6.4.2006
Champions

Búnir að klára deildina strax í byrjun apríl...ekki slæmt það. Svo er bara næsta mál að massa Meistaradeildina á næsta tímabili með Keane fremstan í flokki.
5.4.2006
Þetta var hörkuleikur í gær og Serie A mun þó allavega eiga einn fulltrúa í undanúrslitunum. Villareal magnaðir og vonandi að þeir muni vinna Arsenal í undanúrslitunum. Maður mun reyna að finna einhvern pöbb í kvöld sem mun sýna Juve-Arsenal. Annars er maður bara pollrólegur á þessu. Búinn að sætta mig við að Juve komist ekki lengra þetta árið. Thuram er eitthvað að básúna um að sækja á Arseanal eins og fellibylur og Juve geti alveg sett 3-4 mörk, en maður veit betur að láta ekki þessa kalla byggja upp einhverjar vonir sem verða svo bara rústað.
James Richardson hjá Guardian komst skemmtilega að orði í hugleiðingum sínum um leikinn. Hann sagði "Not since the days of Anne Boleyn has a Henry given an old lady the pasting she received last Tuesday", en þess má geta að Juve er stundum kallað La vecchia signora (gamla konan). Mikið væri nú gaman ef íslenskir blaðamenn gætu komið upp með svona smellnar setningar en Örn Úlfar minnist á óþolandi íþróttafréttamenn í pistli sínum sem er alger skyldulesning....hann hittir naglann á höfuðið þar.
Celtic getur tryggt sér titilinn í kvöld með sigri á Hearts, það verður reyndar erfitt að finna pöbb sem mun sýna Juve leikinn en ég bind vonir við einn pöbb þar sem ég held að eigandinn sé rangers maður. Það eru reyndar blendnar tilfinningar fyrir þennan leik gegn Hearts. Það eru 7 leikir eftir í deildinni og Celtic með massaforskot (nokkuð impressive að geta tryggt sér titilinn í byrjun apríl) og væri það ekki úr vegi að hjálpa Hearts aðeins í baráttunni við rangers um annað sætið og tapa í kvöld. Við vinnum bara titilinn um næstu helgi í staðinn....ekkert stórmál. Þetta er smá dilemma reyndar. Ef Hearts fer í meistaradeildina, þá fer Gretna (þriðjudeildarlið sem komst í bikarúrslitin) í uefa cup. Þar verða þeir náttúrulega með 0 uefa stig (uefa stig= stig sem lið safna með þátttöku í Evrópukeppni og hversu hátt deildarkeppnin er metin hjá uefa...því hærri stig, þeim mun meiri líkur að fá léttari mótherja) og munu dragast gegn einhverju miðlungsliði sem mun strauja þá í fyrstu umferð. Það mun hins vegar þýða að skoska deildin muni tapa einhverjum uefa stigum sem gæti komið í bakið á Celtic á næstu árum, ef þeir verða í lægri styrkleikaflokki. Þess vegna er best að að Celtic og rangers fari í Meistaradeildina, Hearts (ef þeir vinna Gretna í úrslitum bikarsins) og líklegast Kilmarnock í uefa cup....svona upp á að skoska deildin eigi sjéns að vinna sér inn uefa stig. Það yrði samt bara of fyndið að sjá rangers bara í 3. sæti. Varðandi Meistaradeildina á næsta ári, þá fer Celtic beint í riðlakeppnina og það er einhver spekingur búinn að reikna það út að það er sjéns að við myndum lenda í pot 2 (sem þýðir slakari andstæðinga í riðlinum og meiri möguleika að komast upp) en það er háð mörgu og held ég því að Arsenal vinni ekki keppnina þetta árið.
4.4.2006
Hef aðeins verið að hlusta á nýja efnið frá Morrissey og the Streets. Báðir aðilar við sama heygarðshornið sem er bara mjög gott mál. Morrissey er enn þunglyndur og kannski að platan sé ekki af alveg sama kaliber og hin æðislega "You are the quarry", en ég hef ekki heyrt allt af "Ringleader of the tormentors" en það eru mörg flott lög þarna. "You have killed me" hefur verið mikið í spilun síðustu daga og af einhverjum ástæðum hef ég verið að hugsa um Fabregas meðan það lag rúllar. Mike Skinner er alltaf hress að rappa um samskipti kynjanna í UK, farsíma og almennt höstl á sinn skemmtilega hátt....eins og hann kemst svo vel að orði: "...cause the ones who get hammered don't get to nail".
Maður dagsins er samt án efa stórvinur minn og frændi hann Gísli Freyr sem heldur uppá 1 árs afmælið sitt í dag.
3.4.2006
Leikhúsið á laugardaginn var mjög fínt bara...dáldið poppuð útgáfa af Faust en ég náði nú ekki alveg að fylgja (og hef ekki lesið bókina) á köflum. Christina hefur stúderað upprunalega verkið á þýsku og var stundum ekki alveg sátt við útfærsluna. Sagði þetta vera eins og Pizza Hut pizzur....mjög fínar en væru samt ekki alvöru pizzur. Hún vill hafa Faust í skikkju og Shakespeare leikara í sokkabuxunum, ég svosem hef ekkert á móti því að klassísk verk séu staðfærð innan ákveðinna marka....en menn mega ekki alveg missa sig í poppinu.
31.3.2006
Camoranesi vaffanculo
Mér er svona að mestu runnin reiðin síðan á þriðjudag, en samt enn sýður aðeins á mér. Skil ekki hvað Camoranesi var að pæla....þetta svosem böggar hann ekkert, hann fær sín laun og hvaða máli skiptir hann hvort Juve verði Evrópumeistari eða ekki? Hann fer bara í fótboltaleik, gengur illa og fer bara að sparka í andstæðingana í einhverju ergelsi og eyðileggur fyrir liðsfélögum sínum (Zebina er ekki saklaus heldur) og ekki síst fyrir mér og líklega mörg þúsund annarra. Hvaða máli skiptir hann (og eflaust fleiri slúbberta í liðinu á þriðjudaginn) að vikan mín var eyðilögð vegna þess að hann varð pirraður? Varð nú glaður að lesa um viðbrögð Capello varðandi Camoranesi, hann verður nefnilega sektaður af klúbbnum og maður bara vonar að honum verði sparkað út í sumar. Capello er alger snillingur og lætur menn ekki komast upp með neitt múður.
Anyhoo...við Christina förum til Edinborgar á morgun að sjá Faust eftir Göthe. Þetta verður einhver maraþon sýning, en hún verður í tveim hlutum, síðdegissýning og svo matarpása og svo aftur um kvöldið. Planið er að gera smá dag úr þessu og byrja í dýragarðinum að skoða mörgæsirnar og fara svo eitthvað fínt út að borða í pásunni milli sýninga.
29.3.2006
Djöfulsins helvítis aumingjar voru Juve í gær. Vona að Camoranesi fái aldrei aftur sjéns með liðinu, fagna og veifa til áhorfenda eftir að hafa verið sendur útaf...fáviti. Veit að Capello mun kaupa vængmann frá Parma í sumar og þá er hægt að henda þessum argentíska ítala út úr liðinu. Del og Nedved munu koma inn eftir viku, þannig að það gæti breytt einhverju en þetta er bara búið spil er ég hræddur um.
Já...og svo nenni ég ekki að fá einhver helvítis andskotans skítakomment hérna á síðuna, þeim verður eytt samstundis. Eflaust munu einhverjir Liverpool, Manjú og Chelsea menn nú skríða undan steini og halda því fram að þeir hafi alltaf stutt Arsenal í Evrópukeppninni og hvað þeir séu frábærir og og hvað Juve séu lélegir og blablablabla. Við alvöru Arsenal menn segi ég bara til hamingju með að vera nánast komnir í undanúrslitin og með svona spilamennsku hljóta þeir að teljast kandídatar að vinna þessa helvítis keppni. Við þá sem gerðust stuðningsmenn Arsenal klukkan 21.30 í gærkvöldi segi ég bara fokk off.
Djöfull hata ég fótbolta
28.3.2006
La partita questa sera!
