glasgow sem stendur yfir næstu tvær vikur.

Nokkuð ljóst að þessi vika mun ekki fara yfir 40 vinnustundir. 

9.6.2005

Búið að vera alveg kreisí að gera. Okkur tókst á undraverðan hátt að skila af okkur grein fyrir ISB tilnefninguna sem og að búa til kynningu sem ég á að halda í Bath á morgun. Allt á síðustu stundu eins og vera ber. Er að fara nú á eftir til Bristol og þaðan til Bath í fyrramálið. Ætla svo að taka það rólega í Bath um helgina.

Mamma og Helga voru í stuði hérna um helgina. Við fórum á völlinn og sáum Skota vinna Moldavíu. Helga fylgdist með sínum manni, Manjú manninum Darren Fletcher meðan mamma fylgdist með áhorfendum allan leikinn, fannst það miklu skemmtilegra en leikurinn. Fórum til Stirling að skoða kastalann og labba um. Stirling er skemmtilegur bær.

3.6.2005

Nú er ég að missa af einhverju. Löng röð fyrir utan Virgin í morgun og ég veit ekki af hverju. Eitthvað gott band eflaust að bóka tónleika og miðar að fara í sölu.

Betri helmingur (tja...segjum jafngóði helmingurinn ef Gulli Jóns les þetta) hafsentaparsins uppi á Skaga er að fara að gifta sig í dag. Reyni og Katrínu sendar hamingjuóskir í gegnum internetið. Einu sinni vorum við Reynir svipað góðir í fótbolta....jebb sú var nú tíðin.

Mamma og Helga að koma í heimsókn í dag. 

2.6.2005

ÓliJóh fær hrós fyrir að vera fyrstur að átta sig á Lísu í undralandi. Eflaust flestir með þetta á hreinu enda eru lesendur þessarar síðu ákaflega vel að sér. Það var hvíta drottningin sem lét þessa skondnu setningu út úr sér. Merkileg bók, ekki bara barnabók heldur koma þar fram faldar heimspekilegar og stærðfræðilegar pælingar, enda var Lewis Carroll stærðfræðingur. Svo var náttúrulega John Lennon ákaflega hrifinn af sögum Carrolls, sérstaklega Lísu og "Through the looking-glass". 

Mér áskotnaðist nýja Coldplay platan X&Y og er búinn að hafa hana á repeat í spilararnum hjá mér. Mér finnst þessi plata alveg ótrúlega góð og maður nánast greip hana í fyrstu hlustun. Annars streymir ný músík á markaðinn í stríðum straumum um þessar mundir (jájájá ok....maður er að stela þessu en ég fer í stóran stóran innkaupaleiðangur í HMV eða Virgin við tækifæri og greiðir þessum listamönnum/hljómplötuútgefendum sína þóknun) og maður hefur varla undan. Hingað til hefur árið 2005 verið gott plötuár en þessi Coldplay plata hlýtur að verða ofarlega á listum yfir bestu plötur ársins í desember. Chris Martin er alger snillingur. Næst á dagskrá samt verða The Tears.

Gengur ekkert með módelið, þegar ólínulegum efniseiginleikum liðbandanna hefur verið bætt við, fer allt í kleinu. Nú virkar ekkert og hvað sem ég geri divergerar. Eins og Chris Martin sagði svo vel í laginu The Scientist: "nobody said it was easy, no-one ever said it would be this hard". Mætti halda að hann hafi samið þetta þegar hann var að vinna að finite element greiningu á úlnliðsbeinum.

 1.6.2005

Allt á fullu í því að klára skýrslugerð og fyrirlestra. Nicky reynir að láta mig gera "sex ómöguleg verkefni og það áður en morgunmatur er framreiddur"* og þetta verður lastminute punktur is eins og venjulega. Gaman að því.

Síðasti þátturinn um hugstola húsmæðurnar hérna í kvöld (finnst það betri þýðing en aðþrengdar eiginkonur) og fróðlegt verður að sjá sögulok. Mun Bree drasla til? Hvað gera Mike og Susan? Spennó.

P.S. Setningin merkt með * er ekki eftir mig eins og kannski einhverjir hafa getið sér til um. Í hvaða bók er verið að vitna og hver samdi? Sigurvegarinn fær hrós að launum.

27.5.2005

UnbeLiverpool

Þetta var nú meiri leikurinn á miðvikudaginn. Svaka drama. Fyndin athugasemd í síðustu færslu sem segir að Liverpol séu kannski bestir í Evrópu en ekki á Englandi. Everton skrefi framar en þeir rauðu á þeim vígstöðvum. Uefa kemur saman 17. júní til að ákveða hvort Ingerlund fái fimmta meistaradeildarsætið en það má teljast ólíklegt að það fáist í gegn. Eins og ég hef minnst á hér áður þá virðist vera trendið í fótboltanum að ríkjandi meistarar hafa ekki sjálkrafa þátttökurétt, sbr. að Brassarnir eru í undankeppni HM. Reyndar hef ég engar áhyggjur af því að meistaradeildarsætið verði tekið af Everton. Skemmtileg lausn samt sem Walesverjar komu með.

