5.10.2006
Tónleikarnir í gær voru góðir. Hann hefur svaka fína rödd sá blindi. Fyrir hlé voru klassískar aríur en eftir hlé var svona suðræn stemming...besa me mucho fyrir þá sem það þekkja. Fannst nú skemmtilegra að hlusta á óperuaríurnar, þar sem allar fimmtugu húsmæðurnar fóru á flug þegar hann byrjaði á einhverjum Iglesias slögurum. Svosem ekkert að því, enda syngur hann mjög vel...en mér finnst þetta vera dáldið eins og hamborgari sem er búið að upgrade-a, búið að setja hann í sérbakað brauð, blanda kryddjurtum í kjötið, skrautskera grænmetið og frönskurnar....posh en borgari engu að síður.
Það fer óendanlega mikið í taugarnar á mér núna að muna ekki hvað arían hét sem hann söng í dúett með barítón söngvara. Fannst eins og ég hafði séð setlista og þetta væri úr Cavalliera Rusticana en svo er held ég ekki, er búinn að hlusta á þau sýnishorn (eða hlustunarhorn) sem ég hef fundið á netinu. Man alveg aríuna, þetta er mjög frægt lag og hefur verið notað 1000 sinnum í bíó eða auglýsingar og eflaust þekkja þetta flestir lesendur síðunnar. Þetta er svona lalalala-dadadadadada....en erfitt að finna matchings á google með þessum leitarorðum. Ætli að næsta kynslóð google geti þekkt lagabúta sem maður myndi söngla fyrir það?
4.10.2006
Manchester
Ferðin til Manchester heppnaðist í alla staði mjög vel. Fórum út að borða á laugardagskvöldinu og á völlinn á sunnudaginn. Leikurinn náði aldrei að vera spennandi sökum yfirburða Man Utd. Newcastle menn voru aldrei með og áttu varla skot á markið. Hins vegar voru stuðningsmenn Newcastle vel með á nótunum og voru í svaka stuði í "away stand". Menn segja að það sé alltaf langmesta stuðið á St. James's park. Ronaldo var yfirburðamaður á vellinum. Hann fékk að hlaupa upp kantinn óáreittur og taka "stepover" hægri vinstri án þess að varnarmenn Newcastle réðu við neitt. Magnaður leikmaður þessi skratti.
Við Christina löguðum aðeins "celeb-spottin" hjá okkur um helgina. Á veitingastaðnum taldi hún sig þekkja tvær sápuóperu"stjörnur" sem ég hef ekki hugmynd hver eru (man það að önnur er í coronation street) og á flugvellinum löbbuðu saman Ulrika Johnson og David Gray. Þau löbbuðu framhjá okkur þar sem við sátum og var maður næstum því búinn að biðja Greyið hann Dabba um að vera á mynd með okkur, þar sem hann er í sæmilegu uppáhaldi hjá okkur Christinu (hann er kannski ekkert aðalrokkarinn en á margar góðar plötur....var einmitt að hlusta á white ladder um daginn sem er alger snilld) en maður guggnaði á því. Þetta fólk er eflaust dauðþreytt að láta taka myndir af sér með einhverjum vitleysingum sem kaupa plöturnar þeirra...eða lesa slúðurblöðin þegar þau sofa hjá fyrrum landsliðsþjálfara Englendinga og láta berja sig af fyrrum Liverpool spilara.
Tónleikar í kvöld með blinda Ítalanum....nei við erum ekki að fara að sjá Massimo Taibi á sviði heldur Andrea Boccelli.
28.9.2006
Allt gott héðan síðan síðast. Förum til Manchester um helgina að hitta pabba og co. Stefnan sett á leik Manchester og Newcastle á sunnudaginn og svo aftur hingað um kvöldið.
Celtic gerðu góða hluti á miðvikudaginn og náðu í 3 stig gegn Köben. Þetta var alger skyldusigur og nauðsynlegt að hala 3 stig inn. Næst eru tveir leikir gegn Benfica...4 stig þar og Celtic eru í góðum málum. Celtic unnu einnig rangers um helgina þar sem Tommy náði aðeins að sanna sig með einu marki. Nauðsynlegt fyrir hann að gera það eftir mistökin gegn ManU
21.9.2006
Ofurhugar
Veit ekki af hverju maður verður hissa þegar þessir ofurhugar stórslasa sig eða drepa. Skemmst er að minnast Steve Irwin sem böggaði krókódílana (skv. South Park) og var á endanum drepinn við þessa iðju sína eins og flestir vita. Í gær stórslasaði sig svo annar umjónarmanna Top Gear þegar hann velti bíl/þotu á hjólum á 300 mílna hraða á klukkustund sem er c.a. 480 km/h. Alltaf verður maður jafnhissa, finnst stundum eins og þessir ofurhugar séu untouchable en svo er náttúrulega ekki. Ég hef mjög takmarkað vit á bílum en mér finnst Top Gear alveg Top þættir. Vonandi að þessi Hammond gæji nái sér nú. Miðað við fífldirfskuna hjá þessum köllum er ekkert skrýtið að einn daginn muni þeir ganga of langt. Hvar ætli Arne Aarhus sé núna...ofan jarðar eða neðan? Það er ekkert fyndið við að horfa á mann henda sér fram af byggingum í fallhlíf og fylgjast með því þegar hún opnast ekki eins og gerðist eitt sinn hjá Arne sem slapp með skrekkinn. Hins vegar var óborganlegt þegar hann fór svo að útskýra eftirá hvað hafi gerst með íslensk/norska hreimnum sínum. Sko það sem gerðist var...
19.9.2006
Ekki mikið að gerast. Það verður áhugaverður þáttur á BBC í kvöld sem fjallar um spillta umboðsmenn fótboltaspilara og hvernig stjórum liðanna séu boðnar formúgur fjár ef þeir muni liðka fyrir félagsskiptum. Sam Allardyce og 'Arry Redknapp (Guardian talar alltaf um 'Arry í staðin fyrir Harry en hann er smá cockney...mér finnst það alltaf pínu fyndið) eru víst eitthvað að svitna yfir þessu.
Farinn að kafa aðeins í hinar og þessar greinar sem fjalla um finite element módelleringar af úlnliðnum. Skrýtið hvernig sumir setja álagsskilyrðin, sumir setja 100 N, aðrir 1000 N en við sem mældum þetta og gerðum biomechanical greiningu á kröftunum í liðamótunum fáum 1800 N (sem er summa stærðar 3víðs kraftvektors á alla putttana). Þetta veldur mér smá hugarangri. Gróflega má segja að stærra beinið í upphandleggnum sé 400 mm^2 að flatarmáli og þá má leiða að því líkum að spennurnar séu eitthvað í kringum 4-5 MPa. Samt eru einhverjar greinar sem segja að 100 N framkalli sömu spennur og svo er enn aðrar greinar sem segja að 1000 N framkalli 30 MPa spennur í beininu. Skil þetta ekki.
15.9.2006
Það er orðinn fastur liður að fara einu sinni í viku og fá okkur indverskan mat í hádeginu. Indverskur matur er alveg með eindæmum góður. Í gegnum Shiv fáum við góðan afslátt af suður-indverskum mat á einum stað og norður-indverskum mat á öðrum. Maður er því vel mettur núna. Kokkarnir á staðnum gáfu mér blöndu sem samanstendur af þurrkuðum kókos með ýmsum kryddum. Þarf að nota þetta í eldamennskunni bráðum.
Ekkert sérstakt planað um þessa helgi. Við alla þá heima sem fara á Nick Cave tónleikana á laugardaginn segi ég bara góða skemmtun. Við Christina sáum hann hérna í febrúar og hann var stórkostlegur. Nick er alger snillingur og ég hef verið að hlusta töluvert á hann upp á síðkastið.
14.9.2006
Era colpa tua Tommy!

Tommy tekur sökina á sig fyrir tapinu og bara vonandi að hann mæti betur stemmdur í leiknum gegn FCK sem er möst win leikur. Þetta var annars hörkuleikur en varnarleikur Celtic var engan veginn nógu góður. Sanngjarn sigur ManU svona þegar á heildina er litið. Boruc var frábær í markinu en ég ætla að hafa sem fæst orð um svindlarann Giggs. Ömurlegt hjá honum. Nánari umfjöllun um leikinn má sjá á BBC-Akranes vefnum
13.9.2006
Æfingar
Margir vinir mínir eru miklir hlaupagikkir og á yngri árum hlupum við nokkrir saman í Háskólanum, fórum niður Suðurgötu, inn Aragötu, niður meðfram stúdentagörðunum, upp hjá flugvellinum og meðfram honum, yfir á Ægissíðu, inn Sörlaskjólið, snúið við hjá KR blokkunum og tilbaka eina af þessum Melagötum að hringtorginu við Hótel Sögu og yfir bílastæðin og að íþróttahúsinu. Þetta voru helvíti skemmtilegar æfingar með Baldri, Geira og Leif. Á föstudögum fórum við svo með bjór í gufubaðið niðri og stundum náðum við að draga fleiri á föstudagsæfingarnar og náðum í gott partý í gufunni. Baldur, Geiri og Leifur voru nú alltaf töluvert betri hlauparar en ég sjálfur og hafa náð að bæta sig mikið, veit allavega að Geiri kláraði heilt maraþon fyrir nokkrum árum og Baldur hefur tekið hálft (að mig minnir...hafi hann tekið heilt, er hann beðinn afsökunar). Ég hélt nú ekki áfram að hlaupa eftir HÍ og hef fékk hreyfinguna með því að spila fótbolta. Svo lenti maður í bakmeiðslunum fyrir tveim árum og hef eiginlega ekki borið mitt barr síðan. Christina er einstaklega góður kokkur og mér finnst miklu skemmtilegra að borða matinn hennar heldur en að hlaupa og af þeim sökum eru margar flíkur (sérstaklega buxur) orðnar þröngar á mér og ég verð hálf þunglyndur þegar ég fatta að ég þurfi að kaupa mér flíkur í L eða XL (reyndar er mér tjáð að Pringle séu alltaf með litlar stærðir) og nú er nóg komið! Ég stend ekki í svona vitleysu. Aðrir vinir mínir (ég á marga vini) tóku sér tak og hlupu 10km í Reykjavíkurmaraþoninu og náðu bara nokkuð góðum tíma, annar vinur þurfti nú ekki að taka sig taki og lenti í öðru sæti í 10km á rétt rúmum 30 mín sem er náttúrulega bara kreisí. Ég hef gaman að keppni og nú er standardinn settur. Er byrjaður að hlaupa aftur og er búinn að taka 10 km nokkrum sinnum (á mjög slöppum tíma...eða kringum 60 mín) og æfingaprógram hefur verið sett upp. Maður reynir að komast 3-4 sinnum í viku og svo er bolti einu sinni. Markmiðið er að taka 10 mílna hlaup í Portsmouth í lok október. Mér finnst ennþá leiðinlegt að hlaupa, þegar maður tekur 10km er ég alltaf vel þreyttur kringum 4 km (maður hugsar...meeeeen þetta er ekki einu sinni hálfnað og mér leiðist og er þreyttur) og svo aftur kringum 7 km, en ég er ekkert svo þreyttur þegar þetta klárast, gæti eflaust tekið þetta hraðar. Gallinn er sá að maður er alltaf að hlaupa á hlaupabretti en það er aðeins öðruvísi en að hlaupa á malbiki. Annar gallinn við þessar æfingar að ég svitna alltaf eins og Zidane eða Neville Southall (muna ekki allir hversu sveittir þeir voru alltaf? Skildi aldrei af hverju snillingshlunkurinn í Everton markinu var alltaf sveittasti maðurinn á vellinum) eftir sturtu og maður á leiðinni í strætó. Ekki gaman þegar lekur af manni svitinn í troðnum strætó.
Í dag ætla ég ekki á æfingu, fékk mér cappuccino í hádeginu og ætla að hitta Mark á pöbbnum og horfa á ManU Celtic og fá mér bjór. Jájájájá ég veit það er ekki gott að drekka bjór þegar maður er í átaki en þessi leikur kallar á bjór. Svo er ég ekkert búinn að drekka neitt mikinn bjór upp á síðkastið.
11.9.2006
Búið að vera mikið í gangi hérna, fjölskyldan hennar Christinu var hjá okkur um helgina og við fórum ásamt nokkrum vinum á Proms in the Park tónleikana. Þetta eru tónleikar á vegum BBC og voru haldnir samtímis í nokkrum borgum í Bretlandi. Þeir voru haldnir í Glasgow Green garðinum og við gerðum smá picnic úr þessu og allir komu með eitthvað að borða og drekka. Mér fannst nokkuð fyndið að það var gert töluvert mál úr því að besti básúnuleikari heims myndi leika einleik. Hann spilaði hornkonsertinn eftir Mozart og svosem gerði það bara sæmilega en Heimsmeistaramót básúnuleikara fór eitthvað framhjá mér. Spurning hvern hann hafi unnið í úrslitum.
Ekki spillti fyrir að Everton rústaði Liverpool á laugardeginum. Alger yfirburðasigur og mínir menn í toppbaráttunni. Juve náði einungis jafntefli gegn Rimini í seriu B. Nokkuð ljóst að þeir verða að fara að vakna vegna þess að flest liðin munu eflaust vera vel stemmd að spila á móti Juve og leggja aðeins harðar á sig en venjulega til þess að ná úrslitum gegn þeim. Nokkuð ljóst að þetta voru 2 stig töpuð og menn verða að átta sig á að það má ekkert klikka ef þeir ætla sér upp. Það var víst Boumsong sem átti sök á markinu, hann greinilega tekur upp þráðinn þar sem hann skildi við hann í Newcastle.
7.9.2006
Ég þoli ekki Dani!
Hvenær ætlum við eiginlega að vinna þá í fótbolta? Þetta er alveg óþolandi að tapa alltaf fyrir þeim. Ekki gekk betur fyrir mig að fylgjast með leiknum í gær, þar sem ruv.is var í lamasessi meðan leikurinn var og því engin leið að ná lýsingu frá Laugardalsvelli....einnig óþolandi. Mér finnst frekar skítt að Ríkisútvarpið geti ekki haldið úti einni vefsíðu.
Spilaði fótbolta í gær með nokkrum Norður Írum og það var gaman að spjalla við þá um leikinn á laugardaginn, en á leiðinni heim náðum við lýsingunni á lokasekúndunum í Belfast, þeir voru frekar sáttir. Skotar gerðu vel og unnu og eru með fullt hús stiga eftir 2 leiki. Næsti leikur er gegn Frökkum. Mínir menn frá Ítalíu eru með einhverja timburmenn frá HM....kannski svosem skiljanlega. Hef þó fulla trú á því að þeir komist upp úr riðlinum.
4.9.2006
Áfram Ísland!
Þetta voru æðisleg úrslit á laugardaginn, ég var að reyna að ná lýsingu á netinu af leiknum en gekk ekki, treysti á Rás2 í því sambandi en fattaði svo að Sýn er með útileikjaréttinn. Maður varð því að láta sér nægja refresh á mbl.is með jöfnu millibili. Ég treysti þó á Rúv fyrir miðvikudaginn. Ég næ reyndar ekki öllum leiknum þar sem ég er að fara að spila fótbolta með nokkrum N-Írum og verður það gaman að spjalla við þá um leikinn. Svo er bara að vona að menn ofmetnist ekki og brotlendi gegn Dönum. Jafntefli væri æðislegt. Í dag hlustar maður bara á Baggalút....
...hinn efnilegi Eiður Arnórsssoooooooooon
1.9.2006
Þá er þessum blessaða félagsskiptaglugga lokað og menn geta hætt að pæla í hverjir fara hvert. Held að Arsenal hafi gert ágætis skiptidíla og losað sig við 2 leiðindapúka sem ekki nenntu að spila fyrir klúbbinn og fengu 2 góða spilara í staðinn. Fyndið að Theo Walcott er núna eini Englendingurinn í hópnum. Þessi viðskipti West Ham voru athyglisverð, ef satt reynist að Abramovic hafi fjármagnað þetta í gegnum þetta fjárfestingarfélag MSI sem þessi breski Írani á meirihluta í, finnst mér það nokkuð alvarlegt. Verður næsta skref Romans og Kenyons að kaupa upp alla þá sem ManU, Liverpool, Arsenal og Everton eru á eftir til þess að halda þeim liðum niðri og setja þá leikmenn í minni klúbba sem Chelsea stafar minni ógn af.