Úffff, ég er stressaður. Þetta verður ofsalegur leikur í kvöld, bæði lið eru án sterkra leikmanna. Hjá Arsenal vantar Ljungberg, Cole og Campbell og hjá Juve vantar Nedved og Del Piero. Eins gott að Zlatan standi sig núna en hann hefur verið að fara í taugarnar á samherjum sínum með einhverjum fansí hælsendingum sem ekkert virka. Ég hef oft rökrætt við vin hans Marks sem er gallharður Arsenal maður að salan á Vieira hafi verið mistök (en ég sem Juve maður er náttúrulega hæstánægður að hann kom), Fabregas er ofsaspilari en hann er enn ungur að árum og ég held að Vieira sé betri en hann í dag. Ég held að Vieira verði alveg vel gíraður í þennan leik og það yrði æðislegt ef hann setti eitt. Held að ég myndi sætta mig við jafntefli 1-1 svona til þess að fá útivallarmarkið en mestu máli skiptir að tapa ekki.
Áfram Juve
27.3.2006
Reykingabann
Í gær byrjaði reykingabann í Skotlandi sem nær til allra stofnanna, veitingahúsa, pöbba og skemmtistaða. Ekki slæmt það. Reyndar eru allir reykingamenn brjálaðir yfir þessu og ég svosem skil alveg pirringinn í þeim að geta ekki sest niður með bjór í annarri og rettu í hinni....en ég náttúrulega fagna því bara að geta setið inni á pöbb án þess að þurfa að fara með fötin mín í hreinsun daginn eftir. Gallinn...tja ef galla skyldi kalla við þetta er það að prumpufýla verði meira áberandi á pöbbunum, fýla sem er fylgifiskur mikillar Guinness drykkju.
Af svindlurum
Mikið er Drogba kaldur að koma fram í viðtali og réttlæta þessi hendi skömmu áður en hann skoraði seinna mark Chelsea um helgina. Að segja að þetta sé hluti af leiknum er heimskulegasta komment sem ég hef heyrt. Það stendur mjög skýrt í fótboltareglunum að það sé bannað að taka boltann með hendinni nema í innköstum. Dómarar hafa einnig litið framhjá því þegar menn nota hendurnar til að verja viðkvæma líkamshluta og boltinn fer í hendurnar á þeim. Að leggja boltann fyrir sig með hendinni og skora er einfaldlega svindl og að hálfpartinn monta sig af því í viðtali eftir leik er ósvífið. Einnig sagðist hann oft henda sér niður. Drogba er að verða alveg óþolandi leikmaður.
Helgin
Stórgóð helgi suðurfrá þó vissulega hafi ég verið allverulega pirraður þegar það kom í ljós að fótboltaleiknum var frestað. Við vorum bara á leiðinni á lestarstöðina til að fara á völlinn þegar pabbi hringdi í mig til að segja að leiknum hafi verið frestað. Ekki amalegt að fá hringingu frá Íslandi til að segja hvernig aðstæður eru á staðnum þar sem maður er sjálfur. Verð nú samt að segja að mér finnst hálfglatað að svona smá rigning geti valdið frestun, jújú vissulega rigndi en ekkert meira eins og gengur og gerist hérna í Glasgow. Þetta er pottþétt samsæri að hálfu Arsenal til að fá aukahvíld fyrir stórleikinn á morgun.....Wenger mætti í skjóli næturs og úðaði völlinn og gerði hann gegnsósa....það er ekki sjéns að rigningin á laugardaginn hafi gert völlinn óspilhæfan á 4 tímum (Portsmouth segja að völlurinn hafi verið yfirbreiddur fram yfir hádegi á laugardag). Við fórum í bíó í staðinn. Fyrr um daginn fórum við á sjávarréttaveitingastað niður við höfnina sem var alveg geggjaður og þar áður skoðuðum við skipið Victory sem Nelson stýrði á Trafalgar. Magnað skip. Í gær rigndi einnig og við tókum smá rúnt í mini-inum sem mamma hennar Christinu á, geggjað svalur bíll og tókum allrosalegt session í búðunum þarna....sem var bara gott fjör. Tókum svo næturlestina heim og komum rétt eftir 7 í morgun, þannig að maður náði að skjótast aðeins heim í sturtu og til að skipta um föt og svo beint í vinnuna. Hlakka til að fara aftur þangað suður en vonandi verður veðrið betra.
24.3.2006
Við Christina förum til Portsmouth núna í kvöld í heimsókn til mömmu hennar og verðum þar yfir helgina. Komum tilbaka með næturlestinni frá London og þaðan mætir maður bara beint í vinnuna. Sýnist veðrið eiga að vera skaplegt...allavega yfir 10 gráðum. Hélt að veturinn væri á undanhaldi hérna en það er skítkalt í dag.
Haha Liverpool Chelsea svo í FA cup, magnað hvað þessi lið virðast alltaf dragast saman um þessi misserin. Mikið rosalega væri ég hamingjusamur ef Everton næðu sigri á Anfield á morgun. Svona ykkur að segja, þá braut ég gullnu reglu tipparans (sem er að það er bannað að tippa gegn sínu liði) í spá minni í leiki helgarinnar (...ekki segja Bundy það samt), en þannig er það nú. Strategic tipping kallast þetta, þar sem andstæðingar mínir í BBC-Akranes tippkeppninni (2 stig fyrir rétt úrslit, 5 stig fyrir rétta markatölu) hafa líklegast tippað á Liverpool sigur og þá er best að gera eins og þeir til að gefa þeim ekki færi á sér.
....en nú....Ingerlund
23.3.2006
Nóg af músík búin að vera í gangi síðustu daga
Topp 6
| Nick Cave: Christina the Astonishing (....a very appropriate title from Mr. Cave) |
| Postal Service: Against the odds (...var ekki Phil Collins að skilja) |
| Death Cab for Cutie: Recycled air (...ábreiða frá Postal Service. Lagið má nálgast hér, undir stafnum "G") |
| Roddy Frame: The boy wonder |
| Norah Jones: Crazy (...snilldarábreiða af Patsy Cline slagaranum. Lagið má nálgast hér) |
| Jack Johnson: Sitting, waiting, wishing (...ég eflaust sá síðasti í Evrópu sem var að fatta Jack, en betra seint en aldrei) |
En mamma er meira svona Abba manneskja og hún á einmitt afmæli í dag
22.3.2006
Hæp-vélin
Á þessari vefsíðu, má finna öll þau blogg sem fjalla um tónlist og þar sem fólk hefur sett einstakar emmpéþrír skrár á síðuna hjá sér. Það má finna fullt af góðu efni þarna og hlaða niður á sína tölvu (með því að fara inn á síðurnar þar sem lögin eru sett á...read post). Þetta eru nú mestmegnis tónleikaupptökur og ábreiður (coverlög) en einnig má finna heilu plöturnar þarna.
Hæp-vélin er komin í daglega rúntinn hjá mér núna og líklegast mun æpoddinn eitthvað gildna við það....sem er bara gott mál.
21.3.2006
Fyrirlesturinn gekk mjög vel í gærkvöldi, menn allir mjög áhugasamir
Christina var í viðtali hjá BBC Scotland fyrr í vetur þar sem hún tjáði sig um uppáhaldstónlistarmanninn sinn Roddy Frame og fyrstu plötuna hans sem heitir High Land Hard Rain. Þættinum var útvarpað núna áðan og hann er á vefnum hjá BBC Scotland og hún fær að láta ljós sitt skína í tveim stuttum innslögum, þar sem hún minnist á það þegar hún var að reyna átta sig á textunum hans og þegar hún segist alltaf reyna að kynna sem flesta fyrir músíkinni hans. Þið getið heyrt í henni eftir c.a. 9 mínútur og eftir rúmlega 19 mínútur. Mæli með að fólk tékki á þessum hálftímalanga þætti.
Ég hef aldrei náð því að fara á tónleika með honum, hef alltaf verið fjarverandi þegar hann spilar í Glasgow eða Edinborg. Mun einnig missa af honum næst þegar hann kemur til Glasgow (12. maí) en við Christina munum gera okkur ferð til London að sjá hann 2. júní.