Annars eru púlurum sendar hamingjuóskir með titilinn. Nú er það hins vegar Oasis og Þingvellir sem eru aðalmálið.

25.5.2005

Samleitni

Er farinn að fá samleitini í keyrslunar mínar á módelinu. 

Ljósbrúnu böndin tákna liðbönd og gulu punktarnir tákna snertifleti (e. contact elements). Með mjög góðum vilja má sjá móta fyrir hnitakerfum efst uppi. Y-ásinn er skilgreindur niður fingurna, z til vinstri og x inn í skjáinn. Kraftarnir eru settir á módelið í samræmi við stefnu hnitakerfisins. Dorsal sjónarhorn (þ.e. handabak, þetta er hægri hendi). Sjáum spennuhækkun við þumal og vísifingur. Litlar spennur fyrir gulan lit, grænn er c.a. 2MPa spenna og blár er 4MPa spenna í þrýstingi. Ath þetta eru minimal höfuðspennur sem eru teiknaðar þarna upp. Sama hér fyrir sjónarhorn fyrir lófa (palmar view). Mesta álagið dreifist radial megin í úlnliðnum (radial hlið=sú hlið þar sem þumallinn er á mynd). Á reyndar eftir að reikna nákvæmlega hversu mikið fer þar niður en það væri fínt að fá að c.a. 60% álagsins fari þar í gegn.

Í fljótu bragði virðast þessar niðurstöður vera í rétta átt. Svörtu fletirnir eru þau element sem hafa spennur lægri en -4MPa (mínusinn vegna þess að þetta er þrýstingur) og ástæðan fyrir svarta blettinum undir þumlinum (Triquetrum bein) er sú að það er "no-slip" jaðarskilyrði þar, þ.e. ég er búin að segja að elementin þar geta ekki hreyfst neitt og þess vegna er töluverð spennuhækkun. Þarf að taka þessi jaðarskilyðri út og vona að liðböndin haldi öllu draslinu saman. Það eru ekki mörg svona líkön til og þau sem eru til eru mjög einfölduð. Það sem er merkilegt við okkar módel (að okkur finnst) er það að við notum "alvöru" krafta til að setja á módelið. Það sem ég á við er það að þessi úlnliður tilheyrir einni stelpu hérna við deildina og við erum búin að mæla kraftana sem hún getur framkallað í gripstöðu. Það hefur ekki verið gert áður og þetta verður vonandi mun nákvæmara heldur en aðrar rannsóknir. Til að gefa lesendum hversu stórir kraftar eru hér að verki skoðum eftirfarandi töflu (plúsar og mínusar í samræmi við skilgreiningu á hnitakerfi á myndinni efst til vinstri):

  Fx [Newton] Fy [Newton] Fz [Newton] F_total [Newton]
Þumall -77.2 710.5 352.8 797
Vísifingur 13.9 203.5 1.3 204
Langatöng 0.2 321.7 22.7 323
Baugfingur -43.2 233.9 37.3 241
Litli fingur -67.4 -3.37 88.6 207.4

Þessir kraftar eru reiknaðir út frá kröftunum sem við mældum auk framlag vegna vinnu vöðvanna skv. biomechanísku módeli. Þetta eru ekkert smá miklir kraftar og heildar ytri krafturinn sem verkar á úlnliðinn í gripstöðu er um 1700N sem svarar til c.a. 170kg 

Lausn fæst einmitt einnig í Meistaradeild Evrópu í kvöld (má segja að hún verði samleitin í kvöld). Tvö af varnarsinnuðustu liðum álfunnar mætast og ég ætla að kíkja til William Hill og setja nokkur pund á 0-0 jafntefli og þetta endi í vító skító. Þar sem ég þekki fleiri Liverpool aðdáendur en Milan þá bara óska ég þeim til hamingju með daginn. Alltaf gaman þegar liðið manns spilar svona leik. Vonandi verður ekki langt að bíða þar til Juve verður í þessum sporum.

24.5.2005

Lítið að gerast hérna. Vinna á fullu fyrir heimför á fimmtudaginn. Komið á hreint að ég verð með munnlega kynningu í Cleveland. Annars er stóri leikurinn á morgun. Planið er að ná bestu sætunum á hverfispöbbnum og borða þar og kneyfa bjór frameftir kvöldi, maður getur svosem alveg verið ryðgaður í flugvélinni. Geri nú ekki ráð fyrir 8-8 leik en vonandi verður þetta ekki steindautt 0-0 jafntefli. 