Mig langar óheyrilega mikið að fara á Meistaradeildarleik með Celtic. Engir miðar fóru í almenna sölu og menn eins og ég sem ekki hafa ársmiða verða að leita annarra leiða til þess að fá miða. Einn braskari sem ég hafði samband við segist kannski getað reddað miðum í away stand á Celtic Park en þeir miðar munu vera dýrir. Nenni eiginlega varla að borga formúgu til þess að sitja í horninu á vellinum og geta ekki fagnað þegar og ef Celtic skorar. Hið versta mál.
31.8.2006
Eitthvað finnst mér lítil umræða í fjölmiðlum varðandi Norður Íra leikinn á laugardaginn. Það virðist vera sem allir séu með öndina í hálsinum að bíða eftir okkar fyrrum herraþjóð til þess að geta horft með aðdáunaraugum á meðalgóða spilara rústa okkur í fótbolta. Svo virðist einnig sem allir "Frímenn" landsins muni verma bossana í bestu sætunum á Laugardalsvellinum og kannski þeir fái jafnvel kaffi og samlokur (eða Tuborg og smörrebröd) í hálfleik í boði KSÍ, meðan alvöru aðdáendur landsliðsins (þeir sem fara á völlinn jafnvel þegar Andorra kemur að spila í skítakulda) er sagt að þeir geti keypt miða til endanna á vellinum. Það þarf náttúrulega ekki að taka fram að Frímennirnir eru of fínir til þess að mæta á "Andorra" leikina, en þegar Danirnir koma gerast þeir miklir fótboltaspekúlantar og rifja upp hvað það var gaman síðast þegar þeir voru svo hrikalega ligeglad á Strikinu og hvað Michael Laudrup var góður. Meðan allir bíða eftir að sjá skallann á Gravesen, finnst mér eins og allir gleymi því að það er leikur við Norður Íra á laugardaginn. Við erum í vonlausum riðli og munum aldrei vinna Spánverja, Dani eða Svía, að grísa á eitt eða tvö jafntefli í þessum 6 leikjum væri gott. Norður Íra leikurinn er alger botnbaráttuleikur og í raun og veru lykilleikur fyrir okkur, við verðum að ná úrslitum gegn þeim. Fjórða sætið í riðlinum hlýtur að vera krafa, ef við komumst hærra væri það alveg stórkostlegur árangur. Legg því til að Mogginn hætti að byggja upp stemmingu (það verður engin stemming þar sem það verða bara einhverjir bankahvítflibbar sem hafa komið til Danmerkur í algerum meirihluta) fyrir miðvikudaginn og fari að fjalla aðeins um næsta leik.
Mikið verð ég feginn þegar þessi félagsskiptagluggi lokar á miðnætti í kvöld. Ég nenni ekki að lesa meira um Cole og Gallas. Einnig verður fínt að vita hvaða leikmenn Juve munu vera með fyrir næsta tímabil.
30.8.2006
Fór á nýju myndina hans Almodóvars um helgina, Volver. Ég hafði mjög gaman af myndinni eins og flestum þeim Almodóvar myndum sem ég hef séð. Mæli með þeirri mynd, ef ekki nema fyrir athyglina sem barmurinn á Cruz fær.
29.8.2006
He's big, he's strong and his name is far too long...
...Jan Vennegoor of Hesselink
Hann kom inná í sínum fyrsta leik um helgina og skoraði sigurmarkið. Celtic virðist einnig vera að fá skallapopparann Gravesen sem er of lélegur fyrir Capello. Sjáum til hvað hann getur hérna í stórkarlafótboltanum. Hann var nú alltaf góður fyrir Everton, þótt hann væri danaskratti. Hann gæti eflaust vel fúnkerað með Neil Lennon að tækla á miðri miðjunni. Petrov er hins vegar farinn til Villa og er það ansi stórt skarð sem þarf að fylla. Petrov er alger snillingur og það var bara tímaspursmál þar til að hann færi í sterkari deild. Við fengum þó góðan pening fyrir hann.
Það var ekki bara maðurinn með langa nafnið sem kom inná í sínum fyrsta leik og gerði sigurmarkið, það gerði einnig hann Eiður Smári með Barcelona. Virkilega gaman að sjá hvað hann fer vel af stað með Barca og ef hann heldur svona áfram þá verður hann fyrsti maður inn í liðið með Ronaldinho. Reyndar eru slúðurblöðin að segja frá einhverju ósætti milli Rijkaard og Ronaldinho og Chelsea og Milan séu að fylgjast með stöðu mála. Ég vissi ekki af ósætti, var hann ekki bara meiddur? Held nú að þetta sé bara einhver vitleysa í blöðunum.
28.8.2006
Stones
Tónleikarnir á föstudaginn voru alger snilld. Flugeldar og læti og svaka pródúksjón. Svakalega er Mick í góðu formi, var á fullu á sviðinu nánast allan tímann. Blöðin sögðu þó að þegar Keith tók nokkur lög, hafi Mick farið baksviðs og fengið smá súrefni, veit ekki hvað er til í því. Þeir tóku alla helstu slagarana en þó saknaði ég Gimme shelter. Veit ekki alveg við hverju maður átti að búast, svosem vissi nokkurn veginn að þetta yrði svaka show en þetta var mun skemmtilegra en ég hafði búist við. Nú getur maður allavega tikkað við boxið að vera búinn að sjá Stones spila. Skotarnir eru alltaf hressir og undir lokin var einn gamall, drukkinn og feitur kall með tattú og eyrnalokk sestur við hliðina á Christinu og var að reyna að starta samtali. Hún var ekki par hrifin af þessum aðdáanda og ég varð að halda í hendina á henni svo að myndi ekki kýla kallinn. Blöðin í dag sögðu svo frá því að Keith verður kannski sektaður um 50 pund, vegna þess að hann reykti eins og strompur á sviðinu en reglur hér í Skotlandi banna allar reykingar á stöðum þar sem fólk kemur saman, tónleikum, pöbbum, opinberum byggingum og svo framvegis. Held samt að Keith hafi ekki miklar áhyggjur af þessu, en hefur hann komist í kast við lögin áður.
25.8.2006
Dráttur
Þetta var alveg hörkuriðill sem Celtic lentu í og fyrsti leikurinn er á Old Trafford....smá reality check þá, eins gott að United mæti ekki með varaliðið sem rústaði okkur 3-0 í æfingaleik í sumar. Eftir það er Köben heima. Ef Celtic ætlar að eiga einhverja möguleika á því að komast áfram hljóta 6 stig gegn dönunum að vera krafa og 4 stig gegn Benfica og reyna að klóra jafntefli heima gegn Manjú. Svo vonar maður bara einnig að Eiður Smári skori þrennu gegn Chelsea og sendi hrokafulla Portúgalanum skilaboð, reyndar var Mourinho ekkert að afsaka tapið gegn Middlesborough í vikunni, menn héldu að rakarinn sem snoðaði hann hafi tekið hluta af heilanum með....þetta var mjög ólíkt honum.
Ég skal ná að komast á að minnsta kosti einn Meistaradeildarleik í haust, kannski liggja einhverjir hospitality miðar á glámbekk gegn Manjú, en þeir eru af dýrari týpunni og maður yrði að punga út smá formúgu. Ég fór ekki á neinn Celtic leik á síðasta tímabili sem er náttúrulega bara skandall, þannig að ég á inni einn eða tvo núna.
Rolling Stones í kvöld, engar fréttir af Keith eru góðar fréttir þannig að krumpukallinn ætti að mæta á sviðið og taka nokkur riff.
war chiiiiiiiiiiiildren...it's just a shot away
24.8.2006
War of the roses
Umræða um rósarstríðin kom upp í síðustu viku í Cambridge og við vorum að spá hvorir voru hvað....rauðir eða hvítir. Séu menn í vafa með það má benda á að í merki Blackburn rovers er rauð rós, en Blackburn er í Lancashire (Lancaster) og í merki Leeds United er hvít rós en Leeds er einmitt í Yorkshire. Alltaf hefur fótboltinn svör. Everton náðu nú ekki að vinna Blackburn í gær en náðu stigi og eru nú fjölmörgum stigum á undan Liverpool og með betri markamun.
Drátturinn í meistaradeildina er svo á eftir, Celtic í potti 2 og verða vonandi heppnir með andstæðinga svo það sé sjens á að komast áfram.
23.8.2006
Það var vel stappað í Edinborg útaf þessu festivali. Við mættum í tíma og fengum okkur að borða og náðum að hitta Halla sem er á förum til Englands í einn drykk. Við Christina mælum með búllunni "Monster Mash" sem sérhæfir sig í pulsum með kartöflumús....snilldarstaður, búllan er rétt hjá styttunni af hundinum (greyfriars bobby) fyrir þá sem þekkja staðarhætti í Edinborg.
Christina keypti nafnaplatta til að setja á útidyrahurðina, þannig að það er núna officialt að Williams og Gíslason búa á Balfour street númer 15.
Annars lítið bara, maður bara farinn að hlakka til að sjá gamlingjana í Stones á föstudaginn er aðeins að hita upp með því að hlusta á þá. Langt síðan ég hef hlustað á Exile on main street.....þvílík ofsa plata
21.8.2006
Komin aftur upp til Glasgow og síðan farin að virka aftur. Þetta var hið fínasta frí, vorum fram á fimmtudag í Cambridge og fórum þaðan til Portsmouth. Það var ekkert svo mikið vesen að fljúga á sunnudeginum en Easy jet skuldar okkur 30 mínutna svefn. Þeir höfðu beðið fólk að mæta snemma sem við og gerðum en hins vegar opnaði "check-in" ekki fyrr en á tveim tímum fyrir brottför...klukkutíma síðar en þeir höfðu sagt. Það helsta markverða var afmælisdinner hjá ömmu í St. John's College, afternoon tea í Mayfair í London og þaðan að sjá Mary Poppins, rölt um Cambridge, farið til Portsmouth, keyrt til Maidstone í Kent að heimsækja fjölskylduvini Christinu (ég sá um að keyra aðra leiðina pínulitla Mini-inn hennar tengdó....snilldarbíll) og að lokum kíktum við í búðirnar.
Planið í kvöld er að kíkja á Reginu Spektor í Edinborg og svo eru Rolling Stones á föstudaginn, þannig að það er nóg í gangi.
Enski boltinn farinn að rúlla aftur og Everton náttúrulega komið uppfyrir Liverpool....allt eins og það á að vera. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu tímabili hjá þeim bláu. Celtic gerði ekkert alltof vel, náði bara jafntefli við Inverness, en þeir eru þó bara stigi á eftir rangers sem eru tímabundið á toppnum.
Hvað var Henke að gera? Nú er sænskan mín ekkert alltof góð en mér heyrist hann segja að varnarmaðurinn hafi eitthvað verið að halda í hann...og svo slúttar hann á því að segja að hann hafi nú ekki kýlt hann neitt svakalega fast.
12.8.2006
Planið hjá okkur Christinu er að fara til Cambridge á sunnudaginn með því að fljúga til Stanstead. Það virðist vera sem flugsamgöngur muni komast brátt í eðlilegt horf en Easyjet er farið að flúgja til London flugvallana frá og með deginum í dag. Þetta er nú meira vesenið. Amma verður áttræð á þriðjudaginn og er allri fjölskyldunni stefnt til Cambridge í partý. Planið er svo að fara til Portsmouth eftir það og snúa aftur hingað á sunnudaginn eftir viku.
Ég hef verið töluvert að hlusta á Bítlana í kjölfarið af Revolver afmælinu, maður tekur alltaf reglulega bítlatímabil og eitt þeirra var í síðustu viku. Þessar plötur þeirra eru hver annarri betri en einhverntímann setti ég niður 3 uppáhaldsbítlaplöturnar mínar. Þær eru:
| Sgt. Pepper's lonely hearts club band |
| Revolver |
| Hard day's night |
Mér finnst Sgt. Pepper og Revolver í algerum sérflokki....þvílík snilld í hverju lagi. Lenti í aðeins meira veseni með að velja þriðju plötuna....ég hef alltaf verið mjög hrifinn af Please please me, Let it be og fyrri plötunni af hvíta albúminu en hjá mér hefur Hard day's night vinninginn án þess að ég geti réttlætt það eitthvað nánar.
Topp 5 bítlalögin
| A day in a life er uppáhaldsbítlalagið mitt, alger epík, psychadelic John og realistic Paul saman í einu og sama laginu. Einnig hef ég endalaust gaman af því að heyra um upptökuferlið á laginu þegar hljómsveitin spilar skalann frá lægstu mögulegu nótu til þeirrar hæstu. Textinn frábær um Guinness erfingjann sem dó í umferðarslysi og einhver hélt að væri úr lávarðadeildinni og hversu margar holur þarf til að fylla Albert Hall |
| Hey Jude |
| Tomorrow never knows |
| For you blue....Elmor James has got nothing on this baby....svalt |
| I'm the walrus |
Ég hef aldrei verið sérstaklega mikill aðdáandi Beckhams, hann er góður og allt það en hann er enginn snillingur að undanskildum krossunum, aukaspyrnum og 40m sendingunum sem fáir í heiminum gera betur en hann. Verð nú samt að segja að mér finnst ómaklega að honum vegið með því að taka hann algerlega út úr hópnum með þeim skilaboðum að hann muni að öllum líkindum ekki spila aftur. Frá fyrirliða og í að komast ekki einu sinni í hópinn er mikið fall
Við komum aftur tilbaka eftir viku, þangað til verður lítið um færslur....með þessum hugleiðingum kveð ég að sinni
10.8.2006
Úfff þetta er meira vesenið með flugin í UK í dag, við Christina eigum bókað flug á sunnudaginn. Maður verður að mæta tímanlega. Sá það nú á BBC á netinu að seinkanirnar og umferðin í Glasgow séu ekki eins miklar og á Heathrow. Reyndar höfum við Christina talað um það hversu slakt öryggið hérna er, þegar við höfum flogið til London þá getum við tjékkað inn með því að nota kreditortið sem var notað til að kaupa miðann, kreditkort eru engin persónueinkenni og maður hefur stundum ekki einu sinni þurft að taka upp vegabréfið.
9.8.2006
Frí
Við Christina fundum skemmtilegt frí auglýst....viku matreiðslunámskeið í Toskana héraði. Reyndar er þetta eitthvað blómaskreytinganámskeið líka en Christina er hrifin af svoleiðis, maður færi bara að gera eitthvað annað á meðan. Galli að þau rukka 1500 pund á kjaft.
7.8.2006
Tommy
Ekki kúluleiksgaldramaðurinn heldur skoskur þingmaður. Tommy ákærði slúðurtímaritið News of the world fyrir meiðyrði um að hann hafi tekið þátt í orgíum og sukki sem Neró og Kaligúla yrðu stoltir af. Þetta mál hefur fengið mikla umfjöllun hérna og fréttir á hverjum degi þar sem er sagt frá þegar samstarfsmenn hans sögðu frá ferðum hans í svallklúbba hér og þar. Vændiskona var leidd í stúku og hún bar vitni um að hún hafi borðað ís af bringunni hans áður en til kastanna kom og hún hafi fært sig upp á skaftið. Konan hans Tommy kom honum til varnar og sagði þetta algera lygi....af þeirri einföldu ástæðu að Tommy væri loðinn eins og api og því ekki nokkur leið að gæða sér á ís af bringunni. Nokkuð smellið svar hjá kellu. Tommy var allavega dæmt í hag nú á föstudaginn og er hann nú hylltur sem working class hero (hann er þingmaður sósíalíska flokksins) og hann líkti þessu sjálfur við að Gretna (annarar deildar lið í Skotlandi sem komst í bikarúrslitin í fyrra og þaðan í Evrópukeppnina) hefði unnið Real Madrid í úrslitum Meistaradeildarinnar...á vítum. Það sem eftir stendur er hins vegar að 18 manns sem sögðust hafa séð Tommy í klúbbunum eða verið með honum sæta nú rannsókn sökum meinsæris. Þetta er búin að vera hin besta sápuópera.