20.3.2006
Frábær fótboltaúrslit um helgina, Everton allt í einu farnir að salla inn mörkum leik eftir leik, Celtic unnu deildarbikarinn og Juve halda 10 stiga forskoti í Serie A. Everton er á svakalegu skriði og eru með 100% árangur á Goodison Park eftir áramót. Halda þessu áfram og stefna á Evrópusæti, langsótt en verðugt markmið. Stórleikur á laugardaginn þegar þeir bláu fara yfir Stanley Park og taka Liverpool í nefið. Mikið væri það frábært. Ég mun hins vegar missa af þeim leik vegna þess að við Christina förum niður til Portsmouth um næstu helgi í heimsókn til mömmu hennar. Mamma hennar reddaði meira að segja miða fyrir mig á Fratton Park á leik Portsmouth og Arsenal. Pompey á svaka siglingu og það má búast við hörkustemmingu. Skyldi þó ekki vera að Harry Redknapp tækist að bjarga þeim frá falli? Það er einnig vonandi að Henry sýni smá takta. Mér er eiginlega ekki stætt um að biðja um leyfi að fara á pöbbinn í hádeginu líka til að horfa á Everton, þar sem manni voru gefnir miðar á eftirmiðdagsleikinn. Hlakka mikið til að fara þangað suður, á víst að vera mjög fínt þarna við ströndina.
Það var matarboð heima hjá Christinu á laugardaginn, boð sem var ákveðið fyrir þónokkru og skyldi marka lok fyrstu lotu í DIY. Tókst bara vel til í alla staði.
Kjartan frændi hefði átt afmæli í dag....skál fyrir honum!
17.3.2006
Fyrirlesturinn um Ísland verður á mánudaginn....maður er að basla við að setja þetta saman. Spurning hvernig maður eigi að tækla þetta. Búinn að setja niður ferðir Ketils Flatnefs og dóttur hans Auði Djúpúðgu til Caithness og til Suðureyja (eyjarnar vestur af Skotlandi...t.d.Skye). Þorsteinn sonur Auðar var smákóngur í Skotlandi og maður Auðar var konungur í Dublin. Helgi Magri var einnig frá Suðureyjum. Einnig minnist maður á Melkorku (Mael Curach) dóttur Mýrkjartans (Muircertach). Ætla að minnast á örnefni sem eru tekin frá Skotlandi, t.d. Caithness og Katanes í Hvalfirði, Cnoc an Eireannaich og Írafell. Veit einhver um fleiri dæmi? Setti inn kafla um jarðfræðina, plötuskilin, gosbeltið og þess háttar. Annars er ég ekki nógu vel að mér til þess að fara eitthvað í þetta en finnst rétt að minnast aðeins á þetta. Annars er bara um að gera að hafa nóg af myndum til að sýna, Jökulsárlón, Þingvellir, miðbærinn í Reykjavík, Snæfellsnes og svo framvegis. Það væri nú reyndar fyndið að vitna í Thule auglýsingarnar af hverju íslensku stelpurnar eru svo sætar en þær bresku svo ljótar..."ðen ðí vækings djöst túkk ðí prittí görls end jú nó...hed tjildren viþþ ðem böt left ðí öglí görls in britein", fannst það alltaf fyndin auglýsing.
15.3.2006
Eric Weisstein
Einn nörd í bandaríkjunum er alger snillingur. Hann heitir víst Eric og heldur úti síðu þar sem maður getur leitað að hinu og þessu varðandi stærðfræði, eðlisfræði og aðrar raungreinar. Einnig hefur hann áhuga á fótbolta og spilar nördabolta í einhverri nördadeild. Ekki nóg með það, heldur er hann einnig með mataruppskriftir á síðunni hjá sér. Ég hef notað stærðfræðisíðurnar hans til að fletta upp hinu og þessu sem mig vantar þegar ég er að vinna við tölvuna og hef ekki Kreyzig við hendina. Svo bara fann ég kappann aftur í gær þegar ég var að leita að uppskriftum að tapas réttum. Mæli með með Eric.
13.3.2006
Það snjóaði sæmilega hérna á aðfaranótt sunnudags og þá lágu allar samgöngur niðri. Það þarf svosem lítið til að allt verði stopp hérna, held að flestir heima hefðu ekki kippt sér mikið upp við þessa snjókomu. Reyndar lá ég alla helgina með eitthvað kvef og er einnig búinn að vera heima í dag. Einhver aumingjaskapur í manni. Maður bara fylgdist vel með á BBC og Sky varðandi Milosevic. Fyndið að heyra viðtöl við alla segja að þeim finnist leiðinlegt að kallinn hafi hrokkið uppaf áður en hann var dæmdur. Fannst þó einn góður punktur í þessari umræðu varðandi málaferlin, það er þetta með þessa 66 ákæruliði, var ekki nóg bara að hafa þetta...tja...20? Hefði hann kannski fengið styttri dóm ef hann hefði bara verið dæmdur fyrir þjóðarmorð á Kosovo-albönum og múslimunum en hafi sloppið við að svara til saka um Srebrenica? Kannski hefði hann bara fengið 10-falt ævilangt fangelsi í stað 15-falt...pæling.
10.3.2006
It had to be you...
Auðvitað varð Juventus að dragast gegn Arsenal svo að Vieira geti spilað einu sinni enn á Highbury. Henry hittir einnig fyrir gamla klúbbinn sinn. Þetta verður massaerfiður leikur og í sannleika sagt þá hefur Juve ekki gengið alltof vel gegn enskum liðum undanfarin ár. Möguleikinn er opinn fyrir Juve Barca úrslitaleik, það væri alveg geggjaður leikur.
Forza Juve
9.3.2006
Í gær var alþjóðlegi kvennadagurinn. Það er hefð á Ítalíu að gefa konum (vinnufélögum, vinkonum, eiginkonu eða kærustu) blóm á þessum degi sem kallast mimosa, þetta eru nokkurs konar gulir bómullarhnoðrar og eru mjög algeng á Ítalíu. Það er minna af þessum blómum hérna í Bretlandi en blómabúðin á móti mér ætlaði að sérpanta nokkur stykki fyrir mig. Mér tókst nú ekki að gera það nógu snemma þannig að þau kæmu í gær en vonandi getur maður fært Christinu mimosa á morgun.
8.3.2006
Til hamingju með daginn konur
Ég er glaður í dag. Greinilegt að nokkur hnefahögg í borðstofuborðið og bölv milli þess sem maður gerði refresh á beina lýsingu á uefa síðunni hjálpuðu til að koma Juventus áfram. Þetta leit alls ekki vel út á tímabili, Juve úti og rangers inni. Ég var orðinn vel stressaður.
Annars er nú leiðinlegt fyrir góðan markmann Bremen að gera svona afdrífarík mistök. Hann missti boltann eftir að vera búinn að grípa hann og Emerson að skokka tilbaka eins og sést á myndinni. Cannavaro kallar á hann að boltinn sé laus og Emerson rennir honum inn í opið markið á 88. mínútu. Við Juve stuðningsmenn tökum þessu marki með glöðu geði (enda telja þau öll) en óneitanlega hefði verið skemmtilegra að við hefðum skorað á annan hátt. Það sem skiptir víst máli er að Juve er í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
José José José....hvað skal maður segja! Hrokinn í honum hefur verið nokkuð skondinn...special one og allt það en nú virðist kallinn vera orðinn fórnarlamb eigin velgegni og hrokinn hættur að vera fyndinn. Að segja að betra liðið hafi tapað (þ.e. chelsea gegn barca) og að í þessum samtals 4 leikjum (liðin mættust einnig í 16-liða úrslitunum í fyrra) þá hafi Barca aldrei unnið 11 gegn 11 er náttúrulega bara skítakomment. Riikjard kemur mjög vel út eftir þessa leiki.
Ég ætla að planta mér fyrir framan skjáinn á pöbbnum í kvöld og horfa á Arsenal-Real. Það er eiginlega fyrsti "alvöru" leikurinn í 16 liða úrslitunum sem maður getur fylgst með (þar sem ég varð að gera mér rangers leikinn að góðu síðast). Maður vonast eftir sóknarbolta.
7.3.2006
Voða lítið í gangi eitthvað, við kláruðum gólfin hjá Christinu á sunnudaginn og líta þau bara nokkuð vel út. Stefnan sett á að mála um næstu helgi og þá er komið gott af DIY.