22.5.2005

Heartbroken

Það er stutt á milli feigs og ófeigs í boltanum. Meðan maður er brosandi yfir árangri Juve, tókst Celtic á einhvern ótrúlegan hátt að tapa titlinum á síðustu tveim mínútum tímabilsins. Strákarnir með 0-1 forystu á 87. mínútu og titillinn á leiðinni á Celtic Park en svo gerðist eitthvað þannig að þeir töpuðu leiknum 2-1 og rangers eru meistarar. Ég trúi þessu varla ennþá, ætli þetta síist ekki inn þegar allir rangers mennirnir hérna í vinnunni mæta á morgun. Maður verður að láta lítið fara fyrir sér þá. Ég trúi ekki að þetta hafi gerst og Martin líklegast að hætta með liðið. Þetta er ekki gott. Neita að trúa þessu.

Ég hata rangers meira en pestina.

21.5.2005

CAMPIONI!!!!!!!

La Juve ha vinto lo Scudetto....bellissimo!

Það fer að styttast í 3. stjörnuna á búningnum, þar sem þetta var titill númer 28. Árið 2007 mun þriðja stjarnan bætast við. Juve hefur nú réttinn að bródera ítalska fánann í búningana sína á næsta tímabili. Snilld.

20.5.2005

The winner takes it all.....

Isss pissss þetta var nú meira svindlið í gær. Hvernig í ósköpunum komust danir áfram en ekki við? Verð nú að segja að tilhlökkunin í að fara í partýið á morgun hefur minnkað í ljósi úrslitanna. Maður verður þá að finna sér aðrar þjóðir til að styðja, fannst (eins og mörgum) ungverska lagið fínt, Norðmenn alltaf í stuði en kannski það mest fyndna í gær fannst mér lagið frá Moldavíu. Ætli Red hot chillipeppers hljómi ekki svona ef þeir væru sígaunar. Annars hef ég nú alltaf lúmskt gaman af svona sígaunamúsík, minnugur stuðsins sem serbnesku fyllibytturnar í No Smoking Band stóðu fyrir í Laugardalshöllinni fyrir...hva...6 árum eitthvað svoleiðis.

Terry Wogan sagði í þættinum sínum í morgun að hann skildi ekkert í því af hverju við komumst ekki áfram. Terry þessi hefur lýst Eurovision í hátt í 30 ár fyrir BBC og er alltaf skemmtilega kaldhæðinn.

19.5.2005

Evrósýn

Mér finnst ótrúlega góður húmor hjá BBC að láta Daffyd (sem er "the only gay guy in the village" í þáttunum Little Britain) vera icon fyrir Bretland í Kiev. Þetta er víst eitthvað tengt því að öll löndin eiga að taka eitthvað með sér til Kiev sem á að vera táknrænt fyrir þjóðina, veit nú ekki hvað við sendum....Gísla Martein?. Hrikalega fyndið samt að senda Daffyd (þ.e. Matt Lucas sem leikur hann), þar sem Eurovision er í miklu uppáhaldi hjá þeim hýru af einhverjum ástæðum.

Svo bara áfram Selma í kvöld, vonandi hún verði ekki all out of luck! Það er búið að bjóða mér í partý á laugardaginn þar sem hver á að koma með eitthvað táknrænt fyrir sína þjóð. Ég ætla með klaka og frostpinna. 

Áfram Ísland.

18.5.2005

Var spurður af einum gæja í Academic Writing kúrsinum hvort ég þekkti Gauja Þórðar. Hann er nefnilega Notts County aðdáandi. Ég náttúrulega lofaði Gauja í hástert en sagði að eina vandamálið við hann væri að hann ætti eflaust eftir að reita stjórnina til reiði með einhverjum þvermóðskuhætti. Sagði honum samt að það væru bjartari tímar í vændum fyrir Notts County, þar sem að Gauji væri alger snillingur.

Ég stend í fáránlegu dæmi þessa dagana. Þarf að finna gistingu fyrir okkur Makis fyrir ráðstefnu í Bath í júní. Nicky og Angela gista hjá vinum sínum og Nicky spurði mig hvort að farfuglaheimili væri ekki ok, þar sem við þyrftum að spara pening. Ég afþakkaði það nú bara pent. Það er verið að horfa í penní þegar þegar finna á gistingu fyrir mann. Ótrúlega lélegt.

16.5.2005

No-way-sis

Hrikalega gaman á tónleikunum í gær. Oasis er langsvalasta grúppa seinni ára og þeir sem eru á annarri skoðun hafa einfaldlega rangt fyrir sér og eru bara ruglukollar.