Talandi um Gretnu....þetta er lið sem einhver auðkýfingur hefur dælt peningum í og fengið uppgjafa skoska úrvalsdeildarleikmenn til að spila með, með þeim árangri að þeir rúlluðu upp 3. deildinni fyrir tveim árum, 2. deildinni í fyrra og voru að vinna um helgina 6-0 í fyrstu deildinni og virðist vera að þeir muni spila í úrvalsdeildinni að ári. Þeir komust í bikarúrslitin í fyrra gegn Hearts þar sem þeir töpuðu en þar sem Hearts komust í meistaradeildina fara Gretna í evrópukeppni félagsliða þar sem þeir voru heldur betur heppnir með drátt, fengu Derry City frá Írlandi. Maður hélt að þetta yrði eitthvað svona "íslenskt" hjá þeim...dragast gegn búlgörsku eða pólsku liði sem er ekkert sexy og það myndi svo slátra þeim, betra að vera slátrað af einhverju sexý liði. Þetta verður eflaust mjög áhugaverður leikur gegn Derry og bara vonandi að ævintýri Hans og Gret(n)u haldi áfram. Ekki einu sinni Grimms bræður gætu skrifað svona sögu
5.8.2006
40 ár af snilld
Fékk afmælis sms í nótt í tilefni af því að í dag eru 40 ár síðan Revolver plata Bítlanna kom út.....5.ágúst 1966. Að sjálfsögðu rennir maður plötunni í gegn í tilefni dagsins, langt síðan ég hef hlustað á Revolver og engin spurning að þetta er ein albesta platan hjá strákunum. Hversu gott er lagið Tomorrow never knows....þessi trommutaktur, "afturábak" sólóið og effektinn á röddinni hjá John....magnað
3.8.2006
Wall of flavour
Fór með Shiv, Gopal og fleiri indverjum úr deildinni á suður indverskan stað í hádeginu í gær. Gopal og Shiv unnu þarna og fá sérstakan afslátt og er þetta víst vikulegur fundur hjá þeim. Það var bara pantað á línuna réttur sem kallast biryani (bríjaní), einn með lambakjöti, annar með kjúklingi og annar grænmetis. Þetta er víst brasað þannig að hrísgrjónin eru elduð með kjötinu og öllum kryddunum þannig að þau draga í sig þeirra bragð. Í stuttu máli sagt er þetta alveg svakalega gott....þetta er svona eins og að hlusta á lög sem Phil Spector hefur pródúserað....wall of sound, þetta var svona wall of flavour. Með þessu var svo jógúrt sósa. Shiv er frá suðurhluta Indlands og hefur verið að fræða mig um hitt og þetta varðandi suður indverska matarmenningu og þá er munurinn á milli norður og suður Indlands jafn mikill og munurinn á breskri og ítalskri matarmenningu. Tandoori, Korma og nan og það allt er víst norður indverskt, en á suður indlandi er meira um fisk (svosem skiljanlega þar sem ströndin er þar) og svo er kókos mikið notað í eldamennsku þar sem er mér mjög að skapi. Þessi staður er í Merchant City hverfinu hérna rétt hjá og sá sem á þennan suður indverska stað rekur einnig norður indverskan stað sem er rétt hjá. Stefnan á miðvikudaginn er tekin á norður indverskt, gaman að fræðast um þetta allt frá strákunum. Eini gallinn er sá að maður borðar yfir sig og þá verður lítið um vinnu eftir hádegi þar sem maður verður dáldið sybbinn.
1.8.2006
Íslendingar í Glasgow
Ég las moggann á sunnudaginn þar sem var tekið viðtal við þrjá stráka sem búa í Glasgow og eru eitthvað að artífartast. Einn af þessum er í hljómsveitinni Ampop sem ég hef heyrt aðeins um en ekkert heyrt í, þeir voru með tónleika á King Tut's síðasta vetur/vor sá ég en fór ekki. Í greininni var minnst á nokkra aðra Íslendinga sem búa hérna í Glasgow. Maður er á einhverjum íslendingar-sem-búa í-skotlandi-póstlista en það virðist eins og þeir séu allir í Edinborg. Ég hef svosem ekkert haft mig í frammi að hafa uppi á samlöndum mínum hérna, enda farinn að slípast í enskunni og get haldið uppi samræðum við innfædda, en ég hef ekki heyrt af mörgum sem búa hérna. Christina sagði mér frá einni sem var að taka próf í Glasgow Uni, las einhversstaðar að það væri ein í tónlistarskólanum hérna. Geri nú ekki ráð fyrir að það séu margir Íslendingar hérna en gæti verið einhver reytingur hér og þar. Hjó eftir því í greininni að einn sagði hljómsveitina sína hafa spilað á "vinsæla veitingastaðnum The Goat", fannst það dáldið skondið að kalla The Goat veitingastað en þetta er bara ósköp venjulegur pöbb (reyndar sagðist annar hafa spilað þar með sínu bandi og kallaði það pöbb....kannski að blaðamaðurinn hafi verið að krydda aðeins).
Kannski maður reyni að hafa augun opin fyrir frekari tónleikum þessara manna hérna....svona ef maður hefur ekkert betra að gera.
31.7.2006
Við fórum í bíó á föstudaginn og sáum mynd sem heitir Renaissance og er teikmynd....svona hálfgert Sin City meets Minority report. Ég hafði svaka gaman af myndinni en Christina lagði sig aðeins. Mæli með frönsku endurreisninni. Höfðum ekki farið í bíó lengi og það virðist vera gósentíð framundan með nýrri mynd eftir Almodóvar. Eigum alveg eftir að sjá myndina um sjóræningjanna og súpermann, einnig langar mig að sjá mynd sem nefnist the wind that shakes the barley eftir Ken Loach og fjallar um uppgang lýðveldishersins á Írlandi.
Það var hörkufjör á kayak, Eric, vinur hennar Christinar fór með okkur upp til Loch Lomond og eftir buðum við honum í mat, fínasta veisla sem úr varð.
Tímabilið í Skotlandi byrjar eins og það síðasta endaði....Celtic í stuði á heimavelli, unnu Kilmarnock 4-1, ég var ekkert að nudda Mark upp úr þessum úrslitum.
28.7.2006
Ekkert að frétta héðan nema að það er búið að vera ansi heitt en nú er aðeins farið að kólna (þ.e. hitinn er farinn nær 20 stigunum), ég fúnkera ekki bara í svona hita.
Skoska deildin fer á fullt á morgun....Celtic spila við Kilmarnock, held að Mark hafi verið að svekktur að heyra að ég væri að fara með Christinu til Loch Lomond á morgun í staðinn fyrir að horfa á leikinn, svona er þetta....maður reynir að nýta tímann með frúnni í staðinn fyrir að horfa á boltann. Maður á þá bara inni nokkra leiki síðar á tímabilinu. Verð nú að viðurkenna að ég er enn sæmilega fótboltamettur eftir HM, óvenjulegt hversu deildin hérna byrjar snemma. Celtic hafa ekki komið nógu vel út úr undibúningstímabilinu, en mig minnir að ég hafi skrifað það einnig síðasta sumar en svo hrukku þeir í gang þegar alvaran tók við. Þeir eru í viðræðum við úkraínskan leikmann og manninn með langa nafnið, Jan Vennegor of Hesselink...nokkuð ljóst að slíkur leikmaður mun skerpa á búningasölu. Einnig er Wayne Bridge orðaður við liðið en okkur vantar nauðsynlega leikstjórnanda núna þegar Petrov er líklegast að fara frá liðinu. Agalegt að missa hann.
Þetta var nú meiri brandarinn með þessa áfrýjun á Ítalíu, Milan aftur í meistaradeildina (þótt reyndar að uefa eigi eftir að samþykkja það) og með 8 mínusstig....hvaða refsing er það eiginlega? Þeir eru núna alveg kandídatar að vinna deildina og spila í Meistaradeildinni, þannig að þetta er engin refsing fyrir þá. Juve urðu ekki svo heppnir, þótt að mínusstigunum hafi fækkað um 13 en þeir verða áfram í B, reyndar var maður sæmilega sáttur við að sjá Fiorentina og Lazio fara aftur upp í A, vegna þess að það er einfaldara fyrir Juve að spila gegn Lecce og Treviso í staðinn fyrir Fiorentina og Lazio og það eykur möguleikana á því að Juve fari beint upp. Ég var að lesa pistil frá einum sem sagði að í þeim leikjum sem dómararnir sem voru dæmdir og áttu að hafa hyglt Juve dæmdu, þá hefur hallað á Juve frekar en hitt. Þannig að ef Juve voru að reyna að fá þessa dómara til að dæma hjá sér, þá gerðu þeir ekki góðan díl þar...töpuðu eða gerðu jafntefli í flestum þeim leikjum sem þessir dómarar dæmdu. Deschamps segir að ekki fleiri leikmenn munu fara en Vieira er alltaf orðaður við önnur lið, Buffon segist ætla að vera en nú eru þessar Milan sögusagnir að fara aftur á kreik. Það hefur ekkert heyrst með Trezeguet og Ibrahimovic. Ef þeir ná að halda þessum mannskap eiga þeir alveg að geta farið beint upp aftur.
Ég varð nú að hlæja þegar Pennant var keyptur til Liverpool....tveir grallaraspóar komnir á Anfield. Ég er strax farinn að hlakka til jólanna þegar liðin halda árlegan gleðskap, giska á að Bellamy banki í einhverja skvísu og Pennant verði tekinn fullur undir stýri. Jólapartýið hjá Liverpool verður fróðlegt. Ætli samt að Liverpool verði ekki liðið sem veiti Chelsea mesta keppni þetta árið, veit ekki almennilega hvað er að gerast á Old Trafford....Ruud farinn og Ronaldo hótar verkfalli fái hann ekki að fara og engar stjörnur hafa verið keyptar til liðsins, góðu fréttirnar eru þó þær að Heinze mun spila og svo er Scholes kominn á fullt aftur...hann fór illa með Celtic í vikunni. Arsenal dáldið óskrifað blað, þeir spiluðu náttúrulega Cole lausir nánast allt tímabilið í fyrra, þannig að það ætti ekki að hafa það mikil áhrif að hann fari, Rosicky góð kaup, viss um að hann á eftir að vera góður....menn eins og Toure, Cesc og fleiri eiga eftir að standa fyrir sínu en manni finnst alltaf eins og þetta dáldið standi og falli með því í hvernig stuði Henry sé í. Bind þó vonir við árangur hjá Everton, eins og ég hef sagt áður þá gerir Moyes góða hluti annaðhvert ár og síðasta ár var slappt.
25.7.2006
Kaffi
Ég er að verða alveg agalegur með að drekka kaffi eftir hádegismatinn. Fyrir ári síðan opnaði kaffihús í nokkurra skrefa fjarlægð frá mér hérna í vinnunni og alltaf skal maður skunda þangað eftir hádegismat að fá sér einn cappuccino til að kickstarta meltingunni. Þetta er nú samt bara svona verkamanna cappuccino sem maður fær....þessi þegar maður sér eiginlega engan mun á cappuccino og latte. Ég fæ mér einnig alltaf cappuccino eftir máltíð á veitingastað, þó svo að maður eigi nú að drekka espresso eftir kvöldmáltíð (skv. Ítölum)...en ég brýt nú þá reglu. Við Christina fórum út að borða í Manchester, hafði fundið stað sem GQ mælti með, kúl staður. Allavega...eftir máltíðina (þetta er einnig veitingastaður, þótt GQ flokki þetta sem bar) þá bað Christina um espressó en var tjáð að það væri búið en hins vegar gat ég pantað cappuccino, okkur fannst það dáldið furðulegt að geta gert cappuccino án þess að eiga espressó, svona dáldið eins og að maður hafi pantað mjólkurhristing án þess að það væri til mjólk.
Ætla að hætta þessu kaffiþambi, stefnan sett á bolta á morgun og mér verður hálfóglatt þegar ég hreyfi mig og er búinn að drekka kaffi um daginn. Christina byrjar að kenna tvö kvöld í viku frá og með næstu viku þannig að maður mun reyna að fara í ræktina á meðan.....kaffilaus.
Þetta var meira show-ið í gær, voða amerískt....ljóseffektar, enn og aftur fáránlegir sessionspilarar (gítarleikarinn í lederhosen) og íburður almennt mikill. Billy tók alla slagarana en hápunktur kvöldsins var líklega þegar rótarinn fékk að syngja "Highway to hell", veit ekki alveg hvaða djók það var eiginlega ....ætli það sé ekki það næsta sem maður kemst að sjá AC/DC. Billy er þó flinkur á flygilinn
24.7.2006
Santa Christina
Í dag er haldinn hátíðlegur dagur Christinu. Á Ítalíu (og í öðrum löndum) eru menn svo heppnir að eiga tvo hátíðisdaga á ári, annars vegar afmælisdaginn og hins vegar nafnadaginn, en hvert nafn á sinn hátíðisdag. Í dag er dagurinn hennar Christinu. Í tilefni dagsins ætlum við á tónleika í kvöld með ofurskallapopparanum Billy Joel, þar sem Christinu langaði að sjá hann. Þess má geta á Billy Joel stoppaði víst einhvern tímann á Íslandi og var á Naustinu þar sem fyrrum leigusalinn minn á Baldursgötunni, Eggert Pálsson slagverksmaður í sinfóníunni, spilaði með honum í einhverju djóki. Svo er bara að vona að hann taki Uptown girl í kvöld.
Annars er Edinborg að taka yfir sem aðaltónleikaborgin um þessi misserin, T on the fringe er með svaka dagskrá og fullt af böndum sem maður væri til í að sjá, maður kemst ekki að sjá flest af þessu en ég er þó búinn að bóka miða fyrir okkur að sjá hana Reginu Spektor, annars væri ég alveg til í að sjá Kasabian, Dirty Pretty things, Raconteurs og Belle&Sebastian. Allt að gerast í Edinborg í ágúst
21.7.2006
Juve
Ég hef ekkert tjáð mig um þetta mál sem Juventus er flækt í. Allavega...eins og allir náttúrulega vita voru þeir dæmdir í seriu B og 30 stiga mínus. Hef ekki haft áhuga á því að skrifa um þetta en þessi dómur svíður all svakalega. Flestir leikmennirnir munu stökkva frá borði.....Cannavaro og Emerson til Real Madrid og Thuram og Zambrotta til Barca. Það mátti svosem alveg búast við þessu, enda er ekki verið að refsa leikmönnunum, manni finnst stundum eins og það sé ekkert að vera að refsa klúbbnum það mikið, heldur fara stuðningsmennirnir verst út úr þessu...og kannski Agnelli fjölskyldan. Ég var sammála Berlusconi sem sagði að það ætti einungis að refsa stjórnarmönnunum í klúbbunum. Maður hefur verið að reyna að lesa sér til um málsatvik og miðað við eins og ég skil þetta þá er þessi dómur fáránlega þungur. Það fara 3 lið upp úr Serie B og á síðustu leiktíð var það Torinó sem var í 3. sæti með 76 stig, þannig að ef Juve ætla sér upp aftur er ljóst að þeir þurfa að brjóta 100 stiga múrinn. Það má búast við að fleiri leikmenn yfirgefi sökkvandi skipið en óvæntar fréttir komu í gær sem sögðu að Buffon ætlar að vera um kyrrt, sem eru náttúrulega bara frábærar fréttir. Fyrirliðinn okkar hann Del Piero mun bera bandið á næstu leiktíð. Fyrir rúmu ári síðan var ég eitthvað að blaðra um að hann væri kannski að brenna út....hversu rangt hafði ég fyrir mér. Maðurinn er ekkert annað en æðislegur, orðinn markahæsti leikmaður Juve fyrr og síðar og mun fara niður með liðinu og endanlega festa sig í sessi sem einn allra allra allra besti leikmaður Juventus fyrr og síðar. Nedved mun jafnvel vera einnig um kyrrt en maður bíður eftir að aðrir klúbbar muni sveima yfir eins og hrægammar að reyna að gera saminga við aðra leikmenn. Maður mun fylgjast spenntur með Barca og Real næsta vetur og gaman að sjá að Eiður Smári mun spila með Zambrotta.....hann er allra besti bakvörður í boltanum í dag.