Aðalleikurinn í kvöld sem ég missi af vegna ítölsku. Reyndar var ég að fatta það að ég hefði líklegast ekki náð honum á sjónvarpinu hvort eð væri. Það er vegna þess að á Englandi er þetta ITV1 leikurinn og rangers leikurinn er sýndur á ITV4, hins vegar í Skotlandi eru rangers á ITV1 en einnig á ITV4 vegna þess að ITV1 er "regional" stöð en ITV4 sýnir það sama yfir allt Bretland óháð hvort maður sé í Englandi, Skotlandi, Wales eða Norður Írlandi. Mér finnst það reyndar dáldið skítt...að hafa sama leikinn á tveim stöðvum en þeir verða að hafa rangers leikinn á ITV1 í Skotlandi vegna þess að ITV4 er digital stöð sem næst ekki án freeview boxins. Eins gott að rangers verði slegnir út í kvöld svo að maður þurfi ekki að taka þátt í svona vitleysu aftur.
Svo bara að vona að Barca og Juve komist einnig áfram. Sama hversu mikill hrokagikkur Mourinho er, þá er hann helvíti svalur þegar hann labbar rólegur með "headphones" í gegnum mannfjölda sem kallar ókvæðisorð að honum...er viss um að hann sé að hlusta á Oasis. Einnig ætlar hann að labba út á Nou Camp völlinn á undan liðunum og bjóða 100 þúsund áhorfendum byrginn...merkilegur karakter hann José.
3.3.2006
Við erum að fara á tónleika annað kvöld með hljómsveitinni "Death cab for cutie", hafði ekki mikið hlustað á þá þar til fyrir nokkru. Flott bandarískt indie popp. Þeir eru því búnir að vera fyrirferðamiklir í eyrnatólunum síðastliðnar vikur. Einnig tók ég mig til og hlustaði á öll Suede lögin sem ég á. Agalegt að heyra hnignun þeirra síðustu árin....sumar B-hliðarnar (og jafnvel A hliðarnar) af Coming up og Head music eru hreint út sagt skelfilegar. Svo varð nú allt gott þegar maður heyrði Animal Nitrate, Stay together, He's dead og öll gömlu góðu lögin....þvílík snilldarmúsík.
Topp 5
| Death cab for cutie: Marching bands of Manhattan |
| Death cab for cutie: Someday you will be loved |
| Suede: The Drowners |
| Charlatans: One to another |
| Bright Eyes: Another travelin' song |
2.3.2006
Setti í gær æpoddinn minn á shuffle til að sjá hvers konar lög hann myndi velja fyrir mig, upp til hópa var lagasafnið nokkuð gott og eitt lagið var með Charlatans, var alveg búinn að gleyma hvað þeir væru nú svalir og Wonderland platan góð. Man ég spilaði hana í tætlur fyrir c.a. 4 árum en hef lítið hlustað á hana síðan.
Rumour mill í Guardian er alltaf fyndinn dálkur og í dag tala þeir um að Arsenal hafa ráðið fjármálaráðgjafa, hana Coleen sem er frægust fyrir að vera kærastan hans Rooney og atvinnushopper. Margir orðaðir við Arsenal þessa dagana. Einnig vakti athygli mína að Dwight Yorke er allt í einu orðinn hot property eftir að hann skoraði tvö gegn "no-hopers Iceland" eins og greinarhöfundur orðar það. Alltaf gaman að sjá að okkar menn eru teknir alvarlega. Reyndar eignaðist víst Eiður sinn þriðja son í gærkvöldi....koma svo....þá bara 8 strákar eftir og við eignumst fínt landslið eftir 20 ár. Væri ekki hugmynd að gefa Eið bara "skotleyfi" á sem flestar konur á Íslandi? Þær hljóta að skilja það að við verðum að eignast lið sem kemst í lokakeppni HM/EM frekar fyrr en seinna.
1.3.2006
Gleðilegan bjórdag
Össsösss hvað ég var vitlaus að taka þennan blessaða U-21 leik fram yfir Barca-Chelsea í næstu viku (eða ítölsku ef því er að skipta). Ég einhvern veginn hélt að við gætum aðeins staðið í hárinu á skotunum og gæti verið svona smá "male bonding" hjá mér Mark og Chris (sem reyndar komst svo ekki þannig að það voru bara við Mark) í stúkunni. Boj ó boj hvað mér skjátlaðist. Við Mark mættum um leið og dómarinn flautaði leikinn á og vorum bara rétt að fá okkur sæti þegar Stevie Naysmith (sem var alger yfirburðamaður á vellinum, fór illa með vörnina okkar hvað eftir annað, hann spilar með Kilmarnock) komst einn innfyrir eftir misskilning í íslensku vörninni og skoraði strax eftir c.a. 30 sekúndna leik. Ekki byrjaði þetta því vel. Íslensku strákarnir voru algerlega úti á þekju í fyrri hálfleik og voru 3-0 undir eftir hálftímaleik. Það er eiginlega efni í doktorsritgerð hvað fór úrskeiðis hjá strákunum...ok...maður má samt ekki alveg tapa sér í gagnrýninni þar sem þetta eru bara stráklingar og eiga margt eftir ólært, en ég ætla bara að gera þá kröfu að menn sem spila með unglingaliðunum hjá Everton, Celtic, Hearts og Lokeren og eru hálfgerðir atvinnumenn að þeir eiga að geta sent 2m sendingu með 90% nákvæmni. Oft gerðist það að sendingin á leikmann var svona "næstum því" og hann þurfti að taka aukasnertingar til að ná boltanum undir control og þá var hann bara tæklaður. Besta færi okkar manna kom þegar varnarmaður Skota hreinsaði í afturendann á Hjálmari Þórarinssyni og í átt að markinu. Samskiptaörðuleikar í vörninni urðu til þess að Skotarnir sluppu hvað eftir annað inn. Markmaðurinn varði í tvígang vel í fyrri hálfleik þar sem önnur varslan var "point blank save". Þetta skánaði aðeins í seinni hálfleik en fjórða markið var klaufalegt þar sem boltinn fór í boga yfir markmanninn eftir hálfmisheppnað skot. Við fengum nokkur færi undir lokin og það sást glitta í smá spil en meira var það ekki. Málið er nefnilega að á tímum áttu strákarnir sín moments of glory, Theódór Celtic maður sólaði eitt sinn nokkra alveg snilldarlega og annar Viðarsbróðirinn tók einu sinni mjög vel við boltanum og snéri á Skota í sömu andrá (óþarfi að segja að það gerðist á miðjum vellinum og ekkert sóknarfæri skapaðist). Þannig að þetta er ekki af því að þeir eru svo rosalega lélegir, þeir geta alveg spilað bolta, ef sá gallinn er á þeim. Mér skilst að það hafi svipað verið upp á teningnum hjá A-landsliðinu.
Semsagt: Tímasóun í skítakulda á Firhill í gær og mér var nær að taka þetta yfir sófann heima í næstu viku.
28.2.2006
Lánasjóðurinn er stofnun sem allir elska að hata. Núna er ég að fá rukkun fyrir láninu mínu frá mastersnáminu 2001-2002 og maður bara borgar, þar sem ég er raunverulega ekki stúdent lengur. Ekkert við það að athuga enda borgar maður sínar skuldir. Hins vegar finnst mér eitt skrýtið. Gjalddagi á rukkuninni er 1. mars en eindagi 3. mars! Hvaða vitleysa er það eiginlega að hafa eindaga 2 dögum eftir gjalddaga? Fatta það ekki alveg
27.2.2006
Helgin
Búin að vera hasarhelgi. Við Christina vorum á fullu í DIY (do-it-yourself) í íbúðinni hennar en fórum í bæinn í gær og settumst niður í hádegismat með Snilldar-systurinni Hebu sem stoppaði í Glasgow á leið sinni til Manchester.