15.5.2005

Life is sweet...

Búið að vera geggjað veður hérna, hitti fólk í Botanic gardens í gær í picknick stemmingu og núna er ég kominn með svakaleg bóndaför á hálsinn og handleggi.

Náði að redda mér miðum á Oasis tónleika í Usher Hall í Edinborg í kvöld, það verður geggjað fjör.

Í dag er þriggja ára afmæli þegar ég sat með ritstjóra Snilldarinnar á Hampden og sá Zidane taka boltann á lofti til að þrykkja í skeytin og tryggja Alvöru Madríd meistaradeildarbikarinn. Það var ekki lítið skemmtilegt.

Svaka að fylgjast með fallslagnum í ensku, Southampton uppi, svo West Brom og núna Crystal Palace...og núna er West Brom uppi. Ofsa spenna

Íslenski boltinn fer svo að rúlla á morgun. Skagamenn og Skagastelpur verða vonandi í stuði í sumar, svo náttúrulega vonandi að Valur geri vel...allavega einn leikmaður

Celtic unnu í stressleik gegn Hearts og vantar núna sigur gegn Motherwell á sunnudaginn næsta og titillinn er okkar. Juve lagði Parma og AC Milan gerði jafntefli. Tveir leikir eftir og munurinn 5 stig. Juve þarf bara 2 stig til að tryggja sér Scudettoinn

Jebbb....la vita é bella!

13.5.2005

...and the nominees are

Fékk skemmtilegan póst í gærmorgun sem sagði að abstraktinn sem við sendum á alþjóðaþing kvikmyndaverkfræðinganna hefur verið tilnefndur til verðlauna (ISB=International Society of Biomechanics).

Dear Magnus,

For the XXth Congress of the ISB, to be held in August 2005 in Cleveland, you submitted together with your co-authors Fowler and Nash an abstract entitled “The three dimensional load transfer characteristics of the wrist during maximal gripping”.  It is my pleasure to inform you that, on the basis of this abstract, you have been nominated as finalist for ISB’s Clinical Biomechanics Award 2005

Five researchers have been nominated as finalist for the award.  The winner of the Clinical Biomechanics Award will be selected on the basis of the manuscripts by a jury consisting of the president, past-president and president-elect of the ISB, the editor of Clinical Biomechanics, and myself as chairman of the Award Committee.  The first author of the winning paper is invited to give an oral presentation of the winning paper at the ISB Congress in a plenary session, and the paper itself will be published as the ISB Clinical Biomechanics Award paper in Clinical Biomechanics (subject to a normal peer review process if required).  Furthermore, the first author of the winning paper will receive a certificate and a monetary award of US$ 1250

Þetta þýðir hins vegar ennþá meiri vinnu og það verður pressa á manni að klára greinina sem maður þarf að skila inn eftir 4 vikur. Eins og staðan er núna eru engar niðurstöður til að setja inn. Nú verður sett allt á fullt að framkalla fínar niðurstöður og skrifað eitt stykki masterpís, jebb það held ég nú. Ef ég vinn, þá splæsi ég á barinn!

12.5.2005

Vil þakka fyrir öll 120 sms-in sem ég fékk yfir leiknum í gær frá Liverpool aðdáendum. Þetta ætti að vera þeim nokkur sárabót fyrir ákaflega slappt tímabil heima fyrir þetta árið. Annars skipti þessi leikur engu máli fyrir Everton og ég svaf alveg rólegur síðustu nótt. Menn eflaust ennþá þunnir eftir að hafa fagnað sigri Arsenal á Liverpool sem tryggði endanlega meistaradeildarsætið síðasta sunnudag. Það verður samt að segjast að fótboltinn sem Arsenal spilaði var stórkostlegur. Þetta var sýning í því hvernig á að gera þetta, einnar snertingarboltar út um allan völl og Bergkamp með fáránlega flottar sendingar. Það væri nú eiginlega fyndið að sjá Everton tapa fyrir Bolton á sunnudaginn og enda með neikvæðan markamismun meðal hinna bestu (þ.e. Chelsea, Arsenal og ManU). Það gæti einnig hjálpað Bolton að komast uppfyrir Liverpool sem væri æðislegt. Veit eiginlega ekki hvorum maður eigi að halda með í þessum úrslitaleik meistaradeildarinnar, mikið væri rosalega gaman ef bæði lið myndu tapa.

11.5.2005

Tíðindalaust af vesturvígstöðvunum. Var að koma úr enn einum Academic writing tímanum og það er svo leiðinlegt að ég verð eiginlega dáldið pirraður í skapinu á eftir. Set smá swing jazz á fóninn til að hressa mig við. Þetta námskeið er einnig að klárast, tveir tímar eftir, maður reynir að þrauka.