Allavega, við Christina erum búin að plana ferð í seriu B næsta vetur/vor, vonandi að dagsetningin á Juve-Fiorentina eða leiknum í Flórens verði okkur hagstæð. Með Alex, Nedved og Buffon þurfum við bara 8 aðra pappakassa í liðið til þess að rúlla upp seriu B með 31 stiga forskot á næsta lið. Del Piero skorar 50 mörk á tímabilinu.
Forza Juve!
20.7.2006
Wales
Wales er alveg frábær staður, þetta var alveg mögnuð helgi og vel heppnuð í alla staði. Við keyrðum frá Manchester sem er nú lítið mál, maður fer bara á M60 og þaðan á M56 og þaðan er bein leið inn í Wales. Kúltúrinn á hraðbrautunum virðist vera nokkuð góður bara, maður þarf bara að passa sig á að vera ekki mikið á hægri akreinunum ef maður er ekki á 200 km hraða. Sæmilega einfalt bara að rata einnig. Þegar við komum inn til Wales byrjuðu vegirnir að þrengjast og hlykkjast....það var dáldil challenge að keyra á þessum sveitavegum sem samt eru merktir með "A" á kortunum (A vegir í UK eru eitt skref niður frá M (motorway) og eru almennt góðir). Maður var orðinn vanur að mæta rútum á 100 í beygjunum. Hótelið var mjög fínt bara, innifalið í gistingunni var 4 rétta kvöldmatur öll kvöldin....kannski enginn Michelin matur, meira svona sveitaeldamennska sem var þrusugóð. Skemmtileg staðsetning á hótelinu og þetta var mjög notalegt allt þarna hjá þeim. Á laugardeginum fórum við til Portmeirion, sem er þorp sem var byggt í miðjarðarhafsstíl, einhver skrýtinn milljóner ákvað að það væri góð hugmynd að byggja ítalskt þorp á ströndinni. Svakalega flott og maður gæti alveg trúað að maður væri kominn til Miðjarðarhafsins. Á sunnudeginum fórum við upp til Colwyn bay, þaðan sem ættingjar Christinu eru frá, fórum á ströndina og náttúrulega skaðbrunnum í allri þessari sól og þessum hita sem gengur yfir UK um þessar mundir. Á heimleiðinni stoppuðum við í Chester, flott borg sem er með rómanska sögu...svipað eins og Bath. Flugum aftur til Glasgow á mánudagskvöldinu og náðum að hitta á víðförlasta doktorsnema í heimi...hann Jónas og Freydísi, þau gistu svo hjá Christinu....eða öllu heldur ætti ég að segja hjá okkur. Síðustu tveir dagar hafa verið teknir í flutninga, ég er núna officially fluttur inn til Christinar, það er svona smá pússluspil að koma öllu draslinu fyrir en ég skildi mikið eftir hjá Mark sem fær afnot af innbúinu mínu. Heimilisfangið hjá mér núna er Flat 0/2, 15 Balfour street, G20 8BY. Maður gerði sér ekki almennilega grein fyrir því hversu mikið af drasli maður er búinn að sanka að sér. Að ferja þetta yfir á heitasta degi ársins var smá þolraun. Það er kaldara í dag og skýjað sem er vel þegið.
Gaman að koma til Wales og nokkuð ljóst að við Christina munum fara þangað aftur í nánustu framtíð, en þetta tungumál þeirra er alveg óskiljanlegt.
13.7.2006
Sveitasæla
Jæja...þá var komið að mér að gera eitthvað fyrir Christinu. Það er löng helgi í Glasgow núna...frí á morgun og á mánudag, þannig að ég bókaði helgina á sveitahóteli í Wales. Við fljúgum til Manchester á eftir og gistum þar eina nótt, ég er svo búinn að leigja bíl og við keyrum sem leið liggur frá Manchester og gegnum Wales að ströndinni. Ég minntist nú ekki á það á mánudaginn en við leiguðum bíl um síðustu helgi og keyrðum að vesturströndinni hérna. Fórum til Culzean kastalans (borið fram KolLein) rétt sunnan við Ayr. Þetta var í fyrsta sinn sem ég keyrði öfugum megin, dáldið skrýtið fyrst en þetta er ekkert mál. Planið er svo að keyra á ströndina og njóta welsku náttúrunnar. Pabbi Christinu er welskur og svo bjó mamma hennar lengi í Wales þannig að Christina þekkir nokkurn veginn inn á staðhætti. Spáin er mjög góð, sól og blíða þannig að það ætti ekki að neitt til fyrirstöðu að gera góða helgi úr þessu.
![]() |
![]() |
Þannig að afslappelsi er málið þessa helgi og smá rúntur um norður Wales. Spurning svo hvort við hittum á Daffyd...the only gay guy in the village. Ég bíð spenntur eftir að heyra í Walesverjunum....þeir hafa fáránlega fyndinn hreim, áherslurnar á allt öðrum stöðum en hérna uppfrá. Ég sat eitt sinn milli walesverja og Chris og var beðinn um að túlka (Chris skildi ekkert hvað walseverjinn sagði og öfugt). Chris gerir mikið grín af því hvernig walesverjarnir bera fram orðið "gorgeous"...en þeir segja þetta víst einhvern veginn....gordJÖööös, með áhersluna á "Jö" og svo tekur það endalausan tíma fyrir þau að klára orðið. Svo eru náttúrulega öll þessi staðarheiti sem eru 1000 stafa löng....eins og Llanfairpwllgwyngyllgogerychwyrndrobwllllantysiliogogogoch (og þetta er ekki djók, staðurinn heitir í alvörunni þetta)
Ciao
Non je ne regrette rien
ZZ hlustar líklegast á Edith Piaf þessa dagana
10.7.2006
CAMPIONI DEL MONDO!!!!

Þetta var alveg svakalegur leikur, maður var alveg að fara á límingunum undir lokin. Tja hvað skal segja um þetta allt. Þetta byrjaði illa þegar Frökkum var gefin vítaspyrna....þetta var alveg fáránlegur dómur og sást greinilega í endursýningu að það var engin snerting og Malouda dettur um sjálfan sig. Hvernig Meistari Zidane tók spyrnuna...það var allavega enginn vafi um það. Allrosalegasta víti sem sést hefur. Alger snilld. Ítalirnir gáfust ekkert upp og Materazzi náði að jafna með þrumuskalla. Mér fannst Ítalirnir betri í fyrri hálfleik en það var jafnræði með liðunum í seinni hálfleik. Ætli Frakkarnir hafi ekki verið betri í framlengingunni....þvílík ofsavarsla hjá Buffon frá Zidane. Agalegt þetta atvik með Zidane, eitthvað stundarbrjálæði grípur kallinn og hann skallar Materazzi í bringuna og uppsker rautt í sínum síðasta leik. Manni fannst handritið vera að Zisou ætti að lyfta styttunni til að ljúka ferlinum en sem betur fer varð það ekki raunin. Vonandi samt að sagan muni dæma Zidane af allri snilldinni sem hann framkvæmdi með boltann en ekki þessu atviki. Vissulega sorglegur endir á ótrúlegum ferli.
Ítalir hafa aldrei unnið vítakeppni á HM áður. Maður var ekkert alltof bjartsýnn fyrirfram en þegar Trezeguet sett'ann í slánna og niður var von. Öll vítin hjá Ítölunum voru fyrsta flokks...algerlega óverjandi. Var maður nú mest stressaður þegar Del átti að taka en hann afgreiddi sitt víti frábærlega.
Ítalir komast í úrslitin á 12 ára fresti og vinna á 24 ára fresti....ég er nú þegar farinn að hlakka til keppninnar 2030 og Buffon mun fara á sama stall og Zoff, Cannavaro á sama stall og Cabrini og Pirlo á sama stall og Tardelli.
Við Christina fögnuðum í gær með því að opna flösku af ítölsku freyðivíni og smá tiramisú
Nú er ekki úr vegi að útnefna lið keppninnar að mínu mati
| Gianluigi Buffon: Langbesti markmaður keppninnar og fékk aðeins á sig sjálfsmark og mark úr vítum |
| Fabio Cannavaro: Maður keppninnar, var ótrúlega öruggur í öllu sem hann gerði |
| Philip Lahm: Skemmtilegur sóknarbakvörður og vonandi fer hann ekki til Chelsea |
| Lillian Thuram: Vann á jafnt og þétt í keppninni....rosaleg tækling hjá honum í gær þegar Toni var að sleppa í gegn. |
| Gianluca Zambrotta: Annar frábær sóknarbakvörður....skoraði eitt og lagði upp annað gegn Úkraínu og átti mjög gott mót almennt |
| Zinedine Zidane: Fór rólega af stað í riðlakeppninni og sýndi snilli sína í útsláttarkeppninni |
| Andrea Pirlo: Skoraði gott mark gegn Ghana og lagði upp þau nokkur...meðal annars markið í gær og markið hjá Grosso á þriðjudaginn |
| Maxi Rodriguez: Þetta mark hans gegn Mexíkó ætti að vera nóg, en hann var þrusugóður í skemmtilegu liði Argentínumanna |
| Bastian Schweinsteiger: Skoraði 2 í leiknum um þriðja sætið og var mikilvægur í þýska liðinu og lagði upp 3 mörk. |
| Miroslav Klose: Markakóngurinn |
| Ronaldo: Sama hvað menn segja um feita brassann, þá er hann markahæsti maður HM fyrr og síðar og það er ekkert smá afrek. |
Topp 5 mörkin
| 1. Cambiasso (Argentína) gegn Serbunum. Ótrúlegar 24 sendingar gengu á milli manna og endaði með hælsendingu inn í teig. Rosalegt mark |
| 2. Rodriguez (Argentína) gegn Mexíkó. Tók boltann á brjóstið og negldi í skeytin |
| 3. Phillip Lahm (Þýskaland) gegn Costa Rica. Litli bakvörðurinn skellti sér fram sólaði nokkra og klíndi svo tuðrunni í skeytin |
| 4. Torres (Spánn) gegn Úkraínu. Æðislegt sampil spánverjanna og hvernig Puyol lagði hann fyrir Torres. |
| 5. Thorsten Frings (Þýskaland) gegn Costa Rica. Maður sá nákvæmlega hvað hann ætlaði að gera og hann "slæsaði" svo boltann í netið. Alger negla. |
Topp 3 nöfnin í keppninni
| 1. Pimgpong (Trinidad og Tobago)...foreldrum hans fannst gaman í borðtennis |
| 2. Schweinsteiger (Þýskaland) |
| 3. Zuberbuhler (Sviss) |
Maður mótsins
| Fabio Cannavaro: Ég vel hann framyfir Zidane, Cannavaro er búinn að vera jafnbestur allt mótið |
Ítalirnir tryggðu sér semsagt 4 heimsmeistaratitilinn sinn í gær einmitt á afmælisdegi föður míns. Gaman að því. Ég heyrði aðeins í Cannavaro eftir leikinn og hann hafði eftirafarandi að segja
Cannavaro sendi semsagt miklar hamingjuóskir upp á Skaga.
Þá er þessu lokið. Ítalirnir eru bestir í heimi...það er official!
7.7.2006
Síðustu misserin hef ég eitthvað verið að þróa með mér grasofnæmi sem er um það bil að gera mig geðveikan þessa dagana. Hrikalega pirrandi. Allavega... á morgun ætlum við að leigja bíl og fara í bíltúr niður að ströndinni, vonandi að veðrið haldist ok og það séu engin frjókorn þar. Á sunnudaginn er svo úrslitaleikurinn, við eigum reyndar eftir að skipuleggja hvar eigi að horfa á leikinn en það kemur allt í ljós.
Áfram Ítalía.
5.7.2006
FANTASTICO
Hvað skrifaði ég síðasta mánudag? Del Piero setti'ann og það ekkert smá mark. Markið hjá Grosso var einnig æðislegt. Stórkostlegur leikur og Ítalirnir eru með stórkostlegt lið. Þeir eiga þetta svo innilega skilið. Nú tökum við þetta á sunnudaginn!
Þetta er æðislegt!
4.7.2006
Sjitttt
Þið getið þetta!
Stóri leikurinn í kvöld, ekki laust við að maður sé orðinn pínu stressaður. Fótboltamiðlar rifja upp tölfræði fyrir leikinn þar sem kemur í ljós að Þjóðverjar hafa ekki tapað landsleik í Dortmund í 14 leikjum (13 sigrar og 1 jafntefli), þannig að Ítalirnir verða að eyðileggja þá tölfræði en á hinn bóginn kemur í ljós að Þjóðverjar hafa aldrei unnið Ítali í lokakeppni HM. Eitthvað mun undan láta í kvöld. Juventus mennirnir hafa skarað framúr fyrir ítalska liðið og nokkuð ljóst að þessi vandamál heima fyrir hafa þjappað þeim saman. Einnig er ég viss um að þeir munu spila fyrir félaga sinn og einn af mínum uppáhaldsleikmönnum hér áður fyrr, honum Gianluca Pessotto....eða il proffessore eins og hann var kallaður. Fyrir þá sem ekki vita þá varpaði hann sér út um glugga í lok júní, þjakaður af þunglyndi vegna álagsins sem er á stjórnarmönnum Juventus um þessar mundir. Pessotto var gerður að liðsstjóra Juve eftir að hann hætti að spila.

Þetta verður svakalegur leikur í kvöld, ég hef haft taugar til Þjóðverjanna í mótinu en sá stuðningur mun verða settur á ís í kvöld....lofa að halda með þeim í næsta leik.
3.7.2006
Hversu góðir voru Ítalirnir á föstudaginn!! Zambrotta hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér, verð þó að viðurkenna að mér fannst hann nú ekki alveg vera málið fyrst þegar hann var hjá Juve, en hann hefur vaxið stöðugt og er einfaldlega einn besti sóknarbakvörður í heimi. Finnst æðislegt að sjá hann taka sprettinn upp völlinn. Hann skoraði geggjað mark og lagði upp annað. Annar Juve maður Cannavaro er búinn að vera stórkostlegur í allri keppninni. Eina markið sem Ítalir eru búnir að fá á sig er sjálfsmark og Cannavaro er búinn að stjórna vörninni eins og herforingi. Æ-i fyrst ég er að þessu...þá er Buffon besti markmaður í heimi, mínir menn tóku fótinn af bensíngjöfinni og hleyptu Úkraínumönnunum aðeins inn í leikinn og þá stoppaði allt á Buffon, hann er ótrúlega öruggur, rétt staðsettur og kýlir boltann út í teig í staðinn fyrir að vera að reyna að grípa þessa tuðru sem sveiflast eins og plastbolti í loftinu. Hrikalega flott varslan þegar hann skallaði stöngina í leiðinni. Juve mennirnir eru að standa sig vel í liðinu og ég er viss um að Del mun setja hann brátt... jafnvel Camoranesi hefur verið ok
Mikið rosalega er gaman að sjá Zidane rísa upp og sýna öllum hvernig á að spila fótbolta. Manni fannst að í riðlakeppninni ZZ vera slappur og var farinn að hugsa að hans tími væri liðinn og mér fannst það svakalega sorglegt að sjá þennan mikla meistara enda ferilinn í einhverju rugli. Það bara yljar manni um hjartarætur að sjá hann lifna aftur til lífsins gegn Spánverjunum og leikurinn hjá Zisou á laugardaginn var nánast fullkominn.....alger masterclass í fótbolta. Þetta er Zidane eins og menn eiga að þekkja hann og þetta er Zidane eins og menn eiga eftir að minnast hans þegar hann hættir. Þvílíkur snillingur.