Fyrir nokkru rifum við upp teppin á ganginum og inni í einu herberginu og í ljós kom að þar undir voru þessar fínu fjalir sem þörfnuðust pússningar. Við leigðum svaka græju sem pússaði fjalirnar yfir helgina. Þetta var töluvert mikið verk og við náðum ekki alveg að klára allt. Rosalegur hávaði sem þessar græjur gefa frá sér þannig að það var ekki hægt að vinna þetta öllum stundum sökum tillitsemi við nágrannana. Við erum samt eiginlega búin og gólfin líta alveg glæsilega út. Næsta mál á dagskrá hjá okkur er að redda sér kvoðu til að fylla upp í sprungur og göt milli fjalanna og svo þrífa og lakka. Það verður þó að viðurkennast að það er aðeins kaldara með berar fjalirnar og held ég að það sé nú aðalástæðan fyrir öllum teppunum hérna, en ég er viss um að þegar það verður búið að þétta þetta allt, lakka og finna einhverjar fínar mottur þá verði þetta alveg jafn hlýtt og teppin og náttúrulega mun smekklegra. Við vorum svo þreytt í gær að við sofnuðum bæði klukkan 10, ekki oft sem maður vaknar klukkan 7 á mánudagsmorgni eftir 9 tíma svefn....mikið djöfulli var það gott að vera sæmilega hvíldur svona til tilbreytingar!
Hér smá sjá árangurinn á svæði sem er búið að slípa og eins og þetta var. Þetta er nú reyndar ekki alveg í fókus hjá mér en hvað um það. Seinna meir fórum við með minni vél meðfram veggjunum þar sem stóra náði ekki.
Christina mun hafa flottasta gólfið í Maryhill.
Annars er í í smá dilemma þessa dagana. Á þriðjudagskvöldum er ég í ítölsku eins og kannski áður hefur komið fram. Það varð þess valdandi að ég missti af Real-Arsenal í síðustu viku og varð að gera mér rangers leikinn að góðu á miðvikudeginum. Á morgun spilar U-21 lið Íslands við Skota og fer leikurinn fram á heimavelli Partick Thistle sem er í 10 mín göngufæri frá mér en á þriðjudaginn næsta spila Barcelona og Chelsea í Barcelona sem er í 106 mín göngufæri frá mér en ég næ honum í sjónvarpinu mínu sem er í 10-3 mín göngufæri frá sófanum (og jafnvel enn styttra þar sem geislinn í fjarstýringunni minni ferðast með hraða ljóssins). Mér er eiginlega ekki stætt á því að skrópa tvær vikur í röð í ítölsku (og langar það ekki þar sem það er gaman í þessum tímum) þannig að ég verð að velja á milli. Auðvitað er Barca leikurinn miklu betri leikur en ég held að lendingin verði að horfa á U-21 og styðja strákana. Líka langt síðan maður hefur farið á völlinn. Maður sér þá bara Arsenal-Real á miðvikudeginum 8. mars á pöbbnum. Það er reyndar alþjóðadagur kvenna og ég þarf að gera smá leit af blómategund til að gefa Christinu sem tíðkast að gefa á Ítalíu á þeim degi. Ég kaupi ekki þetta valentínusardags-sell out (btw...ég gef henni oft blóm...svona þegar þannig liggur á mér) en skal spila með á alþjóðadegi kvenna.
Nóg að gerast í mars: tónleikar með "Death cab for cutie", meira DIY, spilakvöld hjá Christinu (eins gott að vera búinn með DIY), ferð til Portsmouth (fljúgum niður en tökum næturlestina frá London heim og verðum í svefnklefa...það verður dáldið James Bond að sofa í lestinni) og maraþonsýning í Edinborg á Faust. Meira um það síðar.
24.2.2006
Meðal róna og dóna í Oklahóma...eða þjófa og bófa í Kent
Í fyrrakvöld var framið ansi stór rán þar sem allt að 50 milljónum punda var stolið. Þetta var alveg þaulskipulagt en virðist vera að falla saman núna þegar einhver kjáni fór með 6000 pund að borga uppsafnaða reikninga og svo virðist á fréttunum í dag að þetta þaulskipulagða plan er að hrynja eins og spilaborg vegna einna mistaka.
Oft hefur maður nú horft á glæpamyndir þar sem bófarnir eru hetjurnar...Ocean's 11 og 12, Italian job sem dæmi og oft hafa bófarnir verið "kúl á því" eins og David Niven í Bleika Pardusnum, hálfgerðar ofurhetjur, töffarar á daginn á skíðum eða kokteilboðum og svo klifra upp á húsþök og nappa stærsta demantshálsfesti í heimi á nóttunni, þannig að ekki einu sinni snillings-löggur eins og Jacques Clouseau geta haft hendur í hári þeirra.
Höfum náttúrulega alveg eitt á hreinu að þetta eru náttúrulega bara forhertir glæpamenn en þjófar sem eiga náttúrulega bara heima í djeilinu en það er samt eitthvað sem manni finnst...tja segi kannski ekki virðingavert en menn ættu að fá smá kredit fyrir þegar menn taka sig til og skipulegga svona stórt rán sem heppnast þar sem enginn meiðist (reyndar var frekar ógeðfellt hvernig 8 ára syni stjórans var hótað og konunni hans...en það er svosem annað mál). Hins vegar tekst mönnum aldrei að eyða svona miklum peningum...ekki geta þeir keypt sér hús eða sportbíl. Oft eru einhver ein mistök sem verða til þess að allt fellur um sjálft sig eins og virðist vera raunin hjá bófunum í Kent.
23.2.2006
Endaði með að horfa á rangers-Villareal í gær. Svosem ágætis leikur, Spánverjarnir sáu um að spila allan fótboltann meðan rangers grísuðu á tvö mörk (ok...markið hjá Lövenkrands var nokkuð gott...en ég bara þoli ekki þann leikmann). Juve virtust vera með þetta í hendi sér þegar 5 mínútur voru eftir en klúðruðu þessu með því að fá á sig 2 mörk undir lokin. Þeir eiga samt alveg sæmilegan sjens á heimavelli, 1-0 sigur þar dugar, en það átti líka að duga gegn Liverpool og þeir svarthvítu náðu ekki að skora í þeim leik og duttu út. Ég er til í Juve-Barca úrslitaleik.
Maður glottir í annað yfir óförum Chelsea, þetta var nú ansi soft rautt spjald Del Horno (þann graða?) en Mourinho fer á kostum í viðtalinu eftir leikinn....ekki sáttur.
21.2.2006
Because you're mine...
Fínasta helgi síðast, horfði á FA cup, myndina um Johnny Cash, "walk the line" og svo fórum við Christina and walked the line alla leið til Clydebank á sunnudeginum (sem var tæplega tveggja tíma ganga) og gengum meðfram síkinu.
Í ítölsku á eftir eigum við að skila inn verkefni þar sem við áttum að skrifa sögu "einu sinni var/c'era una volta" og nota sérstaka þátíð sem Ítalir nota sem heitir passato remoto og það á að nota um hluti sem gerðust í fjarlægri fortíð. Leiðinlegar þessar þátíðir ítalanna, við erum búin að læra þrjár og það eru víst fleiri til....ég ruglast alltaf hvenær á að nota hvað. Allavega...ég tók mig til og þýddi (í mjög grófum dráttum) söguna um hana Gilitrutt.
Ég er annars eyðilagður að þurfa að missa af Real-Arsenal og það sem verra er, er að það er ekkert víst að ég geti séð Chelskí-Barca vegna þess að rangers spila á sama tíma og allir pöbbarnir munu líklegast sýna þann leik. Held að mín eina von séu írskir/celtic pöbbarnir. Pabbi grísari verður rubbing shoulders með Óla grís (ekki grísara) og svíninu honum Abramóvitjs á Stamford Bridge. Ekki slæmt að komast á þann leik.
16.2.2006
You tell'em Pongolle...
Sinama Pongolle tjáir sig um stuðningsmenn Everton. Hann segir að hann hitti bara stuðningsmenn Everton....það séu bara Tælendingar og Íslendingar sem styðji Liverpool. Alvöru "scousers" (að undanskildum Paul og John) eru Everton stuðningsmenn. Orð í tíma töluð hjá þeim franska.