Er að reyna að skapa einhverja stemmingu fyrir hittingi að horfa á júróvisjón um aðra helgi en það eru allir svaka neikvæðir. Leiðindapakk: segja bara að það séu svo leiðinleg lög en það gengur lítið fyrir mann að segja við þau að það er ekki aðalmálið við þetta kvöld. Kannski maður finni sér bara einhvern pöbb sem sýnir þetta, það er samt eitthvað hálfglatað. Væri alveg til í að fara í júróvisjón partý heima þar sem væru grillaðar pulsur/börgers og alles.

Ekkert planað fyrir næstu daga en maður þarf að plana eitthvað skemmtilegt yfir helgina sérstaklega þegar spáin er svona.

Af einhverjum ástæðum er oft gott veður hérna í maí en það rignir hina 11 mánuðina á ári. Reyndar þegar maður hugsar um það þá er oft gott veður heima líka í maí. 

9.5.2005

Virkilega gaman í göngunni í gær, gott veður og maður ekki frá því að þurrar samlokur með skinku og osti verða betri þegar þær eru borðaðar uppi á toppi í kulda með útsýni yfir fjöllin í kring. Það væri hins vegar skemmtilegra ef maður gæti fengið sér Sóma roast beef samloku með alltof miklu remúlaði á toppnum en það verður ekki á allt kosið. Við tókum meira að segja tvö munroes, eftir Ben Lui var auðvelt að skokka upp á Beinn a'Cleibh.

Þegar niður var komið biðu mín stórkostlega stórkostleg fótboltaúrslit. Er ekki fótbolti æðisleg íþrótt? Everton komnir í Meistaradeildina, fjórða sætið tryggt. Þá geta strákarnir farið í umspil um sæti í riðlakeppninni. Reyndar er nokkuð víst að þeir munu spila við eitthvað austantjaldslið og klúðra málunum en ég ætla ekki að hafa áhyggjur af því fyrr en í ágúst. David Moyes hlýtur að verða kosinn þjálfari ársins, þetta er ótrúlegt afrek. Man þegar ég fylgdist með fyrsta leiknum gegn Arsenal þar sem þeir tættu mína menn sundur og saman og unnu 4-1 og maður hugsaði...núnú enn eitt svona tímabil en how wrong was I. Rooney var svo seldur og svo Gravesen, með betri mönnum liðsins en liðið heldur út og nær þessum árangri. Magnifico!

Celtic unnu Aberdeen og eru með tveggja stiga forskot, það má ekkert útaf bregða en takmarkið er í augsýn. Síðast en ekki síst vann svo Juve AC Milan og eru komnir með þriggja stiga forskot í Serie A. Ég er svo svakalega glaður í dag. Sólin skín úti og það er sól í sinni. Það getur verið erfitt að fylgjast með sínum fótboltaliðum stundum en þegar svona vel gengur þá er ekkert í heiminum betra! Það er ekkert í heiminum skemmtilegra en fótbolti segi ég og skrifa.

6.5.2005

Á leið úr bolta áðan þá voru litlir strákar að spila 25-a-side bolta, þeir hafa verið svona um 10 ára allir. Einn klúðrar góðu færi til að skora og þá heyrist kallað úr vörninni "jjjjuuuurrrr sjjjjæææt man". Gat ekki annað en brosað út í annað yfir þessari vægðarlausu gagnrýni eins guttans.

Kosningakerfið hérna er ansi skrýtið. Kosningaþátttaka var 60% sem er nú frekar lélegt, verkamannaflokkurinn fær 36% greiddra atkvæða, íhaldið 33% og kratarnir 22% en samt fær Tony 353 sæti, Howard 196 og Kennedy 60 sæti. Þannig fæst að fyrir hvert prósent greiddra atkvæða:

verkamannaflokkur fær 9.8 þingsæti fyrir hvert prósent greiddra atkvæða
íhaldið fær 5.9 þingsæti fyrir hvert prósent greiddra atkvæða
kratarnir fá 3 þingsæti fyrir hvert prósent greiddra atkvæða

Ef miðað er við 60% þátttöku þýðir að innan við 25% landsmanna hafa kosið verkamannaflokkinn sem að launum fær 100 sæta meirihluta á þinginu. Svona er nú gaman að rýna í tölur og sjá hvernig breskt lýðræði virkar í praksís. Miðað við fjölda greiddra atkvæða er nefnilega ekkert svo mikill munur.

Fjallganga á sunnudaginn, Ben Lui er fjallið. 