30.6.2006
HM í Þýskalandi
Að fara á HM er góð skemmtun. Við komum til Frankfurtar (eða Bankfurt eins og jakkafatakallarnir kalla borgina) 21. júní síðastliðinn daginn sem fór fram leikur Hollendinga og Argentínumanna í borginni. Mikill fjöldi Hollendinga höfðu gert sér ferð yfir landamærin og var appelsínugulur bragur yfir miðbænum. Ástæðan fyrir því að Niðurlendingar klæðast appelsínugulu má rekja til tíma Vilhjálms af Óraníu en það er önnur saga. Okkur fannst vera nokkrar bullur innan um þá appelsínugulu...einhverjir gerðu sér leik að því að sparka bolta upp í loft á troðfullri göngugötu og láta fólk vita að það væri um það bil að fá bolta í hausinn með því að kalla "achtung" sekúndubroti áður. Einn boltinn lenti á skilti og braut gler á skiltinu sem rigndi yfir nokkra, okkur til lítillar hrifningar. Við ánna Main var búið að koma upp "Fan-fest" þar sem öll aðstaða fyrir aðdáendur var til staðar. Risaskjám var búið að koma fyrir í miðri ánni.
Daginn eftir var stefnan sett til Dortmund þar sem leikur Brasilíu og Japans fór fram. Miðasölumál á Fifa vefsíðunni hafa verið so-so og tókst okkur að ná í 5 miða á þann leik, gallinn var sá að við vorum 6. Af tilviljun vatt upp að okkur maður sem var að selja miða og fjárfestum við í einum á 300 evrur. Miðinn var merktur knattspyrnusambandi Úganda og nokkuð ljóst að Eggert Bindishnútur verður segja vinum sínum hjá Fifa að knattspyrnusamtök í Afríku eru að selja þá miða sem þeir fá. Skítt og lago að einstaklingar séu að drýgja tekjurnar með svona braski en manni finnst það annað mál þegar knattspyrnusamtök eiga í hlut. Ég svosem kvarta ekki þó. Við komumst allir á leikinn. Stemmingin í Dortmund var mjög góð....meira afslöppuð heldur en daginn áður í Frankfurt, gular skyrtur í meirihluta en margir Þjóðverjar höfðu nýtt daginn til að fara í brasilísku treyjurnar sínar. Eitt af slagorðunum fyrir keppnina var "Sprechen Sie Fußball" og fannst mér það eiga vel við þegar við röktum bolta eftir götunum og gáfum sendingar á gangfarandi og allir voru bara hressir og gáfu tilbaka. Allir bara í fótboltastuði. Samgöngur til og frá vellinum voru með besta móti og gekk greiðlega að koma öllum á Vestfalen Stadion. Við erum búnir að ráða gátuna með brasilísku gellurnar....þær eru ekkert út um allt, bara nokkrar sem sjónvarpsmyndavélarnar fara alltaf beint á. En við fundum eina sem var í miklu stuði
Leikurinn var skemmtilegur, svosem engin svaka pressa á Brössunum og Japanarnir út úr þessu þannig að þetta var eins og hálfgerður vináttuleikur. Japanirnir skoruðu fyrst en Brassarnir voru miklu betri og náðu að lokum að setja 4. Gaman einnig að vera á leiknum þar sem Ronaldo jafnaði markamet Gerd Mullers á HM. Tókum lestina aftur til Frankfurt um nóttina. Daginn eftir lá leiðin til Kaiserslautern að sjá leik Spánverja og Sauda. Aftur hefði maður nú viljað að leikurinn hefði meiri þýðingu en það var ekki hægt að sjá það fyrir þegar sótt var um miðana. Spánverjarnir voru stórskemmtilegir.....í miklu stuði. Við gengum allir um með íslenska fána bundna í skikkju og nær allir héldu að þetta væri Union Jack sambandsfáni Breta og Spánverjarnir sungu "Gibraltar Español" og "Tarjeta blanco" og það tók okkur smá tíma að átta okkur á því að þeir voru að syngja um okkur. Við reyndum að leiðrétta þennan misskilning um þjóðernið en annars var þetta bara allt á vinalegu nótunum. Leikurinn sem slíkur var allt í lagi, varaliðið hjá Spánverjunum en samt voru þarna fullt af góðum spilurum, en Sádarnir voru bara of slappir til að veita þeim einhverja keppni. Joaquin var bestur í fyrri hálfleik, en hafði sig hægan í þeim seinni. Annars var enginn sérstakur sem stóð út úr. Eftir leikinn var bara haldið í almenningsgarð við völlinn með döner kebab og bjór og spörkuðum á milli. Nokkrir Spanjólar fengu að reyna fyrir sér gegn okkur að halda á lofti og nokkrir bara sprækir.
Eftir þetta höfðum við ekki fleiri miða og horfðum á 16-liða úrslitin á hinum ýmsu börum í Frankfurt. Á laugardeginum fórum við á strandstað við ánna og horfðum á leik Þýskalands og Svíþjóðar milli þess sem við vorum í sólbaði og að spila strandbolta. Það er ekkert smá erfitt að hafa stjórn á boltanum berfættur í sandinum. Svaka stemming yfir leiknum og Þjóðverjarnir eru bara að spila svakalega fínan bolta og í raun fannst manni að þeir hafi slátrað Svíunum (kannski sá maður leikinn of mikið í gegnum bjórgleraugunum og því ekki alveg dómbær), þótt þeir hafi bara unnið 2-0 og Henke brenndi af víti. Skondið atvik gerðist eftir að við fórum af þessum strandstað, okkur vantaði leigubíl og sáum 4 ungmenni þarna vera að panta bíl og við báðum þau um að panta einn fyrir okkur líka. Svo kemur bíllinn og þau fara uppí en þetta var stór bíll og bílstjórinn rekur þau út og tekur okkur 6 inn í staðinn. Við náttúrulega báðum þau afsökunar á þessu en bílstjórinn fékk okkur 6 inn og fór með okkur marga hringi í kringum borgina vegna þess að flestar götur í bænum voru lokaðar. Við enduðum á ítölskum veitingastað þar sem við horfðum á Argentínu-Mexíkó með pizzunum okkar. Eftir matinn hittum við svo þessi 4, sem við tókum leigubílinn af og fórum að spjalla aðeins. Þá kom í ljós að mágur eins gæjans er sonur Sævars Karls....nokkuð skondið.
Lífið var ljúft þarna úti, við vorum ótrúlega heppnir með veður og á sunnudeginum fórum við í almenningsgarð með kassa af bjór, sólarvörn og bolta og hengum þar fram að leik Englendinga og Ekvador og reyndum að "hest-hlaða tani í grímuna á okkur" eins og ákveðinn þjóðflokkur kallar þetta heima, flestir sem búa við Selfoss. Við fundum lítinn local pöbb þarna hjá, vertinn var ótrúlega vinalegur og gaf okkur local mat og þetta eplavín sem Frankfurtarar eru svo stoltir af. Við gerðum tvær tilraunir að drekka þetta í ferðinni en þetta var ekki alveg að dansa við bragðlaukana okkar.
Síðustu dagarnir fóru í almennt rölt um bæinn milli þess sem við fundum pöbb sem sýndi leikina. Á mánudagskvöldið fórum við fínt út að borða...á veitingastað sem ein úr áðurnefndum fjögurra manna hópi mælti með. Flottur staður, heitir "Frankfurter Botshaft" og sæmilegur matur....þó svo að nautasteikin hafi verið ansi well done þá var túnfiskurinn sem ég fékk mér í forrétt alger snilld.
Við flugum allir heim á þriðjudagskvöldinu, ég lenti í því reyndar að flugið mitt var yfirbókað og um tíma leit út fyrir að ég þyrfti að gista á flugvallarhótelinu í boði Lufthansa en var að lokum settur á business class og komst með fluginu. Þegar ég lenti í Edinborg höfðu Lufthansamenn rifið gat á töskuna sem Christina lánaði mér og ég þurfti að reyna að finna einhvern starfsmann. Það varð til þess að ég missti af rútunni til Glasgow en fékk að gista hjá Halla sem alveg reddaði mér. Maður komst svo aftur til Glasgow á miðvikudaginn.
Alger snilldarferð og nokkuð ljóst að maður mun einhverntímann aftur gera sér ferð á svona stórmót. Það var gaman að komast til Þýskalands, allt tal um að Þjóðverjar séu svo leiðinlegir og stífir er bara della, ótrúlega þægilegir bara og maður reyndi að tala þýsku sem mest en oftast varð maður nú að skipta yfir í ensku þegar á leið samtalið. Frankfurt er fínasta borg, þó eflaust séu flottari borgir til í Þýskalandi....allavega ljóst að ég ætla til Þýskalands fljótlega aftur.
20.6.2006
HM
Jæja....nú loksins er komið að því. Ferð á HM blasir við og allt reddí. Maður búinn að tala mikið um að ætla einhverntíman á HM og loksins er þetta að verða að veruleika. Við ákváðum að fara fyrir einu og hálfu ári síðan og sóttum um miða á nokkra leiki og fengum miða á leik númer 43 og á leik númer 47 og vissum við þá ekkert á hvaða leiki við vorum að fara á. Af því að við erum svo klárir í þýskri landafræði var planið bara að sækja um miða á leiki í vestasta hluta Þýskalands (Frankfurt, Dortmund, Gelschenkirken, Kaiserslautern og Köln) þannig að við gætum náð sem flestum leikjum á sem skemmstum tíma (við hefðum ekki verið vinsælir hjá frúnnum ef við hefðum tekið mánuð í þessa ferð), þannig að það voru skorður í tíma og rúmi. Við völdum þessa leiki svo að það væri möguleiki að sækja um miða á 16-liða úrslitin. Það gekk nú svona svona að fá miðana og því miður gekk ekki að fá miða á 16-liða úrslit. Þessir leikir sem við höfum miða á eru leikir Brasilíu og Japans annars vegar og Saudi Arabíu og Spánar hins vegar. Því miður hafa riðlarnir spilast þannig að það er ekki mikið undir í þessum leikjum, en við gátum náttúrulega ekki vitað það fyrir einu og hálfu ári síðan. Brassaleikurinn er í Dortmund og Spánarleikurinn er í Kaiserslautern en við verðum allan tímann með aðsetur í Frankfurt sem er mitt á milli. Við fljúgum þangað í fyrramálið og um kvöldið er leikur Hollands og Argentínu í Frankfurt þannig að það má búast við hörkustemmingu í miðbænum. Annars er planið bara að meðtaka stemminguna sem fylgir HM og horfa á fótbolta og drekka bjór (vonandi sem minnst af Budweiser sem er official bjórinn...Þjóðverjar mjög ósáttir að þurfa að bjóða upp á þetta piss þegar þeir eiga þúsund sinnum betri bjóra) og hafa það skemmtilegt með strákunum.
Þetta virtist allt mjög fjarlægt þegar við settum inn umsókn um miðana, maður er búinn að vera að tala um þetta í eitt og hálft ár og nú er þetta loksins að verða raunverulegt. Gaman svona þegar draumar rætast.
Síðan mun að öllum líkindum fara í frí til lok júní, nema að maður komist í tölvu þarna úti. Það kemur allavega ítarlegur pistill í lok næstu viku.
Bis dann...auf wiedersehen.
Kieran Docherty
Við Christina fórum á tónleika með þessum gæja Kieran á laugardagskvöldið. Hann og Christina eru "buddys" og hafa sama brennandi áhuga á Roddy Frame sem ég hef minnst á áður. Allavega, þessi Kieran er nokkuð góður bara....hann er víst tannlæknir í 9-5 vinnunni og semur lög þess á milli. Hann gaf út plötu fyrir nokkru sem heitir Expectations. Hann hefur sýnishorn af lögunum sínum á síðunni sinni, sem nálgast má hér, mæli sérstaklega með Expectations, Gathering Speed og Suffocating (það lag minnir mig reyndar óendanlega mikið á eitthvað annað lag sem ég kem ekki fyrir mig). Mæli með Kieran, fínustu lög...fyrir tannlækni
16.06.2006
Orðlaus
Hversu góðir voru Argentínumennirnir áðan? Þetta mark sem Cambiasso skoraði er með þeim allra bestu sem maður hefur séð. Þeir kláruðu 24 sendingar milli manna áður en Crespo setti hann upp fyrir hann með hælnum í teignum. Svo kom Messi inná og tætti Serbana í sundur. Þetta Argentínulið er ógnvænlegt. Ekki eins og að Serbarnir og Svartfellingarnir séu eitthvað slakir í boltanum. Nokkuð ljóst að Serbarnir munu kenna Svartfellingum um tapið og öfugt.
15.06.2006
Eiður og aðrar hetjur
Ég ásamt hinum 99,9% af þjóðinni óska Eið Smára bara til hamingju með að vera kominn til Barcelona. Þetta er ótrúlega vel gert hjá stráknum og það verður gaman að sjá hann spila með Ronaldinho, hann þarf bara að slá út Eto, Deco, Guily og Messi út úr byrjunarliðinu....einfalt. Spurning hvort það verði fjöldaúrsagnir úr Chelsea klúbbnum á Íslandi.
Á EM setti ég saman hetjuliðið úr fyrstu umferðinni, þannig að það er ekki úr vegi að skoða hverjir komast í hetjuliðið mitt eftir fyrstu umferðina á HM. Valið byggist á leikmönnum sem maður sjálfur hefur fylgst með, hef nú ekki séð alla leikina...en svona flesta.
| Bobadilla: Kom inná eftir að aðalmarkmaður Paragvæ meiddist og hélt hreinu gegn Englendingum |
| Pyuol: Ofsalegur undirbúningur fyrir 4. markið hjá Spánverjum. Fáránlega góður þrátt fyrir fáránlega hárgreiðslu |
| Lahm: Geggjað mark gegn Costa Rica. Hann er snilldar sóknarbakvörður og átti margar fyrirgjafir í leiknum og þá sem leiddi til seinna marksins hjá Klose |
| Marquez: Virðist vera aðalmaðurinn hjá Mexico, var allt í öllu hjá þeim |
| Cannavaro: Ótrúlega traustur, stjórnaði vörninni sem hélt hreinu og átti sjálfur eitt færi |
| Rosicky: Segir sig sjálft. Tékkarnir spiluðu best í fyrstu umferðinni og tvö mörk frá Arsenal manninum skila honum sæti í liðinu |
| Cahill: Nú verð ég reyndar að viðurkenna að ég sá ekki leikinn, en hlustaði á lýsinguna. Timmy kom inná þegar 20 mínútur voru eftir og skorar 2 og leggur upp eitt á lokamínútunum. Ekki slæmt það. Þetta lærði hann á Goodison Park. |
| Kaka: Fannst hann bestur hjá Brössunum og svo skoraði hann svaka mark |
| Xabi Alonso: Slátrun hjá Spánverjunum í gær, þeir alveg straujuðu Úkraínustrákana og í raun hefði hver sem er af miðjunni geta komið í liðið, en ég vel Alsono af því hann skoraði |
| Klose: 2 mörk frá honum og spurning hvort hann sé ekki kandídat fyrir gullskóinn |
| Villa: 2 mörk einnig frá honum í Úkraínsku slátruninni |
Margir svosem hefðu getað komið til greina og lesendur hafa eflaust skoðanir á því hverjir eiga að vera þarna og hverjir ekki. Ég sá ekkert af Trinidad-Svíþjóðar leiknum þannig að ég gat eiginlega ekki valið Hislop en hann átti víst stórleik. Einnig langaði mig til að velja þennan Al-Jaber sem skoraði í gær, hann er að spila sína 4 keppni og hefur skorað í 3 þeirra...greinilega aðalmaðurinn hjá Saudum. Cafú var einnig góður hjá Brössunum, líklegast hefði verið hægt að velja fleiri Tékka í liðið...Nedved og jafnvel Koller fyrir þennan dúndurskalla. Joe Cole gæti einnig verið þarna á miðjunni, hann stóð sig manna best hjá Ingerlund. Riquelme var einnig góður.
Semsagt: Tékkar og Spánverjar að mínu mati lið fyrstu umferðarinnar, Frings með flottasta markið, Cahill supersub umferðarinnar, Drakúla er dómarinn sem dæmdi leik England og Paragvæ er dómari fyrstu umferðarinnar, hann setti nýjan standard í "greasieness"...svo dæmdi hann allt á móti Englandi sem var snilld.