Brits
Held að Kaiser Chiefs séu vel að öllum verðlaununum komnir, enda stórgóð sveit þar á ferð. Skotarnir voru sáttir við að "þeirra manneskja" hún KT Tunstall hafi unnið ein verðlaun. Hef hlustað töluvert á plötuna hennar Eye to the telescope og er þar alveg fínasta popp á ferð. Mæli með henni. Mæli einnig með nýju Belle and Sebastian plötunni, The life pursuit, hún er á repeat hjá mér í ipodnum þessi dægrin
15.2.2006
Topp 5 listi síðustu vikna
| Belle and Sebastian: Funny little frog |
| Nick Cave: West country girl |
| Cat Power: The greatest |
| Arctic monkeys: I bet that you look good on the dancefloor |
| Decemberists: Engine driver |
14.2.2006
Skautar
Var að horfa á skautakeppnina í gærkvöldi og fannst ansi merkilegt að sjá kínversku stelpuna halda áfram eftir að hafa dottið harkalega. Af myndinni til hægri sést hvernig hún lendir illa á vinstra hnéinu og hún þurfti að taka smá pásu en lét sig svo hafa það að halda áfram og þau fengu silfurverðlaun. Þetta var samt held ég seinni hluti í keppninni og þau höfðu víst eitthvað forskot frá fyrri hlutanum. BBC gerir keppninni góð skil og það er hægt að horfa á búta frá hinu og þessu á vefsíðunni þeirra
Alltaf gaman að fylgjast með Ólympíuleikunum, þar sem maður horfir á alls konar íþróttagreinar sem maður myndi annars ekki setjast niður að horfa á.
Fratello piccolo
Sendi afmæliskveðjur til valsarans sem í dag fyllir aldarfjórðung mínus einn
13.2.2006
Fótboltaúrslitin um helgina voru ekkert annað en æðislega frábær, eins og eftir pöntun. Everton vann Blackburn 1-0 eftir að vera manni færri í um 70 mínútur. Everton er ekki mikið fyrir að skora fleiri en 1 mark í leik og dómarinn sá til þess að svo héldi áfram þar sem hann dæmdi hvorki fleiri né færri en 3 mörk af. Ekki oft sem Everton kemur tuðrunni 4 sinnum í netið löglega eða ólöglega. Það er nokkuð víst að það verður engin fallbarátta á Goodison og nú er bara stefnan sett á Evrópusæti....langsótt en verðugt markmið.
Celtic straujaði rangers 1-0. Straujaði segi ég af því að rangers gátu ekki neitt í öllum leiknum. Celtic var yfirburðalið á vellinum með Keane fremstan í flokki. Hann stjórnaði miðjunni og var valinn maður leiksins. Celtic með 13 stiga forystu á Hearts sem eru í tómu basli þessa dagana þar sem eigandinn er í CM leik og velur liðið....það eru alltaf allavega 3 Litháar eða lánsmenn frá Kaunas (fótboltalið í Litháen sem Romanov á einnig) inná og alger stjórnleysi. Þetta lítur ansi vel út hjá þeim grænu.
Juventus vann svo "derby d'Italia" eins og þessir leikir við Inter eru alltaf kallaðir. Ekki spillti nú að Del Piero setti sigurmarkið. 12 stiga forysta Juve í húsi en þeir eiga eftir að spila við Milan á Delle Alpi. Fljótlega á litið á Milan erfiðasta prógrammið eftir (milli Juve, Milan og Inter). Juve á reyndar einnig eftir nokkra erfiða leiki meðal annars útileik gegn Fiorentina en hatur milli þessara liða er rótgróið á Ítalíu. Ég er samt bjartsýnn fyrir hönd Tórínó strákanna.
Búið að vera mikið fjallað um ólympíuleikana hérna....eins og við var að búast. Mikil umfjöllun um Tórínó og viðtöl við hina og þessa...meðal annars vini mína í Agnelli fjölskyldunni, en þau eiga eitt stykki Fiat verksmiðju og eitt stykki frábært fótboltalið, Juventus. Alberto Tomba flottur í viðtali...talaði bara um sjálfan sig í 3. persónu eins og hann væri guð...magnaður. Berlusconi enn og aftur með gamanmál en um helgina líkti hann sér við Jesú. Silvio er alltaf með húmorinn í lagi. Ítalirnir alltaf hressir.
10.2.2006
Maggi þjófur
Ég er í smá dilemma. Í síðustu viku var ég að nördast í tölvunni minni í herberginu mínu og ákvað í einhverri rælni að leita af þráðlausum netum og viti menn...fann eitt sem ég gat tengst. Fannst þetta pínu eins og að vinna í lottóinu. Við erum með adsl heima en erum ekki með þráðlaust. Komst svo að því að þetta er netið hjá nágrannanum handan gangsins. Finnst aðeins verra að vita af því að ég sé að stela megabætum af honum....miklu betra að stela megabætum af einhverjum nafnlausum (svona hefur maður twisted réttlætiskennd). Raunar komst ég að því hver ætti netið þegar ég opnaði iTunes og gat þá af einhverjum ástæðum tengst músíksafninu hans sem btw er mjög gott. Reyndi að stela nokkrum plötum en fann ekki leið til þess. Skil reyndar ekki af hverju ég get séð músíksafnið hans gegnum iTunes.
Ætli maður reyni ekki að hætta að nota þetta net...það er bara svo þægilegt að geta verið online í herberginu sínu og þurfa ekki að tengjast inni í stofu. Náttúrulega er ein lausn á þessu að við Mark fáum okkur bara þráðlaust. Hef samt fullan hug á komast að hvernig maður geti komist til að afrita nokkur lög sem nágranninn á.
Við Christina erum að fara í leikhús í kvöld að sjá Closer. Man að þegar ég sá myndina fyrst, fannst mér samtölin vera furðuleg en það skýrðist þegar mér var sagt að þetta var upphaflega leikrit. Nú erum við semsagt að fara að sjá leikritið. Því miður verður Natalie Portman vinkona mín ekki með, en ég var farinn að hlakka til að sitja á fremsta bekk í atriðinu á strípuklúbbnum.
9.2.2006
Var að sjá að U-21 leikurinn við Skota verður spilaður á heimavelli Partick Thistle sem er einmitt hverfisliðið mitt. Maður sleppir ítölskunni þriðjudaginn 28 og skellir sér á völlinn.
Roy Keane skoraði sitt fyrsta mark fyrir Celtic í gær þegar þeir unnu Falkirk. Markið má sjá hér. Svo er bara stóri leikurinn á sunnudaginn gegn rangers, þeir þurfa reyndar sigurinn meira heldur en við en það væri náttúrulega æðislegt að sjá Celtic rúlla yfir þá.
Everton kafsigldir í gær. Reyndar var fyrsta markið mjög flott en þetta fannst mér ansi soft víti og eftir það var náttúrulega engin leið tilbaka. Mourinho montar sig af því að hafa ráðlagt Everton að kaupa Nuno Valente. Maður pælir hvort José hafi ekki bara verið að gera grín....Valente getur ekki neitt.
8.2.2006
Ef ég opna einhverntímann veitingastað, þá ætla ég að kalla hann Wristorante
7.2.2006
Fyrirlestur
Pabbi hans Marks er í Rotary samtökunum í Ayr og bað mig um að halda smá erindi um Ísland fyrir klúbbinn einhvern tímann í vor. Það hljómaði bara nokkuð vel enda innifalið frír kvöldmatur og jafnvel einn whisky. Maður þarf að leggja hausinn í bleyti um hvað maður eigi að tala. Hugmynd um að taka fyrir landnámið (reyna að grafa upp landnámsmenn frá Írlandi og Skotlandi), Íslendingasögurnar, stutt ágrip um söguna, ættfræði (mönnum finnst Íslendingabók merkileg) og eitthvað þess háttar. Svo bara smella upp nokkrum vel völdum myndum.