05.05.05

Kosningar í dag hérna. Margt stefnir í að Tony haldi völdum, þar sem Michael Howard er einfaldlega ókjósanlegur. Held að Íhaldsmennirnir hafi skotið sig í fótinn með þessari innflytjendaumræðu zzzzzzzz, best að láta rasistana í British National Party sjá um það. Það eru nú meiru hálfvitarnir. Annars er Charles Kennedy með langmestu persónutöfrana af þeim. Hann kom með svo gott publicity stunt að eignast barn fyrir tveim/þrem vikum að það hálfa væri nóg, mætti bara í viðtöl með bauga niður á hné eftir svefnlausa nótt með krakkann. 

Svo er bara spurning hvort Gordon Brown taki ekki bara við stjórninni áður en langt um líður.

4.5.2005

Liverpool mönnum óskað til hamingju með farseðilinn til Istanbúl. Þetta var mögnuð frammistaða hjá þeim. Ég hef stundum staðið í þrasi við menn sem finnast ítölsk lið alltaf pakka í vörn eftir að hafa skorað eitt mark og flestir leikir fari 1-0. Nú vil ég aldrei aldrei aldrei aldrei aldrei aftur heyra þetta frá Liverpool aðdáendum. Eitt mark skorað í þremur leikjum og liðið er áfram. Hins vegar er aðdáunarvert að fylgjast með vörninni. Síðan hvenær varð Jamie Carragher svona góður?

Henrik Larsson verður gerður að heiðursdoktor við University of Strathclyde á eftir. Mér tókst ekki að redda mér miða á athöfnina, en maður bíður bara fyrir utan með öllum hinum Celtic aðdáendunum sem munu eflaust vera í góðu stuði. Mér finnst skólinn minn fá mörg stig að gera Henke að heiðursdoktor, enda er hann svo sannarlega með doktorsgráðu í því að þrykkja í netið.

Uppfært: Hvað haldiði? Mark reddaði vini sínum miða að sjá Henke verða doktor. Það verður gaman að sjá kappann.

3.5.2005

Tímarnir breytast og mennirnir með. Í gær var ég inni í stofu að ryksuga og strauja skyrturnar mínar og horfði í leiðinni á bikarúrslitin í kvennaboltanum. Ég að strauja og stelpurnar í fótbolta, á þetta ekki að vera öfugt? Svona eru tímarnir breyttir. Úrslitin voru léleg þar sem Charlton stelpur unnu mínar stelpur í Everton...fnusss.

Stóra spurningin er hins vegar hvort maður eigi að horfa á Liverpool - Chelsea eða fara í ítölskutíma í kvöld? Ég hallast reyndar að því fyrrnefnda.

1.5.2005

Amadeus

Tók því rólega í gær og eldaði mér til ánægju og drakk eitt stykki rauðvín með. Keypti mér myndina Amadeus fyrr um daginn og horfði á hana í gærkvöldi. Alveg mögnuð mynd þrátt fyrir margar sögufalsanir. Ætla leyfa mér að hrekja nokkrar hér

Eftir stendur samt frábær mynd, þrátt fyrir sannleikanum sé aðeins hagrætt. Það er svosem erfitt að ætla að vera sögulega nákvæmur og búa til góða sögu í sama mund. Vissuð þið að Miranda úr Sex and the City leikur í Amadeus? Það reyndar truflaði mig pínu, hún á bara að sitja með Carrie, Sam og Charlotte á Manhattan og drekka cosmopolitan....nevermind. 

Fyrir þá sem vilja lesa meira um Mozart bendi ég á eftirfarandi síður

 "Amadeus" and Mozart: Setting the record straight. Grein sem fjallar nánar um skáldskap í myndinni Amadeus
Mozart vs Salieri 
Mozart á Wikipedia, Wikipedia er alger snilldar alfræðisíða fyrir þá sem ekki eiga áskrift af Encyclopædia Britannica
Mozart þing í Vín í sumar, eflaust miklu meira spennandi en Cleveland.

Fótboltaúrsltin um helgina voru svo mikið drasl að ég nenni ekki einu sinni að tala um þau. Verð bara þunglyndur af því. Ch€£$ky orðnir meistarar. Roman borgaði um 680 milljón pund fyrir að láta eyðileggja 2-3000 punda jakkafötin sín í búningsklefanum í gær. Það hefur eflaust verið gott stuð en spurning hvort þetta sé of dýru verði keypt. Frá því hann keypti klúbbinn í júlí 2003 hefur hann að meðaltali pungað út milljón pundum á dag. Naumast flottheit. Gaman að sjá fyrsta Íslendinginn sem vinnur ensku deildina

29.4.2005

Var að koma aftur eftir að hafa tekið 5-a-side bolta í hádeginu. Skrokkurinn virðist ætla að halda en maður svosem passaði sig í leiknum. Greinilegt samt að maður hefur tapað miklu á þessari fjarveru, sú litla knatttækni sem maður hafði er horfin. Þetta svosem kemur allt, samt gaman að komast í að sparka í bolta.