Veislan heldur áfram
13.06.2006
Jæja, þetta gekk vel í gær...Ghana sæmilega hættulegir en Ítalirnir sterkir þrátt fyrir að hafa ekki sýnt sparihliðarnar, þetta mun allt lagast þegar Zambrotta og Gattuso koma inn í liðið. Ég get ekki tekið Camoranesi í sátt, las einhversstaðar að Liverpool væru á eftir honum. Spurning hvort Capello keyri hann ekki bara alla leið á Melwood, ég yrði sáttur við það. Christina sá um að mata okkur Mark, stelpan kom með antipasti, taglitelle, tiramisú og svo Peroni bjór, það var sannarlega ítalskt þema í gærkvöldi. Svo spila Brassarnir í kvöld...það er eins og að bera í bakkafullan lækinn að fara að tala um hvað Brassarnir eru góðir og brosið hjá Ronaldinho en þegar maður skoðar myndir af æfingum hjá þeim eru allir skælbrosandi og í svakalegu stuði. Þetta er alveg magnað...hver eiginlega sér um að gefa þeim öllum prozac. Annars má búast við stuði og stemmingu í Kópavoginum í kvöld þegar Erna, Georg og Sofia slá upp brasilísku partýi. Ég hefði alveg verið til í að koma í það partý en verð að láta mér sófann heima nægja. Það verður svo fróðlegt að sjá hvort allir haldi áfram að vera í stuði eftir leikinn í kvöld, ég sé nú ekki Króatana spilla því partýi.
Að öðru: Eins og ég minntist á í síðustu viku fórum við Christina að hlusta á Roddy Frame. Kappinn virðist eiga annan aðdáanda sem setti tónleikana hans á netið (reyndar upptaka frá miðjum maí en þetta er sami setlistinn og við sáum) og geta áhugasamir hlustað á það hér. Ég mæli með lögunum "Crossing Newbury street", "Down the dip", "Reason for living" og 80s Aztec Camera (gamla hljómsveitin hans) slagarann "Somwhere in my heart", viss um að margir kannist við það lag. Upptakan er reyndar ekkert sérstök en það ætti að heyrast sæmilega í lögunum og gefa áhugasömum tækifæri til að heyra í kappanum.
12.06.2006
Fórum í HM partý hjá Göthe institut á föstudaginn, þar sem bjór og grillaðar pulsur voru í boði þýska ríksins, góð stemming og ekki spillti fyrir góða veðrið og nokkuð skemmtilegur leikur bara. Svakaleg mörk sem sáust þar. Af einhverjum ástæðum sá útvarpskona frá xfm, að taka mig í viðtal. Spurði mig hvað mér hafi fundist um leikinn og svona og ég sagði að þetta hafi verið óvenjulega skemmtilegur opnunarleikur þar sem bæði lið voru óhrædd að sækja, þótt Þjóðverjarnir hafi verið áberandi sterkari. Einnig kom maður með uppáhaldsfrasann að þeir þýsku þyrftu að "keep it thight at the back" þegar á liði í keppninni vegna þess að bæði mörk Costa Rica voru eftir einhverja samskiptaörðuleika í vörninni...þeir voru eitthvað að reyna að spila rangstöðu sem ekkert gekk. Á laugardaginn fórum við Mark í grill til Chris og horfðum á Argentínu-Fílabeinsströndina. Það var hörkuleikur...end to end stuff....og stundum fannst manni eins og það væri verið að spila leikinn á teipi sem var á "fast-forward" svo hraður var hann. Ég spáði því í vor að Fílabeinsströndin myndi koma liða mest á óvart....það verður eflaust erfitt fyrir þá að komast upp úr riðlinum en þeir spiluðu skemmtilegan bolta. Á sunnudeginum fórnaði maður leikjunum fyrir hjólatúr með Christinu, sá aðeins af Mexico leiknum. Mér finnst Ali Daei ofsa svalur þarna í íranska liðinu, hann er eflaust orðinn 100 ára en það stoppar hann ekkert til að spila með geislavirku strákunum frá Íran.
Roy Keane svo hættur. Sjónarsviptir af honum og það hefði verið gaman að hafa hann til að styrkja liðið í Meistaradeildinni næsta ár, en maðurinn er náttúrulega bara ónýtur á líkama og ekki hægt að ætlast til af honum að standa enn eitt árið í þessu og vera sárkvalinn.
09.06.2006
Forza Italia!
Ekki nóg með að þeir séu langbestir á vellinum, þá eru þeir einnig langflottastir á nærjunum. Djöfull ætla ég að fá mér svona nærjur og svona skrokk eins og Zambrotta....Cannavaro þyrfti aðeins að róa sig í tattúonum
Það er alger synd að Gattuso hafi spilað fyrir rangers....hann er massasvalur.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig Lippi mun stilla upp á mánudaginn, mér finnst alveg vanta solid miðjumenn ef Gattuso er meiddur. Zambrotta verður ekki heldur með í fyrsta leiknum. Líklegast kemur Pirlo þá inn á miðjuna, eins gott hann standi sig en mér fannst hann arfaslakur með Milan í síðustu leikjunum í Meistaradeildinni. Nokkuð ljóst þó að Cannavaro og Buffon verða í liðinu, "vinur" minn Camoranesi verður líklegast á kantinum. Spurning hverjir verða frammi....Inzaghi náttúrulega í hörkuformi þessi misserin og Luca Toni markahæstur í Evrópu. Mikið væri nú samt gaman ef elsku kallinn minn hann Allessandro fengi sjénsinn og myndi slá í gegn.
Það er lítil pressa á strákunum, erfiður riðill og bara vonandi að þeir detti ekki í eitthvað rugl.
Forza i ragazzi
Til hamingju með daginn!
Veislan byrjar á eftir, sólin skín, bjórinn kaldur, flögurnar komnar í skál (salt&vinegar)....þetta gæti ekki betra verið.
Maður horfir á báða leikina í dag, Ingerlund leikinn á morgun og svo er Chris búinn að bjóða í grill annað kvöld að horfa á Argentínu vs Fílabeinsströndina. Sjáum til með áhorf á sunnudeginum. Langar að sjá Serbíu og Holland en seinni tveir leikirnir eru ekki það sexý að maður fórnar þeim fyrir quality time með konunni. BBC gerist svo elskulegt að senda út leikina á netinu og ég er með tvo tölvuskjái fyrir framan mig, þannig að fyrir fyrstu leiki dagsins getur maður haft boltann á örðum skánum og úlnliði á hinum.
08.06.2006
HM
Jæja, þá byrjar veislan á morgun. Þetta verður æðislegt næsta mánuðinn. Planið fyrir morgundaginn er að fara í garðveislu hjá Göthe institut. Ein kona sem var með mér í ítölsku vinnur þar og lét mig vita af þessu, náttúrulega þýskt þema og matur og bjór í boði. Það er einnig búið að vera svo gott veður hérna og spáin fyrir helgina er svakaleg (tæplega 30 stig) þannig að það er ekkert annað í stöðunni en að skella í sig Warsteiner og bratwurst. Stofnunin er rétt hjá okkur þannig að ef þetta er súrt partý, þá bara skellum við okkur heim.
Ítalir verða að sjálfsögðu mínir menn í sumar. Las nokkuð fyndna statistík um að Ítalir komist í úrslitin á 12 ára fresti: 1970, 1982, 1994....??2006?? Tapleikirnir 70 og 94 voru gegn Brössum en sigurleikurinn 82 var gegn Vestur Þjóðverjum....eigum við ekki bara að segja að Ítalirnir vinni Þjóðverjana 9. júlí og haldi symmetríunni. Einnig hefur verið skrifað um vandræðin heima fyrir. Leiðindamál í gangi á Ítalíu þessi misserin en einnig var vesen á þeim 82. Paolo Rossi var í banni vegna veðmála á þeim tíma. Hvað Ítalirnir gera er spurning, en þetta verður erfitt fyrir þá, sérstaklega þegar Zambrotta og Gattuso eru meiddir og svo er Nesta tæpur. Totti nýstiginn upp úr meiðslum einnig. Fyrsti leikur þeirra á mánudaginn og það verður fróðlegt að fylgjast með þeim.
Forza Italia.
07.06.2006
Tvær vikur
Eftir tvær vikur verð ég staddur í Þýskalandi til að láta gamlan draum rætast og fara á HM með mínum nánustu vinum. Verðum í viku í Frankfurt og förum þaðan til Dortmund og Kaiserslautern að sjá leiki Brasilíu vs Japan og Saudi Araba vs Spán. Um kvöldið sem við komum til Frankfurt er svo leikur Hollands og Argentínu, við erum ekki með miða á þann leik en það ætti að vera góð stemming í bænum. Miðamálin þarna í Þýskalandi hafa sætt gagnrýni. Við sóttum um miða síðasta sumar og fengum nokkra gegnum þetta happdrætti (maður skráir sig fyrir miðum og svo er happdrætti hvort maður fái) sem var haldið á Fifa síðunni á síðasta ári. Svo hafa verið tímabil þar sem hægt hefur verið að kaupa miða...svona fyrstur kemur fyrstur fær...en það hefur ekki gengið hjá okkur. Síðasta útspilið var svo að sækja um "conditional tickets" sem eru væntlanlega ef einhverjir skila (je ræt) eða kreditkortin hjá þeim hafa klikkað eða eitthvað. Framkvæmdin á þeirri sölu var skrýtin. Þeir tóku peninginn af kreditkortinu fyrir miðanum (og kreditkortareikningurinn hefur verið greiddur og peningarnir farnir af bankareikningnum mínum) sem ég gæti og gæti ekki fengið og nú hafa 100 evrur legið á einhverjum Fifa reikning í mánuð. Segjum sem svo að milljón manns hafi skráð fyrir sig svona miðum, þannig að Fifa hefur tekið/stolið 100 evrum af öllum og sá peningur liggur eflaust á einhverjum reikning og safnar vöxtum. Segjum sem svo að þessi Fifa reikningur beri 12% vexti þá hafa Fifa menn grætt/stolið 1 milljón evrum í formi vaxta. Mér finnst þetta algert svindl. Ætla nú rétt að vona að þeir svo gleymi ekki að endurgreiða mér þegar kemur í ljós að miðinn er ekki minn. Allavega....Beckenbauer getur fengið sér eitthvað að éta á minn kostnað.
Einnig sem er alveg glatað og er að gerast í fótboltanum (og á fleiri stöðum) í dag er það að styrktaraðilarnir fá ansi marga miða fyrir sig og sína. Oftast eru þetta einhverjir jakkafata-pappakassar sem fá þessa miða og hafa ekki hundsvit á fótbolta. Einnig er þetta að gerast heima....maður getur alltaf búist við að sjá bestu sætin á tónleikum frátekin fyrir fína bankafólkið sem getur "rattle their jewelry". Ég er á móti íþrótta-og menningarsnobbi, en eflaust eru margir af þessum "Frímanns"-styrktarvinum eru bara þarna af því að það er eitthvað flott. Þetta er áhyggjuefni fyrir fótboltann sérstaklega þar sem hann var working-class sport hérna áður fyrr. Eins og Nick Hornby orðaði það svo skemmtilega í Fever Pitch, að hver hefur áhuga að fara á fótboltaleik þar sem nær allir áhorfendur eru einhverjir upper class bindishnútar. Engin stemming í kringum svoleiðis lið.
Legg til að Fifa láti McDonalds, Gillette og Coke fá aðeins færri miða og leyfi okkur alvöru fótboltaaðdáendum að fá að kaupa miðana.
06.06.06 (flott dagsetning)
Helgin
Fórum til London eldsnemma á föstudagsmorgninum (flugið var klukkan 6am), tókum lestina svo inn í bæinn, stoppuðum við Kensington og röltum þar um. Ég hafði aldrei farið inn í Harrod's og kynnti Christina mig fyrir þeirri stofnun...enda hún öllum hnútum kunnug þar. Þetta er svakaleg sjoppa sem Al Fayed hefur sett upp þarna. Sérstaklega gaman að fara í matvörubúðina, ekki oft sem maður getur bara labbað um og skoðað mat, það er allt möguleg og ómögulegt þarna. Einnig var gaman að skoða 63" sjónvarpið sem var á tilboði 11 þúsund pund í staðinn fyrir 24 þúsund og ísskápinn sem var með 7000 Swarovski kristölum í handfanginu. Vopnuð delicatessen samlokum frá Al Fayed sjoppunni og súkkulaði truffle's frá vinum okkar í Charbonnel&Walker (mæli sérstaklega með arancini sem eru sykraðar appelsínuskífur hjúpaðar súkkulaði) settumst við í Hyde Park og nutum matarins þar. Annars vorum við bara á almennu rölti um London og fórum í siglingu meðfram Thames til Greenwich, bæði orðin þreytt og svosem ágætt að hvíla sig í siglingu. Um kvöldið fórum við svo í Sheperd's bush á tónleikana með Roddy. Mjög fínir tónleikar og kappinn svakalegur gítarleikari. Eftir giggið þá fórum við til Portsmouth þar sem mamma Christinu tók á móti okkur. Ég var orðinn vel þreyttur enda komum við ekki til Portsmouth fyrr en um 1 leytið og maður var kominn í rúmið um 2 og 22 stunda langur dagur staðreynd.
Á laugardeginum var klikkað gott veður og ég dundaði mér við það að setja saman grill og marinera kjötið sem síðar fór á grillið. Brakandi sól og blíða og minn náttúrulega skaðbrann. Um kvöldið sagði Christna mér svo að hún ætlaði að koma mér á óvart á morgun, ég kom alveg af fjöllum og fékk að lokum að vita að við værum að fara til Parísar daginn eftir. Stelpan kom manni þarna skemmtilega á óvart. Við vöknuðum um miðja nótt til að koma okkur upp til London og tókum eurostar lestina til Parísar. Ég hafði aldrei komið til Parísar áður og fékk Christina hugmyndina af þessari óvissuferð fyrr í vetur þegar París bar á góma í samtali milli okkar og ég sagðist aldrei hafa komið. Við byrjuðum með því að fara upp í Montmarte hverfið og skoða Sacré Cæur kirkjuna. Skemmtilegt hverfi og hrikalega sjarmerandi kaffihús með tilheyrandi mögnuðu bakkelsi. Það var reyndar alveg pakkað af fólki þarna og virtust Ítalir vera í meirihluta Christinu til ómældrar raunar. Flott útsýni yfir borgina þaðan af hæðinni. Eftir það var það bara rúntur milli helstu kennileita, Eiffel turninn, Sigurboginn, Champs-Elysées, Louvre, Notre Dame, vinstri bakkinn á Signu o.s.frv.. Það var virkilega gaman að þessari óvæntu ferð og gaman að sjá París með manneskju sem þekkir inná flest þarna og talar tungumálið sem innfæddur. Tókum svo lestina tilbaka um kvöldið aftur til London. Gæjinn í vegabréfsskoðuninni sagði "takk" á íslensku við mig en ég kveikti ekki og kom bara með þetta standard svar "cheers", maður hefur komið út eins og alger fýlupoki, þannig að maður bara biður gæjann afsökunar (ef hann les þetta) að vera ekki meira vakandi. Tókum svo lestina aftur frá London til Portsmouth og flugum svo heim í gærmorgun. Bæði vel þreytt enda ekki mikið sofið þessa helgi en það var þeim mun meira stuð.
| Topp 5 |
| 1. Knúsa Christinu við Signubakka |
| 2. Eiffel turninn |
| 3. Harrod's kalkúnasamlokan |
| 4. Labb meðfram smábátahöfninni í Portsmouth í blíðunni |
| 5. Flutningurinn á "Crossing Newbury street" á tónleikunum |
Botn 3
| 1. Troðningurinn á Champs-Elysée...eins og í Bankastrætinu á Menningarnótt |
| 2. Sólbruni, var í "wife beater"-bol og sést það greinilega á öxlunum á mér núna |
| 3. Mórall yfir því að hafa ekki verið aðeins meira næs við kallinn í vegabréfaskoðuninni |
Mjög vel heppnuð helgi í alla staði og nú þarf maður að koma með eitthvað gott sörpræs fyrir Christinu
1.6.2006
Förum á morgun til London á tónleika með skoska trúbadúrnum Roddy Frame sem er í miklu uppáhaldi hjá Christinu. Við höldum svo þaðan til Portsmouth. Veðurspáin er góð og ekkert til fyrirstöðu að gera góða helgi úr þessu.