6.2.2006
Nick Cave
Við fórum á tónleika með Nick Cave í gærkvöldi þar sem hann spilaði í Royal Concert Hall. Fengum miða á besta stað, femsta bekk uppi á svölunum. Cave spilaði með 3 manna bandi, brjálaði gæjinn á fiðlunni, bassaleikara og trommara. Þessi fiðlugæji er alveg rosalegur....ekkert smá kúl hvernig hann nær þessum hljóðum út. Cave sjálfur er alltaf jafnsvalur, mætti að sjálfsögðu í flauelsjakkafötunum. Tónleikarnir byrjuðu á West Country Girl þar sem píanóið fékk að finna fyrir því. Hann spilaði lög af Abattoir blues/Lyre of Orpheus, Murder Ballads, No more shall we part og Boatman's call. Þetta voru tónleikar í anda þess þegar hann spilaði heima á Broadway og alveg af sama kalíberi, frábærir tónleikar og maður er eiginlega enn bara með gæsahúð. Hljómburðurinn í salnum var frábær, fullkominn salur fyrir flutning af þessu tagi. Milli laga kölluðu menn á óskalög og Cave spjallaði aðeins við salinn. Held samt að ein hafi hitt naglann á höfuðið þar sem hún kallaði á luralega Ástralann "You're a f$%&ing genius".
Ég tek undir það....Nick Cave er alger snillingur.
Brúðkaup
Við Mark fórum í brúðkaup þeirra Nikki og Campbell á laugardaginn. Brúðkaupið var haldið suður af Glasgow (í Ayrshire) á hóteli. Það er alltaf gott fjör í þessum brúðkaupum og þetta engin undantekning.
3.2.2006
Tölvuveirur
Þá verður víst enn ein tölvuveiran virk í dag. Hvernig er það með refsingu að þegar þessir tölvunördar sem skrifa þetta nást, væri refsingin að hver og einn sem hefur lent í basli með tölvuna vegna veirunnar fær að kýla nördinn einu sinni.
Leikur
Hérna má finna nokkuð skemmtilegan leik (ýta á bláa kringlótta takkan til að byrja), afbrigði af þrautinni með úlfinum, rollunni og heyinu sem þarf að ferja yfir ána. Persónur í þessum leik eru foreldrar, tvær dætur, tveir strákar, lögga og bófi. Reglurnar eru eftirfarandi
| Aðeins foreldrarnir tveir og löggan geta stýrt bátnum, bátur ferjaður yfir með að ýta á rauðu takkana beggja megin við ána |
| Bófinn verður alltaf að fara með löggunni |
| Móðir getur aðeins ferjað dóttur fyrir og faðir getur aðeins ferjað son yfir |
| Bannað að skilja eftir föður einan með dætrum og móður eina með sonum |
| Ræninginn sparkar í alla nema löggan sé hjá honum |
Þrautin felst í að ferja alla yfir ánna.
| Upphafsstaða | Mér hefur tekist að ferja alla yfir. Þegar það klárað sést að þessir japanir eru allir stuðningsmenn Lazio! |
2.2.2006
Jæja þá er búið að reka Souness, kominn tími til. Þetta er svosem alveg borðleggjandi hvað gerist svo í sumar. Sven tekur við Newcastle og Souey fer til rangers.
Svo finnst mér bara að Silvía Nótt eigi að fá "tremma"-mörg stig í Júróvision....þetta er mjög fyndið lag
1.2.2006
Í ítölskutíma í gær vorum við að hlusta á samtal þar sem Dino Zoff, var að panta borð á veitingastað fyrir hann og Segio Cragnotti (sem er eigandi eða stjórnarformaður Lazio). Ég skildi nú lítið í því sem hann var að segja en þekkti kappana. Gott ef þetta hafi ekki bara verið Zoff sjálfur sem las inná þar sem hann muldraði bara. Þeir sem hafa hlustað á Zoff í viðtölum vita að hann muldrar bara eitthvað í bringuna á sér. Viðtöl við Zoff eru ítalska útgáfan af viðtölum við Steven Gerrard.
Fór í gær og keypti heimsskauta-apana í Arctic Monkeys, ákvað að bíða aðeins með að kaupa diskinn þar sem ég vildi ekki leggja mitt að mörkum að þær næðu að slá út Definitely Maybe sem söluhæsta debut-platan í UK. Ég taldi mér óhætt í gær og eftir tvær hlustanir er ég enn að mynda mér skoðun á þessu. Get samt ekki alveg tekið undir þetta rosalega hæp, tónlistarblöðin að gefa þessu fullt hús. Nokkur mjög góð lög þarna samt og náttúrulega "I bet that you look good on the dancefloor" er alveg geggjað kúl. Held áfram að hlusta á apana.
30.1.2006
Lottó
Um helgina var potturinn í evrópulottóinu 100 milljón pund. Það eru svo miklir peningar að það er eiginlega bara fyndið. Auðvitað smellti maður nokkrum línum á þetta og hafði samtals 1 réttan eða eitthvað álíka.
Tónleikarnir á föstudaginn voru skemmtilegir, við Christina drógum meðalaldurinn niður um 70 ár. Næsta föstudag verður klarinettukonsertinn spilaður, langar dáldið á það en maður sér til.
27.1.2006
Hann á afmæl' í dag...

Eins og væntanlega hefur ekki farið framhjá neinum, er Mozart 250 ára í dag. Af því tilefni ætlum við Christina að fara á tónleika í kvöld þar sem 21. píanókonsertinn verður spilaður (Elvira Madigan). Það er alltaf fínt að hlusta á smá klassík svona við og við.
Loksins loksins
...er ég búinn að skila af mér greininni frá því á ráðstefnunni síðasta sumar. Hún var eiginlega reddí þá og það er búinn að vera ansi lágur samleitnihraði á henni síðan þá. Hún er allavega núna komin úr mínum höndum. Eitt sem ég er dáldið ósáttur við...kannski ekki ósáttur en meira svona pirraður, er pólitíkin sem er í kringum svona greinaskil. Nicky vildi hafa þessa tvo lækna með sem höfunda, þótt að þeir hafi nú ekki gert neitt varðandi þessa grein per se. Þeir hafa verið að ráðleggja henni aðeins varðandi hennar vinnu og eru jú skrifaðir líka fyrir styrknum sem heldur mér í vinnu. Tímaritið segir að þeir sem komi að ráðgjafavinnu ættu ekki að vera titlaðir höfundar heldur eiga nöfn þeirra að koma annars staðar fyrir. Nicky vill samt ekki styggja þá því að hún þarf að hafa þá góða þegar kemur að næstu styrkumsókn. Þannig að núna er 7 höfundar að greininni....en ég er fyrsti höfundur þannig að það skiptir svosem ekki meginmáli fyrir mig hverjir eru með og hverjir ekki. Allavega mun ég núna setja kröfu á að mínu nafni verði skeytt á einhverjar greinar sem ég kannski hef ekki verið aðalmaðurinn að skrifa. Svona virkar rannsóknarpólitík.
26.1.2006
Ég varð nú fyrir skömmu stoltur ipod eigandi og hef verið að setja safnið mitt þar inná. Ég hef alltaf raðað digital músíkinni minni nokkuð skilmerkilega í möppur og hef notað windows spilara til að spila. Maður bara velur lagið úr möppunum og gerir add to playlist (nú eða bara slær á "enter"). Einnig hef ég náð í öll plötuumslögin þannig að mynd af umslaginu kemur upp þegar ég spila lag af plötunni sem því tilheyrir. Til þess að geta hlaðið ipod-inn þá verður maður að fara að nota itunes og ég er ekkert sérlega hrifnn af því forriti. Maður svosem skilur að það sé nauðsynlegt að hafa "tögin" öll eins, en það er reyndar leiðindavinna að breyta þeim öllum, t.d. er Nick Cave, Nick Cave and the bad seeds, Nick Cave & the bad seeds, Nick Cave & the Badseeds í augum itunes 4 mismunandi hljómsveitir. Einnig er frekar hvimleitt þegar gestaspilarar koma fyrir. Sem dæmi nefni ég plötu með Ray Charles ásamt hinum og þessum. Þannig að einn "artist" í ætjúns heitir Ray Charles/Norah Jones meðan annar heitir Ray Charles/BB King. Það þyrfti að koma upp dálki sem nefnist "featuring", þá gæti maður haft Ray Charles sem aðalflytjanda (og lagið yrði geymt undir hans nafni) og þá Nóru Djóns eða BíBíkíng sem aukaflytjanda. Svo er þetta mál með plötuumslögin. Þau koma sjálfvirkt upp þegar maður afritar diska í Media player og er nettengdur. Hvað windows gerir við þessar myndaskrár veit ég ekki. Mér skilst að windows setji myndirnar í sömu möppu og lögin og nefni þær "folder.jpg" en mér tekst ekki að finna þær (ekki hidden files heldur). Hins vegar ef ég reyni að vista mynd í möppunni með sama nafni fæ ég villumeldingu sem segir að það sé fyrir slík skrá og það sé ekki hægt að yfirskrifa. Ekki er hægt að setja myndirnar af umslögunum beint inn í itunes, þannig að maður er búinn að eyða slatta tíma á allmusic.com að leita af réttum plötuumslögum og setja þau handvirkt inn...frekar leiðinlegt. Það fer samt bráðum að komast lag á þetta allt.