Svo bara bank holiday á mánudaginn, þannig að það verður löng helgi. Stefni á tónleika með Mugison á sunnudagskvöldið, bíó í kvöld en annað er ekki planað.

28.4.2005

Skv. fréttum á mogganum eru líkur á því að þjófarnir hafi brennt Munch málverkin sem þeir stálu fyrir þónokkru, þar á meðal "Ópið". Hef reyndar aldrei skilið svona listaverkaþjófnað, þ.e. þjófnað á svona þekktum verkum. Hvernig ætla menn að koma þessu í verð, þeir sem geta keypt svona þýfi gætu aldrei haft þetta uppi í stofu hjá sér. 

"Þetta er málverkið sem ég var að kaupa, það heitir Mona Lisa og er eftir einhvern Ítala og er nokkuð verðmætt"

Segi nú bara eins og sögukennari minn í MR, Helgi Ingólfsson, að listaverk verða ekki ómetanleg fyrr en þau eru eyðilögð. Synd ef satt reynist að þessi málverk hafa verið brennd.

27.4.2005

Yeah...going to Ohio baby

Dear Colleague,

Congratulations!  Your abstract entitled, “The Three Dimensional Load Transfer Characteristics Of The Wrist During Maximal Gripping.” has been accepted for the combined XXth ISB and 29th ASB meetings.

Þá er bara að fara að safna bóndafari á hálsinn svo maður geti verið alvöru redneck og fittað inn meðal Ohio búa.

Ópera

Þessi saga um norska óperu-unnandann sem ætlaði að synda til Ameríku er alveg milljón. Einhver félagi hans gaspraði við fjölmiðla að hann myndi synda til Ameríku frá Noregi ef fyrir milljón manns myndu ná í óperu vafrarann. Félaginn ætlaði svo að sigla við hlið óperukallsins á gúmmíbát! Svaka plan alveg, óperukallinn ætlaði meira að segja að stoppa á Íslandi í kaffi á leiðinni, jafnvel gera kaupsamning um kók og pylsu með öllu á Bæjarins Beztu. Svo (ó)heppilega vildi svo til að gúmmíbáturinn sökk rétt eftir að landfestar voru leystar og myndir náðust þegar óperukallinn bjargar hetjulega kjaftstóra félaga sínum, myndir sem voru í svo mikilli nærmynd að það var nánast hægt að greina fílapenslana á nebbanum á honum. Tilviljun? Ég veit ekki. Sé fyrir mér eftirfarandi samtal:

Óperukall: Djö$%& bjáni varstu að gaspra þessu með sundið, ég var fullur þegar ég sagði þetta
Kjaftstóri félaginn: amm....sorrý
ók: þú verður bara að redda mér úr þessu svo ég líti út sem töffarinn
kf: okey, þú bara bjargar mér úr sjávarháska á miðri leið og þá kemur þú út sem hetjan
ók: ja det er mycket bra!

Húmoristar þessir Norðmenn.

26.4.2005

Þetta blessaða fjórða sæti...sorrý stelpur!

Það er eins og að bera í bakkafullan lækinn að vera að tala enn einu sinni um fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni. Eins og lesendur síðunnar vita, þá eru Everton í því sæti sem stendur og ef þeir enda í því myndu þeir undir venjulegum kringumstæðum fara í umspil um að komast í riðlakeppnina í Meistaradeildinni á næsta tímabili þar sem alvöru peningar eru í boði fyrir liðin. Nú vill svo skemmtilega/leiðinlega til að Liverpool (sem eru í 5. sæti og vonandi enda þar) gætu sett strik í reikninginn með því að vinna Meistaradeildina og fara inn sem fjórða liðið á næsta tímabili (á eftir Chelsea, Arsenal og ManU). Everton er búið að eiga algert draumatímabil eftir að hafa daðrað við falldrauginn mörg undanfarin ár og í sannleika satt er liðið að spila yfir getu. Að öllum líkindum verður næsta tímabil ekki svo gott. Klúbburinn kannski ekkert svo blankur (eftir söluna á Rooney) en er alls ekkert ríkur en það er erfitt að fá stór nöfn til liðs við klúbbinn. Peningar af Meistaradeildinni gætu hjálpað liðinu sem og gætu leikir gegn bestu liðum Evrópu freistað einhverra góðra leikmanna.