31.5.2006
Trash TV
Um þessar mundir er í gangi svona celebrity x-factor á ITV, x-factor er eiginlega það sama og ædol nema bara þeir hafa ekki réttinn að nota það nafn eða eitthvað. Hinir og þessir "frægu" koma og syngja og hver hefur sitt góðgerðarmál sem hann er að styrkja og svo er einn keppandi/eða grúppa kosin út. Allavega...meðal keppenda er skíthællinn James Hewitt sem átti í sambandi við Díönu prinsessu og seldi svo öll bréfin hennar og viðtöl við the sun og fleira og fleira og fröken Rebecca Loos (eða Becky Bogs eins og við Christina kjósum að kalla hana....Loos -> Loo -> klósett -> bog er slangurorð yfir klósett) sem vann sér það til frægðar að sofa hjá Beckham og selja svo söguna. Það fyndna er að þau sungu "addicted to love" sem er eiginlega meira en lítið óviðeigandi. Sharon Osborne er í dómnefnd og það er stöðug orrahríð milli þeirra...barasta nastí komment sem fara þarna á milli. Sharon sagði Rebeccu að ef hún kæmist áfram þá ætti hún að reyna að halda nærjunum á, hrósaði henni fyrir "boob-job" og sagði að eina góðgerðarmálefni sem hún myndi styrkja væri hennar eigið. Sharon hefur greinilega munninn fyrir neðan nefið og á tíma er vandræðalegt að horfa á þetta þegar hinir dómararnir og kynnirinn eru að reyna að stilla til friðar. Allavega vonar maður að þau skötuhjú verði ekki kosin út alveg strax svo maður geti séð smá meira rifrildi. Þau eru samt alveg hrikalega lélegir söngvarar.
30.5.2006
Helgin var mjög fín bara, mörgæsirnar í svaka stuði, en djöfull er vond lykt af þeim. Teið á Balmoral var alveg svakalega flott, maður gæti alveg vanist þessum lífstíl. Meðan maður sötraði teið og bakkelsið var maður aðeins að skanna fólkið sem sat einnig að tedrykkju, flestir virkuðu eins og þetta væri bara daglegt brauð fyrir þá. Eins og maður hefur sagt þá er maður dáldill svona wannabe upperclass, einu skiptin sem maður vogar sér inn í Boss búðina er á útsölunum og kaupir sér þá skyrtu á hálfvirði sem er samt dýr og í raun sama með þetta....maður ætti í basli með að borga margar nætur á Balmoral en lætur sér eftirmiðdagste duga sem kostaði...tja...gott fyllerí með mat fyrir tvo á venjulegum pöbb. Sé nú samt ekki eftir penní, gaman þegar maður getur gert svona.
Hitti svo Lars, norskan félaga minn úr mastersnáminu fyrir tæpum 5 árum en hann var í heimsókn í Glasgow. Lars var hress að vanda
Kláraði að fara yfir prófin í vélhlutafræðinni, þannig að þá má loka þeim áfanga.
26.5.2006
...it was 10 years ago today
Þar sem það er útskrift í MR í dag, er það offisjallí 10 ár síðan maður útskrifaðist sjálfur. Djöfull var þetta sweet tími þarna í MR, þetta var ótrúlega áhyggjulaust líf, eina sem maður þurfti að hafa áhyggjur af hvort maður ætti að taka kippu af bjór eða pela af vodka með sér í partýið. Það var einnig alltaf séð vel um mann þarna og maður vissi alltaf að hverju maður gekk...próf annan hvorn föstudag í stærðfræðinni, Óli Odds að útskýra hávamál og tjarnarhringshlaup og fótbolti í hljómskálagarðinum. Svo var maður bara heppinn með bekk, var með frábæru fólki í bekk og hafði alltaf mikið samband við marga (einnig fóru margir sömu leið eða svipaða og maður sjálfur í HÍ) meðan maður var heima en það hefur eitthvað minnkað eftir að maður flutti út. Árgangurinn minn verður með partý í lok júní sem maður kemst ekki í sem er ekki nógu gott en maður stefnir á að mæta galvaskur í næsta partý eftir 5 ár.
Playlistinn fyrir helgina verður
| Bowie: 5 years (x 2) |
| Norah Jones: 7 years (x 1,428) |
| Ratatat: 17 years (x 0,588) |
| Beatles: Sgt. Pepper's lonley hearts club band (x 0,5) |
| Stones: 100 years ago (x 0,1) |
Balmoral
Við Christina ætlum að fara yfir til Edinborgar á morgun í afternoon tea á Balmoral hótelinu sem er það allra flottasta í allri Edinborg og gott ef ekki bara í öllu Skotlandi. Áður en við fáum okkur cucumber sandwiches með teinu okkar ætlum við að heilsa upp á mörgæsirnar í dýragarðinum. Bara vonandi að veðrið verði skikkanlegt og mörgæsirnar í stuði.
Talandi um Edinborg, þá hlusta ég á Thor frænda í strætónum á leiðinni í vinnuna lesa upp úr bókinni sinni "Raddirnar í garðinum". Hann lýsir þar Edinborg og er ekkert sérlega hrifinn og segir jafnvel að sú borg fari sérstaklega í taugarnar á sér þegar hann heimsækir hana, en hann ásamt ömmu var fæddur þar og bjó fyrstu árin. Honum finnst eins og allir í Leith geti ekki sett saman stutta setningu án þess að nota bæði orðin "blöddí" og "fökkíng" , þó svo þeir séu bara að tala um kassa sem þarf að færa til. Einnig finnst Thor eins og að allir séu sljóir og blárauðir í framan eins og þeir hafi kalið í öllu hugmyndaleysinu. Hann hittir reyndar naglann á höfuðuð þar, maður sér það líka (og eflaust meira) hérna megin, finnst eins og margir séu afskaplega sljóir hérna.
Allavega, mörgæsirnar verða eflaust ekki sljóar og vonum að tebollinn á Balmoral veiti okkur innblástur svo við kölum ekki.
25.5.2006
Síminn minn er í lamasessi, það vildi svo óheppilega til að hann var á sama stað og súkkulaði sem bráðnaði og var ekki almennilega að fíla það. Þess ber að geta þetta voru lindor súkkulaðikúlur....aðeins það besta fyrir símann minn.
Annars lítið bara, bank holiday á mánudaginn en ætli maður reyni ekki að vinna eitthvað þar sem annan föstudag er stefnan tekin til Ingerlund til London og Portsmouth. Skaginn á leik við fh í kvöld sem er möst win leikur, en það verður erfitt að vinna hafnfirðingana. Vonandi að þeir klári ekki mótið í júlí. Áfram ÍA
24.5.2006
Nicky kom í morgun að ganga frá lausum endum, náði að svara einhverjum spurningum varðandi C++ kóða sem hún skrifaði og ég þarf að vita um. Svosem ekkert hægt að fara neitt djúpt í svona lagað á stuttum tíma en sjáum til hvernig manni gengur að lesa kóðann sjálfur. Hún baðst nú eitthvað afsökunar á því að skilja okkur svona eftir, maður bara svona hummaði það af sér enda hjálpar slíkt mér lítið núna. Annars var þetta allt á kúltíveruðu nótunum. Sandy yfirmaðurinn í deildinni verður núna sá sem les yfir ritgerðina...þegar maður loksins kemur sér í að skrifa hana.
Eins og heima er hrikalegt veður hérna líka, kalt, rok og rigning....alvöru haustveður bara. Við sleppum hins vegar við snjóinn.
23.5.2006
Bíó
Við Christina fórum á ítalskt bíó í gær og sáum mynd eftir Roberto Begnini (þann sem gerði myndina la vita é bella) sem hét La tigre e la neve (tígrisdýrið og snjórinn). Í stuttu máli er þessi mynd alveg stórkostleg. Begnini er svona hálfgerð blanda af Woody Allen og Chaplin....ofleikur alltaf og stundum verða samtölin óþægileg að hlusta á en samt er hann helvíti góður. Tom Waits sá um tónlistina og Jean Reno lék einnig í myndinni. Reyndar var ítalskur texti með myndinni þannig að ég náði ekki alveg öllu en Christina fyllti inn í eyðurnar. Mæli með tígrisdýrinu og snjónum.
22.5.2006
Arty-fartar
Óska litlu systur til hamingju með stúdentsprófið, nú byrjar alvaran og þarf að ákveða næstu skref. Ekki að ég ætli að gera það neitt en ég myndi mælast til þess að hún myndi ekki leggja "performing art" við sig. Kris vinkona Christinu fór á opnunarsýningu hjá listanemendum á föstudaginn þar sem lokaverkefnin voru sýnd. Einn vinur hennar framkvæmdi performing art, eða bara gjörning eins og það heitir á íslensku. Kris mætti seint og sá vin sinn þar sem hann var að hengja blöð upp á vegg og skrifa á þau. Hún vindur sér að honum og spyr hvernig hafi gengið, en þá var gaurinn víst í miðjum klíðum að framkvæma "list" og það var verið að taka herlegheitin upp á video. Hún fékk bágt fyrir enda hafði kappinn eytt heilli viku að undirbúa þennan "skrifa-á-blaða gjörning" og var að tjá sig þegar hann var truflaður svona. Einn þarna var víst með boxhanska í annarri og Libby's tómatsósu í hinni og kýldi sig meðan hann sprautaði tómatsósu yfir sig. Þetta arty-farty lið er alveg magnað, mér finnst þetta hrikalega fyndið. Er þetta list...spyr sá sem ekki veit.
18.5.2006
Júróvisjón
Agalegt...maður missir af Eurovision í kvöld og á laugardaginn. New Pornographers eru mætt aftur til Glasgow og ekki hægt að láta þau fram hjá sér fara eftir allt stuðið síðast. Við förum að sjá kanadísku töffarana í kvöld og svo á laugardaginn er það Beautiful South, þannig að það verður klám úr suðri sem mun hafa vinningin yfir freakshowinu frá Aþenu. Hefði nú samt alveg verið til í að fara í júróvisjón partý en það er bara ekki sama stemmingin hérna yfir þessu (eins og ég hef minnst á líklegast tvisvar áður á þessari síðu...í fyrra og hittífyrra), engin stemming fyrir grilli og bjór og svoleiðis. Christina tekur þetta upp fyrir mig og maður hlustar á hvað Terry Wogan hefur um hana Silvíu Nótt að segja.
Áfram Ísland.
Börsungar meistarar Evrópu
Þetta var svaka leikur í gær og líklegast sanngjörn úrslit. Henke kom inná og reddaði málunum fyrir Barca. Þvílíkur snillingur. Nú verður það víst svoleiðis að vegna þessara úrslita munu Celtic fara beint inn í riðlakeppnina á næsta ári og munu að öllum líkindum enda í öðrum styrkleikaflokki...sem er náttúrulega bara alger snilld.
Henry var súr í viðtalinu eftir leikinn, hafði sett silfurmedalíuna innundir peysuna (eins og Henke gerði þegar Celtic töpuðu gegn Porto) og kenndi dómaranum um allt. Frá mínum bæjardyrum séð er þetta
Hann var of fljótur að flauta þegar Lehman braut á Eto, líklegast hefðu bæði lið viljað láta hagnaðarregluna gilda....Arsenal hefði haldið Lehman og Barca 1-0 yfir.
Þessi dýfa hjá Eboue var náttúrulega bara fáránleg þegar Arsenal fengu aukaspyrnuna sem leiddi til marksins, það snerti hann enginn og hann hrundi niður.
Jöfnunarmarkið var ekki rangstaða, það var farið í gegnum það oft og mörgum sinnum á ITV í gær, þeir eru samsíða sem þýðir að Eto var réttstæður.
Henry kvartar yfir spjaldinu sem hann fékk...skil það nú ekki, hann nær að pota aðeins í boltann en straujar svo Barca manninn og það bara má ekki. Svosem alveg sammála honum að hann fékk stundum að finna fyrir því hjá verðandi liðsfélögum sínum og jú það hefði verið spurning um að gefa Puyol og Marquez gult spjald en mér finnst að segja að dómarinn hafi eyðilagt leikinn vera út í hött. Kolo Toure er að verða einn af allra bestu hafsentum í boltanum í dag...skuggalega góður.
Engu að síður skemmtilegur leikur og börsungar verðugir sigurvegarar enda með besta liðið í Evrópu í dag.
17.5.2006
Jæja, þá er stóri leikurinn í dag. Þetta verður vonandi svakalegur leikur og sóknarbolti. Einhversstaðar heyrði ég að núna sé betra fyrir Celtic að Arsenal vinni þar sem þeir komust í CL gegnum deildarkeppnina en samt sem áður mun maður styðja Barca. Það væri gaman ef Henke myndi klára ferilinn hjá Barca á að vinna Meistaradeildina. Allavega...það verður stillt á ITV hérna frá klukkan 19 og við hliðina á sófanum verður nýji mini-ísskápurinn minn sem Christina gaf mér og hann verður fullur af bjór og ég ætla ekki að hreyfa mig...tja...kannski nema til þess að fara á klósettið í hálfleik. Læt fylgja með mynd af skápnum góða og innihaldinu sem beið á sunnudaginn

Það er svosem ágætlega séð um mann....það er ekki málið. Maður samt svona hálfpartinn kvíðir HM, spurning hvort að sambandið muni þola 6 tíma af fótbolta á dag. Maður getur víst ekki séð alla leikina (og vera búinn að setja 2 sjónvörp í stofuna þegar leikir á sama tíma eru í gangi) sem að sjálfsögðu á að vera markmið hjá hvaða fótbolta aðdáanda sem er.
15.5.2006
Jæja...kominn aftur til Skotlands eftir kennslutörnina. Ekki vissi ég hvað þetta var mikil vinna og maður setti marga tíma í þetta. Allavega, þá var prófið í dag og fékk ég tölvupóst nú síðdegis frá kennara þarna í HR sem var okkur innan handar að flestum hafi fundist prófið sanngjarnt (lesist: of létt) en dáldið langt, þannig að það hefur eflaust eitthvað vegið á móti þessu "sanngjarna". Maður vandar sig betur að semja prófspurningar á næsta ári. Svona kennsla er samt allt öðruvísi en að kenna 16 ára gelgjum algebru eins og maður gerði einnig eitt sinn.
Það var nú fínt að sjá aftur Christinu og eyddum við gærdeginum bara í rólegheitum. Hún kom mér á óvart með því að kaupa lítinn ísskáp handa mér sem er hægt að hafa inni í stofu svo maður þurfi ekki að labba inn í eldhús að sækja bjórinn þegar maður horfir á HM í sumar. Hún getur nú stundum komið manni á óvart stelpan. Ætlaði að setja inn myndir af honum en gleymdi myndavélinni í morgun. Við fórum út að borða í gær en satt best að segja var maður alveg dauðþreyttur, held ég hafi sofnað eitthvað fyrir 10 og náði að sofa til 8....gott ef maður fer ekki bara snemma í háttinn líka í kvöld.
Juve meistarar. Þetta var skrýtið tímabil hjá þeim svarthvítu, voru með titilinn nánast unninn í febrúar en hikstuðu svakalega í mars en þetta hafðist að lokum. Titlarnir orðnir 29 og nú þarf bara einn uppá til að fá þriðju stjörnuna á búninginn. Ég blæs nú á allt tal um lélegt tímabil, meistarar og komust í 8-liða úrslit í meistaradeildinni...tja ekki getur Chelsea státað af svoleiðis árangri. Semsagt fínt tímabil búið hjá strákunum í Tórínó en væntanlega verða gerða einhverjar breytingar á hópnum í sumar.