Topp 5
| Hjálmar og Múgison: Ljósvíkingur ég var bara grand á því og setti eitt eintak af laginu undir Hjálma og annað undir Muginson |
| Johnny Cash: Big River opnunarlagið á San Quentin tónleikunum, er spenntur að sjá myndina um kappann |
| Benny Goodman og Peggy Lee: Blues in the night |
| Beethoven: Erkihertogatríóið |
| Mugison: A little tip to heaven |
Miklar fótboltapælingar eru alltaf í gangi á Skaganum og halda nokkrir Skagamenn (og einstaka kr-ingur) úti síðu þar sem mest áhersla er lögð á umræður um Manchester United en einnig er getraunakeppni þar sem ég er skráður til leiks. Ein keppni með deildarfyrirkomulagi fyrir premier league og ein með útsláttarfyrirkomulagi fyrir FA cup. Það vill svo skemmtilega til að um helgina "spila" ég við Reyni í bikarkeppninni. Ég er það sigurviss fyrir leikinn að ég get alveg ljóstrað því upp að Everton mun vinna Chelsea 1-0 um helgina.
25.1.2006
Burn's supper
Í dag er afmælisdagur Robert Burns og af því tilefni borða allir haggis í dag. Við Christina ætlum að elda haggis og "neeps and tatties" í kvöld en svo fer ég með köllunum á verkstæðinu hérna í haggis í hádeginu á föstudag. Mér finnst slátur vont en haggis er gott.
Það var nú smá flashback á Baldursgötuárin þegar maður fékk sér Eldsmiðjupizzu (peperoni special) og víking bjór á mánudagskvöldið. Hafði ekki fengið mér þetta í langan tíma og gaman að endurnýja kynnin. Eina sem vantaði eiginlega var Turkis pepper brjóstsykur í eftirmat og mót í Isspro fótboltaleiknum.
Fótbolti
Alltaf hélt ég að Sven væri dáldið klár en það var bara reginmisskilningur. Hann er líklegast vitlausari en Beckham. Einhver þykist vera Sjeik og Svenni bara opnar sig og verður að hætta í kjölfarið. Þetta er líklegast ekki til að bæta móralinn í enska landsliðinu. Væri ekki hægt að bjóða honum að verða aðstoðarmaður hans Eyjólfs, það mætti kannski bjóða honum upp á Sjeik frá ísbúðinni vestur í bæ....nú eða bragðaref!
Atli Eðvaldsson kominn upp á kant við annan leikmann Þróttar. Mikið hlakka ég til að lesa pistilinn hans þegar/ef hann kemur. Þessi pistill Atla um feita fyrirliðann Pál Einarsson sem borðaði bara júmbó samlokur með rækjum og hætti alltaf snemma á lyftingaræfingunum var með því fyndnara sem ég hef lesið.
23.1.2006
Jarðarförin á föstudag var mjög fín bara, á undan spilaði tríó Reykjavíkur tvo kafla úr erkihertogatríóinu eftir Beethoven. Vinir hans og starfsfélagar báru hann út úr kirkjunni en ég ásamt Brynjari, George, Bjössa, Thor, Munda, Gunnari Snorra og Mása bárum hann síðasta spölinn í Fossvogskirkjugarðinum. Hann hvílir nú við hlið móðurbróður síns. Fjöldi manns var í erfidrykkjunni á eftir og maður hitti fullt af fólki sem maður hafði ekki séð lengi. Úr varð bara fínasta partý, ekkert svona allir sitja við sitt borð með kaffi, en bara rauðvín, hvítvín, kransakaka og konfekt. Maja, Erna, George, Sofia, afi og amma komu svo til okkar í meira rauðvín og mat. Sofía var án efa stjarna kvöldins.
Hef nú ekki haft mikið fyrir stafni, held utan aftur á morgun og þá þarf maður að fara að vinna að þessari ritgerð minni. Fór í gær og horfði á fótbolta, þetta mark Rio gerð ekkert sérlega góða hluti fyrir draumaliðið mitt. Snilldarúrslit samt um helgina....þrennuhelgi aðra helgina í röð. Ekki slæmt það.
18.1.2006
Kominn heim aftur til þess að kveðja Kjartan í síðasta sinn. Mikið svakalega var kalt í gær.
Annars það sem hefur á mína daga drifið síðan síðast var að við fórum á Belle&Sebastian tónleika og á nýju Woody Allen myndina Match point. Mæli með hvoru tveggja. Christina sá um að við höfðum nóg fyrir stafni um helgina
13.1.2006
Kjartan frændi
Kjartan frændi minn dó í morgun eftir langvinn veikindi langt fyrir aldur fram. Ég hitti hann í síðasta sinn á aðfangadag þar sem við sátum í bókaherberginu hans í Hlíðarhjallanum og ræddum verkefnið mitt, hvað væri gaman að sýna Christinu á Íslandi, bókaeignir og hversu fashanar væru góðir á bragðið. Þegar ég var yngri, þá bjuggum við alltaf í námunda við Kjartan og fjölskyldu, bæði á Laugarveginum og í Hlíðunum, þannig að það var alltaf töluverður umgangur þar á milli. Kjartan var oft að aðstoða mig með stærðfræðina milli þess að ég og Erna spiluðum "winter olympics 1988" leikinn á apple tölvunni hans (þið vitið....þessi fyrsta tölva sem var í laginu eins og kubbur) sem og einhvern einfaldan stríðsleik sem hafði valkyrjurnar eftir Wagner spilað í bakgrunni sem var nokkuð skondið þar sem Kjartan var alltaf hrifinn af Niflungahringnum. Út skólagönguna hjá mér frá Vogaskóla, MR og HÍ, var Kjartan oft að hjálpa mér með stærðfræðina og svo kom loks að því að hann varð kennarinn minn. Maður svona reyndi að halda því leyndu til að byrja með en einhver sá það að fangamörkin okkar KGM og MKG væru fulllík og kveikti á perunni. Held jafnvel að margir hafi jafnvel kallað hann Kjartan Gísla (en millinafnið hans er Guðmundur). Áður en þessi tengsl okkar komust upp, gerði ég dáldið af því að hlera hvernig menn fíluðu Kjartan og það voru allir á sama máli um að hann væri mjög góður kennari. Það var þó alltaf einn kvilli sem fylgdi, hann var örvhentur og strokaði allt jafnóðum út á töflunni sem hann skrifaði (kannski ekki alveg allt, en það er vissulega erfitt að skrifa örvhent á töfluna), en það var svona meira sagt í gríni en alvöru. Eins og ég sagði áður þá kenndi Kjartan okkur í verkfræðinni stærðfræðigreiningu IIIB og ég man að ég reyndi töluvert á mig í þeim kúrs til þess að valda honum ekki vonbrigðum, held að það hafi alveg sloppið til. Kjartan hefði alls ekki látið mig fara létt í gegnum það.
Kjartan var alltaf mikill húmoristi og Helga systir kallaði hann stundum "leikarann" af því hann var alltaf til í að leika við hana sem barn.
Þegar maður frétti af veikindunum var það eins og að fá högg í magann, man ég frétti það fyrst skömmu fyrir leik leik Íslendinga og Dana haustið 2000, við hverja frétt um að veikindin ágerðust fékk maður enn högg á magann en lokahöggið var reitt af í morgun. Kannski maður hafi verið búinn að undirbúa sig aðeins undir það en það er alveg jafnsárt samt sem áður.
Kjartans verður saknað af vinum og fjölskyldu en eitthvað þykir mér líklegt að 1 og hálfs árs kríli muni verða ljósið á þessum myrku dögum fyrir fjölskylduna í Kópavoginum.
Kv.
Magnús Kjartan