Ef Liverpool vinnur Meistaradeildina þetta árið, finnst mér það skítt ef þeir yrðu teknir fram fyrir Everton á næsta ári sem ríkjandi meistarar. England fær ekki aukasæti í keppninni ef Liverpool vinnur hana en endar í 5. sæti. Fifa er búið að ákveða að ríkjandi meistarar þurfi að fara í gegnum undankeppni (Brasilía, ríkjandi heimsmeistarar, tekur þátt í undankeppni HM) og það þarf að vinna fyrir því að komast í lokakeppni. Veit ekki af hverju Uefa hefur ekki tekið upp sömu stefnu, finnst nú að þessi samtök ættu að vera samstíga. Þau eru það reyndar sjaldnast, sbr. hringl með hvenær er venjuleg framlenging eða silfurmark. Alvöru Madríd vann keppnina árið 2000 en enduðu í fimmta sæti þannig að Alvöru Zaragosa sem endaði fjórða sæti var dæmt í Uefa cup, sem er frekar ósanngjarnt.

Þetta eru svosem bara pælingar um það sem gæti gerst, Liverpool gæti alveg endað í 4. sæti í deildinni eftir allt saman. Ég er reyndar farinn að hallast að því að Liverpool geti jafnvel komið á óvart og unnið Meistaradeildina. Ef það gerðist og Everton "ynni" fjórða sætið, þá finnst mér að Everton ætti að fara í keppnina en ef það mætti andstöðu hjá FA, ætti að vera spilað einvígi heima og að heiman. Það yrði "the mother of all Mersey derbies".

25.4.2005

Helgin

Flott helgi að baki. Bongóblíða á laugardaginn sem kallaði á að það væri setið úti með bjór. Við Mark elduðum svo á laugardagskvöldinu og fengum góða gesti í heimsókn. Fór svo í gærkvöldi á tónleika á rokkbúllunni Nice'n Sleazy's að hlusta á Jose Gonzales, sem er sænskur (þrátt fyrir mjög ósænskt nafn og útlit) trúbadúr með skrýtna rödd en hrikalega góður að plokka gítarinn.

Fótboltaúrslitin voru frábær um helgina. Everton gerði einungis jafntefli en Liverpool tapaði og Bolton gerði jafntefli. Baráttan um 4. sætið í ensku er hrikalega spennandi. Mínum mönnum nægja 2 sigrar í 4 leikjum til að tryggja sér Meistaradeildarsætið. Þeir eru svoooooo nálægt því að maður færi bara að gráta ef þetta klikkar. Vitið þið hins vegar hverjir eru að gráta núna? Júbb....rangers aularnir. Celtic komið með 5 stiga forskot í deildinni eftir að hafa unnið leikinn við rangers í gær. Ég hlakka til að núa öllum rangers mönnum hérna um nasir á eftir. Juve náði einnig að vinna og heldur einvíginu við Milan áfram.

Umsókn okkar varðandi miða á HM var ekkert sérlega árangursrík, 3 miðar í hús af 30. Vissi að ég hefði jinxað dráttinn. Damn you 15. apríl! Allavega þarf að kokka upp eitthvað plan B. 

22.4.2005

MSN

Að spjalla við vini og ættingja á msn þegar maður á að vera að vinna er góð skemmtun. Ég náði mér í nýjasta msn-ið (version 7.0) í gær og í þeirri útgáfu er hægt að tengja það beint við Windows Media player (eða Winamp og  iTunes) og þá er hægt að sjá hvað maður er að hlusta á hverju sinni. Nú er komin pressa á mann að vera hipp og kúl í tónlistarvali nú þegar þetta er fyrir framan augun á fólkinu á msn listanum mínum. 

Maður verður bara að laumast í að hlusta á Eros Ramazzotti og Britney Spears og svona þegar maður er off-line 

Ýmislegt

Fór á ítalskt bíó í gær og sá ekkert sérlega upbeat mynd um heimilisofbeldi.

Annars mun Glasgow fara á hvolf í síðasta sinn á þessu seasoni um helgina, síðasti Old Firm leikurinn og jafntefli væri bara fín úrslit fyrir Celtic. Maður fer eitthvert til að horfa en ætli maður haldi sig ekki frá miðbænum annað kvöld.

Undergroundið er í verkfalli alla helgina, þannig að maður verður að ganga í bæinn...sem er ekkert spes.

Allt að koma með finite element greiningu. Kominn með 9 bein af 15 og fæ lausnina til þess að vera samleitna. Nú á ég bara eftir að bæta við nokkrum skorðum sem munu standa fyrir liðbönd og setja rétt jaðarskilyrði á. Reyndar er dáldið grunsamlegt hvernig þriðji metacarpal hreyfist (þessi efst fyrir miðju), það ætti ekki að vera svona mikil færsla á honum. Það er sko allt að gerast.....spennó! Heyri ekkert frá Ohio, hvort þeir vilji fá mig eða ekki. Kanarnir taka sér sinn tíma í þetta.