8.5.2006
Hversu súrir ætlu Spurs menn séu í dag, agalegt að missa af 4. sætinu fyrir þá. Einnig slæmt fyrir Celtic þar sem að þeir eru með fleiri uefa stig en Spurs en færri en Arsenal þannig að Arsenal munu alltaf vera í hærri styrkleikaflokki en þeir. Dafoe hlýtur einnig að vera pirraður yfir því að 17 strákur sem hefur ekki spilað í efstu deild sé tekinn fram fyrir hann í HM hópnum. Nokkuð ljóst samt að þegar Sven sér að Rooney mun ekkert spila, þá hlýtur honum að vera kippt inn. Mér finnst Owen einnig vera spurningamerki, hann hefur spilað 30 mínútur síðan frá jólum, spilaði 29. apríl (í 30. mín) og meiddist eftir það. Sven segir að hann geti farið að æfa 100% í vikunni en það verður fróðlegt að sjá hvernig hann stendur sig í æfingjaleikjunum, ef hann meiðist aftur þá er Sven í trobbúl. Svo er alltaf spurning í hvernig formi hann er í, eitt að vera í góðu formi og annað að vera í góðu fótboltaformi. Sjáum til.
Juve halda áfram siglingunni að titlinum, þurfa núna bara stig gegn Reggina í síðustu umferðinni og scúdettan er þeirra. Shevschenko meiddist svo hjá Milan þannig að þeir verða ekki alveg fullmannaðir gegn Roma sem er erfiður leikur þar sem Roma er að berjast um Meistaradeildarsæti. Það yrði alveg stórslys ef Juve myndi tapa þessu en ef Juve tapar og Milan vinnur þá er Milan meistari vegna innbyrðis viðureigna. Þetta verður spennandi en maður treystir á að Rómverjarnir veiti Milan smá keppni á sunnudaginn. Juve ætti að geta náð þessu stigi, Reggina tapaði 5-2 fyrir Fiorentina á sunnudaginn.
4.5.2006
Fréttir
Í kvöldfréttum hjá RÚV var frétt þar sem fyrirsögnin var "100 Íslendingar látast á ári á spítölum vegna mistaka við lyfjagjafar" og maður hugsaði mér sér....hmmm helvíti er það mikið, það er bara rétt tæplega 3 á dag sem geispa golunni af því að þeir fengu C-vítamín í staðinn fyrir hjartalyfin sín. Þegar fréttin var svo lesin í heild sinni þá var hún um forrit sem Tölvumyndir eru að vinna að og tölurnar voru fengnar með því að taka einhverja bandaríska statistík og yfirfæra hana yfir á ísland. Þannig að fyrirsögnin er eiginlega alveg út í bláinn. Í fyrsta lagi er tekin einhver tölfræði sem er fengin frá BNA frá óþekktri heimild (getur semsagt verið hvað sem er) og í öðru lagi er þetta yfirfært beint yfir á Ísland. Mér finnst þetta ansi vafasöm röksemd og ég ætla allavega að taka þessari tölfræði með fyrirvara. Samt eflaust mjög flott forrit sem Tölvumyndir eru að vinna að.
2.5.2006
Fór í sund um helgina og hvernig menn fara að því að synda meira en 100m skriðsund í einu er ofar mínum skilningi. Þetta er sambland af því að maður er í alveg skelfilegu formi og svo er maður ekki að gera sundtökin rétt og gerir sjálfum sér þetta helmingi erfiðara. Þetta er samt efficient líkamsrækt þar sem maður stendur á öndinni eftir 100m og skiptir þá yfir í bringusund og á meðan hamast hjartað í manni.
Sandy kom í dag og tók yfir fyrirlestrana, við förum í sjúkraþjálfunina á morgun að mæla göngukrafta á þrýstiplötunni og eftir hádegi muni krakkarnir kynna hvað þau eru að gera í hópverkefnunum. En fyrirlestrunum mínum er lokið sem er vel. Nú getur maður aðeins slappað af.
29.4.2006
Af greyjunum á Soho square og honum Dabba
Þetta landsliðsþjálfaramál Englendinga er að snúast upp í hinn besta farsa. Einhver lak út fréttinni að heiðursmannasamkomulag hafi verið gert við Big Phil Scolari þjálfara Portúgals um að hann muni taka við af Sven eftir HM. Það er ekki lítið búið að væla í UK um að fá enskan stjóra...eða breskan í Martin O'Neill þar sem þeir þekki best inn á fótboltakúltúrinn. Gallinn er sá að Englandingar eiga ekki neina sérstaka þjálfara. Þótt ótrúlegt megi virðast þá er Glenn Roeder sá enski þjálfari sem er efstur í töflunni með Newcastle í 8. sætinu...(Sir Alex er náttúrulega Skoti og Mark Hughes Walesverji) og svo Big Sam í 9. sæti með Bolton. Málið er það að stóru klúbbarnir hafa ekki haft enskan þjálfara í langan tíma....ætli Roy Evans hjá Liverpool og Bruce Rioch hjá Arsenal hafi verið þeir síðustu og það hefur ekki verið high profile enskur manager síðan Bobby Robson og Mike Bassett. Þessir sem voru inn í myndinni hjá FA, Big Sam, Curbs og McClaren eru eflaust ágætir þjálfarar en það er spurning hvernig þeir myndu höndla pressuna. Allavega, FA þarf high profile ráðningu af því alltaf þarf að vera glamúr í kringum þá þarna á Soho square og Scolari er vissulega high profile maður. Á föstudagsmorgun virtist allt vera klappað og klárt og blaðamenn Sun búnir að koma sér fyrir, fyrir utan húsið hans Scolari. Svo bara kemur kallinn með sprengju síðar um daginn og segir að hann hafi engan áhuga á enska djobbinu og ætli alls ekkert að taka við því. Ekki nóg með það heldur koma fréttir um að McClaren hafi eitthvað verið að klappa einhverri stúlku meðan hann og kona hans voru tímabundið skilin. Ritstjóri Sun sér alveg fram á gósentíð. Af því að Englendingar hafa svo mikla siðferðiskennd þá getur varla maður sem hefur gert eitthvað svona komið til greina sem England manager. Auk þess sé ég ekki að Curbs, Big Sam eða McClaren muni taka við starfinu þó svo þeim væri boðið það eftir að hafa verið gerðir að fíflum ef satt reynist um þetta heiðursmannasamkomulag. Get alveg séð fyrir mér samtalið frá FA....."hæ, heyrðu eftir nokkrar pælingar sáum við að þú ert miklu betri en þessi Brassi þarna.....ertu ekki bara til í að taka að þér djobbið". Sloppy second væri nafnið yfir þá félaga. Þessi grey þarna á Soho Square eru alveg með buxurnar á hælunum í þessu máli. Skotum leiðist þetta ekki.
Annað grey sem er miklu betra grey en þessi Berwick hjá FA er greyið hann Dabbi. Það er mikill fengur að fá David Gray til landsins að halda tónleika í byrjun júlí. Ég fór á tónleika með honum í desember í fyrra og skemmti mér alveg konunglega, hann er alveg stórfínn. Eini gallinn við þetta eins og alltaf er að hljómsveitin "lúkkar" stundum ekki alveg rétt og oftast nær er það trommarinn sem er eins og snjókorn í helvíti. Hvað um það...það er til verri leið að eyða kvöldstund en að fara á tónleika með David "The headbanger" Gray. Honum hlýtur að vera illt í hálsvöðvunum eftir hverja tónleika.
27.4.2006
HR
Búið að vera hrikalega mikið að gera í kennslunni, er með fyrirlestra frá 8.15 til 11.40 og svo dæmatíma í tvo tíma eftir hádegi. Við förum svo á Iðntæknistofnun á morgun að slíta stál. Þótt þessi kúrs heiti vélhlutafræði, þá er maður eiginlega bara búinn að vera að kenna burðarþolsfræði, taka fyrir togþolsferla, spennur, tognanir, beyjuvægi í bitum og svoleiðis. Spurning hvort maður ætti að taka fyrirlesturinn á þriðjudaginn til að tala um fjaðrir og legur og svoleiðis. Ég kann reyndar akkúrat ekkert í því. Sandy kemur svo með þriðjudagsvélinni og verður mættur eftir hádegi að kenna sitt. Það verður gott að fá smá frí frá fyrirlestrunum.
Annars er þetta nokkuð fínt þarna niðri í HR, aðstaða náttúrulega öll til fyrirmyndar og einnig kom mér á óvart hvað allt gengur hratt fyrir sig. Maður komst inn á tölvukerfið, fékk aðgangskort að byggingunum og ljósritunarkort um leið og ekkert vesen. Ég held samt að laptopþéttleikinn þarna sé með því hæsta sem ég hef bara séð. Laptopþéttleiki er náttúrulega skilgreindur sem fjöldi laptopa á flatareiningu. Langflestir í tímunum hjá mér eru með laptop. Gelluþéttleikinn þarna er einnig sæmilegur bara.
Jæja...þá er að fara að undirbúa fyrirlesturinn á morgun, þar ætla ég að tala um höfuðspennur, von Mises spennur, skerspennur í vinduvægi, spennumyndir og jafngildisspennur.
P.S. þetta með spennumyndirnar var djók, þótt þetta sé kvikmyndaverkfræði förum við nú ekki að kryfja Dirty Harry. Við höldum okkur við annars konar spennur
22.4.2006
Kvikmyndaverkfræði af guðs náð
Í lok nóvember ákvað Nicky að fjölga mannkyninu...eða öllu heldur var það ákveðið eða óákveðið 9 mánuðum fyrr. Það þýddi að ég varð að ganga sjálfala í 6 mánuði og vinna verkefnið upp á mitt einsdæmi. Svosem ekkert að því, maður verður jú að sýna að maður geti unnið sjálfstætt. Í gær fór ég á fund til Sandy (sem er skorarformaðurinn) til að ræða kennsluna í HR næstu 3 vikur. Á þeim fundi, tjáði Sandy mér að Nicky muni ekki snúa aftur! Kellingin hefur fengið rugluna í barnseignarleyfinu og sendi uppsagnarbréfið til deildarinnar á fimmtudaginn. Svo virðist vera að hún og maðurinn hennar hafi fengið einhverja köllun og minntist Sandy eitthvað á trúboð í Afríku! Jamm þið lásuð rétt...helvítis andskotans trúboð í frumskógum Afríku. Nicky er ein af þessum svaka trúuðu...en þetta er bara út í hött. Henni dettur ekki hug að reyna að kristna mig. Ég verð nú bara að segja að mér finnst þetta ótrúlegt ábyrgðarleysi í henni. Hún er með 4 nemendur auk mín, Makis, Angelu (sem þarf að skila inn í ágúst), Ross sem var að byrja verkefnið sitt undir hennar stjórn og Neil sem er reyndar post doc. Ég veit ekki hvað verður um þau, en mér finnst líklegt að Makis muni pakka saman og halda til Grikklands. Ég veit ekki alveg hvað ég á að gera, samningurinn minn rennur út í lok janúar og ég veit ekki alveg hvað ég á að gera án þess að hafa leiðbeinanda. Allavega er ég ekkert sérlega uppgíraður að gera þetta verkefni núna, þessar 3 kennsluvikur verða alveg kærkomnar, gefur manni eitthvað annað að hugsa um. Meðan hún ætlar að bjarga einhverjum sálum, þá verðum við skilin eftir í free-fall. Greinilegt að heiðingjarnir í Afríku eru mikilvægari en við.
Djöfulsins trúarhyski....ætti að senda þetta pakk allt til helvítis. Ég er nokkuð viss um að þessi jesú gæji myndi vilja að Nicky myndi klára að sjá um mig og undirbúa brottför sína úr deildinni betur en þetta. Þetta er svo mikil sóun, hún er búin að byggja upp flottan feril og í raun er með þeim fremstu í heiminum í handa-bioengineering og ætlar að henda þessu svo frá sér....þetta er alger sóun á hæfileikum.
21.4.2006
Annarrar deildar meistari BBC-Akranes
Um síðustu helgi vann ég aðra deildina í tippkeppni BBC-Akranes. Keppnin fólst í að giska á úrslitin í enska boltanum. Það voru ófáar stundirnar sem maður eyddi á soccernet til að pæla í tölfræðinni og reyna að koma með einhver educated guesses. Uppskeruhátiðin var svo haldin á annan dag páska á Akranesi, ég rétt náði endanum til að taka við verðlaununum þar sem ég var á ferðalagi með Christinu og mömmu hennar fyrr um daginn. Þessi tippkeppni var alveg stórskemmtileg og maður fylgdist því betur með úrslitum leikja.....Jón Þór og Gulli fá mikið hrós fyrir skipulagninguna. Nú er bara að massa úrvalsdeildina að ári, en fyrst er þó HM leikur sem maður þarf að spekúlera í. Á bbc-akranes vefnum var svo tekið viðtal við sigurvegarana
Annars er maður núna bara á fullu að undirbúa kennsluna í næstu viku...smá stress í gangi. Þetta reddast samt allt.
19.4.2006
Vika frá síðustu færslu....agalegt kæruleysi. Hins vegar hefur verið nóg í gangi. Mamma hennar Christinar kom yfir páskahelgina til Reykjavíkur og tókum við sightseen pakka á þetta, Bláa Lónið, Perlan, Gullfoss og Geysir. Það eru ár og aldir síðan maður fór í Haukadal en oftast þarf maður svona hvata (þ.e. gesti) til að maður drífi sig. Allt brjálað að gera í Leifsstöð í gær og greinilegt að allir voru að fara utan eftir páskafrí, held við höfum tékkað inn c.a. 30 mín fyrir brottför. Þetta verður stutt stopp hérna en maður fer aftur heim á sunnudaginn, þar sem maður verður að kenna í HR næstu 3 vikur. Það leggst bara nokkuð vel í mig en maður þarf að taka svaka upprifjun í burðarþolsfræðinni sjálfur...vægislínurit, Young's stuðullinn, spennur, tognanir og beygjuvægi ásamt mörgu öðru verður á dagskrá.
Hörkuleikur í gær milli Barca og Milan, gaman að sjá þessa takta hjá Ronaldinho þegar hann tekur sig til, unun að horfa á manninn og sama má segja um Kaká.
Það var alltaf eitt sem ég ætlaði að minnast á, en þannig var mál með vexti að við horfðum á úrslitaþáttinn í Idol þarna fyrir löngu (föstudaginn fyrir dymbilviku) og þá kom Bubbi með frábært komment um að hann væri sá Íslendingur sem hefði selt langmest af plötum. Ætli Björk hafi verið að horfa? Bubbi hefur selt mikið en ég skal nokkurn veginn veðja upp á hausinn á mér að Björk hefur selt tífalt meira.
Annars er bara vorið að koma hérna í Glasgow og þá almennt léttist lundin á Skotunum, nákvæmlega eins og hjá okkur Íslendingum. Við höfum víst orð á okkur að vera dáldið úrill á veturna og í skammdeginu.
12.4.2006
Búið að vera mikið í gangi síðustu daga, það leit ekki vel út á föstudagsmorguninn hvort maður kæmist heim en bakið ákvað að gefa sig alveg. Christina rúllaði mér á hjólastól í gegnum flugstöðina. Manni var svo draslað beint inn á Borgarspítalann eftir lendingu þar sem ég fór í MRI myndatöku þar sem kom í ljós að taugin var aðeins bólgin en það hafði ekkert rifnað. Taugin var svosem ekkert "bara bólgin", nógu djöfulli sárt var það allavega. Hef verið á einhverjum sterakúr síðan og þetta er svona allt að koma smám saman.
Svaka fermingarveisla hjá litlu systur á sunnudaginn...Christina stóð sig mjög vel í kringum 50 ný andlit, dáldið erfitt stundum að vera kynntur fyrir of mörgum í einu. En stelpan stóð sig vel í kringum aðra fjölskyldumeðlimi.
Fyrir utan það þá höfum við Christina bara verið að flakka um borgina og dunda okkur. Nú er allt komið í gang fyrir mig og Sandy (prófessor í bioengineering deildinni úti) að koma aftur strax eftir páska og kenna vélhutafræði með bioengineering twisti í HR. Fór aðeins í skoðunarferð þarna um HR í ofanleitinu og þetta er svaka aðstaða, einnig var gaman að sjá nokkur andlit úr VR-II sem voru þar á sama tíma og maður sjálfur. Kennslan mun svo byrja í lok apríl en nánar um það síðar.